Morgunblaðið - 18.08.1981, Qupperneq 48
28
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981
• Landslidsmarkvórður Þjóðverja, Schumacher, átti mjög góðan leik með liði sínu um helgina og varði
meðal annars vítaspyrnu. Lið hans F.C. Köln sigraði Ntirnberg 3—1.
Vestur-þýska knattspyrnan:
Bayerní forystu
LIÐ Atla Eðvaldssonar, Borussia
Dortmund. tapaði um helgina á
heimavelli 2—0, á móti Eintracht
Frankfurt. Atli kom inná á 76.
mínútu leiksins fyrir fyrrum
landsliðsmann Þjóðverja Ruedig-
er Abramczyk. og lék siðustu
fjórtán mínútur leiksins. Bayern
Miinchen sigraði Darmstad 2—1
á útivelli. Ásgeir Sigurvinsson
lék ekki með liðinu.
Lið Janusar Guðlaugssonar,
Fortuna Köln, lék á heimavelli
gegn hinu sterka liði F.C Schalke
04. Fortuna Köln tapaði 2—1.
Janus átti góðan leik með liði
sinu. Var sterkur í vörninni.
Þrjátíu og fimm þúsund áhorfend-
ur sáu Borussia tapa á heimavelli.
Mörk Eintracht skoruðu Borchers
á 19. mínútu og Nachtweih á 48.
mínútu. Bestu menn leiksins þóttu
vera þeir Pezzey, Burgsmuller,
Clemence fer
til Tottenham
MARKVÖRÐURINN heims-
frægi. Ray Clemence, mun ekki
leika með liði sínu, Liverpool,
næsta keppnistímabil. Ilann hef-
^ ur verið seldur að
eigin ósk til Totten
ham Ilotspur. Tottenham
greiddi 300 þúsund sterl
ingspund fyrir Clemence.
Ray Clemence, sem er 33 ára
gamall, hefur leikið í 14 ár fyrir
Liverpool, og leikið yfir 600 leiki
fyrir liðið. Hann hefur fimm
sinnum orðið enskur meistari með
liðinu. Þá hefur hann orðið bik-
armeistari, unnið deildarbikarinn,
UEFA-keppnina og Evrópumeist-
arakeppnina með liðinu. Clemence
hafði óskað sjálfur eftir því að
vera settur á sölulista. Hann vildi
reyna fyrir sér á nýjum vígstöðv-
um. Eina stórkeppnin sem Clem-
ence hefur ekki unnið í Evrópu er
keppni bikarhafa. En lið. Totten-
ham tekur einmitt þátt í þeirri
keppni í ár. Sigruðu í ensku
bikarkeppninni síðastliðið vor eins
og öllum er í fersku minni.
Getraunir hefja
starf að nýju
GETRAUNIR hefja starf að nýju
eftir sumarhlé með leikjum af
fyrsta leikdegi ensku knattspyrn-
unnar þ. 29. ágúst. Þeir aðilar af
stór-Reykjavíkursva'ðinu. sem
hafa sótt seðla sína á skrifstofu
Getrauna. geri það hið fyrsta.
Enska knattspyrnan hefst í
seinna lagi á þessu keppnistima-
bili, en lýkur einnig seinna en
venjulega eða um miðjan maí á
næsta ári. Er þetta gert vegna
heimsmeistarakeppninnar í
knattspyrnu, sem fram fer á
Spáni í júní 1982, en að sjálf-
sögðu vonast Englendingar að
vera meðal þátttökuþjóða þar.
Nickel og Ruessmann. Kaisers-
lautern og Hamborg gerðu jafn-
tefli 1—1. Magath skoraði fyrir
Hamborg á 10. mínútu, Funkel
jafnaði metin á 61. mínútu. Mörk
Bayern gegn Darmstad skoruðu
Kurt Niedermayer og Dieter
Hoeness. Mark nýliðanna í deild-
inni skoraði Oliver Posniak. Leik-
ur liðanna þótti frekar jafn. FC
Köln sigraði FC Núrnberg 3—1.
