Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 34
82 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981 Umsjón: Séra Karl Siffurbjömsson Séra Auður Eir ViUíjálmsdóttir A U DROTTINSDEGI Söfnun Hjálparstofnun kirkjunnar: Brauð handa hungruðum heimi Söfnun á jólaföstu Frá fyrstu tíð hefur Hjálpar- stofnun kirkjunnar efnt til fjár- söfnunar meðal landsmanna á jólaföstu. Er þá safnað til hjálp- arverkefna, sem ofarlega eru á baugi innanlands sem utan. Þessar safnanir eru um sama leyti og landsmenn eru að huga að jólagjafakaupum og öðrum undirbúningi jólanna. En að- ventan er jólafasta — tími sjálfs- afneitunar og íhugunar. Mörgum er jólahaldið kostnaðarsamt. En samrýmist það boðskap hans, sem jólin minna á, frelsarans? Allar okkar jólagjafir spretta af þeirri gjöf, sem HANN er, öll raunveruleg jólagleði endurskin þeirrar gleði, sem HANN gefur. Hjálparstofnun kirkjunnar vill með söfnun sinni hjálpa okkur að minnast þess. Og hjálpa okkur að láta eitthvað af hendi rakna til hjálpar þeim, sem sá sem jólin minna á, kallaði sína „minnstu bræður", þá sem eru hjálparþurfi, hrjáðir, hungraðir. Og það er svo sannarlega enginn hörgull á þeim. Þríþætt verkefni Að þessu sinni eru þrjú verk- efni, sem safnað er til. Fyrst má nefna þróunarverkefni í Súdan, og bygging sjúkraskýlis á íslensku kristniboðsstöðinni í Cheparería í Kenýa og loks hjálp til Pólverja. Sjúkraskýli kristni- bodsstöðvarinnar Landsmenn allir þekkja til hins mikla starfs, sem kristni- boðsfélögin hafa unnið í Eþíópíu, og fyrir nokkrum árum haslaði kristniboðið sér völl á nýju starfssvæði í Cheparería í Kenýa. Þar er nú blómlegt starf. En nú er brýn þörf á að reist verði sjúkraskýli því læknishjálp er mjög af skornum skammti og mikið leitað til kristniboðanna um aðstoð i þvi sambandi. Súdan í fyrra hóf Hjálparstofnun Frá Súdan. kirkjunnar samstarf við Hjálp- arstofnun norsku kirkjunnar við þróunaráætlun í Súdan. Beinist hún einkum að 4 þáttum: 1. Heilsugæslu, þar sem áhersl- an er lögð á þjálfun starfsliðs til heilsuverndarþjónustu, og al- menna fræðslu um hreinlæti og heilsuvernd og svo mæðra- og ungbarnaeftirlit. 2. Borun eftir fersku vatni, þar sem hundruð þúsunda manna búa við ódrykkjarhæft vatn, og áveituvatn er af skornum skammti. Nú þegar njóta 250 þúsund manns góðs af brunnum, sem grafnir hafa verið fyrir til- stilli þessarar þróunarhjálpar kirknanna á Norðurlöndum. Áveituframkvæmdir og aukin ræktun hafa þegar komið í veg fyrir árvissa hungursneyð í stór- um héruðum. 3. Aukinni menntun, með stór- aukinni lestrarkennslu og al- mennri verkmenntun, svo og þjálfun kennara. 4. Bættu mannlífi — þar koma til orkumál, bætt jarðræktun- artækni og fleiri atriði, sem hjálpa íbúunum að nýta betur gæði lands síns og auka mat- vælaframleiðslu og stuðla að betri líðan almennings. Pólland Öllum er kunnugt hið alvar- lega ástand sem ríkir í Póllandi. Þaðan hafa borist ítrekað hjálp- arbeiðnir til alþjóðlegra hjálpar- stofnana, og hafa þær sent mikið magn hjálpargagna þangað. Hjálparstofnanir kirknanna á Norðurlöndum hafa í samvinnu við Lútherska heimssambandið haft umfangsmikla fjársöfnun til stuðnings Pólverjum. Hér á landi munu Hjálparstofnun kirkjunnar, Alþýðusambandið og Kaþólska kirkjan á íslandi sameinast um almenna fjársöfn- un í þessu skyni. Er ljóst að ís- lendingar geta hér veitt virka hjálp. Talið er að um 3 milljónir Pólverja þarfnist aðstoðar. Jafn- vel hefur verið