Morgunblaðið - 18.08.1981, Blaðsíða 1
48 SÍÐUR MEÐ 8 SÍÐNA ÍÞRÓTTABLAÐI
180. tbl. 68. árK.
bRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Yamani:
Olíuf atið jafnvel
niður fyrir $34
Genf. 17. áKÚst. AP.
AHMED YAMANI. olíumálaráð-
herra Saudi-Arabiu sajrðist í daíf
fastleKa reikna með því. að olíu-
framleiðsluríki innan OPEC
kæmu sér saman um sameijíin-
le>rt olíuverð á fundi OPEC-ráð-
herra í Genf á miðvikudag. Yam-
ani sagðist vonast til. að verð á
olíufatinu fari jafnvel niður fyrir
34 dollara. Aðildariki OPEC eru
13 talsins ok Saudi-Arabar vinna
úr jörðu 40% af heildaroliumaKni
ríkjanna.
Ríkin innan OPEC hafa ekki
getað komist að samkomulagi um
sameiginlegt olíuverð frá því
snemma árs 1979. Undirbúnings-
viðræður Venezúela, Kuwait, Ir-
aks, Alsírs, íran og Saudi-Arabíu,
hófust í Genf í dag. Þar er reynt
að ná fram málamiðlun. Núver-
andi verð á olíu er frá 32 dollurum
upp í 40 dollara. Olíumálaráð-
herra Venezúela sagði í kvöld, að
allar líkur væru á samkomulagi og
líbýski olíuráðherrann sagði, að
Líbýa væri reiðubúin að lækka
olíuverð sitt úr 40 dollurum.
Prentarar boða
nú til verkfalla
Varsjá. 17. ájfúst. AP.
SAMTÖK pólskra prentara boðuðu í dag til verkfalla á miðvikudag
og fimmtudag vegna „gegndarlauss áróðurs stjórnvalda gegn
verkalýðfélagi okkar í fjölmiðlum“. Prentarar boðuðu til verkfalla
eftir að Samstaða og stjórnvöld höfðu náð samkomulagi um að hætta
við fyrirhugaðar göngur til stuðnings pólitískum föngum. Talsmað-
ur Samstöðu sagði í kvöld, að allt benti til, að af verkfalli prentara
yrði. Prentarar beina verkfallinu gegn útkomu blaða kommúnista-
flokksins.
Leiðtogar prentara komu saman
til fundar í kvöld í Varsjá. Þeir
krefjast þess, að verkalýðsfélög
fái aðgang að fjölmiðlum. Þá
krefjast þeir þess, að stjórnvöld
láti af áróðri sínum gegn verka-
lýðsfélögum. Pólska lögreglan
stöðvaði á laugardag útkomu
blaðsins „Frjáls verkalýðsfélög"
vegna þess, að forsvarsmenn
blaðsins „sinntu ekki aðvörunum
stjórnvalda", eins og það var orðað
af pólsku fréttastofunni PAP.
Um helgina var ganga til stuðn-
ings pólitískum föngum afboðuð.
Ganga átti í Plock, Radom, Lodz,
Lublin og Bialystok. Réttarhöld-
um yfir Leszek Moczulski, leiðtoga
„Frjáls Póllands" en það eru
and—kommúnísk samtök, og
þremur félögum hans lauk í
Varsjá í dag. Engin ákvörðun var
tekin um mál þeirra, né var þeim
sleppt úr fangelsi. Þeir eru ásak-
aðir um að reyna að steypa stjórn
ríkisins.
Sjá frétt: Nýjum mótmælum
frestað í Pólland á bls. 18.
Pan Am íhugar
flutning til Miami
Miami. 17. áKÚst. AP.
PAN AMERlCAN-fluKÍélagið
handaríska íhuKar nú að flytja
höfuðst(>ðvar sínar frá New York
til Miami-borKar. William Waltr-
ipp. forseti Pan Am. skýrði írá
þessu á fundi með fréttamönnum
í Miami en hann hefur að undan-
förnu dvalist i Miami til að kanna
möKuleika á að flytja hofuðstöðv-
ar félagsins.
Pan American á við mikla
rekstrarerfiðleika að etja. í fyrra
seldi félagið skýjakljúf sinn í New
York og samdi um leigu til langs
tíma á húsnæði á Manhattan. En
það er dýrt að leigja á Manhattan
og því hyggur flugfélagið á flutn-
ing til að draga úr kostnaði.
Waltripp sagði, að ákvörðun um
flutning höfuðstöðva Pan Am yrði
tekin innan tveggja mánaða.
Óeirðarseggir i Liverpool ganga i skrokk á lögregluþjóni, sem liggur i götunni og getur litla björg sér
veitt. Tveir lögregluþjónar voru stungnir um helgina og 15 særðust i átökum á Bretlandi.
Sjá frétt: Vilja auka löggæsluna bls. 18. Símamynd ap.
Reagan aflóttir banni
við afhendingu F -16
lais Amtelfs. 17. áicúst. AP.
ALEXANDER Ilaig. utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna. tilkynnti i
kvöld í Los Angeles. að Bandaríkin
hefðu aflétt þriggja mánaða af-
hendingarhanni á háþróuðum or-
ustuþotum til tsraels. Haig sagði
við fréttamenn. að hann teldi að
hannið hefði náð tilætluðum ár-
angri. .Bannið talar skýru máli um
óánæKÍu okkar með árásina á
kjarnorkuverið i írak.~ sagði Ilaig
við fréttamenn.
