Morgunblaðið - 18.08.1981, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 18.08.1981, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981 Bresku skólastrákarnir: Enn óvíst hvort þeir ganga yfir Vatnajökul ENN ER óljóst, hvort 30 til 10 manna hópur untflinKa frá Bret- landi. sem verið hefur í stærri hóp á Fljótsdalshéraói aó undan- fórnu við náttúrufræðirannsókn- ir. senjíur yfir Vatnajókul eða ekki. Hannes Þ. Hafstein fram- kvæmdastjóri Slysavarnafélaus íslands sagði í gær, að Slysa- varnafélaKÍð. breska sendiráðið í Iíeykjavík. bæjarfógetaembættið á Neskaupstað og menn kunnug- ir aðstæðum á Vatnajökli. hefðu reynt að fá hópinn ofan af ferðalaginu. en óvíst væri hvort tillit tii viðvarananna yrði tekið. Hannes sagði að til hópsins hefði komið frá útlöndum maður er kunnugur væri jöklaferðum að sögn, en það bætti raunverulega lítið úr skák. Hér væri um að ræða tugi unglinga er þekktu ekki til jöklaferða, og væru auk þess illa búnir. Upplýsingar sagðist Hann- es hafa fengið, um að jökullinn væri nú stórhættulegur vegna sprungna er þar leyndust, undir snjólagi. Auk þess væri á þessum árstíma allra veðra von á jöklin- um, og orðið dimmt um nætur. Sagði Hannes því ekkert mæla með ferðalagi þessa fólks yfir jökulinn, og yrði vonandi ekki af förinni. Hvetur aðildarfélögin tíl eindreginnar samstöðu Útitaflið tflbúið á afmælisdaginn MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá for- manna- og samhandsstjórnar- fundi Verkamannasambandi ís- lands. sem haldinn var á Laug- arvatni um helgina. Fundinn sátu um fimmtíu manns, segir i fréttatilkynningu Verkamanna- sambandsins. Formannafundur Verkamanna- sambands Islands, haldinn að Laugarvatni 14.—16. ágúst 1981, skorar á öll aðildarfélög Verka- mannasambandsins að segja upp gildandi samningum fyrir 1. október nk., þannig að þeir verði lausir frá og með 1. nóvember næstkomandi. Fundurinn hvetur félög innan sambandsins til eindreginnar samstöðu í komandi kjarasamn- ingum. Jafnframt beinir fundur- inn því til sambandsstjórnar og einstakra aðildarfélaga, að þau kanni meðal félagsmanna grund- völl víðtækari samstöðu lands- sambanda og félaga innan Al- þýðusambandsins. Fundurinn leggur áherslu á að í komandi kjarasamningum verði megináhersla lögð á atvinnu- öryggi og varanlega aukningu kaupmáttar, sem náð verði með samtvinnum grunnlaunahækkana, skattalækkana og hjöðnunar verð- bólgu. í Ijósi þeirrar reynslu, sem verkalýðshreyfingin hefur af íhlutun ríkisvaldsins í gerða kjarasamninga, hlýtur Verka- mannasamband Islands að leita eftir viðræðum við ríkisstjórnina með það fyrir augum að hún ábyrgist þann kaupmátt, sem samið verður um í komandi kjara- samningum. Nýlokið var við að múra reiti útitaflisins við Bernhöftstorf- una og koma fyrir tveimur litlum töflum. sem eru sitt hvoru megin við aðaltaflið, þeg- ar blaðamann Morgunblaðsins bar að garði skömmu eftir hádegi í gær. Hellurnar í reit- ina eru úr islensku grágrýti, nánar tiltekið úr Akrafjalli og voru þær unnar hjá Steiniðju S. Helgasonar. „Gerð útitaflsins og svæðisins í kring verður lokið í stórum dráttum á afmælisdag Reykja- víkurborgar, sem er á morgun," sagði Þórður Þorbjarnarson, borgarverkfræðingur, er Morg- unblaðið hafði samband við hann í gær. „Það eina sem eftir verður er að setja grástein á áhorfendasvæðið og innrétta geymslu fyrir taflmennina. Þá á eftir að koma fyrir trjám og öðrum gróðri en það verður ekki gert fyrr en næsta vor,“ sagði Þórður ennfremur. „Gert er ráð fyrir að taflið verði vígt með pompi og pragt í kringum tuttugusta og níunda þessa mánaðar og stofni Taflfé- lag Reykjavíkur þá til skák- keppni, sagði Þórður. „Persónulega er ég mjög ánægður með þetta verk. Það er fallegt handbragð á því og þeim til sóma, sem þarna hafa staðið að verki. Reynslan á síðan eftir að skera úr um hvaða not borgarbúar eiga eftir að hafa af taflinu, en miðað við þann skákáhuga, sem er í landinu, þá tel ég að útitaflið eigi eftir að njóta vinsælda." „Mjög hefur verið vandað til þessa útitafls og hefur verkið gengið ágætlega," sagði Halldór Jóhannsson verkstjóri fram- kvæmdanna við útitaflið. „Það hefur þó seinkað verkinu, hve hönnunin á svæðinu er ónákvæm. Þá skýtur það skökku við, að það skuli vera byggingar- arkitekt, sem fenginn var til að hanna útitaflið og svæðið í kring um það, en ekki landslagsarki- tekt,“ sagði Halldór. „Þar eð við klárum verkið á umsömdum tíma, munum við fá greitt 25% álag ofan á