Morgunblaðið - 18.08.1981, Page 27

Morgunblaðið - 18.08.1981, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981 35 ísrael - undra- ríki orku og ótta Margir segja við mig: „Þú varst í Jersúsalem og ísrael síðastliðið haust. Þú hlýtur að geta frætt okkur eitthvað um Israel nútímans. Sjáið þið kannski ekkert nema sögustaði og helgidóma fornaldar þarna austur frá?“ Það skal játað í auðmýkt, að alltof lítið veit ég um þetta heilaga land og þá undraþjóð sem þar hefur starfað og stjórn- að síðastliðin 30 ár, hinn unga ísrael. Samt gæti ég sagt margt, sem nær ósjálfrátt mótaðist í hugi og hjörtu okkar þessara 20. aldar pílagríma af norðurslóðum þar í hálfan mánuð í haust. En aðeins örfáar staðreyndir get ég bent á hér í örstuttri grein „við gluggann minn“ til að seðja eða svala forvitni fremur en hægt er að gera í stuttu samtali í strætisvagni eða stétt á bið- stöð. Það skal strax játað hér, að ógreitt er um öll svör vegna aldagamalla og einnig alveg nýrra fordóma um þessa þjóð. Og þá ekki síður vegna ömurlegs níðs og óþverraslúðurs, sem hún hefur verið hulin í og dregin til dóms og dauða á öllum öldum og hjá mörgum þjóðum. Þar hafa öfund og illgirni heimsins átt hásæti og völd með ofsóknum og morðum sem slá flest met mannkynssögunnar. Segja má þó samt, að Israel hafi eflzt við hverja raun. Þrautir og þjóðar- morð hafa einhvern veginn engu um það þokað, að þar sem einhver skarar fram úr á heims- mælikvarða, hvort heldur er í vísindum, listum, uppgötvunum eða íþróttum, dettur jafnvel níð- ingum fyrst í hug, að þar sé Israelsmaður að verki. Það er einmitt á þennan veg, sem áhrifin verða sterkust þegar til ísraels er komið. Landnám þessara sundurleitu flóttamannahópa „gyðingsins gangandi" frá fjarlægum þjóð- löndum og heimsálfum, sem áttu ekki lengur sameiginlega menn- ingu, tungu eða lífsháttu, margt allslaust og án fótfestu, verður vaxandi undur og kraftaverk hvern dag og í hverri skoðunar- ferð fyrir augum og eyrum pílagrímsins. Hvernig var hægt að byggja upp heilar nýtízku borgir, rækta fyrrverandi auðnir og eyðimerk- ur, skapa líf og starf, þar sem sofið hafði verið við þetta um- hverfi þyrnirósusvefni ekki í heila öld heldur þúsundir ára? Það er undur, sem ekki er unnt að svara, en aðeins að dá, virða og teljast nánast kraftaverk. Þrátt fyrir allt, sem gert er að alheimslygum um ísrael, yfir- gang og kúgun gagnvart Palest- ínumönnum og aröbum yfirleitt, verður að viðurkenna þessa nýju og gömlu þjóð sem einasta lýðræðisríki í öllum Miðaustur- löndum, sem svo eru nefnd. Og þrátt fyrir allt, sem flótta- fólk úr hópi Palestínumanna segir um yfirgang og valdbeit- ingu ísraels, þá er það víst, að engin arabaþjóð í heimi er eins frjáls og þróuð til átaka og farsældar eins og sú milljón araha, sem er innan landamæra hins nýja ísraels eða á þeirra vegum. Með öll mannréttindi jöfn hinni svonefndu herraþjóð. Meira að segja jafnan kosninga- rétt og kjörgengi og jafna að- stöðu á þingi og í stjórn. Hvað þá heldur sé minnzt á trúfrelsi, málfrelsi, tjáningarfrelsi og að- stöðu til landsins gagns og gæða. Auðvitað verður Israel að halda fast á sínu. Annars væri hún hrakin brott samstundis. Um það voru öll Miðausturlönd sammála unz Egyptaland skarst úr leik. En í staðinn hefur Sadat fengið margt og mikið, borgir, lönd og auðug landsvæði, sem ísrael hafði einmitt unnið í sjálfsvörn, með óvenjulegri hersnilli, ef hægt væri að nota orðið snilli um svo viðbjóðslegt athæfi, sem hernaður er. En í sambandi við hernað og landvarnir eru mestu og stærstu vandamál þessarar ungu land- námsþjóðar. Herkostnaðurinn eyðileggur lífsafkomu þjóðarinnar og eykur úlfúð, andúð og verðþenslu og jafnframt ótta og spennu. Hvert einasta heilbrigt mannsbarn, bæði karl og kona, piltur og stúlka, er herskylt og verður að læra alla nýjustu tækni á því sviði. Reyndar eru sérstaklega kon- ur, en þó einnig karlar látin vinna ýmiss konar nytsöm og göfug þjónustustöf og nema margt gott í þessu sambandi t.d. hjúkrun, barnauppeldi, gæzlu- og leiðbeiningarstörf, sömuleiðis jarðrækt og garðrækt og jafnvel vísindaiðkanir og rannsóknir. Samt er herskyldan og hinn stöðugi ótti við styrjöld og hermdarverk á hverri stundu, bæði á