Morgunblaðið - 25.07.1981, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 25.07.1981, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ1981 Um 50 Loftleiðaflugmenn samþykktir félagar í FIA FÉLAGSFUNDUR í Félagi ís- lenzkra atvinnufluKinanna. FÍA, samþykkti i fyrrakvold tæplejta 50 inntökubeiðnir flujjmanna, sem verið hafa félagar i Félajfi Loftleiðaflugmanna ok eru þá fluKmenn allir komnir i eitt ok sama stéttarfélaKÍð. Áður munu um 10 LoftleiðafluKmenn hafa verið féla^ar í FÍA. Kristján Egilsson, formaður Fé- lags íslenzkra atvinnuflugmanna kvað nú flesta ef ekki alla at- vinnuflugmenn félaga í FÍA. Líf- eyrissjóður er og hefur verið sameiginlegur þann tíma, sem Félag Loftleiðaflugmanna hefur starfað sem stéttarfélag. Kristján kvað félaga innan FIA nú eftir inngöngu félaga FLF vera um 180 talsins. Kristján sagðist fagna því, að flugmenn skyldu hafa náð saman í eitt félag. Hann kvaðst vona, þótt enn kynnu að vera ýmis ljón á veginum, að eðlilegt samstarf tækist milli manna og menn gerðu lítið úr þeim vandamálum, sem upp kynnu að koma. Slíkt myndu menn reyna að leysa innan félags- ins í bróðerni. „Það er engin spurning um það, að bæði kjör og ýmislegt fleira, sem flugmenn eiga að starfa að varðandi öryggismál og annað, hefur því miður orðið út undan þann tíma, sem við höfum þurft að eyða tíma okkar í að kljást hverjir við aðra. Það er af mörgu að taka og mikil verkefni framundan," sagði Kristján Eg- ilsson. Albert Guðmundsson borgarfulltrúi: Alla tíð verið á móti úti- tafli og Tjarnarbryggjum „ÉG IIEF alla tið verið á móti útitaflinu og bryggjunum sem setja á við Tjörnina. og er einn talsmaðurinn gegn þessum hug- myndum,“ sagði Álbert Guð- mundsson, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, i samtali við Morgunblaðið, er hann var spurð- ur álits á þessum málum. „Á borgarráðsfundi síðastliðinn þriðjudag sátum við Davíð Oddsson hjá við atkvæðagreiðslu um breytingartillögu frá bygg- ingarnefnd. þar sem lagt var til að tröppur yrðu felldar niður af teikningu. en þannig vill til að á þessum stað voru tröppur fyrir mörgum árum. Byggingarnefnd Indriði G. Þorsteins- son kjörinn formaður stjómar Reykjaprents Á AÐALFUNDI Reykjaprents hf„ útgáfufélags Vísis, var lögum breytt og aðalmönnum i stjórn fjölgað úr 5 i 9. Á fyrsta stjórn- arfundi, sem haldinn var i gær, var Indriði G. Þorsteinsson kjör- inn stjórnarformaður, en Hörður Einarsson baðst undan endur- kjöri. Þá var á aðalfundinum staðfest hlutafjáraukning um 150 m.gkr. í aðalstjórn eru nú Baldvin Tryggvason, Guðmundur Guð- mundsson, Hörður Einarsson, Indriði G, Þorsteinsson, Ingi- mundur Sigfússon, Óttar Yngva- son, Pétur Björnsson, Sigfús Sig- fússon og Þórir Jónsson. Einnig var fjölgað í varastjórn úr 2 í 4 og skipa hana nú Böðvar Valgeirsson, Davíð Guðmundsson, Halldór Jónsson og Kristján G. Kjartans- LÁTINN er á Borgarspítalanum í Reykjavik Ingþór Jóhann Guð- laugsson, 35 ára lögreglumaður til heimilis að Vallholti 39 á Selfossi. Slasaðist hann er bill, sem hann vann að viðgerð á, féll ofan á hann og komst hann ekki til meðvitundar eftir slysið. Um 50 tonn voru seld ALLS seldust um 50 tonn af tómöt- um þær tvær vikur, sem Sölufélag garðyrkjumanna tilkynnti lækkað verð á tómötum. en verðið var lækkað úr 30 kr. í 17 kr. hvert kíló i heildsölu eða um 43,3%, en hefur nú hækkað aftur í 30 kr. kg og er hækkunin 76,5%. Þorvaldur Þorsteinsson fram- kvæmdastjóri SFG tjáði Mbl., að alls hefðu selst 49.974 kg á þessum hálfa mánuði, sem væri tvöföld sala miðað við það sem venjulegt er. Verðið er nú aftur 30 kr. fyrir kílóið í heildsölu. í næstu viku eru væntan- legt á markað hvítkál, blómkál og rófur, Fjögurra ára drengur lézt í slysi í Svíþjóð FJÖGURRA ára drengur, Ingvar Ernir Pálsson, lézt í umferðar- slysi skammt frá Uppsölum i Svíþjóð sl. fimmtudag. Hann var sonur hjónanna Kristínar Hjörleifsdóttur og Páls E. Ingvarssonar. Var fjölskyldan, hjónin og tvö börn, á ferð í einkabíl og hann fór útaf veginum og valt. Kastaðist drengurinn út úr bílnum og lézt samstundis. sá ástæðu til þess að gera tillögu