Morgunblaðið - 07.10.1981, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 07.10.1981, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. OKTÓBER 1981 31 r George Best Fjórði ósigur Östers ÖSTER tapaði sínum (jórða leik í sænsku dcildarkeppninni þegar liðið mætti Gautabörg. Gautaborg sigraði 3-1 og Thorbjörn Nilsson skoraði tvíveg- is og er nú næsta víst að hann verður markhæstur í Allsvenskan, hefur skorað 17 mörk. I'rslit i 2T>. umforð urðll: llammarhy — Klísboryf 5-1 NörrköpinK — AIK 1-1 (■öteborK — öster 3-1 Halmstad — ÁtvidaberK 1-0 Malmö — Brayce 0-3 Kalmar — Sundsvall 1-2 Djurgaardcn — öixryte 3-2 Aöeins ein umíerð er eítir i Allsvenskan <>K staöan er nú: Öster (iautaborK NörrköpinK Brage Malmö Ör«ryte AIK Hammarby llalmstad 25 19 2 1 50-17 40 25 14 0 5 55-24 34 25 12 8 5 38-27 32 25 1180 32-23 30 25 1159 40-41 27 25 11 311 44-49 25 25 8 8 9 35-33 24 25 8 7 10 45-45 23 25 10 2 13 34-44 22 Nýjar reglur í handbolta SVO SEM kunnugt er, tóku nýjar leikreglur gildi i handknattleik þann 1. ágúst siðastliðinn og gilda næstu 4 ár. Markmiðið cr að auð- vrlda dómgæslu, gefa möguleika á hraðari leik og síðast en ekki sist, koma í veg fyrir grófan leik. Helstu breytingarnar eru, að skora má beint úr öllum köstum, t.d. útkasti og innkasti. Hornkast verð- ur hluti af reglu um innkast og skal framkvæmt á enda hliðarlínu. I inn- kasti skal standa með a.m.k. annan fótinn á hliðarlínu. Ef dæmt er gegn liði því, sem hef- ur boltann, skal sá sem heldur bolt- anum leggja hann strax niður, að öðrum kosti verði leikmanni vísað af leikvelli. Markvörður má yfirgefa markteig án bolta og fara um allan völlinn. Aðeins með leyfi dómara mega liðsstarfsmenn eða liðsmenn utan vailar koma inn á leikvöll. Viðurlög fyrir þá sem brjóta gegn þessu, eru fyrir leikmann brottvísun í 2 mínút- ur, en fyrir aðstandanda liðs, áminning. Regla þessi er í gildi all- an leiktímann og einnig ef klukka er stöðvuð, t.d. vegna meiðsla leik- manns. Brjóti leikmaður gróflega á mót- herja, skal hann útilokaður, það er, fær ekki að koma meirá inná, en skiptimaður má koma inná eftir 2 mínútur. Við útkast mega mótherj- ar markvarðar standa við markteig- inn. Dómarakast skal framkvæmt, að knetti sé kastað upp milli tveggja andstæðinga. Refsingar gegn leik- manni á leikvelli geta verið: áminn- ing, mest ein fyrir hvern leikmann, brottvísun í 1. sinn 2 mín, 2. sinn 2 mín., og þriðja sinn 2 mínútur + úti- lokun. Þá geta dómarar útilokað leikmann fyrir gróft brot eða ósæmilega hegðun. Ef leikmaður sýnir ofbeldi og er útilokaður, spilar lið hans einum færra það sem eftir er leiks. „Guðni á að láta alla sitja við sama borð“ - segir Lárus Guömundsson miöherji íslandsmeistara Víkings „ÞAÐ ER að sjálfsögðu mál Guðna Kjartanssonar landsliðs- þjálfara, þó hann setji þá leik- menn út í kuldann, sem fóru i „utanlandsferðir“, en hann á að láta það sama yfir alla ganga. At- vinnumcnn erlendis hafa iðulega hafnað að leika með