Morgunblaðið - 13.09.1981, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 13.09.1981, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. SEPTEMBER 1981 35 af kjöti árlega, 5 millj. lítrum af neyzlumjólk og margs konar öðrum landbúnaðarafurðum? Hvað græðir þjóðin á þeim sparnaði á vinnutíma og sliti á farartækjum, sem við þetta yrði? Og hvaða örvun í félagslegum og menningarlegum efnum mun af slíkri framkvæmd leiða um allt Vesturland? Það er skoðun margra giöggra leikmanna, að brú yfir Hvítá við Seleyri sé ekki eins mikið mannvirki og almennt hefur verið talið. Ef rannsókn staðfestir það, sem við skulum vona, leyfi ég mér, herra forseti, að draga í efa, að það sé unnt að benda á margar framkvæmdir í þessu landi, sem betur mundu borga sig en umrædd brúarsmíði. Landbúnaðarráðherra (Ingólfur Jónsson): Herra forseti. Það verður að teljast gott, þegar héraðsstjórnir eða sýslunefndir gera samþykktir um það að rannsaka mál og gera athuganir á þeim, áður en gerð er áskorun um það, að hafizt verði handa um framkvæmdir, því að það er áreiðanlega rétt að fara þannig að frekar en að flana út í framkvæmdir, sem ekki hafa verið rannsakaðar og verða þess v.egna miklu dýrari en eðlilegt hefði verið og kannski ekki þjóðhagslega hagkvæmar. Á sl. sumri voru gerðar fyrstu frummælingar á Seleyri og við Borgarneskauptún til þess að kanna líklegustu veglínu að firðinum beggja vegna með hugsanlega brúar- gerð fyrir augum, en fjörðurinn er þarna 1,7 km á breidd. Hér er þó aðeins um fyrstu frumathugun að ræða, og engar mælingar eða rann- sóknir hafa verið gerðar í sjálfum firðinum. 3. spurning: Hvenær má vænta þess, að undirbúningsrannsóknum á slíkri brúargerð verði lokið? Engar áætlanir liggja fyrir um þetta atriði. Hins vegar er ljóst af umferðartaln- ingu síðustu ára, að leggja þarf Vesturlandsveg sem hraðbraut vest- ur fyrir Borgarfjörð og einnig Borg- arnesbraut samkv. ákvæðum 12. gr. vegalaganna. Ef leggja á hraðbraut þessa leið, þar sem núverandi vegur Ingólfur Jónsson liggur, mun þurfa að endurbyggja hann svo til frá grunni og þar með brýrnar á Andakílsá, Hvítá hjá Ferjukoti og Ferjukotssíki. Með lagningu Vesturlandsvegar yfir Borgarfjörð hjá Seleyri styttist leið- in milli Reykjavíkur og Borgarness um 20 km og til Snæfellsness um 23 km og til Vestfjarða og Norður- og Austurlands um 6 km. Þá yrði leiðin um Seleyri, Borgarnes og Heydal til Búðardals nær jafnlöng og núver- andi leið um Hvítárbrú og Bröttu- brekku. Af þessum sökum er ljóst, að fyllsta ástæða er til þess að bera saman rækilega í stofnkostnaði endurbyggingu núverandi vegar fyrir Borgarfjörð og lagningu nýs vegar yfir Borgarfjörð milli Seleyrar og Borgarness. í slíkum samanburði verður einnig að taka tillit til hagnaðar umferðarinnar af því að aka mun styttri leið. Rannsókn á leiðinni Seleyri — Borgarnes mun þó verða bæði tímafrek og kostnaðar- söm. Kanna þarf burðarþol botnsins í firðinum með hliðsjón af hárri vegfyllingu og brúargerð, þéttleika hans fyrir mismunandi vatnsþrýst- ingi innan og utan við veg. Eitt erfiðasta vandamálið verður þó að rannsaka, hvaða áhrif vegur og brú yfir Borgarfjörð getur haft á flóða- hættu á láglendinu við Borgarfjörð í miklum vatnavöxtum og samsvar- andi stórstreymi í suðvestanátt og lágum loftþrýstingi. Til þess að fá úr því skorið, þarf m.a. að kortleggja mikið landssvæði við botn fjarðar- ins, svo að nokkuð sé talið. Til samanburðar þarf svo að gera áætl- un um endurbyggingu núverandi vegar sem hraðbrautar. Rannsóknir þessar hljóta að taka nokkuð langan tíma og kosta mikið fé. Telja verður æskilegt, að þeim verði lokið að fullu á næstu árum. Halldór E. Sigurðsson: Herra