Morgunblaðið - 07.10.1981, Side 29

Morgunblaðið - 07.10.1981, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1981 29 andi gnægð þess hráefnis sem til þarf (loft, vatn, orku). Líka fjölda ágætra manna með tækniþekkingu og dýrmæta starfsreynslu í áburð- ar- og vetnisframleiðslu. Víðs veg- ar um heiminn vantar tilfinnan- lega áburð, bæði til venjulegrar ræktunar og til að græða upp og breyta í ræktunarlönd þeim ógnvekjandi eyðimörkum, sem vitfirrtir landsfeður og þjóðir hafa verið að skapa á undanförnum ár- um og öldum. Og þrátt fyrir að orkúráðherra hafi lýst yfir stuðn- ingi við innlenda stóriðju, er aug- ljóst að sú hnappagatsrós er löngu fölnuð, ef hún hefir þá ekki aðeins verið platrós. Lokaorð Á einum fundi ríkisstjórnarinn- ar, sem haldinn var vegna álvers- ins, var gefin út sú yfirlýsing, að Álverið í Straumsvík væri með bezt reknu fyrirtækjum heims, hvorki meira né minna! Og nú er það hugleitt af stjórnvöldum að draga öll yfirráð frá heimsfrægum stjórnendum þessa fyrirtækis og afhenda þau pólitískum aftur- haldsyfirvöldum, sem aldrei hafa komið nálægt stjórn nokkurs fyrirtækis, og hafa því ekki minnsta vit á nokkru því er stjórn- un fyrirtækja tilheyrir. Ég tel sjálfsagt (svo öllu réttlæti sé full- nægt), að fleygja nokkrum hundr- uðum þúsunda nýkróna í hinn breska rannsóknarrétt, sem rann- sakaði rekstur álversins, til að hann rannsaki einnig rekstur ís- lenzka ríkisbáknsins. Og væri ekki tilvalið að rannsaka í leiðinni Samband íslenskra samvinnufé- laga, því stjórnendur þess bera sig nú, eins og reyndar fleiri, mjög aumlega, þótt bæði hér í R.vík og víðs vegar. um landið rísi nú upp hver risastórbygging þeirra eftir aðra. Ömurleiki hins sósíalíska ríkisrekstrar blasir nú við í allri sinni óstjórnarnekt, bæði hér og erlendis. Segja má að Pólland sé spegillinn, sem sýnir um veröld víða viðurstyggð hins austræna sósíalisma. Það er nærri fullvíst að við Islendingar munum, ásamt fjölmörgum öðrum þjóðum, falla í sömu sósíalsæluna og Pólverjar, verði ekki snúið við á þeirri stór- hættulegu braut efnahagsþróunar, sem íslenzk stjórnvöld sigla nú hraðbyri eftir." Nö opnast ti$ir m Ákveðið hefur verið að m/s Mánafoss komi við í Þórshöfn í Færeyjum í annarri hverri ferð fram til áramóta. Brottfarardagar skipsins Reykjavík verða sem hér Þórshöfn 8. októbe 5. nóvember 3. desember V % • Umboósmaóur: F.A. H.C. Möller Havnen 3800 Torshavn (Þórshöfn) Telex 81237 Símar 11511 & 11716 Vinsamlegast hafið samband við Norðurlandadeild félagsins, innnanhússsímar 227 (Jóhannes), 230 (Sigurður), 289 (Magnea). Vörumótttaka í Sundaskála. Opið kl. 07.55-16.40 Sími 27994 rti Leynast e.t.v. nyir vióskiptamöguleikar fyrir þig í Færeyjum? Alla leið meó EIMSKIP SÍMI 27100 J Þakkir Hjartans þakklæti til allra þeirra, sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og skeytum á 75 ára afmæli mxnu, þann 15. september. Ltfið heil. Munda Stcíánsdóttir, Skarðhédinsgötu 2. Hugheilar þakkir færi ég öllum þeim sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum, blómum og símskeytum á 80 ára afmæli mínu 22. september sl. Guð blessi ykkur öll. Páll Eyjólfsson, Brimhólabraut 7, Vestmannaeyjum. fr Lærið vélritun Ný námskeið hefjast fimmtudaginn 8. okt. Kennsla eingöngu á rafmagnsritvélar, engin heima- vinna. Innritun og upplýsingar í síma 41311 eftir kl. 13 Vélritunarskólinn, Suöurlandsbraut 20. UPPLYSINGAR OG AÐSTOÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.