íslandi, en þrátt fyrir það verið kallaðir í næsta landsleik. Þegar svo leik- menn í 1. deild hér heima kjósa að fara í æfinga- og keppnisferð með félagi sínu, þá eru þeir settir út í kuldann. Þetta er óþolandi mismunun.” sagði Lárus Guð- mundsson, miðherji tslandsmeist- ara Víkings, cn Lárus kom á sunnudagskvöldið heim úr æf- inga- og keppnisferð með félagi sínu. „Það er ár síðan keppnisferðin til Sovétríkjanna var ákveðin af Víkingi. Við lékum þrjá leiki í Sovétríkjunum og síðan fórum við til Frakklands og lékum í Evrópu- keppni félagsliða. Það var lögð á það áherzla af félagi mínu, Vík- ingi, að ég og Ómar Torfason fær- um með til Sovétríkjanna, vegna þess að að öðrum kosti hefði und- irbúningur fyrir síðari leik okkar við Bordeaux farið meira og minna úr skorðum. Ferðin til Sov- étríkjanna hefur verið kölluð „sumarleyfi" og að landsliðsmenn Víkings hafi fórnað landsliðinu fyrir leiki.gegn „einhverjum verk- smiðjuliðum". Það er enginn greinarmunur gerður á því, hvort menn fóru til sólarstranda eða í keppnisferð, þar sem reynt var að vanda undir- búning félagsins, Víkings, fulltrúa íslands í Evrópukeppni, eins og kostur var. Það er ekki áhugavert að leika með íslenzka landsliðinu ef maður situr ekki við sama borð og aðrir, atvinnumennirnir. Ég var valinn í 16 manna hóp gegn Dönum þegar aðeins tveir at- vinnumenn voru með íslenzka landsliðinu og lék einn hálfleik. Þegar. landsliðshópurinn gegn Tyrkjum var valinn, þá var ég ekki einu sinni í hópnum og kom ekki inn fyrr en Sigurlás Þorleifsson og Arnór Guðjohnsen drógu sig út úr hópnum. Auk þess hafði ég nokkr- um sinnum verið valinn í 22 manna hóp en jafnan dottið út þegar atvinnumenn komu til sög- unnar. Ég taldi því möguleika mína á að leika gegn Tékkum mjög tak- markaða og valdi því fremur að fara í mikilvæga æfinga- og keppnisferð til Sovétríkjanna en að sitja á bekknum. Fara í ferð sem ólíklegt er að myndi nokkurn tíma bjóðast mér aftur. Ég mundi aldrei fara í skemmtiferð ef krafta minna væri óskað með landslið- inu. Ég vil ekki bera æfinga- og keppnisferð okkar Víkinga saman við sólarlandaferðir, enda kem ég heim i góðri æfingu. Það, sem ég Lárus Guðmundsson vil undirstrika, er, að allir sitji við sama borð,“ sagði Lárus Guð- mundsson. ILHalls. HITAMÆLAR ^QfyxTflaoiuigpfuir Vesturgötu 16, sími 13280. VÉLA-TENGI 7 1 2 Allar gerðir Öxull — í — öxul. Öxull — í — flans. Flans — í — flans. Tengið aldrei stál — í — stál, hafið eitthvað mjúkt á milli, ekki skekkju og titring milli tækja. Allar stærðir fastar og frá- tengjanlegar @öiuiip(la(yig)(uiiij (Sífi) Vesturgötu 16, sími 13280. Melka Akkja Hinir sívinsælu kuldajakkar: -með vindþéttu vatnshrindandi ytrabyrði. —fóðraðir með einangrandi vatti. —dregnir saman í mittið með snúru. -með stóra rúmgóða vasa. -með hettu, innrennda í kragann. -með inná-vasa með rennilás. Nú er Melka-vetur í HERRAHÚSINU. BANKASTRÆTI 7 AÐALSTRÆTI4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.