forseti. Ég vil leyfa mér að þakka fyrirspyrjanda fyrir að leggja þessu máli lið hér á háttvirtu Alþingi og taka undir það, sem ekki er vanþörf á, að héraðsstjórnir ýti á eftir Vegagerð ríkisins og hæstvirtum samgöngumálaráðherra aö láta fram fara rannsóknir, sem Alþingi hefur fyrir langalöngu samþykkt, að fram skuli fara. Þann 26. febrúar 1958 mælti ég hér á háttvirtu Alþingi fyrir tillögu um rannsókn á brúargerð yfir Borg- arfjörð. Þann 30. maí það sama ár var afgreidd frá háttvirtu Alþingi svohljóðandi tillaga, sem öll fjár- veitinganefnd Alþingis stóð að, með leyfi hæstvirts forseta: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórn að hlutast til um, að Vegagerð ríkisins láti fram fara rannsókn á því, á hvern hátt sé unnt að stytta landleiðina frá Reykjavík til Borgar- fjarðarhéraðs, Vestur- og Norður- lands. Skal í því sambandi m.a. athuga möguleika á framkvæmd og kostnaði við endurbyggingu á vegin- um um framanverðan Svínadal og Geldingadraga, brúargerð á Borgar- fjörð milli Seleyrar og Borgarness og komið yrði á ferju yfir Hvalfjörð milli Hvaleyrar og Kataness." Hér er allt vegamálið til Vestur- lands og það eru 10 ár, sem Vegagerð ríkisins hefur haft samþykkt Al- þingis fyrir framkvæmdinni. í des. 1964 gerði ég fyrirspurnir til hæstvirts samgöngumálaráðherra, hvað liði þessari framkvæmd, og kom þá i Ijós, að hún var skammt á veg komin, eins og síðan hefur komið fram eða vitað er og kom fram í ræðu hæstvirts samgöngumáiaráð- herra hér áðan. Á Alþingi í fyrra fluttum við þingmenn Vesturlands tillögu til þingsályktunar enn á ný um fullkomna rannsókn á sam- göngumöguleikum yfir Hvalfjörð og Vesturlandsveginn. Það hefur því ekki skort á, að Alþingi hafi leitað eftir því við Vegagerð ríkisins, að hún rannsakaði þessa leið. Það, sem hefur skort á, er það, að Vegagerð ríkisins, undir forustu hæstvirts samgöngumálaráðherra, hefur gleymt að framkvæma þá áskorun, sem Alþingi hefur lagt fyrir hana. Það gleður mig því stórum, að almennur skilningur skuli vera á þessu máli, og ég treysti því, að með því að ýta á þetta mál enn á ný, átti Vegagerð ríkisins undir forustu hæstvirts samgöngumálaráðherra, sig á því, að það á að rannsaka mál, sem háttvirt Alþingi afgreiðir til ríkisstjórnar. Landhúnaðarráðherra (Ingólfur Jónsson): Herra forseti. Ég skal gjarnan verða við tilmælum hátt- virts síðasta ræðumanns að fylgjast með því, að nefnd, sem kosin var í fyrra til athugunar á þessu máli, vinni. Það er nú svo, að menn lengir stundum eftir því, að rannsóknum verði lokið, og eru óþolinmóðir að bíða eftir því. En rannsóknina skal fyrst gera, áður en hafizt er handa um framkvæmdir. Háttvirtur 3. þingmaður Vestur- lands sagði, að það veitti nú ekki af að ýta á samgöngumálaráðherra og Vegagerðina að fylgja eftir því, sem búið væri að samþykkja í háttvirtu Alþingi, svo að það yrði gert, og vitnaði í tillögu, sem var samþykkt hér 1958 um brúargerð á Borgar- fjörð. Það er alls ekki rétt, sem háttvirtur þm. sagði, að Vegagerðin eða samgöngumálaráðherra hafi gleymt þessari tillögu. Það var hafin lítils háttar rannsókn á þessu máli, eftir að tillagan hafði verið sam- þykkt, og það kom í ljós, að þetta var svo umfangsmikið, að það þótti ekki á því stigi málsins ástæða til að verja til þess stórfé, þar sem vitað var, að brú yfir Borgarfjörð yrði ekki byggð á næstu árum. Viðhorfið hefur vitanlega breytzt á síðustu árum. Framkvæmdir í vegagerð hafa stóraukizt. Brýr hafa verið byggðar víðs vegar á landinu núna á síðustu árum, sem fyrir 10 árum voru litlar vonir til að yrðu byggðar á næsta aldarfjórðungi, og það, sem þótti alls ekki fært fyrir 10 árum, þykir jafnvel fært