Morgunblaðið - 04.09.1981, Síða 16

Morgunblaðið - 04.09.1981, Síða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1981 fMtargtu Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson. Auglýsingastjóri Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Skeifunni 19, sími 83033. Áskriftargjaid 85 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 5 kr. eintakið. Sovétmenn og Suður-Afríkanar Ekkert ríki er í jafn mikilli einangrun í samfélagi þjóðanna og Suður-Afríka. Ástæðan fyrir andúðinni er kynþáttastefna stjórnar landsins, þar er mönnum skipt í fyrsta, annars og þriðja flokks borgara eftir kynþætti. Blöskrar öðrum þjóðum þetta lögbundna manngreinarálit og hefur ýmsum ráðum verið beitt til að knýja fram stefnubreytingu í landinu. Hvítir menn þar standa þó fastir fyrir og neita staðfastlega að beygja sig undir meirihlutaálit þjóðasamfélagsins. Suður-Afríkumenn hafa farið með stjórn mála í Namibíu, sem er víðáttumikið land milli Suður-Afríku og Angólu, er áður var þýsk nýlenda. Komst Namibía undir Suður-Afríku á þriðja áratugnum fyrir tilstuðlan Þjóðabandalagsins og í umboði þess. Sameinuðu þjóðirnar tóku umboðið af Suður-Afríkumönnum 1966 og tíu árum síðar samþykkti Suður- Afríkustjórn, að Namibía skyldi verða sjálfstætt ríki. Síðan hefur verið um það deilt, hvernig staðið skuli að valdaafsali Suður-Afríkumanna. Þeir óttast, að stjórnmála- og skæruliðahreyfingin SWAPO nái undirtökunum í Namibíu eftir að sjálfstæðið er fengið. Margar tilraunir hafa verið gerðar til þess að skapa forsendur fyrir sjálfsstjórn Namibíu, en þær hafa allar misheppnast, síðasta meiriháttar tilraunin fór út um þúfur í janúar á þessu ári, þegar vopnahlésráðstefna um Namibíu, sem haldin var í Genf, bar engan árangur. Eftir þann fund sýndust Sovétmenn einir láta sér óbreytt ástand vel líka, því að þeir gátu haldið áfram að stunda undirróður sinn með stuðningi við SWAPO og aðstöðu í Angólu. Auðvitað hafa Sovétmenn sett upp friðarsvipinn, þegar þeir hafa verið sakaðir um hernaðarleg afskipti í Namibíu eða Angólu. Eins og kunnugt er hafa Sovétmenn reynt að fela íhlutun sína í Afríku með því að senda þangað kúbanska hermenn og austur-þýska. Innrás Suður-Afríku inn í Angólu á dögunum hefur staðfest, að sovéskir hermenn eru á þessum slóðum. Sovétmönnum dugar ekki lengur að setja upp friðarsvipinn, þegar þessi mál ber á góma. Menn eru vissulega settir í sérkennilegan vanda, þegar þeir eiga að gera upp á milli suður-afrískra hermanna og sovéskra í Angólu. Að vísu má segja, að Sovétmenn mæli fyrir um jafnrétti í stjórnarskrá sinni, þegar Suður-Afríkumenn tala um misrétti kynþáttanna. Hins vegar er óréttlætið og ömurleikinn í daglegu lífi manna í Sovétríkjunum líklega síður en svo minni en í Suður-Afríku. Innrás Suður-Afríkumanna er brot á reglum um friðhelgi landamæra Angólu, auðvitað eiga þeir að hypja sig þaðan og frá Namibíu — eins og Sovétmenn, Kúbumenn og Austur- Þjóðverjar. Svo ekki sé minnst á sovéska hernámsliðið í Afganistan eða herafla víetnamskra kommúnista í öllum nágrannaríkjum Víetnam. Flugvallaskattar Hinn 1. september hækkuðu flugvallaskattar hér á landi, innanlands hækkaði skatturinn um 50%, úr 8 krónum í 12 fyrir hvert flugtak, og fyrir að fara af landi brott með flugvél verða menn nú að greiða 160 krónur í ríkishítina, 43% hærra gjald en áður. Þessi skattheimta er komin út í öfgar eins og flest annað, er snertir fjármál ríkisins. Hins vegar sýnist hið sama gilda um flugvallaskattinn og aðra skatta hjá þessari ríkisstjórn, öll gjaldtaka ríkisins skal nýtt til hins ýtrasta. Óhætt er að fullyrða, að innheimta flugvallaskattsins á Keflavíkur- flugvelli við brottför manna úr landinu er einhver versta landkynning, sem um getur. Bæði einkaaðiliar og einnig hið opinbera verja töluverðum fjármunum til landkynningar og ríkissjóður hefur að