Morgunblaðið - 23.09.1981, Page 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981
O.Johnson & Kaaber
75 ára
Húsakynni 0. Juhnson & Kaaber við
Sætún — ásamt húsakynnum systurfyr-
irtækisins Heimilistæki hf.
Ljósm.: ól.K.M.
Með komu símans opnuðust viðskiptamöguleikar
og f yrirtækið varð að veruleika
Núverandi stjórn og stjórnendur fyrirtækisins: ólafur ó. Johnson, forstjóri, Rafn F. Johnson, Stefán Þ.
Arnason, Jóhann Möller, Arent Claessen og Hannes Ó. Johnson. Á myndina vantar Gunnar Steingrímsson.
Simadama fyrirtækisins Sölumenn að störfum.
Ileildverzlunin 0. Johnson
& Kaaber er 75 ára í dag.
Fyrirtækið er stofnað 23.
september 190fi af tveimur
ungum mönnum, sem gcrðu
með sér samstarfssamning og
hrintu af stað þeirri verzlun,
sem allir Islendinga þckkja.
Þetta voru þeir Ólafur John-
son. sem þá var 25 ára gamall
og Ludvig Kaaher, sem var 27
ára. Ólafur hafði þá um skcið
vcrið starfandi við verzlunina
F]dinborg, en Ludvig Kaaber
hafði þá unnið hjá Ditlev
Thomsen, í Tomsensmagasíni
um fjögurra ára skeið.
• Síminn opnaði
viðskiptamtiguleika
Ekki er ljóst, hvernig þessir
tveir menn kynntust, en talið er að
Ludvig Kaaber hafi verið leigjandi
hjá Þorláki Johnson, föður Ólafs,
og þeir kynnzt þar. Tilgangur
þeirra var að stofna innflutnings-
verzlun, en um tíma voru þeir og
með útflutning, enda átti verzlun-
in um skeið skonnortur, sem
þurfti að fylla á leið utan. Sex
dögum eftir að þeir félagar stofna
fyrirtækið, er síðan sent fyrsta
símskeytið í þess nafni til útlanda,
29. september. Segja má, að þetta
fyrirtæki sé eins konar barn
símans, sem þá var að komast í
gagnið á Islandi, því að þeir
félagar sáu viðskiptamöguleika
opnast víðar en í Danmörku með
tilkomu þessa undratækis.
Eftir stofnun fyrirtækisins,
fóru þeir Ólafur og Ludvig utan til
Englands og Þýzkalands til þess
að gera innkaup. Hið fyrsta, sem
þeir keyptu og höfðu á lager var
tóbak, rúgmjöl og nýlenduvörur.
Hinn 30. nóvember er fyrirtækið
síðan skráð opinberlega. Fyrstu
heimkynni fyrirtækisins voru í
Lækjargötu 4, húsi Þorláks John-
son. Síðar var þar verzlun ekkju
hans, Verzlun Ingibjargar John-
son og nú er þar Hagkaup til húsa.
í Lækjargötu 4 voru skrifstofur
fyrirtækisins, en pakkhús þess
voru í Kolasundi. 1915 var síðan
Fálkahúsið, Hafnarstræti 1, keypt
af Brydes-verzlun. Þar var fyrir-
tækið síðan til húsa til 1962, er
skrifstofur þess voru fluttar í
Sætún 8, þar sem þær eru nú.
• Kaffi <>k ,,export“
Þeir félagar, Ólafur Johnson og
Ludvig Kaaber, hófu fljótlega
verzlun með kaffi og kaffibæti,
osta o.fl. Um 1910 hófu þeir
útflutning og fram til ársins 1920
fluttu þeir mikið af ull út til
Bandaríkjanna. Vegna umfangs
þessa útflutnings og rekstrar-
fjárskorts fyrirtækisins, urðu þeir
félagar í lokin að selja ullina í
umboðssölu. Á þessum árum
fluttu þeir félagar einnig út fiski-
mjöl til Bandaríkjanna, saltkjöt
til Noregs og hesta til Danmerkur.
Lýsi fluttu þeir einnig út til
Bandaríkjanna og stofnuðu lýsis-
bræðslu 1923.
0. Johnson & Kaaber stofnuðu
kaffibrennslu 1924 og var hún
fyrst í Hafnarstræti 1, til 1943, er
hún fluttist í Höfðatún, þá í
Sætúnið og loks 1963 í Ártúns-
höfða.
Um 1930 voru settar strangar
hömlur á innflutning. Þá hófu þeir
félagar framleiðslu hér innan-
lands á kaffibæti með einkaleyfi
frá þýzkum framleiðanda, Ludvig
David. Á pakkningunum stóð „ex-
port“, þar sem kaffibætirinn, sem
þeir félagar höfðu keypt til lands-
ins var framleiddur til útflutnings
í Þýzkalandi. Er skemmst frá því
að segja, að kaffibætir var í
daglegu tali hérlendis aldrei kall-
aður annað en export, sem sem
menn rekur minni til.
• Drjár skonnortur
I fyrri heimstyrj'öldinni var
skipuð sérstök velferðarnefnd,
sem Sigurður Eggerz, ráðherra
var formaður í. Þessi nefnd bað
Svein Björnsson, sem síðar varð
fyrsti forseti íslands, og Ólaf
Johnson um að fara til Bandaríkj-
anna og selja þar vörur og gera
innkaup. Þetta var árið 1914. Leigt
var norskt skip, sem hét „Her-
mod“, það fyllt með gærum og
2400 tunnum af síld, sem þeim
Sveini ogÓlafi var falið að koma í
verð vestanhafs. Keyptu þeir svo
fyrir andvirðið vörur, sem skipið
kom með til baka. Þetta var
upphaf mikillar verzlunar við
Bandaríkin, sem stóð til 1920.
Á árunum 1915 og 1916 keyptu
O. Johnson & Kaaber tvær skonn-
ortur, „Venus“ og „C.H. Friis".
Þessi skip entust stutt, annað
fórst, er j>að sigldi á tundurdufl,
en hitt fórst í óveðri við Færeyjar.
Upp úr þessu, um 1917, keyptu
þeir félagar svo ásamt Ólafi Dav-
íðssyni, útgerðarmanni í Hafnar-
firði þrímastraða skonnortu frá
Bandaríkjunum hingað til lands,
„Francis Hyde“, 1.000 rúmlesta
skip með kolahjálparvél. Þessi
skonnorta var leigð ríkisstjórn-
inni, þegar eigendur þurftu ekki á
henni að halda og eftir stríðið var
hún seld aftur til Bandaríkjanna.
Skonnortan var að því leyti merki-
leg, að hún hafði áður verið notuð
til þess að flytja granítblokkir í
smíði Brooklyn-brúarinnar í New
York.
Nokkrir starfsmanna í vöruafgreiðslu O. Johnson & Kaaber.
í vöruafgreiðslu
Skrifstofustúlka við vinnu á tölvu