Morgunblaðið - 13.09.1981, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 13.09.1981, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1981 21 l>ú skuldar á vitlausum stöðum — eða hvað? Eftir Halldór Blöndal, alþm. Ég átti í vikunni fund meö þrem ráðherrum og aðstoð- arráðherra að auki, með mönnum að norðan. Tilefnið var að fyrirtæki þeirra var komið í rekstrarfjárþröng, þrátt fyrir góðan efnahag og meiri aflabrögð en nokkru sinni fyrr, og því voru góð ráð dýr. Slóðinn var oðinn langur. Hallarekstur síðast- liðið ár og enn versnandi staða á þessu ári, m.a. vegna þess að rekstrarlánin eru í dollurum en helsti markað- urinn í Englandi, sem að mati eins af talsmönnum SÍS þýðir í raun að tekjurn- ar eru 20—30% minni en í fyrra. Upplýst var að fyrir- tækið stæði í skilum í Fisk- veiðasjóði og Byggðasjóði, en skuldirnar á hinn bóginn við verkafólkið, sveitarfélagið og aðra þá sem nauðsynlegt er að eiga viðskipti við í daglegum rekstri. Eftir að þessar upplýs- ingar lágu fyrir komst Ragn- ar Arnalds, fjármálaráð- herra svo að orði, að fyrir- tækið skuldaði greinilega „á vitlausum stöðum". Með því á hann augljóslega við að fyrirtæki eigi í lengstu lög að komast hjá því að standa í skilum við opinbera sjóði, að það að slá lán hjá þeim sé að skulda á réttum stað, það sé annars flokks skuld sem ekki þurfi að greiða. Erlent lán upp í hallann Rekstrarhalli framleiðslu- atvinnuveganna verður ekki leiðréttur þótt nokkrir menn hittist í fundarsal forsætis- ráðherra uppi í stjórnarráði. Þeir menn, sem vanastir eru stólunum þar, eru búnir að marka stefnu í atvinnumál- um, sem hefur m.a. haft það í för með sér, að á hverjum degi berast nú fréttir af því að fólki sé sagt upp, fyrir- tæki séu að loka eða um sérstakar neyðarráðstafanir sé beðið. Milli tuttugu og þrjátíu fyrirtæki í sjávar- útvegi eru nú í sérstakri athugun hjá ríkisstjórninni. Meðan ég set þessar línur á pappír á ég símtal við fram- kvæmdastjóra saumastofu fyrir norðan og spyr hann hvað sé að frétta. Hann svarar: „Allt það ljótasta sem hægt er að segja. Við höfum ekki fengið ullar- pjötlu síðan fyrir sumarfrí." Og einmitt þennan morgun hafði hann komist að sam- komulagi við sitt starfsfólk að það leggi niður vinnu um helgina og geri ekki kröfu til uppsagnarfrests. í annarri saumastofu á Raufarhöfn, hefur öllu fólk- inu verið sagt upp með tveggja mánaða fyrirvara. Þar á Jökuli h/f, sem rekur togara og frystihús, í veru- legum erfiðleikum og yfir- vofandi að togarinn verði seldur fyrir skuldum. Að mjólkurkúnni verði slátrað. A fundinum með ráðherr- unum var sem sagt farið fram á að viðkomandi fyrir- „Eftir að þessar upp- lýsingar lágu fyrir, komst Ragnar Arn- alds, fjármálaráð- herra svo að orði, að fyrirtækið skuldaði greinilega á „vitlaus- um stöðum“. Með því á hann augljóslega við, að fyrirtækið eigi í lengstu lög að komast hjá því að standa í skilum við opinbera sjóði, að það að slá lán hjá þeim sé að skulda á réttum stað, það sé annars flokks skuld, sem ekki þurfi að greiða“. tæki mætti slá erlent lán upp í hallann. Ráðherrarnir sögðu að það væri mál ríkis- stjórnarinnar og viðskipta- ráðherra, og hugðust bera málið upp á næsta ríkis- stjórnarfundi. Síðan var þessari samkomu í stjórn- arráðinu slitið, og togarinn var áfram bundinn við bryggjuna fyrir norðan. Menn eru að átta sig I náttúruhamförunum í Kelduhverfi um árið var snjór yfir öllu. Eftir jarð- skjálftana miklu komu alls konar rákir í snjóinn, sprungur, svo að hann var eins og útitafl til að sjá. Að vísu með miklu fleiri reitum en útitaflið við Lækjartorg, og reitirnir voru auk heldur