Morgunblaðið - 18.08.1981, Blaðsíða 38
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981
Bakkað í þágu
þroskaheftra
I DAG kl. 13.00 ætlar HallKrímur
Marinóssun að leggja upp í
hrinj'akstur um landið ok aka
hílnum afturá bak alla leiðina.
IlrinKur IlallRríms er um 1560
km otí er áætlað að hann ljúki
ferðinni á 11 döj;um ojf ekur
hann ofujran sólarganK-
Ýmsar endurbætur hafa verið
gerðar á þeirri bifreið, sem hann
notar og eru þær helstar að
framljósin eru nú að aftan og
afturljósin að framan en Hall-
grímur ætlar ekki að nota sérstak-
an speglabúnað til útsýnis.
Lagt verður af stað frá af-
greiðslustöð Skeljungs við Hraun-
bæ og mun Skeljungur aðstoða
Hallgrím á leiðinni. Þar sem
aðeins verður ekið með um 20 til
25 km meðalhraða á klukkustund
mun hann þurfa að gista á 11
stöðum á leiðinni en þeir eru
þessir: Hvolsvöllur, Kirkjubæj-
arklaustur, Höfn, Djúpivogur Eg-
ilsstaðir, Reynihlíð, Akureyri,
Blönduós, Staður í Hrútafirði og í
Borgarnesi.
Hallgrímur Marinósson bakkar
hér hílnum á æfingu fyrir hring-
ferðina sem hefst síðdegis i dag.
Ljósm. Mhl. RAX.
BAKKAÐ í ÞÁGU
ÞROSKAHEFTRA
Merkið sem Þroskahjálp verður
með til sölu til styrktar starfsemi
sinnar á meðan hringferð Hall-
gríms stendur.
Að undirbúningi fyrir ferðina
hefur timaritið Samúel unnið
ásamt Hallgrími og hefur hann
einnig notið velvildar ýmissa
fyrirtækja.
Ágóðinn af þessari ferð mun
renna óskiptur til Þroskahjálpar
og mun verað ætlunin að láta
fjármagn það sem safnast, bæði af
ferðinni sjálfri og svo af límmiða-
sölu, sem verður í gangi á meðan
hringferðinni stendur, til bygg-
ingu Sumardvalaheimilis fyrir
þroskahefta, sem kæmu af einka-
heimilum, stofnunum og úr skól-
um.
Þeir Eggert Jóhannesson og Jón
Sævar Alfonsson, formaður og
varaformaður Þroskahjálpar
sögðu eitt af aðalverkefnum sam-
takanna að tala fyrir þá sem ekki
töluðu fyrir sig sjálfa. þ.e.a.s.
fatlaða einkum þá börn.
Einnig sögðu þeir að eitt mark-
mið hjá þeim væri að sjá til þess
t.d. að börn þyrftu ekki að yfirgefa
heimili sín til þess að fá kennslu.
Það leiddi oft illt af sér að líta þau
frá skyldmennum og það tæki oft
langan tíma fyrir þau að venjast
breyttum aðstæðum og kynnast
nýju fólki. Því væri nauðsynlegt
að þau fengju leiðsögn heima hjá
sér.
Á ritstjórnarskrif8tofu „Nýs lands“ að Laugavegi 40. Ritstjórar og ábyrgðarmaður, þeir Helgi Már
Arthúrsson og Vilmundur Gylfason. Helgi Már er með litla dóttur sína, Rebekku, í fanginu.
Vikublaðið Nýtt land
Lýðræði í verkalýðshreyfmgunni gerð rækileg skil í fyrsta tölublaði
NÝTT LAND, vikublað Vilm-
undar Gylfasonar og þeirra
blaðamanna sem gengu af Al-
þýðublaðinu með honum, er
væntanlegt á hlaðsölustaði á
fimmtudaginn. Helgi Már Art-
húrsson er ritstjóri blaðsins
ásamt Vilmundi og ábyrgða-
maður. Garðar Sverrisson er
blaðamaður. Þeir þrír mynda
ritstjórnina.
Að sögn Vilmundar er fjöldi
Alþýðuflokksmanna sem stend-
ur með honum i þessu ásamt
óflokksbundnu fólki. Sagði
Vilmundur að ýmsir einstakl-
ingar borguðu útgáfu blaðsins,
„ekki stórar upphæðir en við
erum þeirrar skoðunar að
smátt sé fagurt“, sagði Vil-
mundur.
„Þetta er blað utan um mál-
efni, frekar heldur en þröng
flokkssjónarmið og undirtitill
blaðsins veriður málgagn ís-
lenskrar og alþjóðlegrar jafnað-
arstefnu," sagði Vilmundur.
Sagði hann einnig að í fyrsta
tölublaði yrði rækileg umfjöllun
um lýðræði í verkalýðshreyfing-
unni og nauðsyn þess, og sam-
hengið á milli þess og kröfunnar
um hærri laun láglaunafólks.
„Við teljum," sagði Vilmundur,
„að upphafið að Alþýðublaðs-
deilunni megi að verulegu leyti
rekja til þess að örfáir flokks-
menn, verkalýðsforingjar sem
sitja á fjórföldum verkamanna-
launum inná skrifstofum, voru
orðnir hræddir um sig og flokks-
forustan hjá okkur reyndist vera
heldur Iítilmótleg. Það gefur
augaleið að þetta málefni mun
vega mjög þungt hjá okkur á
næstunni."