nú, m.a. vegna aukinnar tækni og vegna þess, að framkvæmdir í vegagerð hafa stóraukizt. En við þetta bætist stórum aukin umferð á Vesturlands- vegi, eins og annars staðar. Við þetta bætist, að nú er talaö um það í alvöru að gera varanlegan veg, Vesturlandsveg, og eins og ég sagði hér áðan í fyrri ræðu minni, verður að endurnýja meginhlutann af gamla veginum, sem liggur að Hvít- árbrúnni beggja vegna og þar sem það liggur fyrir, að það þarf að endurbyggja þennan veg, er alveg sjálfsagt, að það verði rannsakað, hvort heppilegt er að breyta vegar- stæðinu og flytja það neðar. Það er þess vegna kominn tími til þess nú að láta fullnaðarkönnun fara fram á þessu, og þess vegna verður það nú gert. Ég átti ekki von á því frá háttvirt- um 3. þingmanni Vesturlands, að hann héldi því fram hér, að þetta hefði gleymzt, að hér væri um einhvern slóðaskap að ræða. Við höfum oftlega talað um þetta mál. Við höfum báðir gert okkur grein fyrir því, að þott brú á Borgarfjörð kynni að koma, var alls ekki von á henni á þeim árum, sem liðin eru, síðan tillagan var samþykkt. Og það líða áreiðanlega nokkur ár enn, þangað til þessi brú verður byggð, m.a. vegna þess, að þetta er mjög Halldór E. Sigurðsson dýrt mannvirki og vegagerð að brúnni, og það þarf að afla fjár til þess að þetta megi verða, áður en það verður að veruleika. Það er í rauninni ekki annað en þetta, sem ég vildi taka fram, hvað þetta snertir, en sem betur fer hafa framkvæmdir aukizt á seinni árum og gefið nýjar vonir um enn auknar framkvæmdir, en 1958 þótti það fjarstæða, að ráðizt yrði í mannvirki eins og það að gera brú á Borgar- fjörð, m.a. vegna þess, að þá var allt vegaféð aðeins 80 millj. kr., og jafnvel á því verðlagi, sem var 1958, hefði brúin þá og sú vegagerð, sem að brúnni varð að leggja, kostað það eða meira. Nú, þegar vegaféð hefur verið stórum aukið og ýmsum mann- virkjum hrundið í framkvæmd, sem ekki þótti fært á því tímabili, verða menn vitanlega bjartsýnni en áður og geta jafnvel hugsað sér að ráðast í brúargerð yfir Borgarfjörð, ef það, að undangenginni nákvæmri rann- sókn, verður álitið þjóðhagslega heppilegt. Fyrirspyrjandi (Ásgeir Péturs- son): Herra forseti. Ég þakka hæst- virtum samgöngumálaráðherra greinargóð svör hans við þessari fyrirspurn, og ég ætla ekki að ræða þau frekar, en ég held, að menn séu núna óðum að átta sig á því, að samgöngubætur eru ekki bara skemmtilegur munaður, heldur arð- bær fjárfesting, sem skilar þjóðar- búinu bæði aukinni og betri fram- leiðslu og færir menningarstrauma um landið. Það er rétt, sem háttvirtur 3. þingmaður Vesturlands drap á hér áðan, að áhugi manna á brúargerð yfir ósa Hvítár er engin nýlunda. Menn hafa íhugað þetta mál í meira en 30 ár. Það er líka rétt, sem þessi háttvirtur þingmaður sagði, að hann hefði komið þessu máli á framfæri á Alþingi fyrir 10 árum. Þá sat að vísu vinstri stjórn, og hún sat, ef ég man rétt, fram undir áramót það ár, svo að henni hefur nú getað gefizt tóm til þess að skipa nefnd eða hefja rannsókn á því, en það gerði hún þó ekki, þannig að háttvirtur 3. þing- maður Vesturlands getur þá beint skeytum sínurn til hennar, ef hann vill gera það í þessum efnum. En þessum háttvirta þingmanni láðist, úr því að hann fór inn á þessa línu, að gera hér grein fyrir höfuð- atriði málsins. Aðalatriði þessa máls er það, að sigling til Borgarness var dag hvern 1958, þegar hann flutti sína tillögu. Þá gekk Akraborgin á hverjum degi frá Reykjavík um Akranes til Borgarness. Það voru hinar þýðingarmestu samgöngur, og þegar það nú skeði fyrir hálfu öðru ári, að þær samgöngur brustu, — það varð að láta skipið hætta þessari siglingu af fjárhagsörðugleikum, — skapaðist