Morgunblaðið - 18.08.1981, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 18. ÁGÚST 1981
45
Tappien
ekki Tóti
Jakob Magnús.son tónlistar-
maður og meðlimur í hljómsveit-
inni „Tappa tíkarrass" kom að
máli við Velvakanda og lýsti
óánægju sinni með meðferð Hr.
Flínks á nafni hljómsveitarinnar í
þættinum 13. þ.m. Hefur hr. Flínk
orðið á að rugla saman Tappa og
Tóta svo að úr varð Tóti tíkarrass
og leiðréttum við þetta hér með.
Einokun eða frjálsræði:
Ríkisútvarpið myndi skána
- eða verða lagt niður
Kæri Velvakandi
Síðastliðinn laugardag birtist í
Velvakanda athyglisvert bréf þar
sem íað var að því að kominn væri
tími til að gefa rekstur útvarps-
stöðva frjálsan hér á landi. Það er
á margan hátt undarlegt að hér á
landi skuli aðeins starfa ein ein-
asta útvarpsstöð, og skyldi engan
undra þótt töluvert sé deilt um
dagskrá hennar þar sem allir sem
á annað borð vilja hlusta á útvarp
verða að hlusta á þessa sömu
dagskrá.
Eg held að við höfum farið á mis
við ýmislegt með því að sníða
rekstri útvarpsstöðva svo þröngan
stakk. Erlendis getur fólk víðast
hvar valið á milli margra út-
varpsstöðva — og þarf ekki að
borga neitt fyrir það. Hér á landi
eru fjölmargir aðilar sem áhuga
hafa á að reka útvarpsstöðvar
part úr degi án þess að það myndi
kosta almenning nokkuð. Auglýs-
endur myndu greiða kostnaðinn
og útvarpseigendur myndu hafa
meiri not af útvarpsviðtækjum
sínum en nú.
Eins og ég minntist á er ekki
furða þó hlustendur Ríkisútvarps-
ins séu ósammála um efnisval
þegar útvarpsstöðin er aðeins ein.
Slíkar deilur yrðu líklega alveg úr
sögunni, ef útvarpsstöðvum fjölg-
aði því þær myndu auðvitað keppa
innbyrðis um hlustendahópinn
hér og miða efni sitt við óskir
hans — en ekki við einhver
annarleg sjónarmið eins og manni
virðist Ríkisútvarpið stundum
gera. Maður heyrir oft sagt að ef
rekstur útvarpsstöðva yrði gefinn
frjáls myndi enginn hlusta á
Ríkisútvarpið en ég er alls ekki
viss um að svo yrði. Maður verður
að taka með í reikninginn að fengi
Ríkisútvarpið samkeppni myndi
það að öllum líkindum skána
verulega — eða verða lagt niður.
Það er engin furða þo stofnun sem
enga samkeppni hefur haft frá því
að hún tók fyrst til starfa, hafi.
dagað uppi á mörgum sviðum —
og fjarlægst sitt upphaflega
markmið, að vera landsmönnum
tii uppfræðslu, gagns og gamans.
Ekki heyrði ég nema fáa lestra
af útvarpssögunni „Praxis" og
hafði nokkra skemmtun af, þó
óneitanlega væri orðbragðið á
stundum full klúrt. Það er kannski
allt í lagi að láta lesa svona sögu í
útvarp en þo held ég að fjölmiðlar
megi vara sig á að ánetjast
klámefni um of. „Klámhundar"
fyrirfinnast nefnilega í öllum
stofnunum og í kring um þær, og
þeir eru vísir til að færa sig upp á
skaftið um leið og þeir sjá sér það
fært. Varðandi þessa sögu held ég
að menningárvitum útvarpsins
hafi orðið fótaskortur, þó þeir vilji
auðvitað ekki viðurkenna það.
Framvegis ættu þeir að vera
reynslunni ríkari — jafnvel Ríkis-
útvarpið hefur sín takmörk og
getur ekki boðið fólki upp á hvað
sem er. Þegar klám og sóðaorð-
bragð er annars vegar er áreiðan-
lega bezt að setja sér skýr mörk og
standá við þau — því varla hefur
slíkur kjaftháttur neitt Iistgildi í
sjálfum sér, eða hvað?
Þrándur i Götu
%KARNABÆR
Laugaveg 66 Austurstraeti 22 Gla>sib* |
PESSAR
hnébuxur
og
ÞENNAN
bol
getur þú fengiö meö 15% afslætti
AÐEINS út þennan mánuö.
Wsm
LMgavagi 20. Simt fré akjptiborði atH,
Stundum gýs
hann — stund-
um ekki
Vesturhæingur hringdi og bað
fyrir eftirfarandi pistil um gos-
brunninn í Tjörninni: „Ég á oft
leið um vesturbakka Tjarnarinnar
og þar með framhjá þessum eina
gosbrunni, sem stendur undir
nafni af þeim sem við eigum,
Reykvíkingar. Alltaf leiðist mér
jafn mikið að sjá að hann sé ekki
hafður á, en því miður virðist það
vera viðburður að sjá hann í
gangi. Látum svo vera, en þá
sjaldan sem hann er í gangi er
eins og hann endist ekki lengi en
detti niður um leið og maður er
byrjaður að virða hann fyrir sér.
Ég hef aldrei séð annað eins
atferli hjá nokkrum öðrum gos-
brunni, og hef ég þó víða farið. Ég
hef verið að velta því fyrir mér
hvernig á þessu gæti staðið og
myndi þiggja það með þökkum ef
einhver gæti frætt mig á því. Þá
vildi ég beina þeirri frómu ósk til
borgaryfirvalda að þau hefðu gos-
brunninn sem mest í gangi fram-
vegis ef þau sæju sér fært, okkur
borgarbúum til augnayndis og
skemmtunar."
Tölvuskólinn
Borgartúni 29
sími 25400
Tölvunámskeið
★ Viltu skapa þér betri stööu á vinnumarkaðnum?
★ Viltu læra aö vinna meö tölvu?
★ Á námskeiðum okkar lærir þú að færa þér í nyt
margvíslega möguleika sem smátölvur, (micro-
computers) hafa upp á að bjóða fyrir viðskipta- og
atvinnulífið.
★ Námið fer að mestu fram meö leiösögn tölvu og
námsefnið er að sjálfsgðu allt á íslensku. Námsefniö
hentar auk þess vel fyrir byrjendur.
★ Á námskeiðunum er kennt forritunarmálið BASIC, en
það er langalgengasta tölvumálið sem notað er á
litlar tölvur.
Innritun í síma 25400