Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 13.12.1981, Blaðsíða 28
76 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1981 58W Hvers vegna eru öll Telefunken litsjónvarpstæki SELD NOTUÐ? Verksmiðjan vill fullvissa sig um að tækið sé í fullkomnu lagi áður en þú færð það. Það er„notað” fyrir þig í 24 klukkustundir áður en það fær stimpilinn: „TILBÚIÐ TIL NOTENDA”. Þetta tryggir öruggt og gott tæki og auðvitað eru Telefunken litsjónvarpstækin með öllum þeim tækninýjungum sem góð litsjónvarpstæki þurfa að hafa. BRÆÐURNIR ORMSSON % LÁGMÚLA 9 SÍMI 38820 Héraðs- skólinn að Núpi 75 ára HÉRAÐSSKÓLINN að Núpi verður 75 ára þann 4. janúar nk. en þá eru liðin 75 ár frá því að fyrstu nemend- urnir komu í skólann. Bræðurnir sr. Sigtryggur og Kristinn Guðlaugssynir höfðu haft mikinn áhuga á því að koma á stofn skóla í Gruntvikskum stíl og fengu samþykkta tilraun til skóla- rekstrar á aukasafnaðarfundi í Núpskirkjusöfnuði árið 1906. I fyrstunni var skólinn rekinn sem einkastofnun með ríkisstyrk. Árið 1930 var samþykkt með lög- um frá Alþingi að héraðsskóli skyldi vera að Núpi. Stofnendur héraösskólans voru, auk ríkisins, sr. Sigtryggur Guðlaugsson, Hér- aðssamband ungmennafélaganna, ísafjarðarsýslur og Barðastrand- arsýsla. Árið 1962 yfirtók ríkis- sjóður allan rekstur Héraðsskól- ans að Núpi og hefur séð um hann síðan. Afmælishátíð skólans verður haldin laugardaginn 9. janúar nk. og hefst með guðsþjónustu kl. 13.30 og eru gamlir nemendur svo og allir vinir og velunnarar skól- ans velkomnir til hátíðarinnar. Happdrætti 6. bekkjar Versl- unarskólans DREGIÐ var í happdrætti 6. bekkjar Verslunarskóia íslands þann 1. des- ember sl. Upp komu þessi númer: 0803 Sólarlandaferð fyrir tvo. 3535 Ferð til London fyrir einn. 1500 Skíðaútbúnaður eftir eigin vali. 0888 Reiðhjól. 4436 Fataúttekt hjá Karnabæ. 3403 Matur fyrir tvo á Hótel Holti. 3413 Kodak vasamyndavél. 0989 10 sólartímar. 4433 Plötuúttekt hjá Karnabæ. 1497 Plötuúttekt hjá Karnabæ. 3534 Plötuúttekt hjá Karnabæ. Þeir sem hlotið hafa vinning eru vinsamlegast beðnir um að hafa samband við Einar Berg Pálma- son. Kristján Karlsson: KVÆÐI 81 EinarGuómundsson: ÞJÓÐSÖGUR Snjöll og óvenjuleg kvæði frumlegs skálds Þetta er önnur kvæðabók Kristjáns Karlssonar bókmenntafræðings. Fyrri bók hans, Kvæði, vakti mikla athygli, enda margt í henni, sem talið var til nýunga í skáldskap hér á landi. Svo er einnig um þessa bók hans. Hún skipt- ist í fimm sjálfstæöa kafla, kvæðin eru nýstárleg að efni og formum og tök skáldsins á Ijóðlistinni persónuleg og sterk. Kvæði 81 er bók, sem Ijóðaunnendur munu fagna og þurfa að eignast. OG ÞÆTTIR Vönduð og skemmtileg sagnabók Hér er að finna hið fjölbreyttasta úrval þjóðlegs fróðleiks í bundnu og óbundnu máli, sagnir og kveðskap, sem lifað hefur á vörum fólksins í land- inu, sumt lengur, annað skemur. Segja má að sagnir séu af hverju landshorni, en mest er þó af Vestfjörðum, úr Ár- nes-, Rangárvalla- og Skaftafellssýsl- um. Einar Guðmundsson er orðhagur og málsnjall og einn afkastamesti sagnasafnari síöari tíma. SKUGGSJÁ BÓKABÚO OL/VERS STEI/VS SE SKUGGSJÁ BÓKABÚO OLIVERS STEINS SF

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.