nýtt viðhorf, og það var þess vegna, sem héraðsstjórnin í Borgarfirði, sýslunefndirnar báðar, gerðu sína eindregnu áskorun um það, að fram færi þessi rannsókn. Þetta er meginmá! þessa efnis, að það hafa brostið allar forsendur fyrir því að taka á málinu eins og gert var áður fyrr. Það er nýtt viðhorf, sem skapast af því, að þessar þýðingarmiklu samgöngur, siglingin dag hvern, hefur brugðizt. Akraborgin flutti áður alla mjólkina, hún er núna um 5 millj. lítra á ári, allt kjötið, sem er 12—15 hundruð tonn á ári, og farþega milli Borgarness, Akraness og Reykjavík- ur. Þetta skip gengur ekki lengur, og það er þess vegna, eins og ég sagði áðan, sem málið horfir allt öðru vísi við í dag. Þetta vildi ég að kæmi fram, því að þetta er ein höfuðforsendan fyrir því, að háttvirt Alþingi taki þetta mál nú til sérstakrar meðferðar. Það má líka minna á það, að það er ekki ósanngjarnt að segja, að missir siglingarinnar, sem var studd af ríkisfé, auki verulega á siðferðilegan rétt Vestlendinga til þess, að fjár- munir hins opinbera verði látnir ganga til þessarar umræddu brúar- gerðar. Þetta á að sjálfsögðu ekki aðeins við um Borgnesinga og Borg- firðinga, heldur jafnframt auðvitað um Snæfellinga og aðra Vestlend- inga, og ég vil leyfa mér að segja aðra íbúa bæði á Norður- og Austur- landi. Ég vil svo að lokum minna á það, að fulltrúar allra stjórnmálaflokka, eins og háttvirtur þingmaður Jónas Árnason vék hér að áðan, sem buðu fram í Vesturlandskjördæmi í fyrra, lýstu yfir því fyrir kosningarnar, að þeir styddu þetta mál eindregið. Ég vil leyfa mér að endurtaka þakklæti mitt til samgöngumálaráð- herra fyrir upplýsingar hans. Jónas Arnason: Herra forseti. Ég er að sjálfsögðu sammála því, sem hér hefur komið fram um nauðsyn samgöngubóta í Hvalfirði og í Borg- arfirði. Brú á Borgarfjörð, yfir Hvítá frá Seleyri, mundi að sjálfsögðu verða til mikilla bóta. Og hér er ekki aðeins um það að ræða að stytta mönnum leið úr einum stað í annan, eins og háttvirtur 4. þingmaður Vesturlands benti á hér áðan, heldur er hér um að ræða mikið og aðkallandi öryggismál. Hin gamla og mjóa brú á Hvítá hjá Ferjukoti, það verður að teljast hæpið, að hún dugi lengur fyrir alla þá umferð, sem á henni mæðir, og má segja, aö ástand hennar sé þannig, að af henni stafi töluverð hætta. Og beggja vegna við brúna eru svo þeir vegarkaflarnir í Borgarfirði, sem einna fyrst teppast af völdum vatnavaxta, eins og hátt- virtur 4. þingmaður Vesturlands benti einnig á. Að sunnanverðu er það svokallað Norðurkotseiði, að norðanverðu vegurinn yfir Ferju- kotssíki, sem fróðir menn segja, að sé orðinn dýrasti vegárkafli á land- inu. Hann hefur verið að sökkva síðan hann var í öndverðu lagður, þessi vegur, og hefur orðið að gera á honum miklar og dýrar endurbætur tvisvar og þrisvar sinnum á hverjum áratug. Það er þar af leiðandi ekki nein vanþörf á að beina umferðinni frá þessum vegarköflum þarna og þessari gömlu brú yfir Hvítá. Ilalldór E. Sigurðsson: Herra forseti. Ég skal nú ekki lengja þessar umræður, en ég vil undirstrika það, að það gleður mig stórum, að hæstvirtur samgöngumálaráðherra skuli nú lýsa því skorinort yfir, að þessi rannsókn skuli gerð. Ef þetta verður framkvæmt og brúin kemur, ætla ég að fyrirgefa það, þó að það hafi tekið 10 ár að hugsa um málið. Út af því, sem fram kom í ræðu hans og háttvirts 4. þingmanns Vesturlands, vil ég segja það, að þau rök, sem þar voru nefnd, voru líka notuð hér fyrir 10 árum, og þá sáu menn hér á háttvirtu Alþingi, hvert stefndi með samgöngurnar í landinu, þær væru óðum að færast inn á landleiðir, og bentu á, að þetta yrði sú leiðin, sem væri einna fjölförnust, og