Morgunblaðið - 09.10.1981, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1981
29
Oddný Friðríksdótt-
ir - Minningarorð
Fædd 3. maí 1928.
Dáin 29. september 1981.
í dag kl. 13.30, föstudaginn 9.
okt. ’81, fer fram frá Fossvogskap-
ellu útför Oddnýjar Friðriksdótt-
ur, Löngufit 5 í Garðabæ, en hún
lést á sjúkrahúsi í Reykjavík eftir
fárra daga dvöl þar á fimmtugasta
og fjórða aldursári. Hún fæddist
að Felli á Langanesströnd og ólst
þar upp í foreldrahúsum og 10
systkina hópi, tvö þeirra dóu ung,
Oddur á barnsaldri og Helga á
fermingaraldri. Sjö þeirra sem
eftir lifa eru: Guðríður, Gunnlaug,
Skúli, Gunnhildur, Gunnþórunn,
Júlía og Jósep, auk þeirra ólst þar
upp frá 9 ára aldri frændi þeirra,
Sigurður Sigurðsson. Þegar Oddný
var 10 ára missti barnahópurinn
móður sína, Helgu Sigurðardóttur,
sem ættuð var úr Mýra- og Borg-
arfjarðarsýslu, mikil dugnaðar- og
myndarkona, sem dó fyrir aldur
fram frá fjöískyldunni og stóð þá
faðirinn, Friðrik Oddsson, frammi
fyrir þvi vandamáli, hvort honum
tækist að halda fjölskyldunni
saman eða að láta börnin til
vandalausra eins og oft gerðist á
þeim dögum í svona tilfellum, en
fjölskyldan var samhent og dugleg
og Friðriki tókst að ala upp öll sín
börn í heimahúsum af hinni mestu
prýði, enda var hann orðlagður
dugnaðar- og mannkostamaður,
ættaður að mestu frá Langanes-
strönd og Þingeyjarsýslum. Um
tvítugsaldur gekk Oddný í hús-
mæðraskólann á Akureyri. Það
nám reyndist henni gott veganesti
að viðbættum frábærum hæfileik-
um hennar í matargerð og stjórn-
un fólks við þau störf, sem margir
hafa notið góðs af. Hennar fyrstu
ráðskonustörf voru á vegum vega-
vinnumanna í Kelduhverfi og Ax-
arfirði, j)ar gnæfir fegurðin hvað
hæst á Islandi og þar kynnist hún
nú eftirlifandi eiginmanni sínum,
Sigurði ólafssyni frá Miklabæ í
Skagafirði og hófu þau búskap í
Reykjavík þann 14. febrúar 1953
og hefur þeirra búskapartíð mikið
auðkennst af góðvild, friði og feg-
urð, sem minnir á fyrstu kynni
fyrir norðan. í Reykjavík bjuggu
þau Sigurður og Oddný lengst af á
Kleppsvegi 22. Þar eignuðust þau
íbúð í fjölbýlishúsi á móti Sigurði
Árnasyni, vegaverkstjóra frá
Bakkafirði, sem dvaldi þar á vetr-
um, mikið prúðmenni og drengur
góður, látinn fyrir tveimur árum.
Blessuð sé hans minning.
Undirritaður minnist margra
gleðistunda með þeim nöfnum á
Kleppsveginum, en á næstu hæð
bjó Sigurður Jóhannesson frá
Engimýri og eins og allsstaðar,
þar sem Oddný og Sigurður hafa
búið, eru nágrannarnir vinafólk,
sem leit oft inn og ríkti þar radd-
aður söngur og gamanmál ásamt
mikilli gestrisni og alltaf bar frúin
fram margar sortir af heimabðk-
uðum kökum. Árið 1961 fluttu þau
Oddný og Sigurður í Garðabæ og
byggðu sér einbýlishús á Löngufit
5 og hafa búið þar síðan, eða í 20
ár, og ber það heimili vott um
dugnað, hagsýni og fegurðarskyn í
hvivetna. Oddný sinnti mörgum
störfum auk heimilis, svo sem á
saumastofu og í versiun, en hæst
báru , þó ráðskonustörfin hjá
Styrktarfélagi lamaðra og fatl-
aðra og forstöðukona fyrir Garða-
holti var hún í a.m.k. 5 ár og í 10
ár sá hún um þorrablót Skagfirð-
ingafélagsins í Reykjavík með
miklum glæsibrag og hagkvæmni.
