Morgunblaðið - 04.09.1981, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. SEPTEMBER 1981
17
Aðalfundur Stéttarsambands bænda að Laugum
Kom einnig fram í skýrslu
formannsins að jarðarkaupalán
hafi verið hækkuð um helming á
síðasta ári. Sala mjólkur og
mjólkurafurða gekk mjög vel sl.
ár og má rekja það til smjörút-
sölunnar í nóvembermánuði sl.
Sem af er þessu ári hefur orðið
5,5% söluaukning á kindakjöti.
Utflutningur kjöts og sláturaf-
urða var heldur minni árið 1980
en árið þar áður. Kom fram í
skýrslunni að allar líkur eru á
því að Norðmenn dragi stórlega
úr kjötkaupum á Islandi og
verður því í framtíðinni að leita
nýrra markaða og voru Banda-
ríkin m.a. nefnd í því sambandi.
Uppgjör nokkurra mjólkur-
samlaga fyrir sl. ár sýndi afleita
rekstrarútkomu og vantaði mik-
ið fé til að endar næðu saman.
Ekki er möguleiki í svo stuttu
máli að skýra nánar frá skýrslu
formannsins en í iokaorðum
sínum sagði Gunnar Guðbjarts-
son meðal annars:
„Þau 18 ár sem ég hefi gegnt
formennskunni hefur orðið ör
þróun í landbúnaðinum og mjög
miklar breytingar í markaðs-
málum hans. Ég ætla ekki hér og
nú að fara að rekja þær breyt-
ingar.
Bændur hafa ekki allir áttað
sig á hversu örar þessar breyt-
ingar hafa verið og hversu víð-
tækar afleiðingar breytingarnar
hafa haft á afkomu þeirra og
alla þróun í þjóðfélaginu.
Þurft hefur að endurskoða og
breyta fjölmörgum atriðum í
stefnumörkun í íslenskum land-
búnaði á síðustu árum af þessari
ástæðu. Það er því ekki óeðlilegt
þó menn hafi oft greint á um
einstök atriði mála og leiðir að
Afkoma
bænda á
árinu 1980
fremur góð
og jöf n
Laugum. 3. september. frá Arnaldi
Indriðasyni. hlaðamanni Mbl.
AÐALFUNDUR Stéttasambands bænda var í gær-
morgun settur að Laugum í ReykjadaL Fundarstjóri
var kosinn Magnús Sigurðsson, bóndi á Gilsbakka á
Hvítársíðu í Borgarfirði.
Eftir venjuleg aðalfundarstörf flutti Gunnar
Guðbjartsson, formaður Stéttasambandsins, skýrslu
síðasta árs. Kom meðal annars fram í henni að
samkvæmt niðurstöðum búreikninga var fjárhags-
afkoma bænda árið 1980 fremur góð og nokkuð jöfn
en lökust á blönduðu búunum. Benda upplýsingar
frá Stofnlánadeild landbúnaðarins um skil til
hennar til hins sama.
Ingi Tryggvason formaður Framleiðsluráðs landbúnaðarins, Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra (
Gunnar Guðbjartsson á aðalfundinum í gær. í ræðustól er Árni Jónasson. erindreki Stéttarsambandsins.
Séð yfir aðalfundarsalinn á Laugum i ga'r.
þeim markmiðum sem sett hafa
verið.
Ég hefi átt þess kost að
kynnast fjölda fólks um land allt
og eiga samstarf og samskipti
við fjölda manna á þessum árum
um landbúnaðarmálin. Ég þakka
þessi kynni og þetta samstarf.
Mér er ljóst að landið er víða
fallegt og seiðmagnað og bindur
margt fólk við heimahagana.
Landið er líka oft gjöfult við þá
sem leggja sig fram um að nýta
gæði þess. Hins vegar er nátt-
úrufar á íslandi með þeim hætti
að alltaf má búast við erfiðu
veðurfari sem veldur bæði kali á
jörð og einnig öðrum erfiðleikum
við fóðuröflun. Eitt þýðingar-
mesta atriði í framtíðinni til að
bæta og tryggja kjör bænda er
að finna ráð til að mæta þessu.
Ráð til að minnka kalið og koma
í veg fyrir grasbrest sem af því
leiðir m.a. með tilraunum með
ræktun kuldaþolinna grasstofna.
