Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981 59 ökkur blendingur sem kallaði sig alíslensku nafnl. Faöir hans reynd- ist vera íslenskur kaupmaður í indíánabyggö fyrir noröan, sem haföi gifst indíána. Skrítnir siðir indíána Ég haföi nokkur kynni af indíán- um í mínu starfi, og komu siöir þeirra mér stundum á óvart. Eitt sinn var ég t.d. kvaddur til indíána- byggöar í noröri, til aö gefa saman Indíánapar. Aö aflokinnl athöfninni kom brúöguminn til mín og sagöi: „Þér varö á í messunni: Þú hafðir engin samskot, svo nú get ég ekki borgað þér.“ Seinna meir borgaöi hann mér reyndar, á leið sinni suöur til Winnipeg, í verslunarerindum. Um leiö og hann borgaöi, kvartaöi hann yfir því viö mig aö hann ætti ekki buxur sem hægt væri að láta sjá sig á í þéttbýlinu. Ég fór því meö honum í verslun sem verslaöi meö notuö föt, til aö kaupa á hann skikkanlegar buxur. Þetta var dæmigert um indíán- ana, þeir voru alltaf aö ganga á lagiö viö þá sem höföu einu sinni gert þeim greiöa. Sérstaklega uröu prestar fyrir barðinu á þessu, en þeir þóttu veikir fyrir, stööu sinnar vegna, ef menn báðu þá um greiða. — En er ekki hér um aö ræöa samhjálparsiði indíána? Þaö viröist vera mikið um lán milli indíána: Einn þeirra sagöi eitt sinn við mig aö þaö væri erfitt aö leggja neitt fyrir, af því þá vildu ættingjar hans strax ganga í þaö. Það virðist vera siöur meöal þeirra aö allir eigi jafnt. Ég held aö þaö sé eitt af því sem varnar þeim aö komast áfram. Einu sinni var ég viö útför meöal indíána, sem ég minnist enn meö hrolli. Allt fór þá sinn vanagang, þangaö til kistan var sigin í gröfina, og hinni kirkjulegu athöfn var lok- iö. Þá upphófust skyndilega óhemjulega skerandi kveinstafir hjá ekkju hins látna og öörum kon- um. Þaö virtist engin stilling vera til, þær virtust sleppa sér alveg. Ekkjan stökk síðan kveinandi niöur í gröfina og ofan á kistuna. — Hér hefur kannski veriö um heföbundna útfararsiöi indíána aö ræöa, sem lifa jafnhliöa kristnum siöum. Endurmenntun og starfsskipti Nú er fariö hratt yfir sögu: Eftir fjögur ár, áriö 1972, flyst ég enn um set, og gerist nú prestur í smá- bænum Bawlf í Alberta. Þar voru engir íslendingar. Þar var þó stærri söfnuður en í Ashern. Þaö kom í Ijós aö bókavörö vantaöi viö bókasafn lútherska há- skólans sem var á staönum, og var mér nú boöin staöan, meö því skil- yröi aö ég menntaöi mig í bóka- safnsfræöi. Ég reif mig því upp, og settist á skólabekk viö University of Alberta, í Edmonton-borg. Þar lauk ég mastersgráöu í bókasafns- fræöi, og er nú bókavöröur viö fyrrnefnt útibú þess háskóla í Bawlf, Camrose Lutheran College. Aö loknu náml lét ég af prests- störfum og hefur mér þótt tilbreyt- ingin góö. Þó sakna ég þess aö áöur umgekkst ég marga aldurs- hópa í starfi mínu, en nú umgengst ég aöailega nemendur. Mér fannst ég yngjast upp viö háskólanámiö. Nú læröi maöur í fyrsta sinn verulega gagnrýnin vinnubrögö. Einnig læröi ég betur aö skilja vandamál sveitafólks sem elst upp í kristni, þegar þaö fer til borgarinnar, og hittir þar fyrir ný trúarbrögö, trúleysi og jafnvel fjandskap gegn trúarbrögöum. j umræöuhópum nemenda í fram- haldsnáminu lærði ég einnig betur aö gagnrýna og rökstyöja mínar eigin skoöanir. — Hyggst þú flytja aftur til ís- lands? Ég efast um aö ég flytji aftur búferlum til íslands, enda eru börnin mín nú sest aö í Kanada, sum gift þar, og þau tala ekki ís- lensku. Flest nákomna skyldfólkiö mitt er því i Kanada, nú oröiö. v IKAUPMENN-VERSLUNARSTJÓRAfí AVEXTIR IKUNKAR Bananar Dole — Klementínur Marokko — Appelsín- ur Jaffa — Greipaldin Jaffa — Greipaldin rautt — Sítrónur Jaffa — Sítrónur spánskar hálfks. — Epli rauö USA — Epli græn USA — Epli græn frönsk — Vínber græn spönsk — Vínber blá spönsk — Melón- ur gular ísrael — Perur ítalskar — Ananas — Ava- cado — Kiwi. EGGERT KRISTJANSSON HF Sundagörðum 4, sími 85300 . BESSIBJARNASON segir sögur og syngur fyrir börnin LNDURMINNINGAR ÚR OPERUM Hmltn.R PÁIJOOniR CrtJnHtJN ,V SÍMONAR Texti: Tryggvi V. Líndal

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.