Morgunblaðið - 02.12.1981, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1981
23
Dómsdagur
og forfeður
Eftir Eyjólf Jónsson,
Isafirði
„Á vetrarvertíðinni fékk Jón frá
Vetleifsholtsparti smávegis að-
hlynningu í Hæringsstaðahjáleigu
hjá Stokkseyri. Þar varð tvíbýli
árið 1854. A öðrum partinum bjó
Jón Bjarnason með konu sinni,
Hildi Þorsteinsdóttur frá Roðgúl,
en á hinum partinum þau Arn-
björn Þorkelsson og kona hans,
Gunnhildur Gísladóttir frá Bjólu-
hjáleigu í Neðri-Holtaþingum.
Leitt er til þess að vita að flestir
afkomendur þeirra áttu eftir að
drukkna í sjó hér og þar kringum
landið, þar með talinn Arnbjörn
sjálfur, eða þá þeir urðu bráð-
kvaddir. Einum þeirra tókst að
flýja djöfuldóms ættlandsins og
hverfa til Amriku, hann kom aldr-
ei til baka.“ (Bls. 202.)
Ofanskráð málsgrein er úr bók-
inni Dómsdagur eftir Guðmund
Daníelsson frá Guttormshaga.
Það kom óneitanlega furðanlega
fyrir sjónir að verða þess um síðir
áskynja að langafi hafi drukknað
og flestir afkomendur hans og
langömmu, „áttu eftir að drukkna
í sjó hér og þar kringum landið,
þar með talinn Arnbjörn sjálfur,
eða þá þeir urðu bráðkvaddir".
Með þeirri undantekningu þó, að
einum „tókst að flýja djöfuldóm
ættlandsins" og kom aldrei til
baka.
Bókarhöfundur reynir hér með
pennalipurð, og í stuttu máli, að
sálga flestum afkomendum þeirra
Arnbjarnar Þorkelsssonar og
Gunnhildar Gísladóttur konu
hans og er vissulega „leitt til þess
að vita“ að svo skyldi reynt.
Ástæða er því til að gera nokkra
grein fyrir þeim Arnbirni og
Gunhildi og afkomendum þeirra.
Arnbjörn Þorkelsson var fædd-
ur í Gerðum í Flóa 1827 sonur
Þorkels bónda þar Árnasonar. Og
í móðurætt var Arnbjörn kominn
af þeim sögufræga manni Ólafi
bónda og hreppstjóra í Fljótshól-
um, Þorleifssyni.
Það er algjör misskilningur að
Arnbjörn hafi drukknað. Hann
var útróðrarmaður í Ytri-Njarð-
vík og dó þar 1. maí 1873 úr
lungnabólgu.
Þau Arnbjörn og Gunnhildur
giftust 20. október 1853 og eignuð-
ust níu börn. Gunnhildur var fædd
1829 og dó í Reykjavík 1921 á 92.
aldursári.
Arnbjörn silfursmiður var
bóndi í Hæringsstaðahjáleigu
1854—1856 og bjó síðan í Gerðum
í Flóa og Gunnhildur síðan með
börnum sínum nokkru lengur. Síð-
ar var hún um tuttugu ár bústýra
á Kambi í Flóa og eignaðist þá
eina dóttur með Sigmundi bónda
og ekkjumanni þar og gekk líka í
móðurstað ungum börnum hans.
Þrjú af börnum Arnbjarnar og
Gunnhildar drukknuðu. Eiríkur
gullsmiður á Eyrarbakka drukkn-
aði af Jóni á Fit 1890, hann á ekki
niðja á lífi. Sigurjón drukknaði
fertugur 1905, þá við sjóróðra frá
Seyðisfirði og fórst bátur sá með
atlri áhöfn, fjórum mönnum. Sig-
urjón átti 5 dætur og eru niðjar
hans margir. Jóhanna drukknaði í
Reykjavík 1917, hún var gift og
átti 7 börn og fjölda afkomenda.
