Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981 Mayen og (írænlands. Láréttar línur merkja hafsvæði með þéttleika 7/10, þ.e.a.s. sjö tíundu hlutar hafs eru þaktir ís. Stjörnur merkja nýmyndun. (Frétt frá hafísrannsóknadeild). Ný íslensk jazzplata JAZZVAKNING hefur sent frá sér nýja plötu, sem nefnist „Jazzvaka“, þar sem bandaríski bassaleikarinn Bob Magnusson leikur með íslensk- um jazzleikurum. Bob Magnusson, sem er af íslenskum ættum, hefur á skömmum tíma skipað sér í sveit Sagði upp ÁSGEIR Tómasson hafði sam- band við Mbl. í gær vegna fréttar blaðsins um uppsagnir blaða- manna af Vísi og Dagblaðinu. Kvaðst Ásgeir vilja láta það koma fram, að hann hefði sagt starfi sínu á Dagblaðinu lausu 16. októ- ber sl. með þriggja mánaða upp- sagnarfresti, en hins vegar hefði hann látið af störfum, þegar af sameiningunni varð. með bestu bassaleikurum í Banda- ríkjunum og hefur hann leikið með mörgum þekktum listamönnum, svo sem Buddy Rich, Joe Farrell, Söru Vaughan o.fl. og hljóðritað tvær plöt- ur undir eigin nafni. Þeir sem leika með Bob Magn- usson á „Jazzvöku" eru allt þjóð- kunnir jazzistar, þeir Guðmundur Ingólfsson, Guðmundur Stein- grímsson, Viðar Alfreðsson og Rúnar Georgsson. Á plötunni eru fimm verk, tvö þeirra eru islensk þjóðlög í útsetningu Gunnars Reynis Sveinssonar, „Móðir mín í kví kví“ og „Þrír húsgangar", eitt er eftir Guðmund Ingólfsson, „Seven Special", og tvö eru þekkt erlend lög, „You’d Be So Nice To Come Home To“ og „I’m Getting Sentimental Over You“. Hljóðritunin á þessari plötu var gerð á jazzvöku á Hótel Sögu í fyrrahaust í tilefni fimm ára af- mælis Jassvakningar. Það var fyrirtækið Steríó sem það annað- ist en úrvinnsla fór m.a. fram í Hljóðrita. Sigurjón Jónasson hef- ur hannað úmslag, ljósmyndir eru eftir Kristján Magnússon. Góðar sölur í Englandi TVÖ ÍSLENSK fiskiskip seldu afla í Englandi í gær og fengu bæði ágætis verð fyrir aflann. Dofri BA seldi 75,2 tonn í Grimsby fyrir 865,1 þús. kr. og var meðalverð á kíló kr. 11,50. Þá seldi Gissur hvíti frá Hornafirði 62,5 tonn í Hull fyrir 738,8 þús. og var meðalverð á kíló þar kr. 11,82. Telex-ólympíu- skákkeppnin: Island mæt- ir Englandi NÚ HEFUR verið dregið í annarri umferð Telex-ólympíuskákkeppn- innar 1981-1982. ísland mun keppa við England, og er ákveðið, að keppnin fari fram 5. des. nk. Stjórn 'SÍ hefur valið eftirtalda skákmenn til þess að tefla fyrir íslands hönd: Friðrik Ólafsson, Guðmund Sigurjónsson, Margeir Pétursson, Jón L. Árnason, Inga R. Jóhannsson, Helga Ólafsson, Jóhann Hjartarson og Ingvar Ásmundsson Teflt verður í Út- vegsbanka íslands á 8 borðum. t Móöir okkar KRISTÍN EYJÓLFSDÓTTIR, Norðurbraut 23, Hafnarfiröi, andaöist i Landspítalanum aö kvöldi 30. nóvember. Ingveldur Húbertsdóttir, Sigursteinn Húbertsson, Ágúst Húbertsson, Svavar Þórhallsson. t Faöir minn, JÓN ELLERT JÓNSSON, er lóst þann 24. nóvember veröur jarösunginn í dag, miövikudag frá Fossvogskirkju kl. 3. Tryggvi Sveinn Jónsson. t Bróöir okkar og mágur. SIGURÐUR EIRÍKSSON frá Löngumýri, Laugalæk 17, veröur jarösunglnn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 3. desember kl. 13.30. Ágúst Eiríksson, Emma Guönadóttir, Elín Eiríksdóttír, Eiríkur Guónason, Sólveig Hjörvar, Páll Eiríksson, Svanfríóur Gísladóttir, Ingigeröur Eiríksdóttir, Jón Ingvarsson, Baldvin Árnason, Þuríöur Bjarnadóttir. Stytta heilagrar Bar böru við Straumsvík NÆSTKOMANDI föstudag 4. des- ember, verður vígð í kapellurústinni við Straumsvík stytta af heilagri Barböru, gerð af Walter Mellmann, myndhöggvara í Osnabriick í V-Þýskalandi. Fer sú athöfn fram kl. 14, en klukkan 16 verður messa hennar lesin í Dómkirkju Krists konungs, Landakoti, og annast kon- ur ýmsa