um að fella þessar einu tröppur niður,“ sagði Albert. „Allt frá því ég tók sæti í borgarstjórn hef ég gert tillögur um að fé yrði veitt til lagfæringar á Tjarnarbökkunum, en illa gekk að fá samþykkta fjárveitingu fyrir þeirri framkvæmd, allt þar til í fyrra, en þá var samþykkt að veita fé til lagfæringar á eystri Tjarnar- bakkanum, en hann er stórhættu- legur. Peningunum sem fara áttu í lagfæringu á bakkanum hefur nú verið veitt í Tjarnarbryggjurnar. Ég mótmælti þessu harðlega. Það á að taka þessa peninga, og nú á að setja þá í útitaflið, vegna þess að það er orðið dýrara en gert var ráð fyrir í upphafi. Þetta þýðir það að austurbakki Tjarnarinnar verður áfram eins og hann er, stórhættu- legur fólki," sagði Albert. „Ég hef á öllum stigum þessa máls greitt atkvæði gegn þessum hugmyndum um bryggjur við Tjörnina og talað gegn útitaflinu, en ég sat hjá við lokaafgreiðslu þess rnáls," sagði Albert Guð- mundsson að lokum. Margir árekstr- ar í Reykjavík ÓVENJUMARGIR árekstrar urðu I gærdag i umferðinni i Reykjavik, en lögreglan kunni engar sérstakar skýringar á þvi, nema hvað umferð var mjög mikil. Voru alls 18 árekstrar frá hádegi og fram að kvöldmat. Engin slys urðu á fólki, en í einu tilviki var ekið á hjólreiða- mann, sem slapp ómeiddur. Þá var á miðvikudagskvöld ekið á Ijósastaur við Hringbraut, skammt austan Birkimels. Hafði ökumaður misst stjórn á bílnum er eitt hjólið rakst utan í gangstéttarbrún. Danska skipið sigldi á stjórnborðssíðu Berglindar og kom gat á skipið neðan sjólinu, auk þess sem skemmdir urðu á lunningu og gámum eins og sjá má á myndinni. Þegar sjórinn komst i framlest Berglindar seig skipið talsvert að framan og komu þá stýri og skrúfa þess upp úr. Á myndinni má sjá einn af bátum kanadisku strandgæzlunnar koma til aðstoðar. Síðustu stund- ir Berglindar FLUTNINGASKIPIÐ Berglind sökk síðastliðinn mánudag eftir árekstur við danskt skip daginn áður. Berglind var í eigu íslenzkra kaupskipa hf., dótturfyrirtækis Eimskipafélags íslands, en var skráð í Singapore. Morgunblaðinu hafa borizt myndir, sem teknar voru af Ingimar H. Reynissyni skipverja á Berglind og sýna þær nokkuð aðstæður er óhappið vildi til og skemmdir á skipinu. Það rétt grillir i skipverjana á Berglind er þeir yfirgefa skipið í niðaþokunni, sem lá yfir öllu er áreksturinn varð. Trúnaðarmenn starfsmanna ÍSAL: Hvetja til eðlilegra við- ræðu- og samningaleiða TRUNAÐARMENN starfsmanna ÍSAL gengu á fund iðnaðarráð- herra í fyrradag að beiðni ráð- herra. Trúnaðarmennirnir gáfu síðan út í gær eftirfarandi til- kynningu til starfsmanna ÍSAL: „Undanfarna daga hafa fjöl- miðlar fjallað um súrálsmálið svokallaða og þá sérstaklega um túlkun iðnaðarráðuneytisins á skýrslu Coopers og Lybrand og svör Alusuisse. Ohjákvæmilega hafa ISAL og starfsmenn þess dregist inn í þessa umfjöllun fjölmiðla. Trúnaðarmenn starfsmanna hafa reynt að kynna sér þetta mál, með það sérstaklega í huga að tryggja hagsmuni starfsmanna við álverið. A fundi með iðnaðarráð- herra, sem hann boðaði til í gærmorgun með fulltrúum trúnað- armanna hjá ÍSAL, gerði hann grein fyrir sjónarmiðum sínum og ráðuneytisins í þessari deilu og lagði áherslu á að hún hefði engin áhrif á atvinnuöryggi starfsmanna ÍSAL. Þá hafa fulltrúar trúnaðar- manna einnig setið fund með forsvarsmönnum ÍSAL og kynnt sér sjónarmið fyrirtækisins og Alusuisse. Fram kom í viðræðunum við iðnaðarráðherra og forsvarsmenn ÍSAL, að þeir hafa fullan hug á að fyrirtækið geti vaxið og dafnað á eðlilegan hátt. Ljóst er, að ágreiningurinn milli iðnaðarráðuneytisins og Alusuisse er um það, hvort farið hafi verið eftir ákvæðum samninga um verð- lagningu á súráli til ISAL. Þar leggja aðilar mismunandi mat á, hvaða verð sé eðlilegt til viðmiðun- ar í samningum óskyldra aðila. I þessum viðræðum hafa full- trúar starfsmanna lagt áherslu á að tryggja verði atvinnuöryggi 0g hagsmuni starfsmanna, og að ágreining Alusuisse og ríkis- stjórnarinnar verði að leysa eftir eðlilegum viðræðu- og samninga- leiðum. Örn Friðriksson.“

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.