allir eins á litinn. í byrjun fengu ýmsir menn snjóbirtu í augun út af ríkisstjórninni og stefnu hennar. En raunveruleikinn hefur látið grunninn skjálfa undir tilvist hennar og sprungurnar eru að verða jafnmargar eins og í fönnina í Kelduhverfinu forðum. Menn eru að átta sig á því að það getur orðið dýrt á næstu árum að slá án afláts erlend lán fyrir rekstrarhallanum. Þótt ríkisstjórninni tækist að taka þvílíkt lán, að það fellur ekki í gjalddaga fyrr en á næstu öld, þegar ráð- herrarnir verða ýmist komn- ir undir græna torfu eða á eftirlaun, vilja menn ekki sætta sig við slíkan hugsun- arhátt yfirleitt. ísland er ríkt land, við höfum byggt upp atvinnuvegi og skapað skilyrði fyrir góðu mannlífi, sem getur farið batnandi ef við sjálf viljum. Vilji er allt sem þarf. Ef menn vilja láta danka þá geta þeir það. Ef þeir vilja taka á sig rögg þá er það ekki síður í þeirra valdi. að kaupa frystihúsið á Suðureyri, hljóta þeir að spyrja sjálfa sig að því, hvort það sé heppilegt, að þeir kaupi frystihús sem verið hefur í einkaeign. Bersýnilegt er, að Sambandsfor- stjórarnir hafa ekki spurt sig þeirrar spurningar. Þeir hafa tek- ið sölutilboðinu fagnandi, bætt enn einu frystihúsinu í frystihúsa- keðju sína, aukið hlutdeild sína í fiskframleiðslu og útflutningi um leið og þeir tilkynna ný áform um útþenslu á Vestfjörðum, eins og Valur Arnþórsson stjórnarfor- maður SÍS gerði í viðtali við Morgunblaðið sl. fimmtudag. Þetta voru grundvallarmistök hjá forsvarsmönnum Sambands- ins. Um þetta mikla viðskiptaveldi hefur ríkt friður um langt árabil, en sá friður hefur nú verið rofinn og það er verk Sambandsmanna sjálfra, sem kunna sér ekki hóf í útþenslustefnu sinni í atvinnulíf- inu. Þeir kunna ekki að standast freistingar á borð við frystihúsið á Suðureyri, sem er einn stærsti eignaraðili að Sölumiðstöð hrað- frystihúsanna. Hver verða viðbrögð einka- framtaksins? Kaup SÍS á frystihúsinu á Suðureyri eru áfall fyrir einka- reksturinn í landinu. Þessi kaup eru til marks um, að einkafram- takið hefur látið undan síga í sjávarútvegi og fiskvinnslu. Sú staðreynd, að eigendur sneru sér til SIS væntanlega vegna þess, að þeir hafa talið, að enginn einkaað- ili mundi hafa bolmagn til þess að ráðast í slík kaup, hlýtur að verða einkaframtaksmönnum umhugs- unarefni og þeir hljóta að spyrja sjálfa sig, hvað til bragðs skuli taka. Einkaframtakið í landinu getur ekki horft þegjandi á, að Sambandið leggi undir sig at- vinnulífið í landinu, að einn aðili verði óeðlilega stór. Þegar frysti- hús skiptir um eigendur, fer úr höndum einkaframtaks í hendur Sambandsins, gerist margt fleira en bara það. Þetta frystihús og togarinn, sem það á að meirihluta til, eiga margvísleg viðskipti við marga aðila. Þetta fiskvinnslufyr- irtæki þarf að kaupa olíu. Ætli þau viðskipti flytjist ekki frá einkaaðila til Sambandsfyrirtæk- is? Þetta fiskvinnslufyrirtæki þarf að kaupa tryggingar. Ætli þær flytjist ekki frá einkaaðila til samvinnuaðila? Og svo mætti lengi telja. Innreið Sambandsins í frystiiðnaðinn er því ekki bara umhugsunarefni fyrir einkafram- taksmenn í útgerð og fiskvinnslu, heldur eru afleiðingarnar marg- falt víðtækari. Auðvitað er ekkert við það að athuga, að samvinnuhreyfingin ieitist við að efla fiskvinnslu sína. En það verður bara að gerast með öðrum hætti en þeim að fjármála- veldi Sambandsins verði beitt til þess að koma einkaframtakinu á kné. Þess vegna er orðið tímabært, eftir kaupin á Suðureyri, fyrir einkaframtaksmenn í mörgum starfsgreinum að íhuga það, hvort þeir hljóti ekki að bindast samtök- um um að gera einkarekstrinum í landinu