Morgunblaðið - 25.07.1981, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 25.07.1981, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ1981 Ungfrú alheimur krýnd Titilinn hlaut Irene Saez, frá Venezúela. Krýningin fór fram á þriðjudag í New York. Fomvinur brúðgumans boðnar með kóngafólki Yfírmaður CIA sætir gagnrýni vestanhafe Washington, 24. júlí. AP. WILLIAM Casey, yfirmaður handarísku leyniþjónustunn- ar, CIA, kvaðst í dag staðráð- inn i að halda áfram starfi sínu sem yfirmaður stofnun- arinnar, þrátt fyrir vaxandi gagnrýni vestanhafs. Casey hefur m.a. verið ásakaður um ólögmæta viðskiptahætti í Louisiana ásamt Max Ilugel, sem hann útnefndi sem yfir- mann leynilegra aðgerða CIA. Hugel þessi sagði af sér embætti i siðustu viku eftir að hafa verið ásakaður um brask af fyrrverandi samstarfs- mönnum sinum. í yfirlýsingu í dag, sagðist Casey ætla á mánudag að leggja fram gögn, sem sönnuðu sakleysi sitt. Stuðningur við Casey fer nú þverrandi. Barry Goldwater, yfirmaður þeirrar nefndar öld- ungadeildarinnar, sem fer með málefni CIA, hvatti Casey til að segja af sér embætti á blaðamannafundi í gær. Goldwater gagnrýndi Casey og ásakaði hann um að spilla orðstír leyniþjónustunnar. Þá sagði Goldwater, að rannsókn færi nú fram á því, hvort Casey hefði logið að nefndinni. Goldwater gagnrýndi Casey harðlega fyrir að skipa Max Hugel sem yfirmann leyni- legra aðgerða; sagði að þá hefði hann sýnt ótrúlegt dómgreindarleysi. Goldwater sagði það alvarlegt mál, að útnefna viðvaning í jafn krefj- andi og ábyrgðarmikið starf. Tveir áhrifamiklir repúblik- anar tóku í dag undir áskorun Goldwaters um afsögn Caseys. Það voru Ted Stevens og Willi- am Roth, en Roth á sæti í nefndinni, sem fer með mál- efni CIA. Harold Baker, leið- togi repúblikana í öldunga- deildinni, átti viðræður við Goldwater í dag. Eftir viðræð- urnar sagðist Baker styðja Goldwater. Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, sagðist bera fyllsta traust til Caseys. „Ég hef ekki skipt um skoðun. William Casey hefur trúnað minn," sagði Reagan þegar hann yfirgaf Hvíta húsið í dag. Hann sagðist mundu eiga fund með öldungadeildarþingmönn- unum, sem gagnrýnt hafa Cas- ey- William Casey var kosn- ingastjóri Ronald Reagans í forsetakosningunum á síðast- liðnu ári. Max Hugel, við- skiptajöfur frá New Hamp- shire, vann einnig að kjöri Reagans. Til vinstri: Max Hugel, scm hefur sagt af sér embætti vegna ásakana um brask og William Casey, yfirmaður CIA. Ilann segist staðráðinn i Reagan forseti: „Ég ber fyllsta traust til... hvað að halda áfram sem yfirmaður CIA. hann nú heitir. London, 24. júlí, AP. TUTTUGU þjóðhöfðingjar. nokkrar fornvinur brúðgumans féinir gamanleikarar og bar- stúlka. voru á gestalista þeim sem talsmaður Buckingham-hall- ar sendi frá sér i dag, og koma i hrúðkaup Karls krónprins og Lafði Diönu. Meðal gestanna sem alls eru 2,500 eru nefndir forsetar Frakk- lands, Grikklands, Vestur-Þýzka- lands, Portúgals og íslands, þrjár vinkonur lafði Diönu, og Nancy Reagan forsetafrú Bandaríkjanna, að ógleymdum Kónginum frá Tonga, sem er 164 kg að þyngd. Elzti gesturinn í veizlunni verð- ur William Smally, 92 ára. Krónprinsinn hitti hann í marz sl. er hann var að heimsækja elli- heimili. að nokkrum gestum, sem ekki eru eins frægir og er þar átt við fjórar fyrrverandi vinkonur Karls, Dav- ina Sheffield, Lafði Jane Welles- ley, Sabrina Guinness og Susan George. Hafa þær allar þegið boðið. Argentínska flugvélin: I vopnaflutningum milli Tel Aviv og Teheran? Athygli manna hefur þó beinzt Morðín í Marseilles: Leiðtogi öfga- samtaka yfir- heyrður París, 24. júli. AP. FRANSKA lögreglan hneppti Pi- erra Debizet, formann hægrisinn- aðra öfgasamtaka (SAC), i varð- hald í dag og var hann yfirheyrð- ur daglangt. Talið er að samtökin hafi verið viðriðin morðið á lög- regluþjóni og fimm fjölskyldu- meðlimum hans i Marseille um síðustu helgi. Lögreglan sagði, að 31 árs kenn- ari í Marseille hafi þegar játað aðild sína að morðunum. Kennar- inn, Jean-Bruno Finochietti, hafi verið í fimm manna víkingasveit SAC, og hafi hann skýrt frá því að tilgangurinn með morðunum hafi verið að lægja öldur innan samtak- anna og að komast yfir skjöl sem lögreglumaðurinn hafði í fórum sínum. 