þjónustu i þeirri messu. Séra Ágúst K. Eyjólfsson les mess- una. Tildrög þessa eru þau, að árið 1950 fann dr. Kristján Eldjárn litla styttu af heilagri Barböru í kapellurústinni við Straumsvík. Vakti hún töluverða athygli, ekki síst vegna greina dr. Kristjáns í Árbók hins islenska fornleifafé- lags 1955—’56 og bókinni „Hundr- að ár í Þjóðminjasafni", svo og fyrir útvarpserindi sem Sigurveig Guðmundsdóttir hélt um heilaga Barböru og styttufundinn, er var síðan prentað í Merki krossins, málgagni kaþólsku kirkjunnar. Var það áhugamál margra að láta gera styttu af heilagri Bar- böru og setja hana upp þarna í rústinni. Varð loks af þeim fram- kvæmdum sl. sumar og tók Walter Mellmann að sér að gera styttuna, með hliðsjón af mynd af gömlu styttunni, og gaf Ansgar Werk í Jóhann Hjartarson teflir í Hollandi STJÓRN SÍ fór þess á leit við Skáksamband Hollands, að Jó- hann Hjartarson, TR, fengi að tefla í meistaraflokki á Hoogov- en-skákmótinu í Wijk aan Zee. Mótshaldarar hafa fallizt á beiðni þessa, og mun Jóhann því fá að spreyta sig 21.-31. janúar nk. Tafl- félag Reykjavíkur styrkir Jóhann allmyndarlega til fararinnar. Osnabruck síðan Félagi kaþólskra leikmanna styttuna en Álverk- smiðjan í Straumsvík sá um upp- setningu hennar, enda er heilög Barbara verndardýrlingur málmsteypumanna o.fl. Um Barböru eru til bæði helgi- sögur og ljóð og er sögu hennar að finna í Heilagra manna sögum og ljóð í Islenskum miðaldakvæðum, sem dr. Jón Helgason gaf út á sín- um tíma. Saga hennar er sögð i bæklingi sem Barbörusjóður gefur út og mun verða fáanlegur á föstu- daginn, á messudegi heilagrar Barböru, og eftir það hjá Félagi kaþólskra leikmanna. Sigurveig Guðmundsdóttir er höfundur bæklingsins. Fjónsk farandsýning í Norræna húsinu FARANDSÝNING, sem nefnist „Herfra min verden gár“, þar sem 23 listiðn- adarmenn frá Fjóni í Danmörku sýna verk sín, stendur yfir í Norræna húsinu en sýningunni lýkur 19. desember næstkomandi. Á sýningunni eru keramik, vefnaður, textíl, glermunir, skartgripir bæði út gulli og silfri og ljósmyndir. Sýningin var upphaflega sett upp í fjónska listasafninu í Óðinsvéum og vakti hún mikla at- hygli. Héðan fer sýningin til Sví- þjóðar þar sem hún verður sýnd á ýmsum stöðum, en fer síðan til Noregs og Finnlands og ef til vill til Færeyja einnig. í tengslum við sýninguna munu tveir af listamönnunum, sem eiga verk á sýningunni sýna litskyggn- ur af verkum sínum og vinnudegi. Myndirnar verða sýndar í fund- arsal Norræna hússins, fimmtu- daginn 3. desember klukkan 20.30. Á eftir verða umræður niðri í sýn- ingarsölunum. Listamennirnir tveir, sem hér um ræðir eru Peter Tyberg, sem sýnir keramik og Birgit Rastrup Larsen, sem sýnir textíl. Ráðinn aðstoðarbanka- stjóri Alþýðubankans HALLDÓR Guðbjarnason við- skiptafræðingur hefur verið ráðinn aðstoðarbankastjóri við Alþýðu- bankann, frá 1. desember nk. Halldór er fæddur á ísafirði 20. okt. 1946, hann lauk prófi í viðskiptafræðum frá Háskóla ís- Halldór Guðbjarnason lands 1972 en hafði þá þegar haf- ið störf hjá Seðlabanka íslands eða á árinu 1971 og starfaði þar til ársins 1975 er hann réðist úti- bússtjóri við Útvegsbanka ís- lands í Vestmannaeyjum. Frá 1. jan. sl. hefur Halldór verið for- stöðumaður útibúaeftirlits Út- vegsbankans. Kona Halldórs er Steinunn Brynjólfsdóttir og eiga þau þrjú börn. Leiðrétting í FRÁSÖGN af árekstri á gatna- mótum Skothúsvegar og Tjarn- argötu í Mbl. í gær slæddist villa. Fólksbifreið sem ekið var eftir Tjarnargötu, var ekið í veg fyrir jeppabifreið sem kom eftir Skot- húsvegi, og skullu bifreiðirnar saman þannig að báðar eru mikið skemmdar. Biðskylda er á Tjarn- argötu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.