kleift aö kaupa frystihús og önnur fyrirtæki, þegar eigend- ur vilja selja. Þessir aðilar hljóta að athuga, hvort með sameigin- legu átaki er hægt að skapa aðgang að fjármagni, sem gerir þetta kleift. Vandi iðnaðarins Að sumu leyti hefur vandi iðnaðarins á Akureyri og vandi iðnaðarins yfirleitt fallið í skugg- ann vegna umræðna um frystihús- ið á Suðureyri. En það er vissulega ástæða til að vekja athygli á þessum vanda og ýmsum þáttum hans. Fyrir svo sem eins og 10—15 árum, þegar umræður stóðu hér um stóriðju lögðu alþýðubanda- lagsmenn mikla áherzlu á það, að þeir væru málsvarar þess, sem þeir kölluðu „þjóðlega" atvinnu- vegi, þ.e. sjávarútvegs, landbúnað- ar og iðnaðar. í valdatíð Alþýðu- bandalagsins nú hin síðari ár hefur það komið fram hvað eftir annað, að flokkurinn hefur horn í síðu stóriðju en kveðst vilja efla smærri iðnað, heimamarkaðsiðn- að og útflutningsiðnað úr íslenzk- um hráefnum. Það er þess vegna alveg sér- staklega athyglisvert, að í tíð núverandi ríkisstjórnar, þar sem Alþýðubandalagið fer með iðnað- armái, hefur sú breyting orðið á, að iðnaðurinn í heild sinni, bæði útflutningsiðnaður og heima- markaðsiðnaður á nú mjög í vök að verjast. Vegna þeirrar stefnu, sem ríkt hefur í tíð núverandi ríkisstjórnar í gengismálum, hefur stöðugt hall- að undan fæti hjá iðnaðinum. Hvað þýðir það? Það þýðir að verulegur samdráttur hefur orðið í framleiðslu hér heima fyrir en í þess stað hefur innflutningur auk- izt stórlega. Ýmsir aðilar, sem stunda bæði framleiðslu hér heima og innflutning ieggja nú stóraukna áherzlu á innflutning- inn en draga úr framleiðslunni vegna þess, að hún er rekin með tapi og getur ekki keppt við innflutninginn að óbreyttu gengi. Á einföldu máli þýðir þetta: stefna Alþýðubandalagsins er að leiða til þess að hinir „þjóðlegu" atvinnuvegir, sem þeir kaila svo, eiga nú mjög í vök að verjast, en viðskiptin ganga glatt fyrir sig hjá innflytjendum og heildsölum. Það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar, að í valdatíð komm- únista yrði helzt aukning í verzlun og innflutningi á vörum, en engin starfsgrein hefur orðið fyrir jafn miklum árásum af hálfu kommún- ista og verzlunin. Sambands- menn þurfa aö hugsa sín mál Sambandsmenn geta sjálfum sér um kennt, að tilraun þeirra til að kynna vanda verksmiðja þeirra á Akureyri hefur snúizt upp í almennar umræður um stöðu Sambandsins, umræður, sem áreiðanlega eru rétt að byrja. Hins vegar geta þessar umræður orðið samvinnuhreyfingunni til góðs, ef forráðamenn hennar draga réttar ályktanir af þeim. Hverjar eiga þær ályktanir að vera? Fyrst og fremst þær, að Sambandið fari sér hægt í út- þenslu í íslenzku atvinnulífi og að sú útþensla verði með eðlilegum hætti. Það er sjálfsagt og eðlilegt, að Sambandið beiti sér fyrir umbótum og eflingu þeirra frysti- húsa, sem fyrir eru innan vébanda þess í því skyni að bæta fram- leiðsluna og auka. En það er ekki sjálfsagt og ekki eðlilegt að Sam- bandið kaupi upp frystihús í einkaeigu til þess að auka hlut sinn með þeim hætti. Það er sjálfsagt og eðlilegt, að Sambandið beiti mætti sínum til þess að þróa upp nýjar atvinnu- greinar í landinu, en hvers vegna í ósköpunum skyldi Sambandið ryðjast inn á þau svið atvinnulífs- ins, sem einkaframtakið hefur byggt upp og heldur uppi bæði fullnægjandi þjónustu og sam- keppni sín í milli? Sambandsmenn þurfa að hugsa sín mál. Breyti þeir ekki um stefnu og hverfi frá útþenslu af því tagi, sem nú er að verða á Suðureyri við Súganda- fjörð, hlýtur einkareksturinn að snúa vörn í sókn og það myndar- lega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.