í annan stað þarf að tryggja
200.000 fleiri en framleiðsla var í
raun og veru á árinu 1980. Þetta
þýðir að ef t.d. væri ákveðið að
lækka framleiðslumagn um
200.000 ærgildisafurðir og beita
kvótakerfi til stjórnunar svo því
marki yrði náð, þyrfti að lækka
heildarkvótann um 400.000 ær-
gildisafurðir. Sagði hann, að
alvarlegasta hættan við kvóta-
kerfið væri sú að það leiddi til
stöðvunar í tækniþróun og hag-
ræðingu þannig að landbúnaður-
inn héldi ekki lengur í við aðrar
framleiðslugreinar í landinu
hvað snertir framleiðniaukningu
sem leiðir til hækkunar búvöru-
verðs umfram almennt neyslu-
vöruverð.
Ræddi ráðherrann einnig um
markaðsmál. Sagði hann að ekki
lægi endanlega fyrir hve mikið
skorti á að útflutningsuppbætur
dugi til að mæta halla á útflutn-
ingi búvara. Á þessu ári var
útvegað lán uppá 17 milljónir
nýkr. til að mæta hluta af halla
Gunnar Guðbjartsson. formaður Stéttarsambands bænda. flytur
skýrslu stjórnar á aðalfundinum í gær. Næstur honum við borðið er
Pálmi Jónsson landbúnaðarráðherra. Símamynd Mbi.: rax
aðstöðu til að ekki verði fóður-
skortur vegna óþurrka, þar er
ráðið þekkt, þ.e. votheysverkun.
En hinsvegar vantar víða góða
aðstöðu til að henni verði komið
við og einnig vantar góðan og
hentugan tæknibúnað bæði til
heyskapar í vothey og til gjafar
þess. En hvorttveggja er til og
þekkt og því þarf þar fyrst og
fremst aukna leiðbeiningar-
starfsemi og beinlínis svo úr því
verði bætt.“
Þegar formaður hafði lokið
skýrslu stjórnar sinnar voru
lagðir fram reikningar Stéttar-
sambandsins og Bændahallar-
innar og kom þar fram að
rekstrarhalli hins síðarnefnda
árið 1980 nam rúmum 42 millj-
ónum gkr. eða 420.000 nýkr.
Rekstrarhalli á Bændahöllinni
árið 1979 nam rúmlega 930.000
nýkr.
Á rekstrarári Stéttarsam-
bandsins varð afgangsupphæð
sem nam 1.150.000 nýkr. en
aðaltekjustofn Stéttarsam-
bandsins er búnaðarmálasjóðs-
gjald, sem bændur greiða af
framleiðslu sinni. 10% af þessu
gjaldi renna til kvenfélaga á
Islandi.
Eftir matarhlé hélt Pálmi
Jónsson, landbúnaðarráðherra,
ræðu. Sagði hann, að bráða-
birgðaverð frá sexmannanefnd-
inni á búvörum hafi verið stað-
fest í ríkisstjórninni í gærmorg-
un. Það kom fram í ræðu Pálma
að ærgildisafurðir samkvæmt
heildarkvótakerfinu sem út-
reikningi lauk á í júlí sk eru
á útflutningi búvara á verðlags-
árinu 1979—80.
Á síðasta verðlagsári sem lauk
nú 31. ágúst er gert ráð fyrir að
geti vantað 40—45 millj. nýkr.
þegar ríkissjóður hefur greitt
útflutningsbætur samkvæmt
lögum. Útflutningsbætur síðasta
verðlagsárs eru áætlaðar á fjár-
lögum 120 milljónir nýkr. Ljóst
er að þær verða eitthvað hærri,
sagði ráðherrann.
Sagði hann að stefnan í mál-
efnum landbúnaðarins væri í
megindráttum ljós. Hún byggð-
ist á því að bændur og sveitafólk
hafi sambærilegar tekjur og
félagslega aðstöðu og aðrar fjöl-
mennar stéttir. Hún byggist á
því að fullnægja neysluþorf
þjóðarinnar fyrir landbúnaðar-
afurðir og að tryggja búsetu í
landinu með svipuðum hætti og
nú er. Sagði ráðherrann að
lokum að landbúnaðurinn stæði
traustum fótum í íslensku þjóð-
félagi.
Á eftir ræðu ráðherrans
ávörpuðu gestir fundinn en að
því loknu var kjörið í nefndir.
Kjörið var í framleiðslunefnd,
verðlagsnefnd, allsherjarnefnd
og fjárhagsnefnd. Á eftir
nefndakjöri voru opnar umræð-
ur. Mjög miklar umræður urðu
um skýrslu stjórnar. Allir sem
hafa tekið til máls hafa lýst yfir
ánægju sinni yfir þeim árangri
sem náðst hefur í takmörkun
búvöruframleiðslu. Ennfrenuir
hafa menn talið kjarnfóður-
gjaldið sjálfsagt og telji það
hafa náð tilætluðum árangri.