Morgunblaðið - 25.07.1981, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 25.07.1981, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JÚLÍ1981 37 Ur flugferð til Bandaríkjanna í ferð með Flugleiðavél til Bandaríkjanna hinn 6. þ.m., bar svo við, að ég sat við hlið fréttaritara bandarískrar út- varpsstöðvar. Þetta var stúlka á að giska um þrítugt á heimleið úr ferð til Evrópu, og notaði hún tímann á Ieiðinni vestur að verulegu leyti til kappsamlegra skrifa í bók, sem ég taldi víst að fjallaði um ferðasögu hennar. Við upphaf samtals fékk ég að vita, að nefnd fréttakona hafði farið með Flugleiðavél frá Bandaríkjunum til Lux- emborgar og þaðan áfram til Grikklands, en ég vissi ekki þá þegar um 4ra daga viðstöðu hennar á íslandi á bakaleið, Austan garri æð- ir fram... Eftirfarandi kviðling, eign- aðan Eiríki Briem rafmagns- veitustjóra, rak á fjörur Vel- vakanda af hreinni hendingu nú á dögunum. Þótti Velvak- anda vissara að forða rekald- inu undan sjó því nú gerist brimasamt. Og moldin rýkur í logninu. Auslan xarri æðir (ram allt i bólakafi ofaavriði, ofsaKjamm afli vei i hafi. Eiríkur Briem með kynnisferðum að Gull- fossi, Geysi og á Þingvöll. Þótti mér því, með tilliti til umræðna um slæma aðstöðu Flugleiða í sambandi við flug yfir Norður-Atlantshaf, fróð- legt að fregna hvers vegna nefndur fréttaritari keypti farmiða fyrir ferð sína fram og til baka hjá hinu íslenzka flugfélagi, og var svarið, að hin íslenzka flugþjónusta væri vel þekkt í Bandaríkjunum og fargjöldin álitin sanngjörn. Var mér einnig ánægja að sjá, að flugvélin var í þetta sinn nærri fullsetin, og á bakleið, viku síðar, var varla minna en 80—90% sætanýt- ing. En aðaltilefni þess að ég sting niður penna um áður greinda ferð, er það, að hin fyrrnefnda bandaríska fréttakona hafði sérstaklega orð á því við mig, að hún hefði skoðað listasafn Einars Jóns- sonar í Reykjavík og teldi það eitt fegursta og athyglisverð- asta safn sinnar tegundar, þótt borið væri saman við söfn í öðrum löndum, svo sem á Ítalíu og í Grikklandi, þar sem nefnd sagðist vera vel kunnug listasöfnum. — Lét fréttakon- an í ljós þá ósk og von, að hægt yrði að hafa farandsýn- ingu á umræddu safni í öðrum löndum, svo að sem flestir mættu njóta þeirrar listar, sem þarna væri að finna. Torfutafl og Tjarnarbryggjur: „Akveðið að eyðileggja miðbæ Reykjavíkur“ Eg hef verið mjög andsnúin útitaflinu alla tíð, en nú ber svo við að mér finnst það hin snjallasta hugmynd. Hvað ber við? Útitaflið mun víst kosta 1 milljón króna eða meira, sem leiðir til þess að brúarbrygg- ingum úti á Tjörninni verður frestað. Einhver einhversstaðar virðist hafa ákveðið að eyði- leggja miðbæ Reykjavíkur; en að svo komnu hefur okkur verið hlíft við þeirri hörmung að þurfa að horfa uppá tvær slíkar „fegrunarframkvæmd- ir“ samtímis. Anna Cosser £>essir hringdu . . . Hjólreiðar og akstur fara ekki saman Ökumaöur hringdi og vildi gera eftirfarandi athugasemd við um- kvörtun hjólreiðamanns í Velvak- anda í gær. „Ég vona að ég fylli ekki þann hóp ökumanna sem „hjólreiðamað- ur“ telur að sýni tillitsleysi og sauðshátt í umferðinni svo út yfir allan þjófabálk taki. Ég þykist vita að hann hafi nokkuð til síns máls — því þótt ég hjóli ekki hversdags- lega til vinnu verð ég stundum óþægilega var við sofandi ökumenn undir stýri, svo ekki sé talað um tillitsleysi og frekju — sem þykir allt að því sjálfsögð hér í umferð- inni. En hjólreiðakappar mega líka ýmislegt læra. Maður sér það nefnilega stundum að þeir þykjast ekki þurfa að virða umferðalög — hjóla á móti umferðinni og hika ekki við að halda áfram á rauðu ljósi þegar enginn bíll er á leið yfir. Að þessu leyti ættu hjólreiðamenn að líta í eigin barm og gera betur. Annars er ég fyllilega sammála hjólreiðamanni, sem skrifaði í Velvakanda fyrir u.þ.b. hálfum mánuði, og benti þá á að reiðhjól og bílar færu aldrei vel saman í umferðinni. Ef hjólreiðamönnum fjölgar áfram í umferðinni er nausynlegt að fara að hyggja að því að byggja sérstaka hjólreiðastíga fyrir þá. Vil ég benda skipuleggj- endum á þetta — það kæmi sér áreiðanlega betur en útitafl og Tjarnarbryggjur, svo ekki sé talað um laxarækt í Reykjavíkurtjörn." Frá Héraðsskólanum Reykja- nesi við ísafjarðardjúp Getum bætt viö nemendum í 7., 8. og 9. bekk. Sími um Skálavík eöa ísafjörö. Skólastjóri BOSCH LJÓSA- STILUNGATÆKI fyrirliggjandi BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 ELDAVÉL OFN GRILL ponuR OG PAIMIMA, eöa pvísemnaest! Nyja rafmagnspannan frá Oster gerir þér mögulegt aö sjóöa, steikja og baka án þess aö þurfa aö standa yfir pönnunni allan tímann. Meö forhitun og hitajafnara geturöu eldaö alltfrá kjötréttum til pönnusteiktra eftirrétta - aö ólgeymdum pönnukökum - á næstum því sjálfvirkan hátt. Komu og skoðaðu gripinn í verslun okkar!

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.