Morgunblaðið - 23.09.1981, Side 2

Morgunblaðið - 23.09.1981, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981 Lánskjara- vísitala hefur hækkað um 50% á einu ári Seðlabankinn heíur reiknað út lánskjaravísi- tölu fyrir októbermánuð ok er hún 274. Hún hefur því hækkað um 3,01% milli mánaða, eða úr 206 í 274. Milli mánaðanna áRÚst og september hækkaði lánskjaravísitala úr 259 í 266, eða um 2,70%. Sé hækkunin skoðuð á einu ári frá október til október hefur lánskjara- vísitala hækkað úr 183 í 274, eða um 49,73%-. Þjóðarbókhlaðan á Melunum. Ljósm. ói K.Mag Homsteinn Þjóðarbókhlödu lagður í dag í daK klukkan 14 verður lajtður hornsteinn Þjóðarbókhlöðunnar á Melunum í Reykjavík. Athöfnin heíst með því að formaður byggingarnefndar. Finnbogi Guðmundsson landsbókavörður, býður gesti velkomna. Því næst flytur Ingvar Gislason menntamálaráðherra ávarp og loks leggur forseti íslands, Vigdís Finnbogadóttir, hornstein byggingarinnar. Búið að salta í 10 þús. tunnur BÚIÐ er að salta i rúmar 10 þúsund tunnur af Suðurlands- síld. sem að mestu hefur veiðst í fjörðum austanlands. Mest hafði verið saltað á Eski- firði um helgina, eða um 3000 tunnur, saltað hafði verið í 1000 tunnur á Fáskrúðsfirði, 100 tunn- ur á Vopnafirði, 1300 tunnur á Húsavík og í 1100 tunnur á Dalvík. Einar Benediktsson hjá Síldar- útvegsnefnd sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að tregt hefði verið hjá reknetabátum fram til þessa, og enn væri ástandið líkt því sem var á sama tíma í fyrra, en sömu helgi fyrir ári hafði verið saltað í um 11000 tunnur. Hins- vegar glæddist síldveiðin mikið þegar líða tók á septembermánuð á síðustu vertíð. JÓNAS H. HARALZ VELFERDARRÍKI ÁVILUGÖTUM JH.rBunWnbiÖ Úinstri stjóm ' Reykjavilr 1 ”§S! KJS . CiM*r TharaMMlvNk'l' P*bn«n „ ■ rwrtam »»1 Franwókn o«! .......... /. r i; 4, Bók eftir Jónas Haralz um velferðarríkið FÉLAG frjálshyggjumanna hef- ur gefið út bók eftir Jónas II. Haralz hankastjóra. Velferðar- ríki á villigötum. Það er safn greina og erinda Jónasar frá áttunda áratuginum. þar sem hann ra-ðir m.a. um rökin fyrir hagvexti, um hag fyrirtækja i verðbólgu og við sívaxandi ríkis- afskipti. um frjálshyggju og markaðssósíalisma. um stefnu- mörkun stjórnmálaflokkanna. einkum Sjálfsta-ðisflokksins. og um þa-r skorður sem hagstjórn Þrír valdir á svæðamót Skáksamhand íslands hefur nú valið þrjá skákmenn til að tefla á na'sta svæðamóti í Randers í Danmorku. sem haldið verður í byrjun janúar næsta ár. Skák- meistararnir eru: Ilelgi Ólafsson, íslandsmeistari. Guðmundur Sig- urjónsson. stórmeistari. og Jón L. Árnason. alþjóðlegur meistari. upumuuui UX W611I öiiuui söltun gæti numið 1 milljón - segir Pálmi Vilhjálmsson, framkvæmdastjóri Siglósíldar séu settar. Bókin er 160 bls. og skiptist i 1.3 kafla. en Jónas skrifar einnig inngang. sem ekki hefur birst áður. Tveir kaflarnir hafa ekki heldur birst áður á íslensku. einn um ríkisvald og hagstjórn. annar um reynslu ís- lendinga af verðbólgu. en i þeim kafla leggur hann til. að fundin séu ný úrræði i efnahagsmálum og varpar fram nokkrum hug- myndum. I inngangi segir Jónas m.a.: „Engin ein kenning, enginn einn flokkur, enginn einn maður getur um það dæmt, hvernig samfélag- inu sé best skipað eða starfsemi þess best háttað. Þess vegna er lýðræðið það þjóðskipulag, sem best hentar, þrátt fyrir alla ann- marka þess. En lýðræði grefur sína eigin gröf, ef því er beitt til að hindra og hefta starfsemi borgaranna utan vettvangs sjálfra stjórnmálanna. Meginatriðið er að kunna sér hóf, að skilja, hverjum árangri þurfi að ná og unnt sé að ná með stjórnmálastarfi og hvar verði að nema staðar." „ÞAÐ ER vitað mál að gífurlegur sparnaður hefði orðið af því, hefðum við saltað vinnslusíld okkar sjálfir í stað þess að kaupa hana að. Miðað við verðlag i fyrrahaust hefði sparnaðurinn numið um 1 milljón og því farið nærri. að hægt hefði verið að reka verksmiðjuna taplaust í ár.