Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 4
52 Nippon Electric Co.Ltd TOKYOJAPAN Það fer lítið fvrir bví Nú hefur NEC, sem er eitt fremsta fyrirtæki Japans í framleiðslu há- þróaðra electroniskra tækja komið með á markaðinn frábær hljóm- tæki í smækkaðri mynd „Mini system". Verð: 9.900 9.000 Plötuspilari Útvarp (Tuner) Magnari Kassettutæki 2 hátalarar LÁGMÚLA 7 REYKJAVÍK SÍMI 85333 SJÓNVARPSBOÐIN Haukur Níelsson Helgafelli sextugur Vinur minn og nágranni Hauk- ur Nielsson á Helgafelli er sextug- ur í dag. í þessu tilefni finn ég hvöt hjá mér að skrifa nokkur orð á blað enda þótt ég viti að honum er ekki allskostar að skapi að ég skrifi um hann nokkurt hól nema af hógværð. Ég tek þessa áhættu og læt ráðast hvernig hann og annað fólk lítur á þetta, sem frá mér fer. Haukur er fæddur og uppalinn að Helgafelli í Mos- fellssveit, sonur þeirra hjóna Unn- ar Jónsdóttur, sem er af Kortsætt í Kjós og Níelsar Guðmundssonar, sem er Mýramaður að uppruna. Snemma lágu sporaslóðir okkar Hauks saman enda lá leið okkar að Skammadalslæknum, er kýr heimilanna hittust við lækinn á morgnana, og varð okkur strax vel til vina. Haukur ólst upp við almenn sveitastörf og var orðinn karl- mannsígildi um fermingu. Eink- um lét honum vel að fást við fé, var talinn fjárglöggur en ekki lét hann þó eftir liggja að ganga vel fram í verkum í fjósi, og þótti hann góður mjaltamaður. Með því atlæti sem móðir hans bjó honum varð Haukur það vel að manni, að við jafnaldrar hans sóttum ekki sigur í fangbrögðum við hann þeg- ar á unga aldri og hinir eldri máttu vara sig á honum ef tekin voru glímutök. Langskólaganga var ekki á boðstólum fyrir Hauk enda ekki algengt um unga menn í sveitum á árum kreppu og almenns pen- ingaleysis. Hann stundaði þó nám við skóla Sigurðar Greipssonar í Haukadal og tvo vetur var hann í Hvanneyr- arskóla en lauk þaðan námi vorið 1941. Snemma varð Haukur liðtækur fundar- og ræðumaður og sótti einkum pólitíska fundi, enda stunduðu þingmenn þeirra tíma nokkuð fundarhöld í héraði en þó einkum um kosningar. Það var lengi í minnum haft er drengur frá Helgafelli kvaddi sér hljóðs, þá um fermingu, á framboðsfundi í Brúarlandi en þá voru m.a. í framboði þeir Ólafur Thors og Guðbrandur prófessor Jónsson sem boðuðu sín „fagnaðarerindi". Mönnum fannst að Hauki tækist ekkert síður en þeim sem eldri voru, og þótti okkur hinum strák- unum vel og mennilega takast til, en hann lét frambjóðendur óspart heyra meiningu sína. Haukur festi sitt ráð árið 1942 og flutti skömmu seinna til Reykjavíkur og stundaði vinnu hjá Reykjavíkurbæ. Starfaði hann sem verkstjóri um skeið við fram- kvæmdir heitaveitunnar og þá oft hér í sveitinni við góðan orðstír. Bóndi að Helgafelli varð hann svo árið 1952 og sat jörðina á móti Jóni bróður sínum, og búa þeir bræður þar enn með sæmd. Kona Hauks er Anna Stein- grímsdóttir Davíðssonar kennara og vegaverkstjóra á Blönduósi. Þeim varð tveggja barna auðið sem eru einnig búsett að Helga- felli. Haukur er gætinn maður og gerhugull, en fer að öllum málum með gát. Við höfum starfað saman í hinum ýmsu félögum í sveitinni t.d. í ungmennafélaginu en lengst af í Búnaðarfélagi Mosfellshrepps, en þar störfum við saman í stjórn, og hefir Haukur gegnt for- mennsku síðasta áratuginn. Þá vil ég nefna að í hreppsnefnd hefir hann setið óslitið frá 1966 og er þar enn. Pólitískar skoðanir okkar hafa ekki farið saman en um það má segja að við erum sammála um velferðarmálin í félagsmálastörf- um okkar þó að okkur greini oft á um leiðir að settu marki. Haukur er erfiður andstæðingur en heið- arlegur. Hæfileikar hans og glöggskyggni koma best í ljós í litlum hópi, enda beitir hann ekki lengur miklum ræðuhöldum. Ég met Hauk mikils sem vin og ná- granna og reyndar allt hans fólk, og hin pólitíska barátta hefir ekki megnað að læða þar kala á milli enda þótt oft sé fast deilt í ein- stökum málum. I flokki sínum hefir Haukur gegnt ýmsum trún- aðarstörfum og heyri ég ekki ann- að en að hann hafi þar óskorað traust. Á þessum tímamótum vil ég færa Hauki heillaóskir og þökk fyrir samstarfið, og væntum við sveitungar og vinir hans að við megum enn njóta starfskrafta hans í framtíðinni. Á seinni árum er búskapur hans hefir dregist saman hefir Haukur starfað sem fangavörður í Reykja- vík, og er hann gætinn og vinsæll í þeim störfum hjá þeim sem hlut eiga að máli, hvórt heldur er um að ræða verði laganna ellegar hina, sem verður eitthvað á í sam- félaginu. Lif heill. J.M.G. Fríða Á. Siguróardóttir: SÓLIN OG SKUGGINN Fyrsta bók Fríöu, smásagnasafniö „Þetta er ekkert alvarlegt”, sem út kom í fyrra, vakti almenna athygli og umtal bókamanna. Sólin og skugginn er fyrsta skáldsaga hennar og munu bókamenn ekki síöur fagna útgáfu hennar. Sagan er þrungin áhrifamagni, snertir og eggj- ar og er rituó á óvenju fögru og auöugu máli. Þetta er saga um frelsi og helsi mannsins, lífsástina og dauöann, saga af fólki, grímum þess, brynjum og vopn- um, — hún er saga mín og þín. Sólin og skugginn er bókmenntaviöburöur. BÓKABÚO OUVERS STEINS SE JökullJakobsson: SKILABOÐ TIL SÖNDRU SKUGGSJÁ SklLABOÚ TILSÖNPRU Jökull Jakobsson hafði gengið frá hand- ríti þessarar bókar aöeins fáum mánuö- um fyrir lát sitt. Sagan speglar alla beztu eiginleika hans sem rithöfundar, frásögnin er lipur og lifandi, stór- skemmtiieg og bráöfyndin, en undir nióri skynjar lesandinn alvöru lífsins, vandamál samtímans. Meinfyndnari og háóskari bók er ekki á bókamarkaói í ár. Aðdáendur Jökuls Jakobssonar eru svo sannarlega ekki sviknir af þessari síöustu bók hans. Hún leiftrar af frásagnargleói og fjöri. SKUGGSJA bókabúð ouvers steins se

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.