þess vegna yrði í tíma að hugsa fyrir málinu. Fyrir 10 árum voru menn það framsýnir hér á háttvirtu Alþingi, að þeir sáu það, að þessa leið yrði að rannsaka. Þeir gerðu sér það ljóst, að það yrði að byggja nýja brú yfir Hvítá. Ferjukotssíkisbrýrn- ar mundu ekki anna þeirri umferð, sem í framtíðinni myndi á þær lögð, og annað því um líkt. Þess vegna ályktuðu þeir hér samhljóða, að þessi rannsókn skyldi fara fram. Það er hins vegar hryggðarefni, að í valdastóli samgöngumála skuli hafa setið menn, sem ekki hafa komið auga á þetta fyrr en nú, að samgöng- urnar eru daglega stöðvaðar, eins og hefur verið síðustu dagana, vegna þess að leiðin getur ekki annað því hlutverki, sem henni er ætlað. Þess vegna gleðst ég — og enginn meira en ég — yfir því, að nú skuli þó loksins vera skilnings að vænta í þessu máli, og þegar framkvæmdin verður hafin, vona ég, að þeir biðjist ekki afsökunar á því, forustumenn í samgöngumálum, að þeir hafi eitt- hvað verið við það riðnir, eins og kom fram í blaðaummælum á sl. hausti. Jón Árnason: Herra forseti. Ég skal ekki lengja þessar umræður mikið. Ég vil aðeins nota tækifærið og þakka háttvirtum fyrirspyrjanda fyrir að hafa hreyft þessu máli hér og ennfremur hæstvirtum sam- göngumálaráðherra fyrir þær upp- lýsingar, sem hann hefur gefið af því tilefni. Eins og kunnugt er, er nú síðasta árið af fjögurra ára vegaáætluninni, og stendur því yfir nú endurskoðun og mótun þeirrar vegaáætlunar, sem við tekur á næsta ári. Það er því ekki óeðlilegt, að ýmsum málum, sem snerta samgöngur á landi, sé hreyft hér á þessu þingi, og vitanlega er það svo, að margar þingsályktunartillög- ur hafa verið samþykktar, sem fela í sér að rannsaka eitt og annað, sem snertir vegasamgöngur. Og það er ekki óeðlilegt, að oft sé rætt um þessa leið hér fyrir Hvalfjörð og Vesturlandsveginn og samgöngurn- ar yfir Hvalfjörð, þar sem þessar vegasamgöngur snerta hvorki meira né minna en samgöngur fyrir þrjá af fjórum landsfjórðungum. Við vitum það, sem kunnugt er, að allar samgöngur á landi til Vestfjarða, til Norðurlandsins og enn sem komið er til Austurlandsins, eru undir því komnar, hvernig þessi vegur hér fyrir Hvalfjörð er hverju sinni. Og eins og hér hefur komið fram, var samþykkt á síðasta þingi þingsálykt- unartillaga um að athuga sérstak- lega, hvernig bezt yrði fyrir komið vegasamgöngum hér fyrir Hvalfjörð. Það var nokkru eftir að tillagan var samþykkt skipuð þriggja manna nefnd, og mér er kunnugt um það, af því að ég hef haft áhuga á því að fylgjast með störfum þessarar nefndar, að hún hefur þegar unnið að margvíslegum og miklum upplýs- ingum, sem nauðsynlegt er að afla í sambandi við það mál. Það var ákveðið með samþykkt þessarar tillögu, að upplýsingarnar skyldu liggja fyrir í lok yfirstand- andi árs, og að því tel ég að sé stefnt. Það var gert fyrst og fremst með tilliti til þess, að þessar upplýsingar geti legið fyrir, þegar hin nýja vegaáætlun, sem á að koma til framkvæmda á árinu 1969, verður mörkuð og samþykkt hér á Alþingi. Og það er einmitt með tilliti til þess, að hér er um mjög mikið hagsmuna- mál og nauðsynjamál að ræða í sambandi við samgöngur á þessu landi. Ég tel ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um málið. Ég vil taka það fram að nýju, að ég þakka þeim, sem hér hafa átt hlut að máli, að þessum umræðum var hreyft, og ég tel, að það hafi ýmislegt komið fram í sambandi við þessar umræður, sem undirstrikar það, hve mikil nauðsyn er á, að þessar vegaframkvæmdir og auknu samgöngubætur, sem hér um ræðir, verði númer eitt í þeirri vegaáætlun, sem samþykkt verður fyrir næsta tímabil.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.