Ekki er kunnugt um að fleiri af
börnum Arnbjarnar hafi drukkn-
að.
Gísli Arnbjarnarson er talið að
hafi orðið bráðkvaddur á Kala-
staðaflötum við Stokkseyri 1902,
rúmlega fimmtugur. Hann eignað-
ist þrjú börn, er öll áttu afkom-
endur. Niðjar Gisla hafa verið og
eru sumir enn búsettir í lágsveit-
um Árnessýslu og í nágrenni bók-
arhöfundar á Selfossi. Einn niðja
Gísla mun hafa verið forveri höf-
undar við skólastjórn á Selfossi.
Þá er að nefna Elísabetu, þann
afkomandann er „tókst að flýja
djöfuldóm ættlandsins" og kom
aldrei til baka. Áður en Elísabet
fór af landi burt hafði hún eignast
nokkur börn. Það elzta var dóttir,
er ekki fór af landi burt og starf-
aði m.a. sem mjólkurbússtýra á
Hlíðarenda í Ölfusi nokkur ár,
giftist og átti börn. Svo einnig frá
Elísabetu er talsverður ættleggur
hér á landi.
Hafa þá verið nefnd fimm af
börnum Arnbjarnar Þorkelssonar.
Einn barnanna var Benjamín, tví-
buri er dó smábarn. Hinn tvíbur-
inn Jóhanna átti sjálf tvíbura og
hjá niðjum hennar hafa orðið
nokkrar tvíburafæðingar og hefur
ættleggur Jóhönnu vaxið nokkuð
ört.
Þá er enn að telja þrjá syni
Arnbjarnar og Gunnhildar er
hvorki drukknuðu eða flúðu land.
Ný verzlun
á Akranesi
Akranesi, 30. nóvember.
NÝ VERSLUN hefur verið
opnuð að Skólabraut 21 hér í
bæ. Verslunin heitir „Hæðin“
sf. og er sérverslun með kven-
fatnað og snyrtivörur.
Eigendur eru Asgerður Is-
feld sem er jafnframt verslun-
arstjóri og Hulda Stefánsdótt-
ir.
Júlíus.
Matarkynningar og skemmtikraft-
ar á Hótel Esju f jólamánuðinum
Á HÓTEL Esju og Esjubergi verður
nú næstu helgar, á aðventunni, boð-
ið upp á sérstaka jólastemmningu
með matarkynningum af ýmsu tagi
og skemmtikröftum ásamt þeim gör
ótta jóladrykk Glögg, sem vinsældir
hlaut á aðventunni fyrir ári síðan, en
þá var boðið upp á svipaða dagskrá
og nú er.
Á blaðamannafundi sem kynn-
ingardeild Flugleiða hélt á Esju-
bergi kom fram, að sunnudaginn
6. des. kynnir Sláturfélag Suður-
lands margs konar jólarétti á
Esjubergi og til að fá rétt and-
rúmsloft mun Barnakór Tónlist-
arskólans koma í heimsókn og
syngja jólalög. Viku seinna,
sunnudagskvöldið 13. des., verður
danskt jólakvöld á Esjubergi og
jafnframt verður sérstök osta-
kynning á vegum Osta- og smjör-
sölunnar í Reykjavík og þá mun
barnakór úr Kópavogi mæta og
syngja nokkur jólalög.
Esjuberg verður skreytt að
vanda á aðventunni og um jólin.
Graham Smith fiðluteikari og
Jónas Þórir tónlistarmaður munu
skemmta gestum á Esjubergi og á
Skálafelli sunnudaga í jólamánuð-
inum og annan dag jóla. Boðið
verður upp á jólalamb í desem-
bermánuði.
Hótelið býður upp á það nýmæli
að brúðhjónum, sem halda gift-
ingarhóf á Skálafelli á níundu
hæð hótelsins, verður boðin
ókeypis gisting i hinni stóru svítu
hótelsins á áttundu hæð.