nótt og degi, sú hætta sem ógnar nú þegar kyrrstöðu, jafnvel landflótta. Miklu færra fólk flytur nú til ísraels en áður. Og tugir þúsunda, jafnvel hundruð þúsunda, einkum ungs fólks, hefur flutt brott úr land- inu hin síðustu ár. Orkan og þráin, sem heillaði hin dreifðu börn Irsaels, sem eftir lifðu ofsóknir og blóðböð heimsstyrjaldar og ofsókna, heim til fyrirheitna landsins, virðist vera í rénum. Og meira að segja trúin, trúin á Drottin, Jahve og „landið, sem flýtur í mjólk og hunangi" og var sterk- asta aflið, sem skóp hinn nýja ísrael, virðist vera á undanhaldi. Og þar standa zíonistar, heittrúarmenn, rétttrúnaðar- fylkingin, sem ýmsir telja kjarna þjóðarinnar, einnig höll- um fæti. Þeir efla og styrkja að vissu leyti, en þeir fæla líka frá, með þröngsýni, kreddum og for- dómum og skapa þannig andúð og hatur andstæðinga þjóðar- innar heima fyrir og jafnvel allrar veraldar. Hermdarverkin eru gerð sem andsvar gegn þeim, með Arafat í broddi fylkingar og ólýsanlega glæpi, morð og eyðileggingu í öllum myndum hins illa í fram- kvæmdum, svo sem mannrán, hópmorð og pyntingar á sak- lausu fólki. Nú sækja hermdarverkamenn úr hópi PLO eða Palestínu- manna, þekkingu sína og þjálf- un til Sovétríkjanna á sex mán- aða námskeið, að sögn Adnan Jaber, foringja hópsins, sem myrti 6 gyðinga í Hebron síð- astliðið vor í maí. Sú árás eða það hópmorð orsakaði brottvís- Mesta þyrluslys í 16 ár (ireat Yarmouth. KnKlandi. 14. áxúst. AP. BREZKI flugherinn tilkynnti i dag. að allri skipulagðri leit hefði verið hætt að mönnum sem hugsanlega hcfðu komizt lifs af úr mesta þyrluslysi í Bretlandi i sextán ár. un tveggja arabískra borgar- stjóra úr landinu og alla þá erfiðleika, misskilning og blekk- ingu, sem slík brottvikning veld- ur. Allt er gert til að æsa upp og sundra. Sannarlega er hér efni í stóra bók eða bækur. Fátt er hægt að segja í ðrfáum orðum „við glugg- ann“. óttinn, verðbólgan og vandamálin hrjá ísrael. En orkan er mikil og spekin, sem þessari frægustu sagnaþjóð heims og helgra fræða er veitt. Það vandamál sem hæst ber og er á allra vörum, er stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínuaraba. Helzt undir stjórn og forystu Arafats, sem Israel og mikill hluti þjóða heims telur foringja og leiðtoga hryllilegustu hermd- arverka heimssögunnar. „Við getum ekki samið við hermdarverkafólk um samstarf og bræðralag, morðingja barna okkar,“ segja Israelsmenn. Lái þeim hver sem vill. „Sjálfstætt ríki Palestínu- manna er sama og þjóðernislegt sjálfsmorð Israels,“ segja for-° ystumenn þjóðarinnar. Er nokkuð líklegra? ísak Shamir, utanríkisráð- herra ísraels, sagði í ræðu, sem hann flutti nýlega: „Nú þegar er til palestínuríki, með um 80 þúsund ibúum við Jordan. En ekki verður séð, að það leysi nokkurn vanda. Það sem PLO óskar er ekki fyrst og fremst sjálfstætt ríki til far- sældar og framfara. Það hafa þeir nú þegar að vissu leyti. Ósk þeirra ein er, að þurrka Israel út af landabréfi heimsins." Og hann hélt áfram: „Allt, sem við þurfum er biðlund og þolgæði. Ekki að missa kjarkinn, heldur efla hugrekki. Aðeins að láta skyn- semina ráða með leiðsögn hugs- unar og snilli. Enginn má fá ráðrúm til að þvinga ísrael til örþrifaráða, þá nær krafturinn frá Camp David stöðugt sterkari tökum." Árelíus Níelsson Tveir þyrluflugmenn voru að ferja heim af olíuborpalli í Norð- ursjó ellefu verkamenn, er þyrlan hrapaði í sjó niður 15 sjómílur frá landi. Tveggja er saknað en ellefu lík funduzt. Talið er ólíklegt að mennirnir sem ófundnir eru geti verið á lífi. Öll hús viö Brekkubyggð Garöabæ hafa og veröa máluö meö PERMA-DRI utanhúss — olíulímmálningu Þetta er einsdæmi á íslandi aö 75 hús öll vid sömu götuna séu máluö meö sömu utanhússmálningu, enda er þetta í samræmi viö 15 ára endingu og reynslu fyrir PERMA-DPI á íslandi. P€*MA'D*I hentar vel bæöi á nýjan og gamlan stein og bárujárns- og asbestkiædd þök MÁLNING í SÉRFLOKKI, HINNA VANDLATU. Sendi í póstkröfu, greiðsluskilmálar. Sigurður Pálsson, byggingam., Kambsvegi 32, Reykjavík. Símar 34472 — 38414. ■SK? 3 tæki í einu. — — / Meiriháttar steríó samstæða meö hátölurum, ' ívinsæla ,,silfur“ útlitinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.