Morgunblaðið - 25.07.1981, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 25.07.1981, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ1981 Frá setninKarathöfninni. Dr. Ingimar Jónsson, forseti Skáksambands íslands i ræðustól. IfeÍKÍ Ólafsson hámar i sig jónúrt i upphafi skákarinnar við Margeir. Virðist svo sem jógúrtin hafi gefið Helga aukinn kraft eins og Karpov forðum i einvíginu við Korchnoi. En i einviginu á Filippseyjum lót Karpov matsvein sinn útbúa jógúrt i miðjum skákum við litlar vinsældir Korchnois, sem taldi að kokkurinn hefði sett örvandi lyf i jógúrtina. Tilþrif hjá Helga í 1. umferð Það var fátt sem gladdi augað í 1. umferð á skákþingi Norður- landa sem hófst í Hamrahlíðar- skólanum á fimmtudaginn. Keppendur í úrvalsflokki voru ekki í miklum baráttuhug því alls lyktaði 4 skákum með skipt- um hlut. Hins vegar sigraði Ornstein Færeyinginn Hansen og Helgi Ólafsson lagði Margeir Pétursson að velli á snaggara- legan hátt. Aðstæður til skákmótahalds eru ágætar í Hamrahlíðaskólan- um en þó er lýsingin vægast sagt afleit og verða mótshaldarar að bæta úr því hið bráðasta. Ann- ars er rétt að benda mönnum á að láta þennan skákviðburð ekki framhjá sér fara því eflaust verður keppni mjög spennandi og jafnvel skemmtileg. Hvítt: Margeir Pétursson Svart: Helgi Ólafsson Rétibyrjun: 1. d4 - Rf6, 2. c4 - e6, 3. g3 — c5, 4. Rf3 — cxd4, 5. Rxd4 — d5, 6. Bg2 - e5!? Þessi leikur sem oft leiðir til skemmtilegra sviptinga er í miklu uppáhaldi hjá Helga. 7. Rf3, Aðrir möguleikar voru 7. Rb3 eða 7. Rc2 - d4, 8. 0-0 Vitaskuld ekki. 8. Rxe5 — Da5+, og riddarinn fellur. — Rc6, 9. e3 — Bc5, 10. exd4 — exd4, 11. Oel+ - Be6,12. Rg5 - 0-0,13. Rxe6 Ekki gengur 13. Hxe6 — fxe6,14. Rxe6 — Db6,15. Rxf8 — Hxf8, 16. Db3 — Rg4 og svartur stendur mun betur að vígi. — fxe6, 14. Rd2 Eftir 14. Hxe6 — d3, 15. Bxc6 - bxc6, 16. Be3 (16. Hxc6? - Bxf2+!) - Bd4!, 17. Rc3 - Dd7, 18. Dxd3 - Dxe6, 19. Dxd4 — Had8, hefur svartur yfirburðastöðu. (Nenasev — Kasparov 1978.) — Dd6!?, Einn- ig kom til greina að leika 14. — d3 eða 14. - Db6, 15. Re4? Hvítur eyðir tíma í óhagstæð uppskipti. Betri leikur var 15. Skák eftir Jóhannes Gísla Jónsson Rb3 sem svartur getur svarað með 15. — b6 eða 15. — Bb6, 16. c5 — Bxc5, 17. Rxc5 — Dxc5, 18. Hxe6 og staðan er í jafnvægi. — Rxe4,16. Bxe4 — d3! Eftir þennan leik má heita að óleysanleg vandamál blasi við hvítum. 17. Be3 Eftir 17. Bf4 á svartur um tvær skemmtilegar leiðir að velja: 17. Bxf2+, 18. Kxf2 — e5, eða 17. — Hxf4!? 18. gxf4 — d2 og í báðum tilvikum er staða svarts vænleg. - d2!, 18. He2 - Bxe3, 19. Hxe3 - Had8, 20. Kg2 - Dd4, 21. Hbl En ekki 21. b3? - Dxal!. - Hf6, 22. Bc2, 22. Bxc6 - bxc6, 23. He2 var örlítið lífvænlegri möguleiki. — Re5, 23. Dgl Eða 23. Dfl - hxf2+!, 24. Dxf2 - Rg4 og vinnur. — Rg4, 24. Hd3 Eða 24. He4 - Dxf2+, 25. Dxf2 - Rxf2 og svartur vinnur lið. — De4+ og svartur gaf. Lokastaðan verðskuldar stöðumynd. Hermannabók- in í nýrri útgáfu Akurpyri. 