launin, reiknuð á dagvinnukaupi frá og með 20. júlí. Það hefur verið blásið út í blöðunum, að þetta séu einhverjar stórkostlegar upphæðir, en þegar upp er staðið verða þetta vikulaun hjá hverj- um okkar. Við höfum unnið baki brotnu við þessar framkvæmdir, einnig á kvöldin og um helgar og teljum okkur ekkert of góða af þessum launurn," sagði Halldór Jóhannsson, verkstjóri. Kristján Ragnarsson framkvæmdastjóri LÍÚ: Verkamannasamband Islands: Hér er verið að leggja síðustu hönd á útitaflið á Bernhöftstorfunni i gær. Y firborganir SR sanna að loðnuverð hefur verið of lágt Aðeins leið til að fá meira hráefni á kostnað annarra verksmiðja Mælt með skólastjóra í Réttarholtsskóla FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur samþykkti einróma á fundi sín- um á mánudag að mæla með þvi að Ilaraldur Finnsson yrði skipaður skólastjóri í Réttar- hoitsskóla. Haraldur Finnsson hefur verið yfirkennari í Haga- skóla síðan 1971. Annar umsækj- andi var Gunnar Ásgeirsson, sem settur var yfirkennari í Réttar- holtsskóla i fyrra og áður í eitt ár. Þá samþykkti fræðsluráð sam- hljóða að mæla með því að Tómas Einarsson yrði skipaður yfirkenn- ari í Hlíðarskóla. „ÞESSI yfirboð Síldarverksmiðja ríkisins undirstrika þá fullvissu okkar að afurðaverðmæti loðnu milli verksmiðja og seljenda. það er útvegsmanna og sjómanna var ranglátt á síðastliðnu ári og i hlut verksmiðjanna kemur mun mcira heldur en kostnaðurinn við að vinna loðnuna á sama tima og aflinn. sem þær keyptu af útvegs- og sjómönnum minnkaði úr millj- ón lestum niður í hálfa milljón á síðasta ári og afkoma bátanna var með alversta móti. Þess vegna er mjög mikilvægt fyrir okkur að íá viðbótarverð og upphætur á þetta lága hráefnis- verð sem við fengum í fyrra, við teljum einnig að þetta eigi að undirstrika okkar óskir núna hvað varðar það loðnuverð, sem nú er til umfjöllunar,“ sagði Kristján Ragnarsson. fram- kva'mdastjóri LÍÚ, er Morgun- hlaðið innti hann eftir skoðun hans á yfirborgunum SR. „Hvað hitt varðar, viðurkenni ég, og er í því sammála Jónasi Jónssyni, forstjóra Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunnar á Kletti, að sú mismunun, sem á sér stað á milli einkaverksmiðja og ríkisverksmiðja er fyrir allan sjávarútveginn í heild óviðunandi. Það að ríkisverksmiðja geti notað peninga til uppbóta á hráefni, sem aðrar verksmiðjur þurfa að borga ríkinu í skatta og ríkisverksmiðj- urnar geti með þessum hætti dregið að sér hráefni á kostnað hinna vegna fríðinda, sem þær hafa umfram aðra. Þetta eru ekki sanngjarnar leikreglur og þeim ætti að breyta þannig að allir sitji við sama borð. Síldarverksmiðjur ríkisins eru ekki að þessum yfir- borgunum til neins annars en að afla sér meira hráefnis. í bréfi, sem fylgdi með greiðslunni, þá undirstrika þeir það að svo sé. Hér er ekki um neina góðgerðarstarfs- emi að ræða. Þá er mjög margt athugavert í reikningum SR og ég held að uppsetning á viðhaldslið verksmiðjanna í þeim reikningi liðist ekki neinni einkaverksmiðju að senda til skattstofu, en reikn- inga SR þarf ekki að leggja fram til skattstofu vegna þess að þær eru ekki skattskyldar, en þvílíkt óhóf á færslu viðhalds mundi engri einkaverksmiðju líðast. Þannig að afkoman er betri en þessi reikningur gefur til kynna," sagði Kristján ennfremur. Fyrsta skóflustungan að kirkju á Seltjarnarnesi FYRSTA skóflustunga að kirkju á Seltjarnarnesi var tck- in að viðstöddu fjölmenni á Valhúsahæð á sunnudag. Séra Frank M. Ilalldórsson sókn- arprestur Nessóknar, vígði kirkjusta“ðið og Kristín Frið- hjarnardóttir. formaður sókn- arnefndar tók fyrstu skóflu- stunguna. Athöfnin hófst með því að hópur Seltirninga gekk frá Mýr- arhúsaskóla að kirkjustæðinu. Sunginn var sálmurinn „Lofið vorn Drottin". Að því búnu flutti Kristín Firðbjarnardóttir, for- maður sóknarnefndar nokkur orð, þar sem rakinn var meðal annars aðdragandinn að því að ákveðið var að hefjast handa við kirkjubyggingu. Séra Frank M. Halldórsson flutti ávarp og bæn og að því loknu tók Kristín fyrstu skóflustunguna. Síðan var farið með „Faðir vor“ og séra Frank flutti blessunarorð. Loks var sunginn sálmurinn „Guðs kirkja er byggð á bjargi" og að því loknu var boðið upp á kaffi í félagsheimili Seltjarnarness. Séra Frank M. Halldórsson vígir kirkjustæðið á Valhúsahæð á Seltjarnarnesi og við hlið hans er Kristín Friðbjarnardóttir, sem tók fyrstu skóflustunguna að kirkjunni á sunnudag.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.