eigin frumkvæði tekið að sér að greiða Flugleiðum styrk, til að félagið geti haldið áfram samkeppnisflugi yfir Norður-Atlantshaf. Ferðamannaþjónusta er orðin álitlegur atvinnuvegur hér á landi, fjölmargir eiga atvinnu sína undir þessari þjónustu. Af því berast beinlínis átakanlegar fréttir, hvernig sumum ferðamönn- um verður við, þegar þeir frétta af því við brottför úr landinu eða skömmu fyrir hana, að þeir þurfi að greiða dágóða upphæð til íslenska ríkisins til að komast héðan á brott. Síðustu minningar þessa fólks eftir dvöl sína hér eru því ekki alltaf skemmtilegar og dapurlegar frásagnir þess hafa áreiðanlega meiri áhrif en dýrar auglýsingar ferðamálaaðila, sem reyna að laða viðskiptavini hingað. Meðal útlendinga, sem hyggjast fljúga um Island, spyrst, að á Keflavíkurflugvelli standi kröfuharðir skattheimtu- menn. Vafalítið álíta sumir útlendingar, að þeir þurfi að borga skatt fyrir það eitt að lenda hér á leið sinni yfir Atlantshaf með Flugleiðum. Skatturinn ræðurþví oft úrslitum um val á flugfélagi. Um miðjan nóvember 1980 gekk fulltrúi íslendinga í Norður-Ameríku, Þorsteinn Þorsteinsson, á fund Halldórs Ásgrímssonar formanns fjárhags- og viðskiptanefndar neðri deildar Alþingis og afhenti honum mótmæli 507 Islendinga og Vestur-íslendinga í Norður-Ameríku gegn flugvallaskattinum. Á það var þá bent, að gjaldið hér á landi væri miklu hærra en í öðrum vestrænum löndum og það spillti fyrir áhuga manna á að koma til landsins. Auðvitað hefur ekkert mark verið tekið á þessari ábendingu frekar en öðrum — ríkishítinni allt er kjörorð stjórnarherr- anna. Groðsagnir og raunveruleiki um flotaógnun á heimshöft I ndanfarið hafa birst á slftum Morgunblabsins fréttir, þar srm látiA er I vrtVri vaka. aö aukin umsvif eigi sér staö hjá sovéska herskipaflotanum. Og til aö rökstyöja þetta eru notaAar kenningar. sem settar eru fram I bók Sergej Gorshkovs. flota- foringja, yfirmanns sovéska herskipaflotans. „Flotar I strMM og frWM''. AA voru áliti eru þessar kenningar settar fram I öAru samhengi en I bókinni. APN sneri sér til SergeJ Gorshkovs. flotaforingja. og baA hann aA skýra lesendum MorgunblaAsins frá sinu sjónarmiAi I þessu máli. en ritstjórn Morgun- blaAsins sá sér ekki f*rt aA birta viAtaliA. sem fer hér á eftir. Frýttir frá Sovétrikjunum vekja hér meA athygli lesenda sinna á viAtali þessu. " SPURNIISG Ein elnnig a& (inna kjarnorkueld- Haunakrrfi Brnkir þjódarleift logar aforma ml aft endurher- vefta kjarnorkukafbaia alna meft þrl aft fjarleKJ* þaftan potahs ftalllsUc fIdf laugarnar og sefja I sUft þeina bandarlakar þrlforks cldfla ugar M eru upplysingar um. aft bandarlski (lolmn ftafi dregijg aflur Ur. algerlega tilftelulai t>ar rr bersynilega ollu sj Soveski fkninn n« heldur er það flotiB og fylgirlkja ‘ stafar af. . ' Sovetrlki Myndin er tekin á Rauða torxinu i Moskvu vorið 1981. Á grafhýsi Lenins standa helstu ráðamenn Sovétrikjanna. örin til hægri bendir á Leonid Brezhnev forseta Sovétrikjanna en sú til vinstri á Sergej Gorshkov og er hann áttundi maður frá forsetanum. I Fréttum frá Sovétríkjunum: Novosti teflir Gorshkov gegn Morgunblaðinu í BLAÐINU Fréttir frá Sovétríkjunum, ágúst 1981, sem út er gefið af sovésku fréttastofunni APN eða Novosti á íslandi undir nafni Maríu Þorsteinsdóttur, segir svo: „Undanfarið haía birst á síðum Morgunblaðsins fréttir, þar sem látið er í veðri vaka, að aukin umsvif eigi sér stað hjá sovéska herskipaflotanum. Og til að rökstyðja þetta eru notaðar kenningar, sem settar eru fram í bók Sergej Gorshkovs, flotaforingja, yfirmanns sovéska herskipaflotans, „Flotar í stríði og friði“. Að voru áliti (en ritstjórar Frétta frá Sovétríkjunum eru þau María Þorsteinsdóttir og Alexander Agarkov yfirmaður APN-Novosti á íslandi) eru þessar kenningar settar fram í öðru samhengi en í hókinni. APN sneri sér til Sergej Gorshkovs, flotaforingja, og bað hann að skýra lesendum Morgunblaðsins frá sínu sjónarmiði i þessu máli, en ritstjórn Morgunblaðsins sá sér ekki fært að birta viðtalið, sem fer hér á eftir. Fréttir frá Sovétríkjunum vekja hér með athygli lesenda sinna á viðtali þessu.