Oddnýju og Sigurði varð fjögurra
barna auðið: Friðrik, matreiðslu-
meistari, kona hans er Herdís Sig-
urbjörnsdóttir, Helga Björg,
skrifstofustúlka, maður hennar er
Sigurður Eggertsson, Ólöf Sigur-
björg, nemandi, og óskírð dóttir dó
á fyrsta ári. Barnabörnin eru
Heiðveig Hanna og Sigurður Daði.
Oddný var heilsuhraust þar til
fyrir 1 ári að hún þurfti á
meðferð að halda gegn illkynja
sjúkdómi í brjósti og slík lækning
tókst, að læknar sögðu fyrir
undraverðan sálarstyrk og hetju-
skap sjúklingsins, en skjótt skip-
ast veður í lofti, og nú kveðjum við
hinstu kveðju með þakklæti þessa
rólyndu konu, se'm ég sá aldrei
skipta skapi, en sífellt með
spaugsyrði á vörum. Dulræna
hæfileika erfði hún m.a. frá ætt-
fólki sínu að Skarðshömrum í
Norðurárdal og mörg voru þess
dæmi að hún segði fyrir um
óorðna hluti.
Eftir tveggja og hálfs áratuga
kynningu er margs góðs að minn-
ast með þakklæti, sem hér verður
ekki rakið og votta ég vinum mín-
um, eiginmanni og börnum hinnar
látnu, innilegustu samúð, svo og
systkinum og öðrum vandamönn-
um, ennfremur 86 ára tengdamóð-
ur, Sigurbjörgu Guðmundsdóttur,
sem býr á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Friður hins æðri máttar fylgi
þeim látnu.
Sveinn S. Pálmason
í dag er kvödd hinstu kveðju
vinkona mín og vinnufélagi Oddný
Friðriksdóttir.
Fyrir rúmu ári síðan veiktist
hún af þeim sjúkdómi, sem að lok-
um enginn fékk við ráðið og lést
hún á Landspítalanum 29. sept.
eftir skamma en erfiða legu.
Margs er að minnast frá ára-
tuga kynnum við þessa mikilhæfu
konu, en það var ekki að hennar
skapi að flíka tilfinningum sínum.
Oddný starfaði um áratugaskeið
hjá Styrktarfélagi lamaðra og
fatlaðra.
Árið 1959 hóf félagið rekstur
sumardvalarheimilis fyrir fötluð
börn og var Oddný þá ráðin mat-
ráðskona, því starfi gegndi hún í
14 sumur, og eru þó ótalin sumrin
þar sem hún hjálpaði í forföllum
annarra.
Á þessum fyrstu frumbýlisárum
barnaheimilisins var oft langur og
strangur vinnudagur, og sýndi
Oddný þá eins og alltaf hversu
verklagin hún var, því allt lék í
höndum hennar. Það veit ég að
Menntamálaráðherra hef-
ur ákveðiA að stofnuð verði
sérstök tækniminjadeild í
Þjóðminjasafni íslands, en
nefnd á vegum menntamála-
ráðuneytisins hefur unnið að
athugun á stofnun slikrar
deildar.
Forráðamenn Þjóðminja-
safns hafa lengi haft hug á að
hrinda þessu máli í fram-
kvæmd, en mjög er orðið brýnt
að vinna að varðveislu valinna
mörg stúlkan sem vann undir
hennar handleiðslu telur það
mikla gæfu að hafa notið verk-
kunnáttu hennar. Einnig starfaði
hún við ræstingar á æfingastöð fé-
lagsins.
Oddný var gift Sigurði Ólafs-
syni, sem hefur starfað hjá SLF
við sjúkraflutning frá árinu 1956.