Bonhoff skoraði úr vítaspyrnu og
Klaus Fischer skoraði hin tvö. 40
þúsund áhorfendur sáu leikinn
sem þótti vera mjög harður. Fimm
leikmenn fengu að sjá gula spjald-
ið. Mafkvörður Kölnarliðsins
Schumacher varði vítaspyrnu í
leiknum. Onnur úrslit í deildinni
urðu þessi: Werder Bremen 1
Armenia Bielefeld 0, Bayer Lev-
erkusen 0 Bochum 3, Brunswick 2
MSV Duisburg 1, Karlsruher 0
Stuttgart 2, Fortuna Dússeldorf 0
Borussia Mönchengladbach 2,
Darmstad 98 1 Bayern Múnchen 2.
Staðan í 1. deild er því þessi að
loknum tveimur umferðum.
Bayern
B<M'htim
Bremen
Stuttyart
Koln
UamborK
Frankfurt
Moenchenitladbach
Kaiserslautern
Brunswick
Duishuri;
Darmstadt
Bielefeld
Karlsruhe
Dusseldorf
Dortmund
Wuernberit
Leverkusen
2 0 0 8-3 1
2 0 0 5-0 1
2 0 0 5-2 i
2 0 0 5-2 i
2 0 0 1-1 1
I 1 0 5-3 3
I 1 0 1-2 3
I 0 I 1-1 2
0 2 0 3-3 2
I 0 1 1-5 2
0 l I 2-3 l
0 I I 2-3 I
0 I I 1-2 I
0111-31
0 0 2 2-5 0
0 0 2 0-3 0
0 0 2 1-5 0
0 0 2 2-9 0
Fór holu
í fimmta
FYRIR skömmu vann Kjartan
Pálsson, golfleikari, það einstaka
afrek að fara holu í höggi í
fimmta skipti. Kjartan, sem er
kunnur kylfingur og íþrótta-
fréttamaður. hóf fyrst að leika
golf árið 1970 í blaðamanna-
keppni.
Hann fór fyrst holu í höggi árið
1974 í Hafnarfirði. Og aðeins 20
dögum síðar fór hann aftur holu í
höggi á sama velli, en þó ekki
sömu braut. Þriðja hola í höggi
kom svo 15. júlí 1978 á Meistara-
móti Golfklúbbsins Ness á 3.
braut. Fjórða hola í höggi kom á
Elm Park í Dublin á 1. braut árið
1980, 21. maí. Og loks fimmta hola
í höggi kom á Nesvellinum fyrir
tveimur vikum. Þetta mun vera
met á íslandi. Nokkrir hafa fjór-
um sinnum farið holu í höggi. Það
eru þeir kappar Gunnlaugur
Ragnarsson, Þorbjörn Kjærbo og
Mjög spennandi
hjólreiðakeppni
Knattspyrnufélag Keflavíkur
efndi til hjólreiðakeppni á Rosm-
hvalanesi um fyrri helgi, og það
var einkennandi fyrir keppnina,
að hart var barizt um sigurinn.
einkum í tveimur elztu flokkun-
um, ekki sízt í flokki fullorðinna,
þar sem niu hjólreiðamenn voru í
einum hnapp þegar kumið var
aftur inn í Keflavík og innan við
kílómetri var eftir af hinum 25
kílómetra langa spretti. Réðust
úrslit i karlaflokki ekki fyrr en á
síðustu metrunum er Helgi Geir-
harðsson úr Reykjavík sleit sig
Iausan. en hann hjólaði á Peuge-
ot-reiðhjóli. Helgi var vel að
sigrinum kominn, var ófeiminn
við að vera í forystu og halda
uppi hraða. Það er til marks um
hina miklu keppni i karlaflokki,
að innan við tíu sekúndur liðu
frá því að fyrsti maður kom í
mark og þar til að níundi maður
fór yfir marklínuna.
