Morgunblaðið - 23.09.1981, Page 32
Valur
Aston Villa
Eftir 7 daga
Va Árr
EKTA'
NATTÚRUEFNI
Korkur a golfm,ra
Nýborgí#
Ármúla 23 - Sími 86755
MIÐVIKUDAGUR 23. SEPTEMBER 1981
„Pabbi,
pabbi“
„Pabbi, pabbi,“ kallaði lít-
ill strákur og flaug upp í
fangið á föður sínum, sem
tók honum opnum örmum
og knúsaði hann.
Pabbinn var einn af
sjómönnunum 11 sem
björguðust af Tungufossi
þegar skipið sökk suðaust-
ur af Englandsströnd, en
þeir komu allir til lands-
ins í gærdag með flugi frá
London.
(íunnar SchcvinK Thorstcins-
son. skipstjóri á Tunjcufossi.
Kcfur Pctri syni sínum hjorjjun-
arvcsti sitt vió komuna til
Kcflavíkur i kut. Iljá honum
stcndur Svana kona hans og
Marjcrct dóttir þcirra. cn til
hu'icri cru hjónin Ásta ok Ka»jn-
ar Kja'rncstcd.
Ljósni. Kagnar Ax«*tsson.
Coldwater Seafood Corp.
Ileíur flutning á ferskum físki
með þotum til Bandaríkjanna
Ríkisstjórnin:
25% hækkun á
auglýsingum
Ríkisútvarps
RÍKISSTJÓRNIN hcimilaói á
fundi sínum í eaT. 25% hu kkun
á auKlýsinKat(>xtum sjónvarps
(>K útvarps. frá <>k mcó 1.
októhcr.
í samtali viö MorKunblaðið
sagði Hörður Vilhjálmsson, sett-
ur útvarpsstjóri, að samkvæmt
þessari ákvörðun myndi minútan
í sjónvarpsauKlýsinscu hækka úr
5500 krónum í 6880 krónur. Verð
auglýsinga í útvarpi væri mis-
munandi og væri þar um fjóra
gjaldflokka að ræða, eftir því á
hvaða tímum auglýsingin væri
lesin upp. Þeir væru 9, 14, 18 og
36 krónur hvert orð, eftir hækk-
unina.
Hörður sagði, að Ríkisútvarpið
hefði farið fram á þessa 25%
hækkun, en síðasta hækkun hefði
verið þann 1. júní, en hún hefði
verið 22% . Sagði hann þessar
hækkanir í samræmi við ákvörð-
un frá í desember á síðasta ári,
sem miðaði að því að þær tekjur
næðust, sem fjárlög gerðu ráð
fyrir.
COLDWATER Seafood Corp. í Bandarikjunum hefur ákveðið að hefja
loftflutninga á ferskum fiski frá íslandi til Bandarikjanna i
tilraunaskyni og verða flutt 45,6 tonn í hverri ferð með DC-8-þotum
frá bandariska flugfélaginu Flying Tiger. Fyrsta ferðin verður farin
nk. sunnudag, en þá á þotan að taka karfafarm frá Bæjarútgerð
Reykjavíkur, næsta ferð er svo fyrirhuguð viku síðar.
Morgunblaðið ræddi i gær við Guðmund H. Garðarsson, sem þá var
staddur hjá Coldwater i Boston i Bandarikjunum. Hann sagði, að i
fyrstu væri eingöngu ákveðnar tvær ferðir. Karfinn yrði flakaður hjá
Bæjarútgerð Reykjavikur og gengið frá honum þar til útflutnings,
brúttóþyngd farmsins yrði 45,6 tonn, en nettóþyngd 42 tonn.
Guðmundur sagði, að fiskurinn
færi allur til Boston, sumt af
honum yrði unnið í verksmiðju
Coldwater þar, en annað færi til
aðila víðsvegar um Bandaríkin
sem vildu ferskan fisk. Þá sagði
hann, að þó í fyrstu væri eingöngu
um karfa að ræða sem yrði fluttur
vestur á þennan hátt, þá væri líka
hugsað um aðrar fisktegundir. „Ef
þessi tilraun gefur góða raun og ef
aðstæður leyfa, þá verða frekari
markaðsmöguleikar kannaðir,"
sagði hann.
Þessi tilraun er gerð í samstarfi
við Bæjarútgerð Reykjavíkur og
Ingibjörg Thors, sem starfar sem
sölustjóri hjá Coldwater í Boston,
er nú stödd á íslandi í því skyni að
fylgjast með að gengið verði frá
fiskinum með þeim hætti sem
bandaríski markaðurinn krefst.
Einar Sveinsson, framkvæmda-
stjóri Bæjarútgerðar Reykjavíkur,
sagði í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi, að forráðamenn BÚR
hefðu mikinn áhuga á þessum
útflutningi. „Reyndar fluttum við
ferskan fisk með flugvélum til
Þýzkalands og Luxemborgar sl.
vetur, en stærsti farmurinn var
ekki meira en 18 tonn, þannig að
þessi farmur verður langtum
stærri."
Byrjað verður að pakka karfa-
flökunum í sendinguma i frysti-
húsi BÚR á föstudag, en þá er
Ingólfur Arnarson væntanlegur
Raufarhöfn:
Fólk farið
að „flýja
vegna
atvinnu-
leysis
„FLÓTTI vinnandi fólks hcðan
frá Raufarhöfn er þegar hafinn
vegna hinna slæmu atvinnuhorfa
vcgna stöðvunar vinnu hjá Jökli
hf. Eins og er leitar fólk aðallcga
vinnu á Kópaskeri og Þórshöfn
vcgna haustslátrunar, scm aðeins
stendur yfir í stuttan tíma. og
austur á firði í síldar- og fisk-
vinnslu.“ sagði Þorstcinn Ilalls-
son. formaður Verkalýðsfélags
Raufarhafnar, í samta.li við
Morgunblaðið.