“ sagði Pálmi Vilhjálmsson. fram- kva-mdastjóri Siglósíidar á Siglu- firði. er Morgunblaðið innti hann eftir mögulegum sparnaði á þessu sviði. Pálmi sagði ennfremur, að þessi tala, 1 milljón, væri miðuð við, að saltaðar hefðu verið um 6.000 tunnur í fyrrahaust og við talsvert óhagræði í rekstri, þannig að ef vel væri í haginn búið, gæti hún hugsanlega orðið enn hærri. í fyrra hefðu 5.000 tunnur af salt- síld verið keyptar, að mestu frá Höfn í Hornafirði, og tapið á þessu ári hefði verið eitthvað á aðra milljón króna. Það, sem ylli því að ekki hefði verið farið út í síldarsöltun hjá fyrirtækinu nú, væri það, að menn hefðu hreiniega ekki búizt við því í vor að fá síld og því hefði nauðsynlegur undirbún- ingur ekki verið fyrir hendi, auk þess sem húsnæði vantaði til síldarsöltunar. Pálmi sagðist ekki geta sagt um það, hve mikið af saltsíld yrði keypt nú, það kæmi ekki í Ijós fyrr en um áramót, þegar ljóst yrði hvort samningar næðust við Rússa og hvert verðið yrði. Þá kæmi í ljós hvort grundvöllur yrði fyrir vinnslu hjá fyrirtækinu. En hvað sem þessu liði væri það brýnt mál að athuga hvort ekki væri hægt að salta síldina hjá fyrir- tækinu, bæði til sparnaðar í hrá- efnisverði og til atvinnubóta. Stofnstærðarmælingar á loðnustofninum að hefjast tækju þátt í mælingunum yrðu Bjarni Sæmundsson, þar sem Hjálmar verður leiðangursstjóri, og G.O. Sars, en leiðangursstjóri þar verður Johannes Hamre. IJM MÁNAÐAMÓTIN hefjast ár- legar stofnsta'rðarmælingar á ís- lenzka loðnustofninum og munu Norðmenn og íslendingar annast þessar mælingar i sameiningu. svo sem verið hefur undanfarin ár. NiðurstiWlur mælinganna munu svo va ntanlega liggja fyrir seinni hiuta mánaðarins. Hjálmar Vilhjálmsson, fiski- fræðingur, sagði í samtali við Morgunblaðið í gær, að skipin sem „Tíminn sem fer í stofnstærð- armælingarnar fer mikið eftir veðri, en áætlað er að leiðangrin- um Ijúki 25. október og að niður- stöður liggi frammi kringum mán- aðamót," sagði Hjálmar. Flutningaskipið Isnes: Fékk á sig sljigsíðu í óveðri út af Mandi ÍSNES. eitt af skipum skipafé- lagsins Nesskips hf.. lenti í hvöss- um fellihyl þar sem það var statt ura 600 mílur vestur af írlandi helgina 12. til 13. sept. sl. Losnaði um farm í skipinu cr það fékk á sig sjó og fékk það á sig slagsíðu en ekki var hægt að rétta það við Arnarflug beðið um nánarí skýringar varðandi millilandaflug: „Eitt stórt og eitt lítið milli- landaflugfélag væri heppilegtu „ÉG IIEF óskað oftir nán- ari upplýsinKum frá Arn- arflutíi hvernití þeir hyiílíjast reka þetta flutí or þá m.a. með hvaða vélum.“ sajíði Steintfrímur Ilermannsson, samtroniíu- ráðherra. í samtali við Mhl., er hann var inntur eftir meðferð ráðuneytis- ins á beiðni Arnarfluifs um leyfi til áætlunarflugs - segir Steingrímur Hermannsson, samgönguráðherra milli Islands og nokkurra staða í Evrópu. „Arnarflugsmenn hafa hins vegar ekki látið þessar upplýs- ingar í té ennþá. Þegar svarið hefur borizt ráðuneytinu verður það sent flugráði eins og venja er til og fær þar væntanlega sína meðferð," sagði Steingrímur Her- mannsson ennfremur. Hver er þín skoðun á því, að hér séu starfandi þrjú millilandaflug- félög? — „Ég tel, að hæfilegt væri að hafa hér eitt stórt flugfélag starfandi og eitt minna, sem veita myndi því stóra einhverja sam- keppni. Nú, þau mál hafa öll verið til umræðu á fundum að undan- förnu og ég vona að þau leysist farsællega," sagði Steingrímur ennfremur. Ertu þá fylgjandi því, að Arnar- flug og Iscargó gangi í eina sæng og sameinist? — „Ég fagna þeim viðræðum, sem hafa farið fram milli félaganna. Ég hef hins vegar ekki haft nein afskipti af þeim, en hef vitað um þær. Þá er ég þeirrar skoðunar, að mjög mikilsvert væri, að flugfélögin næðu sam- komulagi um ýmis atriði, sem flugið varða og óeining er um, og ég sé ekki annað en það ætti að takast ef viljinn er fyrir hendi," sagði Steingrímur Hermannsson, samgönguráðherra að síðustu. fyrr en veðrið lægði. Meðan stormurinn gekk yíir var skipinu anda-ft, en veðrið sté)ð ta-pa tvo sólarhringa og var veðurhæðin mest 12 vindstig. Að sögn Más Gunnarssonar hjá Nesskipi hf., er ekki hægt að tala um að þarna hafi verið mikil hætta á ferðum — enginn meidd- ist meðan á óveðrinu stóð og gekk siglingin til lands mjög vel en þá hafði skipið verið rétt við með ballestartönkum. Sagði Már að skipið hefði verið að koma frá Kanada með timburfarm áleiðis til Dublin á írlandi. Þegar þangað kom leit á tímabili mjög illa út með losun skipsins. Hafði timbur- farmur á dekki raskast nokkuð í óveðrinu og neituðu hafnarverka- menn að afferma það nema til kæmi 37 þúsund punda aukaþókn- un. Sagði Már að skipið hefði raunverulega orðið að pólitísku bitbeini verkalýðsfélaganna við höfnina í Dublin, sem eiga nú í launadeilum. Hefðu hafnarverka- menn fljótlega lækkað framan- greinda upphæð niður úr öllu valdi og náðist loks samkomulag. Var talið að lokið yrði við losun skipsins í gærkvöldi þegar síðast fréttist.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.