Morgunblaðið - 23.09.1981, Qupperneq 1
32 SIÐUR
211. tbl. 68. árg.
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981 Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Skipverjarnir af Tungufossi, sem sökk við Englandsstrendur, komu til landsins í gærdag með flugi frá London. Hér er
einn skipverjinn, Hallur Helgason, 3. vélstjóri, að heilsa syni sínum, Halli, gegnum glerið sem skilur að farþega og gesti.
Þar hjá stendur kona Halls, Sæunn Klemenz. Ljósmynd mw. rax
Rússar hóta Samstöðu
með efnahagsþvingunum
Varsjá, 22. septemher. AP.
STEFAN Olszowski, einn af
helztu leiðtogum pólskra komm-
únista. varaði við því í dag, að
Rússar kynnu að stöðva ýmsa
hráefnisflutninga til Póllands í
Þota hrapar
á náttstað
hermanna
Ankara. Napólí. Tókýó.
22. september. AP.
TYRKNESK orrustuþota
hrapaði til jarðar á nátt-
stað á æfingasvæði herja
Atlantshaísbandalagsins í
dag og er óttast að allt að
citt hundrað hermenn haíi
farist.
Þotan sem fórst var af gerðinni
F-5. Flugmanninum tókst ekki að
bjarga sér í fallhlíf.
Varist hefur verið allra fregna
af tildrögum slyssins, sem varð við
borgina Babaeski í nágrenni
grísku landamæranna. í undir-
búningi voru umfangsmiklar her-
æfingar með þátttöku hermanna
frá flestum ríkjum Atlantshafs-
bandalagsins. Æfingarnar hefjast
á fimmtudag.
þeirri von að bæla mætti niður
„andsovézka starfsemi“ i Pól-
landi. Olszowski veittist harðlega
að Samstöðu og flokksþingi sam-
takanna i beinni sjónvarpsræðu í
dag. Ilann er háttsettasti valda-
maðurinn sem orðið hefur til að
gagnrýna samþykktir þings
Samstöðu.
„Við komumst ekki af án
þeirra," sagði Olszowski, en stöðv-
uðu Rússar útflutning til Pól-
lands, mundi innflutningur Pól-
verja á ýmsum hráefnum minnka
á einu bretti um 50% og jafnvel
meira á olíu. Pólverjar standa
þegar frammi fyrir því að þurfa að
draga úr innflutningi frá Vestur-
löndum.
Nefnd háttsettra sovézkra emb-
ættismanna kom í dag til Varsjár
til viðræðna við pólsku stjórnina
um efnahagsaðstoð Rússa við
Pólverja á næstu árum.
Oháð samtök járnbrautar-
starfsmanna birtu í dag reiðilegt
svar við viðvörun Kremlverja við
„andsovétisma" og afhentu það
sovézka sendiherranum í Varsjá.
Járnbrautarstarfsmennirnir og
ýmsar aðrar deildir Samstöðu
hafa boðið sovézkum stallbræðr-
um sínum til Póllands til þess að
kynnast ástandi þar af eigin raun.
Izvestia, málgagn sovézkra
stjórnvalda, sagði í dag, að það
væri hlutverk Varsjárbandalags-
ríkjanna allra að standa vörð um
kommúnismann í Póllandi.
Haig utanríkisráðherra Banda-
ríkjanna ræddi stöðu mála í Pól-
landi við fulltrúa margra ríkja hjá
Sameinuðu þjóðunum í dag og
gær, og lagði þar áherzlu á að
•eggja yrði niður deilur í Póllandi
með friðsamlegum hætti. Hann
sagðist mundu skýra Gromyko
utanríkisráðherra Sovétríkjanna
frá því á miðvikudag, að Rússar
yrðu að afskrifa áform um innrás
í Pólland ef þeir vildu bæta
sambúð sína við Bandaríkjamenn.
Gromyko sagði í ræðu hjá SÞ að
Rússar þráðu vinsamleg samskipti
við Bandaríkjamenn.
Benn og
Healey
standa
hnífjafnir
London. 22. septembcr. AP.