Sagði Vilmundur að þetta yrði
frekar fréttaskýringablað en
beint fréttablað og sagði hann að
þeir sem að þessu blaði stæðu
væru búnir að fá nóg af því sem
kallað væri hlutleysi og afstöðu-
leysi, og þeir munu taka afstöðu,
„grimma afstöðu", eins og Vil-
mundur sagði.
Nýtt land verður prentað í
Borgarprent og verður útgefið í
25.000 eintökum. Það verður 24
síður að stærð í heldur minna
broti en dagblöðin.
Ritstjórnarskrifstofa Nýs
lands er að Laugavegi 40 og mun
nú í vikunni vera formlega skráð
hlutafélagið sem stendur að út-
gáfunni.
Sagði vilmundur að blaðið
myndi kosta 10 kr. í lausasölu,
og að hann myndi vinna hluta-
starf á blaðinu eftir að þingið
byrjar í haust.
Nafnið Nýtt land, var fyrst
notað á blað þegar Héðinn
Valdimarsson klauf sig úr Al-
þýðuflokknum og stofnaði blað
með því nafni á árunum ’37 til
’38. Síðan var það Samtök frjáls-
lyndra og vinstri manna gáfu út
blað með nafninu Nýtt land —
frjáls þjóð, þar sem „frjáls þjóð“
var undirtitill.
Reykjavíkurvika hafin
Sigurður Kristjánsson og Stefán Hrafnkelsson taka hér á móti
viðurkenningu frá Sjöfn Sigurbjörnsdóttur, formanni framkvæmda-
nefndar Reykjavikurviku ’81, en þeir sigruðu í samkeppni sem haldin
var milli barna i Reykjavik um gerð kynningarspjalds fyrir
Reykjavíkurviku. Ljósm.: Emiii».
Reykjavíkurvika hófst
formloga með hátíðlegri at-
höfn að Kjarvalsstöðum í ga“r
að viðstöddum Gunnari
Thoroddsen. forsætisráðherra,
Agli Skúla Ingibergssyni,
borgarstjóra. borgarfuil-
trúum og fulltrúum þeirra
stofnana. sem kynntar eru í
vikunni. Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir. borgarfulltrúi og for-
rnaður undirhúningsnefndar
Reykjavíkurviku rakti í
opnunarra'ðu aðdraganda
þess að ákvoðið var að efna til.
Reykjavíkurviku, en tilgang-
urinn með þessum hátiðardög-
um er sá að kynna borgar-
stofnanir og að lífga upp á
hajarlífið með útiskemmtun-
um og listsýningum.
Að þessu sinni verða kynntar
þrjár stofnanir borgarinnar,
Bæjarútgerð Reykjavíkur,
Strætisvagnar Reykjavíkur,
Slökkviliðið, Kjarvalsstaðir og
Æskulýðsráð Reykavíkur.
Þrír kynningarbæklingar,
um Slökkviliðið, SVR og BUR,
hafa verið gefnir út í tilefni
Reykjavíkur og fást þeir á
þessum stofnunum og að
Kjarvalsstöðum.
Fulltrúar þessara stofnana
kynntu starfsemi þeirra stutt-
lega. Ræðumenn voru: Einar
Sveinsson, framkvæmdastjóri
BUR, Eiríkur Ásgeirsson,
Framkvæmdastjóri SVR, Rún-
ar Bjarnason, Slökkviliðsstjóri,
Þóra Kristjánsdóttir, listráðu-
nautur Kjarvalsstaða og Ómar
Einarsson framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs og er hann einn-
ig framkvæmdastjóri Reykja-
víkurviku.
Afhent voru verðlaun fyrir
mynd sem notuð var sem kynn-
ingarspjald Reykjavíkurviku
’81. Höfundarnir eru Sigurður
Kristjánsson, 11 ára og Stefán
Hrafnkelsson, 10 ára. Þeir
hlutu í verðlaun reiðhjól eftir
vali. Aðrir verðlaunahafar
voru Sólveig Halldórsdóttir,
Guðbjörg Örlygsdóttir, Snorri
H. Guðmundsson, Guðrún
Kaldal og Hrefna Björk Arnar-
dóttir, allt nemendur úr barna-
skólum Reykjavíkur. Verð-
iaunahafar fengu allir ókeypis
ferðir með strætisvögnum
Reykjavíkur í eitt ár.
Friðbjörn Jónsson, söngvari
söng nokkur lög við undirleik
Sigfúsar Halldórssonar að því
loknu. Klukkan átta sýndi
þjóðdansafélag Reykavíkur
þjóðdansa og að því loknu lék
skólahljómsveit Árbæjar og
Breiðholts á Miklatúni.
Sjöfn Sijíurbjörnsdóttir, borgarfulltrúi og formaður undirbúningsnefndar Reykjavikurviku '81 flytur
opnunarræðu að Kjarvalsstöðum. Að henni lokinni hylltu viðstaddir Reykjavík með ferföldu húrrahrópi. Á
veggjum eru myndir eftir Kjarval, en í Kjarvalssal stendur nú yfir sumarsýning á verkum hans.