“ Ofangreindur formáli að við- tali APN-Novosti við æðsta mann sovéska herflotans kom ritstjórn Morgunblaðsins á óvart. Fyrir því eru þrjár megin- ástæður: 1) Morgunblaðið lítur svo á, að með óbeðnum erindrekstri sín- um hafi APN á íslandi verið að hlutast til um málefni Morgun- blaðsins með óeðlilegum hætti. Auðvitað er það ekki á valdi APN að ákveða, hvort viðtal skuli tekið við Sergej Gorshkov til birtingar í Morgunblaðinu. APN getur ekki leitað til eins eða neins í nafni lesenda Morg- unblaðsins. Ritstjórn Morgun- blaðsins ákveður við hvern er talað í nafni blaðsins og lesenda þess. 2) Þá kom klausan í Fréttum frá Sovétríkjunum ritstjórn Morgunblaðsins á óvart, vegna þess að fyrst við lestur hennar varð ritstjórninni ljóst, að APN-Novosti hefði áhuga á að koma viðtali sínu við Sergej Gorshkov á framfæri í Morgun- blaðinu. 3) Síðast en ekki síst kom það á óvart, að sjálfur Sergej Gorsh- kov skyldi gefa sér tíma til þess að sitja yfir fréttum Morgun- blaðsins um umsvif sovéska flot- ans og svara spurningum um það efni fyrir tilstuðlan Maríu Þorsteinsdóttur og Alexander Agarkovs. Hlýtur áhugi flotafor- ingjans á Islandi að vekja óhug ýmissa og er raunar ein besta staðfesting, sem fengist hefur á því, að í augum sovéskra flota- fræðinga skiptir landið höfuð- máli vegna hnattstöðu sinnar mitt á siglingaleið Norðurflot- ans sovéska út á heimshöfin. Hér er ekki ástæða til að tíunda svör Sergej Gorshkovs í viðtalinu við APN. Má segja, að kjarninn í þeim felist í þessari einu setningu: „Sovéski flotinn ógnar engum, heldur er það floti Bandaríkjanna og fylgiríkja þeirra, sem ógnun stafar af, ekki einungis fyrir Sovétríkin, heldur fjölmörg ríki önnur." Sergej Gorshkoy er 71 árs að Upphafið á viðtali Frétta frá Sovétríkjunum við Sergej Gorshkov. Sergej Gorshkov yfirmaður sov- éska flotans. Ifann var skipað- ur aðmíráll 31 árs að aidri, yngri en nokkur annar í sögu rússneska flotans. Hann fékk það hlutverk hjá Krútsjeff að sækja út á heimshöfin i stað þess að binda flotann við strandvarnir Sovétríkjanna. aldri og síðasta aldarfjórðung eða síðan 1956 hefur hann verið yfirmaður alls sovéska flotans og aðstoðarvarnarmálaráðherra. Hann tók sæti í Æðsta ráði Sovétríkjanna 1954 og hefur í 20 ár setið í miðstjórn Kommún- istaflokksins. Hann hefur verið sæmdur fjölmörgum heiðurs- merkjum, er hetja Sovétríkj- anna og hefur fimm sinnum fengið Lenínorðuna. Á hátíðis- dögum, eins og byltingarafmæl- inu eða 1. maí, stendur Gorshkov á meðal sovéskra ráðamanna á grafhýsi Leníns og lætur herinn hylla sig. Sergej Gorshkov mun að minnsta kosti einu sinni hafa komið til íslands og var það í desember 1977, þá sté hann öllum á óvart út úr sovéskri flugvél, sem millilenti á Kefla- víkurflugvelli á leið til Kúbu. Eftir að hafa litið í kringum sig á flughlaðinu, hélt hann aftur inn í vél sína. Sergej Gorshkov hefur verið kallaður faðir sovéska flotans og vakti bók hans um hlutverk herflota til að styrkja stöðu Sovétríkjanna sem heimsveldis mikla athygli, þegar hún kom út á síðasta áratug. I bók sinni færir Gorshkov rök að því, að aðeins með því að geta sýnt vald sitt á öllum heimshöfunum sé unnt fyrir Sovétríkin „að skapa hagstæð skilyrði til að koma á sósíalisma og kommúnisma .. Norðurfloti Sovétríkjanna á Kolaskaga, sem sækja verður fram hjá Islandi út á heimshöf- in, er öflugasti floti Sovétríkj- anna. Hlutverki þessa flota hef- ur Gorshkov lýst svo, að hann eigi að „mylja óvininn mélinu smærra, eyðilegga lífsafl hans og auðlindir".

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.