BARÁTTA þeirra Tony
Benn ok Denis Ilealey um
varaformennsku í Verka-
mannaflokknum er nú
tvísýnni en nokkru sinni
áður, eftir að stjórn sam-
taka flutningaverka-
manna lýsti stuðningi við
Benn og hvatti fulltrúa
samtakanna á þinjgi
flokksins í Brighton um
heljíina til að veita Benn
fulltinjíi.
Flutningaverkamenn eiga 40
fulltrúa og ráða yfir sjö prósent-
um atkvæða á þingi flokksins, og
verði fulltrúarnir við áskorun
stjórnarinnar, standa Benn og
Healey nokkuð jafnt að vígi.
Ákvörðun samtaka flutninga-
verkamanna er talin meiri háttar
áfall fyrir Healey, sem telst til
hófsamari aflanna í flokknum.
Fróðir menn segja, að fari Benn
með sigur af hólmi, kunni það að
kljúfa Verkamannaflokkinn end-
anlega í tvennt. Fjöldi þingmanna
flokksins hefur sagt í einkavið-
ræðum, að sigri Benn í varafor-
mannskjörinu á sunnudag, muni
þeir ganga til liðs við sósíaldemó-
krata.
Atvinnumálaráðuneytið skýrði
frá því í dag, að í könnun sem gerð
var 12. september síðastliðinn
hefði tala atvinnulausra verið
komin upp í 2.998.789. Fjölgaði
atvinnulausum um rúm 58 þúsund
frá síðustu talningu í fyrra mán-
uði. Embættismenn telja, að í dag
séu rúmar þrjár milljónir brezkra
launamanna atvinnulausar. Nor-
man Tebbit atvinnumálaráðherra
sagði, að þrátt fyrir að merki
sæjust þegar um aukna framleiðni
og betri hag í iðnaði, þá mætti við
því búast að atvinnuleysi ætti
eftir að aukast enn um sinn. Hann
sagði, að mánaðarleg aukning
atvinnulausra færi stöðugt
minnkandi.
70.000 útilokaðir
úr skólum í íran
lieirút. 22. scptcmbor. AP.
SJ() TUGIR þúsunda táninga í íran hafa verið
útilokaðir frá skólanámi í vetur, að sögn áreiðan-
le>;ra hcimilda. Er þetta liður í herferð stjórnar
Khomeinis erkiklerks >?e>ín utanþjóðkirkjumönnum
ok pólitískum andstæðingum sínum.
Af hálfu menntamálaráðu- Fyrir tveimur vikum voru 30
neytisins hefur þessari tölu menntaskólastúlkur úr einum
verið mótmælt, en embættis- skóla í norðurhluta Teheran
leiddar fyrir aftökusveit, tveim-
ur dögum eftir að þær voru
teknar fastar fyrir meinta aðild
að hryðjuverkasamtökum og
fyrir að dreifa áróðri gegn
stjórn Khomeinis. Fjölda nem-
enda úr sama skóla, sem ein-
göngu er fyrir stúlkur, var
en
menn hafa þó viðurkennt, að
um marga tugi þúsunda ungl-
inga sé að ræða.
Sömu heimildir hermdu, að
margir táningar hefðu verið
líflátnir í íran á síðustu vikum í
herferð stjórnarinnar gegn and-
stæðingum sínum.
meinað að setjast á skólabekk í
vetur „vegna þátttöku í stjórn-
málastarfi".
Abolhassan Bani-Sadr, fyrr-
um forseti írans, sagði í dag í
viðtali við blað í Kuwait, að
stjórn Khomeinis væri öllu
verri og illskulegri en keisara-
stjórnin fyrrverandi. Ólætin og
mótmælaaðgerðir í Teheran
væru eðlileg viðbrögð við
fjöldamorðunum, sem erki-
klerkurinn hefði fyrirskipað.
Einn af nánustu samstarfs-
mönnum Bani-Sadrs, Rashid
Sadr 01 Hefazi, var líflátinn í
dag ásamt 23 öðrum andstæð-
ingum stjórnar Khomeinis.