Þorsteinn sagði ennfremur, að
ekki væri mikið um beint atvinnu-
leysi enn sem komið væri vegna
þessa flótta og eins vegna þess að
skólafóik væri nú flest horfið frá
vinnu. Hins vegar væri því ekki að
neita að ástandið væri slæmt,
sérstaklega vegna stöðunnar hjá
Jökli hf. Þar hefðu rúmlega 100
manns unnið að meðaltali í ágúst,
en nú væru þar aðeins örfáir menn
í vinnu. Sjómenn á togaranum
Rauðanúpi og þeim smábátum,
sem lagt hafa upp hjá Jökli hf.,
væru nú í landi og hefðu stopula
atvinnu. Þá bærist nú engin loðna
til Raufarhafnar og því væri
fremur lítið um vinnu í fiskimjöls-
verksmiðjunni.
Það væri því brýnt að leysa
vandamál Jökuls hf. eins fljótt og
unnt væri í stað þess að halda
áfram að velta vandanum á undan
sér eins og gert hefði verið. Það
væri eina lausnin á atvinnuvanda
Raufarhafnar.
Vegna þessa hafði Morgunblað-
ið samband við Tómas Arnason,
viðskiptaráðherra, og sagði hann
að unnið væri að lausn vandamáls
Jökuls hf. á vegum ríkisstjórnar-
innar og hefðu fundir um málið
verið haldnir með fulltrúum
Framkvæmdastofnunar og Lands-
bankans, en ekkert frekar væri
hægt að segja um málið á þessu
stigi.
Seyðfirðingar eiga skut-
togara í smíðum í Noregi
MORGÚNBLADIÐ hcfur fcngið
staðfcst að fyrirtækið Gullhcrg
hf. á Scyðisfirði. scm gcrir út
skuttogarann Gullvcr NS cigi nú
skuttogara í smíðum í Kristian-
sund í Norcgi og á togarinn að
afhcndast í nóvember 1982.
Smiði togarans var samþykkt í
Fiskveiðasjóði um mánaðamótin
júní-júlí, en í samningi Gullbergs
hf. við norsku skipasmíðastöðina
er gert ráð fyrir því að Norðmenn-
irnir sjái um að selja núverandi
togara fyrirtækisins, Gullver, úr
landi, en hann var byggður 1968.
Gamla Gullver er 331 rúmlest að
stærð, en nýi togarinn mun verða
mældur lítið eitt stærri.
Guðbrandsbiblía 400 ára 1984:
Ákveðið að gefa hana út ljós-
prentaða fyrir afmælisárið
ÁKVEDID hcfur vcrið að minnast
þcss að 400 ár vcrða liðin frá
útgáfu Guðhrandshihlfu árið
1984. mcð þvi að gcía hana út
Ijósprentaða fyrir afmadisárið.
Vcrður mjog til útgáfunnar vand-
að. ha-ði hvað varðar prcntun og
hókhand, og vcrður rcynt að hafa
hina nýju útgáfu scm Ifkasta
frumútgáfunni frá 1584. Sam-
komulag hcfur orðið um útgáfuna
milli Kirkjuráðs. Stofnunar Árna
Magnússonar, Biblíufélagsins og
Lögbcrgs. hókaforlags Svcrris
Kristinssonar. cn það foriag gaf
út Skarðsbók Ijósprcntaða fyrr á
þcssu ári.
Guðbrandsbiblía sú, er út kom
1584 á Hólum í Hjaltadal, og
kennd er við Guðbrand biskup
Þorláksson, hefur löngum verið
talin ein mesta gersemi íslenskra
bóka. Áhrif útgáfunnar eru talin
ómetanleg fyrir íslenska menn-
ingu, og hefur því jafnvel verið
haldið fram að íslenska væri ekki
töluð í dag, hefði útgáfan ekki
komið til. Upplag Biblíunnar var á
sínum tíma 500 eintök, og var
;..Lf
Titilsíða Guðbrandshibliu frá 1584.
Biblian cr fagurlcga myndskrcytt.
og fyrir miðju stcndur „Bihlia Það
cr Óll Ilcilög Kitning Útlogð á
Norramu. Mcð Formálum Doct.
Martini. Luthcri. Prentuð á llólum
af Jóni Jónssyni 1584.“
bókin dýr, talin kosta tvö til þrjú
kýrverð. Síðan hefur hún þó marg-
faldast í verði, og má minna á, að
síðast er vitað var um sölu Guð-
brandsbiblíu, var hún slegin á
7.500 pund á uppboði í London. Það
var árið 1980. Guðbrandsbiblía
hefur aðeins einu sinni komið út
aftur, það var árin 1956 til 1957, er
Ijósprentuð voru og gefin út 500
tölusett eintök. Nú verða líklega
aðeins prentuð 500 eintök. Hug-
myndina að útgáfunni nú átti séra
Eiríkur J. Eiríksson á Þingvöllum,
er bar fram tillögu um útgáfuna á
Kirkjuþingi í fyrra.
Bókaforlagið Lögberg hefur
einnig í hyggju að gefa út fyrir
1984 þýðingu Odds Gottskálksson-
ar á Nýja testamentinu, er út kom
í Hróarskeldu 1540. Verður þýðing
Odds færð til nútímaleturs og
-stafsetningar. Þá hefur einnig
verið ákveðið að láta skrá og gefa
út rit um Guðbrand biskup og
útgáfu hans, einkum biblíuútgáf-
una. Sjá nánar um útgáfu Guð-
hrandshibliu á hlaðsíðu 5 i
Morgunhlaðinu i dag.