talað um yfirvof- andi hungursneyð í þessu frjó- sama landi í Evrópu miðri. Efnahagskerfi landsins er allt í molum og vöruskortur geigvæn- legur, jafnvel hvað varðar brýn- ustu lífsnauðsynjar. Fólk verður að bíða tímum saman í löngum biðröðum, jafnvel heilu næturn- ar, til að geta fengið matvæli út á skömmtunarseðla sína, og svo er iðulega ekkert til, loks þegar búðirnar opna! Helst eru það 3 hópar fólks, sem verða illa úti vegna þessara aðstæðna, en það eru konur með ungbörn, aldraðir og fatlaðir. Vítamín og næringarrík mat- væli, þurrmjólk og margvísleg lyf er það sem helst skortir. Hin frjálsu verkalýðssamtök „Samstaða", munu annast dreif- ingu hjálpargagna í Póllandi, en Islendingar sjá um kaup og sendingu þeirra til landsins, samkvæmt nánari óskum Pól- verja. Allir íslendingar munu fá senda gíróseðla, þar sem auðvelt verður að koma framlögum til þessara brýnu hjálparverkefna. Munum, að hér er um að ræða neyðarkall frá bræðrum okkar og systrum! Lítið framlag, nokkrir molar af allsnægtum okkar, getur skipt sköpum um líf og heilsu fjölmargra. Biðröð við matvöruverslun í Póllandi. Efastu? 3. sunnudag í aöventu - Matt. 11.2—11 Þriðji sunnudaffur í aðventu. Presturinn er í fjólu- bláum skrúða eins og síðasta sunnudag, lit iðrunar og yfirbótar. Textar dagsins hljóða sem aðrir aðventutextar um það, sem var, er og verður í ríki Guðs. Lexía Gamla testamentisins stendur í Jesaja 1*0. 1—5, pistillinn íl Kor. I 1—5. Guðspjallið er um Jóhannes skírara. Hann var útval- inn til að uppfylla spádóma Gamla testamentisins um þann, sem myndi koma á undan Frelsaranum, jafna hólana og fylla upp dœldimar. Jóhannes skoraðist ekki undan ábyrgðinni. Hann bugaðist ekki þótt sannleikur hans þætti harður og ofmetnaðist ekki þótt prédikun hans stofnaði til fjöldavakningar. Hann sœtti sig við að minnka svo að Frelsari hans mœtti stækka af starfi hans. Og nú er komið að lífslokum Jóhannesar. Hann er í fangelsi, dauðinn yfirvofandi. Lærisveinar hans margir orðnir lærisveinar Jesú. Jóhannes söng ekki lofsöng í fangelsinu. Hann efaðist. Það les ég að minnsta kosti út úr guðspjallinu. Var Jesús áreiðanlega Frelsarinn? Eða hafði hann, Jóhannes, byggt lífsstarf sitt á misskilningi? Var barátta hans, sjátfsafneitun og lífshætta unninfyrir réttan mann? Var Jesús alls þessa virði? Víkjum frá Jóhannesi til okkar. Við efumst stundum. Stundum finnst okkur við hafa gefið Guði ofmikið. Þær stundir koma kannski að okkur finnst Guð hafa gefið okkur fulllítið, ýmsum óverðugri hefur hann gefið alltof mikið. Við, sem viljum fylgja Kristi, hljótum að eiga efasemdir og baráttu í trú okkar á stundum. Minnumst þá Jóhannesar skírara. Hann, sem Jesús kallaði mestan þeirra, sem af konum eru fæddir, efaðist líka. Þegar efinn þrengir að okkur, skulum við minna hvert annað á að flóknar aðstæður koma alltaf upp í lifi þeirra, sem fylgja Jesú. En svarið frá Jesú kemur líka. Verum viss. Guðgefi okkur góða aðventu. í dag kveikjum viö á 3. kerti aöventukransins. Þaö er stundum kallaö „Hiröakertiö“ og minnir á þá sem fyrstir fengu fregnina sem berst nú út um alla heimsbyggöina. Hiröarnir fundu barniö í jötunni og veittu því lotningu, og sneru síöan aftur og vegsömuöu og lofuöu Guö fyrir allt þaö, sem þeir höföu heyrt og séö. Jólahátíöin vill beina sjónum þínum aö barninu í jötunni. Þaö er frelsarinn, frelsarinn þinn. 3. kertid á aðventukransinum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.