Eftir árásina á kjarnorkuverið
bannaði Ronaid Reagan, þann 10.
júní síðastliðinn, afhendingu á fjór-
um F-16 orustuþotum. Þann 17. júní
átti að afhenda sex F-16 þotur en
Reagan bannaði afhendingu þeirra
vegna loftárása ísraela á Beirút.
Haig benti á, að vopnahlé það sem
komið var á milli Israels og PLO
þann 24. júlí síðastliðinn héldi enn.
Þann 10. ágúst bannaði Reagan
afhendingu á fjórum F-16 þotum og
auk þess tveimur F-15 orustuþotum,
sem eru háþróaðri. Alls lagði Reag-
an bann við afhendingu á 16 orustu-
þotum.
Menachem Begin, forsætisráð-
herra ísraels brást hart við afhend-
ingarbanninu og gagnrýndi Reagan
harðlega. Begin sagði, að ekki kæmi
til greina, að ísraelar skuldbindu sig
hvernig þeir beittu vopnum, sem
þeir keyptu. Haig sagði, að Reagan
hefði ákveðið að aflétta banninu
eftir ítarlegar viðræður við Menach-
em Begin en vildi ekki segja, hvort
Begin hefði heitið að hlíta skilmál-
um um notkun bandarískra vopna.
Sýrland:
Öflug sprenging í
stjómarbyggingu
Damaskus. Sýrlandi. 17. áxúst. AP.
ÞRÍR starfsmenn forsætisráðu-
I neytisins sýrlenska biðu hana
Fjöldaaftökur í íran á
leiðtogum konunúnista
Tehoran. 17. ájfúst. AP.
23 MEÐLIMIR miðstjórnar iranska
kommúnistaflokksins, Mujahedeen
Khalq. voru I dag teknir af lífi i
Kvin fangelsinu í Teheran „fyrir
vopnaða uppreisn KeKn Allah og
Khomeini." að söKn iranska út-
varpsins. Þetta er i fyrsta sinn sem
svo margir háttsettir meðlimir
kommúnistaflokksins eru teknir af
lífi. Mujahedeen Khalq hóf vopnaða
haráttu KeKn stjórn Khomeinis eft-
ir að Ðani-Sadr. fyrrum forseti, var
hrakinn úr embætti. Stjórn
klerkastéttarinnar i tran jók veru-
lega sókn sina gegn andstæðinKum
sinum um helgina.
Yfir 50 manns voru í gær teknir af
lífi í íran og hafa nú um 420 manns
verið teknir af lífi í landinu eftir að
Bani-Sadr hrökklaðist frá völdum.
Yfir 200 meðlimir Mujahedeen
Khalq voru handteknir í fjórum
borgum, að því er útvarpið tilkynnti
um helgina.
Tveir valdamiklir klerkar voru
skotnir til bana i tran í gær. Annar
var skotinn í borginni Babol við
Kaspíahaf, hinn í Teheran. Þá var
Musavi Ardebili, forseta Hæstarétt-
ar sýnt banatilræði í Teheran en
hann sakaði ekki.
íranska þingið samþykkti í dag
traustyfirlýsingu á stjórn Mo-
hammad Javad Bahonar, forsætis-
ráðherra eftir tveggja daga umræð-
ur. Þingið samþykkti 21 af 22
ráðherraefnum Bahonar; útnefning
forsætisráðherrans á samgönguráð-
herra fékk ekki samþykki þingsins
en ekki var getið um ástæður.
Bahonar hét þinginu róttækum að-
gerðum gegn andstæðingum stjórn-
ar Khomeinis.
íranska fréttastofan Pars sagði í
dag, að íranska hernum hefði tekist
að koma í veg fyrir sókn íraka í
Sheykhan-héraði og hefðu 35 íraksk-
ir hermenn verið felldir. Útvarpið í
Bagdad sagði í yfirlýsingu, að ír-
ökskum hermönnum hefði tekist að
fella 69 iranska hermenn síðsta
sólarhringinn.
þogar Kífurleg sprenKÍnK kvað \ið i
daK í helstu byKKÍnKU stjórnar-
ráðsins. Miklir eldar kviknuðu í
hyKKÍngunni. sem er fimm haða
skrifstofuhús. Ahdul Raouf
Kasm. forsa'tisráðherra Sýrlands
ok ráðherrar stjórnar hans voru
ekki í hyKKÍnKunni þegar sprenK-
inKÍn kvað við.
Kasm og ráðherrar hans voru
staddir í þinghúsinu en til sér-
staks fundar hafði verið boðað.
Venju samkvæmt hefðu Kasm og
ráðherrar hans átt að vera á
ríkisstjórnarfundi í stjórnarráðs-
byggingunni. Um 300 manns voru
í bvggingunni og var mörgum
þeirra bjargað af þaki hússins.
Sjónarvottar sögðu að slökkvi-
liðsmenn hefðu barist í tvær
klukkustundir við eldana sem
kviknuðu áður en tókst að ráða
niðurlögum þeirra. Öryggisverðir
girtu svæðið af og yfirvöld segja,
að rannsókn fari nú fram á því,
hvort um hermdarverk sé að ræða.