Ljósm. Mbl. ÓI.K.M.
Frá blaðamannafundinum á Esjubergi, Hjördís Jónsdóttir móttökustjóri Hótel
Esju, Sveinn Sæmundsson blaðafulltrúi og Einar Olgeirsson hótelstjóri.
Eyjólfur Jónsson
Þorkell var bóndi og smiður í Eg-
illstaðakoti í Flóa, kvæntur en
barnlaus. Daníel er lengi var í
Björgvin á Stokkseyri og siðar í
Reykjavík, kvæntist og átti tvö
börn er bæði eignuðust afkomend-
ur. Og loks Arnbjörn, er nokkur ár
var bóndi í Egilsstaðakoti, en varð
að hætta búskap vegna vanheilsu.
Hann kvæntist og átti þrjú börn.
Eldri dóttirin fluttist vestur á
firði og giftist þar og á marga af-
komendur.
Hér hefur í stuttu máli verið
gerð nokkur grein fyrir afkomend-
um Arnbjarnar Þorkelssonar og
Gunnhildar Gísladóttur. Og reynt
hefur verið að sýna fram á hversu
fráleit er sú fullyrðing að afkom-
endur þeirra flestir hafi átt eftir
að drukkna í sjó eða verða bráð-
kvaddir þótt vissulega hafi hvoru-
tveggja hent nokkra afkomend-
anna.
Enn má bæta við að tíunda barn
Gunnhildar var Arnbjörg Sig-
mundsdóttir, sem var tvígift og
átti börn með báðum mönnum sín-
um og þau afkomendur. Bætist
þar enn nokkuð í niðjahóp Gunn-
hildar Gísladóttur frá Bjóluhjá-
ieigu. Hér var þessarri grein lokið
er hún var sett á blað snemma á
þessu ári.
Fyrir skömmu birtist í Lesbók
Morgunblaðsins grein er nefndist:
Saga um sögu.
Höfundur getur þess að hann
hafi í Þjóðskjalasafni lesið syrpu
nokkra um gengnar kynslóðir á
Suðurlandi. Ekki þótti honum það
góð lesning og er dómhvatur um
þá er söfnuðu í þá syrpu. „Fátt
virðist í þeim doðröntum traustur
fróðleikur," segir þar. Og um eina
tilvitnaða grein segir: „Þótt ekki
sé þessi klausa löng, tekst höfundi
að ljúga þar tvisvar."
Er ég hafði þetta lesið varð mér
á ný hugsað til Dómsdags og frá-
sagnarinnar þar, er getur forfeðra
minna, þeirrar er birtist í upphafi
þessa máls.
Betra væri stundum að vera
ekki í glerhúsi þegar hreytt er
óvægilega frá sér.
14. október 1981,
SVEND OTTO S.
Risafiskurinn
ALMENNA BOKAFELAGIÐ
Risa-
fiskurinn
eftir Svend Otto S.
<
co
O
m
<
i™
cn
»4*
w
Svend Otto S. er í hópi kunnustu teiknara og barnabókahöf-
unda á Norðurlöndum. Hann er orðinn vel þekktur hér af
bókunum Mads og Milalik, sem gerist á Grænlandi, og Helgi
fer í göngur, sem fjallar um íslenskan dreng og heimili hans.
Dvaldist höfundurinn hér meðan hann gerði þá bók.
Bókin um Helga fer nú sigurför víðsvegar um heiminn og
kynnir okkar kæra land hinum ungu lesendum.
í þetta sinn snýr Svend Otto S. sér að Færeyjum. Sagan
Risafiskurinn fjallar um tvo drengi sem lenda í ævintýrum,
bæði á sjó og landi.
Svend Otto S. er mikill náttúrunnandi og kemur það glöggt
fram í sögum hans og þó einkum hinum frábæru myndum.
Almenna Bókafélagið
Austurstræti 18, Skemmuvegi 36,
sími 25544. sími 73055.