1................. ...... Nikósiu, Kýpur. 24. júli. AP. DAGBLAÐ á Kýpur staðhæfði í dag. að argentinska fiugvélin, sem hrapaði til jarðar í Sovétríkj- unum, hefði verið i ferðum milli ísraels og írans með viðkomu á Kýpur. Blaðið, „Cyprus Weekly“, sagði, að flugvélin hefði verið i vopnaflutningum milli Tel Aviv og Teheran og hefði flugvélin farið fjórar ferðir í þessum mán- uði. Starfsmaður flugvallarins í Nikósíu staðfesti, að flugvélin hefði fjórum sinnum millilent í Nikósíu á leið sinni frá Tel Aviv til Teheran. Hins vegar sagði hann, að yfirvöldum á Kýpur væri ekki kunnugt um hvaða farm flutn- ingavélin hefði haft innanborðs. Áhöfn flugvélarinnar var skip- uð þremur Argentínumönnum. Samkvæmt heimildum var einn farþegi um borð; ónafngreindur Breti. Blaðið sagði, að Breti þessi væri á skrá sem alþjóðlegur vopnasali og rannsakaði Scotland Yard nú vopnasölu hans. Mál þetta hefur vakið mikla athygli víðs vegar um heim og hefur verið leitt getum að leyni- legu samstarfi ísraelskra og ír- anskra stjórnvalda. Byltingar- stjórn ayatollah Khomeinis í Iran sleit stjórnmálasambandi við ísrael fljótlega eftir hún komst til valda. Á pappírnum, að minnsta kosti, hefur íranska stjórnin verið einn helsti stuðningsmaður PLO og hún hefur gengið hvað harðast fram í gagnrýni á ísrael. írakar hafa ítrekað haldið því fram, að íranir hefðu á síðastliðn- um 10 mánuðum fengið vopn send frá Israel. Almennt hafa þessar yfirlýsingar ekki verið teknar al- varlega en atburðir síðustu daga hafa orðið til þess að varpa nýju ljósi á staðhæfingar þeirra. Ljóst er, að ef satt reynist að ísraelar hafa sent írönum vopn og vara- hluti í hergögn, þá yrði það mál ákaflega óþægilegt, að ekki sé sterkara að orði kveðið, fyrir írönsk stjórnvöld. Samskipti við Sýrland og Líbýu yrðu stirð en þessar Arabaþjóðir hafa stutt Irani í styrjöldinni við íraka. Argentínskir diplómatar í Moskvu hafa farið fram á skýr- ingar sovéskra stjórnvalda á hrapi flugvélarinnar. Sovésk yfirvöld hafa ekki skýrt frá þjóðerni flug- vélarinnar, sem hrapaði yfir Sov- étríkjunum á laugardag „eftir árekstur við sovéska flugvél", eins og það var orðað í tilkynningu TASS. Það var fyrst á miðvikudag, að Sovétmenn skýrðu frá hrapi flugvélarinnar, en þá voru argent- ínsk stjórnvöld farin á stúfana að grafast fyrir um afdrif flugvélar- innar. „Allt er þetta mál hið furðulegasta. Sovétmenn sögðust fyrst vera að reyna að finna vélina og síðan bera kennsl á hana. Við bíðum enn svara frá sovéskum Varsjá. 24. júli. AP. REYNT var að kveikja í bygg- ingu pólska kommúnistaflokk- sins i Swinoujscie, hafnarborg við Eystrasalt skammt frá a-þýzku landamærunum, á mið- vikudag. þjóðhátiðardag Pólv- erja. Pólska fréttastofan PAP, skýrði frá þessu i dag. PAP sagði, að slökkviðliðs- mönnum hefði tekist að slökkva elda í kjallara byggingarinnar. yfirvöldum,“ sagði argentínskur diplómat við fréttamann AP og bætti við: „Við höfum beðið leyfis að fá að sjá staðinn, þar sem flugvélin hrapaði." Enn hafa sovésk yfirvöld ekki staðfest að flugvélin, sem hrapaði til jarðar á laugardag, hafi verið argentínsk. Rannsókn fer nú fram og bendir allt til þess, að brennuvargur hefði brotist inn i bygginguna, benzíni hellt yfir gólf og eldur borinn að. Ekki var skýrt frá tjóni. Þetta er í annað sinn að eldur er borinn að byggingu kommúnist- aflokksins. Árið 1976 kveiktu mót- mælendur í borginni Radom í höfuðstöðvum kommúnistaflokk- sins í borginni. Þeir voru að mótmæla hækkun matvæla. Pólland: Eldur borinn að flokksbyggingu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.