Það var Knattspyrnufélag
Keflavíkur sem stóð fyrir hjól-
reiðakeppninni. Mættu yfir 40
hjólreiðamenn úr Keflavík og af
höfuðborgarsvæðinu til leiks, og
var spenningurinn mikill, eins og
reyndar í fyrri keppnum, enda eru
hin ýmsu hjólreiðaumboð farin að
mæta til leiks með sérstök keppn-
islið.
Og það var ljóst strax að
flestallir hjólreiðakappanna ætl-
uðu sér stóran hlut, því þeir
fylgdust að í einum hnapp og þótt
einn og einn reyndi að taka sprett
fylgdu hinir fast á eftir til að
missa ekki af lestinni og til að
njóta góðs af því að einhver skyldi
brjóta vindinn. Fyrir vikið varð
mikil „taktík" í keppninni, og
frekar hægt farið fyrstu 15 kíló-
metrana.
En þegar nær dró endamarkinu
jókst hraðinn og var farið sér-
staklega hratt síðustu kílómetr-
ana. Þegar endaspretturinn hófst
fyrir alvöru naut Helgi sín vel,
sérstaklega sterkur piltur, en
hann er góður skíðamaður.
Það er talsverður uppgangur í
hjólreiðaíþróttinni, og hefur verið
ákveðið að efna til keppni frá
Hellu til Reykjavíkur fyrstu helg-
ina í september.
En við skulum ekki hafa þessi
orð fleiri, heldur láta myndirnar
tala sínu máli. Úrslitin í einstök-
um flokkum urðu annars sem hér
segir:
Flokkur 16 ára og eldri:
1. HoIkí GeirharAsson. PruKcot 41:12,8
2. Einar Jóhannsson. Colner 41:14,9
3. Arnór Magnússon. Colner 41:15,6
Alls luku 15 keppni,þar af komu
fyrstu níu menn í mark á innan
við tíu sekúndum.
Flokkur 14—16 ára:
1. Elvar ErlinKKKon. Colncr 13:01.0
2. SÍKUrjón llalldórKKiin. Colncr 13:05.3
3. Grótar Örn IlalldórKKon. Supcria 18:28.0
Sex luku keppni.
Flokkur 12—14 ára:
1. Ólafur E. JóhanncKKon. Colncr 10:15.0
2. Viktor KjartanKMin. Supcria 59:23.0
3. MaKnús b. EinarKKon. Supcria 63:30.0
Átta luku keppni.
Svipmynd úr hjólreiðakeppninni
á Rosmhvalanesi. Ilér fara tíu
hjólreiðamenn í þéttum hóp og
reyna að notfæra sér ef einhver
tekur forystu til að brjóta vind-
inn.
í höggi
skipti
Júlíus R. Júlíusson. Einn kylfing-
ur, Ólafur Skúlason, á óvenjulegt
met. Hann fór tvívegis holu í
höggi á sama 18 holu hringnum á
Grafarholtsvelli fyrir 10 árum.
Kjartan Pálsson er nú formaður
Einherjaklúbbsins. En það er fé-
lagsskapur þeirra sem leikið hafa
holu í höggi. Nú eru meðlimir
klúbbsins orðnir um 60 talsins.
Þeir halda árlega golfmót. Nýlega
bættust tveir nýir meðlimir í
klúbbinn, nýbakaður íslands-
meistari Ragnar Ólafsson og
Bjarni Konráðsson, læknir.
Rafeindaheili hefur verið látinn
reikna út líkurnar á að fara holu í
höggi og eru þær á 18 holu
golfvelli 42925 á móti einum.
Margir af frægustu atvinnumönn-
um heims í golfi hafa ekki leikið
holu í höggi eins oft og sumir
helgargolfleikaranna.
ÞR • Kjartan Pálsson