18. júli. Árni Bjarnason bókaútgefandi og Bókaútgáfan Skjaldborg á Akureyri hafa nú ráðist í það stórvirki að ljósprenta og gefa út aftur Minningarbók íslenskra hermanna 1914 — 1918, sem upphaflega kom út á vegum Jóns Sigurðssonar-félagsins í Winnipcg 1923, en er nú löngu ófáanleg. Mjög er til hinnar nýju útgáfu vandað. Bókin er prentuð á myndapappír og hundin í íslenskt skinnband með upphleyptum kili af Ragnari Eiríkssyni, bókhandsmeistara, sem nú er talinn í fremstu röð íslenskra b(')kbindara. I bókinni eru myndir og ævi- ágrip um 1200 manna og kvenna, sem tóku þátt í fyrri heimsstyrj- öldinni, ýmist með vopn í hendi eða með líknarstörfum. Talið er, að 1245 íslendingar hafi gengið í herþjónustu í herjum Kanada og Bandaríkjanna, þar af var 391 fæddur á íslandi. 144 íslenskir hermenn létu lífið í styrjöldinni, þar af féllu 94 í orrustum. í bókinni er inngangur eftir sr. Rögnvald Pétursson, sem birtist í fyrri útgáfu, en nú ritar Árni Bjarnason einnig rækilegan formála, sem mikill fengur er að. Upplag bókarinnar er mjög lítið eða aðeins 600 eintök og kosta 600 krónur til áskrifenda, en söfnun þeirra stendur nú sem hæst. Bókin verður ekki send í bókabúðir, en fæst afhent í prentsmiðjunni Skjaldborg eða Bókaversluninni Eddu, Akur- eyri. Árni Bjarnason hefir um langt skeið unnið mikið og merkilegt starf að þeirri hugsjón sinni að efla tengsl íslenskra manna báð- um megin Atlantshafs með út- gáfu öndvegisrita Vestur- Islendinga til þess að gefa sem flestum kost á að eignast úrval þess, sem prentað hefir verið á íslensku vestanhafs, og kynna sem flestum bókmenntaiðju landa okkar og veita innsýn í líf og störf þeirra mörg þúsund íslendinga, sem fluttust vestur um haf, og niðja þeirra. Meðal þessara rita má nefna Almanak Ólafs S. Thorgeirssonar, 60 ár- ganga, 1895—1954, „Framfara", fyrsta blaðið, sem prentað var á íslensku í Vesturheimi, 1877— 1880, ritsafn Jóhanns Magnúsar Bjarnasonar í 6 stórum bindum að ógleymdum mörgum ævisög- um merkismanna, þjóðsögum, sagnaþáttum (Að vestan) og öðrum ritum, sem snerta sögu Vestur-íslendinga. Minningarrit íslenskra her- manna er enn eitt átak Árna í þessum efnum með drengilegum stuðningi Bókaútgáfunnar Skjaldborgar og er síst að efa, að þessi merka bók verði mörgum bókamönnum og áhugamönnum um ættfræði kærkomin. Sv.P. Björn Eiríksson forstjóri Skjaldborgar, Árni Bjarnason bókaútgefandi og Svavar Ottesen prentari, með nýju bókina. Brúnum Wagoneer- jeppa stolið STÓRRI jeppabifreið, Wagoneer árgerð 1974, kaffibrúnni að lit, var stolið aðfaranótt miðviku- dags á Öldugötu i Reykjavík, en bifreiðin sem hefur skrásetningu R-5003 er á breiöum dekkjum. Bifreiðin er klædd að innan með ljósu galloni, en lakk og innri klæðning er farin að láta á sjá. Þeir sem hafa orðið varir við R-5003 eru beðnir að láta lögregl- una vita. EMIL Magnússon kaupmaður i Grundarfirði, sem um árabil hef- ur verið fréttaritari Morgun- hlaðsins þar, er sextugur i dag, 25. júli. Er honum árnað heilla i tilefni dagsins. Gjörningur í Nýlistasafninu TVEIR danskir listamenn munu i dag sýna i Nýlistasafninu við Vatnsstig 3b i Reykjavik. Bjóða þeir áhorfendum að taka þátt i sýningu sinni, en listamennirnir eru Mette Arre og Jens Jörgen Thorsen. Jens Jörgen Thorsen er kvik- myndagerðarmaður og rithöfundur, búsettur í Svíþjóð og Frakklandi, en hann er m.a. þekktur fyrir þátt sinn í kvikmynd um kynlíf Jesú Krists, sem víða var bönnuð. Mette Arre skáld og listamaður er búsett í Svíþjóð, en hún tók fyrir nokkru þátt í sýningum á Korpúlfsstöðum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.