Oddný og Sigurður hafa eignast 4
börn, eitt, telpu, misstu þau ný-
fædda, en sonur og 2 dætur eru
uppkomin og hið mannvænlegasta
fólk. Samheldni þessarar fjöl-
skyldu er með eindæmum. Þar
tóku allir þátt í störfum og leik
saman.
Við hjónin vorum þeirrar
ánægju aðnjótandi að eiga þessa
fjölskyldu að ferðafélögum um
nokkra ára skeið, og betri og
ánægjulegri ferðafélaga er vart
hægt að hugsa sér. í ágústmánuði
síðastliðnum fórum við vestur í
Kollafjörð með Oddnýju og Sig-
urði og áttum við þar saman 5
ánægjulega daga. Ekki grunaði
mig þá að það yrði síðasta ferðin
okkar. Minningar frá þessum ferð-
um eru mér dýrmætar, og oft á ég
eftir að sakna Oddnýjar. Sár er
söknuður Sigurðar, barnanna,
tengdabarna og barnabarnanna
tveggja, sem voru augasteinar
ömmu sinnar. öll áttu þau öruggt
athvarf á þeirra fallega heimili að
Löngufit 5, þar blasti við hlýja og
samheldnni fjölskyldunnar. Við
heimili þeirra er stór og fallegur
garður, þar sem ræktaðar voru
nytjajurtir jafnt sem fögur
skrautblóm. Eg veit að Sigurður
og fjölskylda hans mun í framtíð-
inni rækta garðinn hennar
Oddnýjar vel.
Söknuðurinn er sár. Megi góður
Guð lýsa fjölskyldu Oddnýjar um
ókomin ár.
Ég vil að leiðarlokum þakka
Oddnýju samstarf og sanna vin-
áttur. Samúðarkveðjur fylgja hér
með frá starfsfólki Styrktarfélags
lamaðra og fatlaðra.
Éx þakka þér oll nkkar Kfniíin spur.
þau vuru ukkur llfsins lind.
Samvrrustundirnar Ijúflinits vur
i kærleikans feiturstu mynd.
Frelsarinn sjálfur. þess éx beiði.
i himneskan Ijússins rann þiv leiðl.
(Ó.V.)
Okkur, sonarbörnum og tengda-
dóttur Oddnýjar, langar að minn-
ast hennar með fáum orðum, færa
henni hjartans þakkir fyrir sam-
fylgdina. Þó hún hafi verið sorg-
lega stutt, var hún okkur svo
dýrmæt og lærdómsrík að hún
mun ekki gleymast. Umönnun
hennar fyrir okkur verður ógleym-
anleg. Einstakur dugnaður hennar
og kjarkur, uppörvandi glaðværð
hennar og brosmildi. Það er erfitt
að koma orðum að þakklæti okkar
í hennar garð. Minningin um
Oddnýju, ömmu okkar og tengda-
móður mun iifa í brjóstum okkar
og annara náinna ættingja. Elsku-
lega ömmu og tengdamóður kveðj-
um við að lokum með þakklæti og
biðjum Guð að varðveita hana,
styrkja afa í Garðabæ og aðra
nánustu ættingja okkar.
Herdís J. Sigurbjörnsdóttir.
Ilciðveig Ilanna Friðriksdóttir
og Sigurður Daði Friðriksson.
og dæmigerðra tækja, sem
valdið hafa hinni gríðarmiklu
þjóðfélagsbreytingu, sem orðið
hefur í íslensku þjóðlífi á und-
anförnum áratugum.
Hinni nýju deild er einkum
ætlað að varðveita heimildir
og tæki á sviði samgangna á
láði og í lofti, landbúnaðar,
rafmagns- og útvarpstækni,
véltækni ýmiss konar og ann-
ars tæknibúnaðar, sem kom í
kjölfar hins gamla bænda- og
útvegsbændaþjóðfélags.
Stofnuð tækniminjadeild
í Þjóðminjasafninu
n
^krafj
íiomato
^tcliup
Krm,
net m i4 oz& (
KRAFT
TÓMATSÓSA
ftú einum þekktasta
matvælafmmleiðanda Bandaríkjanna
Gerið verðsamanburð
SKAUPfÉlAGIÐ