Morgunblaðið - 12.01.1982, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982
„Aður fyrr á árunum“ kl. 11.00:
„Guðs hönd
þig leiðir“
Hreiðar Stefánsson og Jenna Jensdóttir.
Morgunstund barnanna kl. 9.05:
Skógarævintýri
- eftir Jennu og Hreiðar
Á dagskrá hljóðvarps kl. 9.05 er Morgunstund barnanna: „Skógar
ævintýri" eftir Jennu og Hreiðar. Þórunn Hjartardóttir byrjar lesturinn.
Peninga-
markadurinn
f A GENGISSKRÁNING
NR. 250 — 31. DESEMBER 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 09.15 Kaup Sala
1 Bandaríkjadollar 8,161 8,185
1 Sterlingspund 15,606 15,652
1 Kanadadoilar 6,883 6,903
1 Donsk króna 1,1157 1,1189
1 Norsk króna 1,4053 4 1,4094
1 Sænsk króna 1,4731 1,4774
1 Finnskt mark 1,8735 1,8790
1 Franskur franki 1,4330 1,4372
1 Belg. franki 0,2131 0,2137
1 Svissn. franki 4,5415 4,5548
1 Hollensk florina 3,3108 3,3205
1 V-þýzkt mark 3,6311 3,6418
1 ítölsk lira 0,00681 0,00683
1 Austurr. Sch. 0,5188 0,5203
1 Portug. Escudo 0,1250 0,1253
1 Spánskur peseti 0,0839 0,0842
1 Japanskt yen 0,03712 0,03723
1 irskt pund 12,923 12,961
SDR. (sérstók
dráttarréttindi 30/12 9,5181 9,5460
r \
GENGISSKRÁNING
FERÐAMANN AGJALDEYRIS
31. DESEMBER 1981
Ný kr. Ný kr.
Eining Kl. 09.15 Kaup Sala
1 Bandarik jadollar 8,977 9,004
1 Sterlmgspund 17,167 17,217
1 Kanadadollar 7,571 7,593
1 Dönsk króna 1,2273 1,2308
1 Norsk króna 1,5458 1,5503
1 Sænsk króna 1,6204 1,6251
1 Finnskt mark 2,0609 2,0669
1 Franskur franki 1,5763 1,5809
1 Belg. franki 0,2344 0,2351
1 Svissn. franki 4,9957 5,0103
1 Hollensk florina 3,6149 3,6526
1 V.-þýzkt mark 3,9942 4,0060
1 Ítölsk lira 0,00749 0.00751
1 Austurr. Sch. 0,5707 0,5723
1 Portug. Escudo 0,1375 0,1378
1 Spánskur peseti 0,0923 0,0926
1 Japanskt yen 0,04083 0,04095
1 irskt pund 14,215 14,257
v V
Vextir: (ársvextir)
Á dagskrá hljóóvarps kl. 11.00 er
þátturinn „Áður fvrr á árunum" í
umsjá Ágústu Björnsdóttur, „Guðs
hönd þig leiðir". Frásögn af björgun-
arafreki Stefáns Stefánssonar í Vtri-
Neslöndum. Gils Guðmundsson les.
— I þættinum segir frá því hver
atvik lágu til þess að Stefán Stef-
ánsson í Ytri-Neslöndum í Mý-
vatnssveit bjargaði eða átti a.m.k.
mikla hlutdeild í að bjarga fjórum
mannslífum, sagði Ágústa Björns-
dóttir — Frá þessu segir Stefán
sjálfur í bréfi sem hann skrifaði
Stefán Stefánsson
Guðbjörgu systur sinni, húsfreyju
í Garði, en hún hafði mjög eindreg-
ið hvatt hann til þess að rifja upp
þessa atburði. Þegar loks varð af
því að Stefán skrifaði bréfið, árið
1919, var hann kominn hátt á sjö-
tugsaldur. Bréf þetta var fyrst birt
í Eimreiðinni árið 1938, með yfir-
skriftinni „Bjargvættur", og þá
nokkuð stytt. En síðan var það birt
í norðlenska tímaritinu Súlum án
nokkurra úrfellinga, búið undir
prentun af Arnþóri Árnasyni frá
Garði, systursyni Stefáns, og þá
með yfirskriftinni „Guðs hönd þig
leiðir“, og þannig mun Gils Guð-
mundsson lesa það í þættinum.
Fyrir þessi björgunarafrek var
Stefán Stefánsson sæmdur heið-
ursiaunum úr Hetjusjóði og var
talinn vel að þeim kominn. Þess
má einnig geta að um nokkurra
ára skeið hefur starfað í Mý-
vatnssveit björgunarsveit sem ber
nafn Stefáns, og til hennar er ein-
att leitað þegar í nauðir rekur og
jafnan með góðum árangri. t
Þetta er alllöng lesning og lítill
tími fyrir tónlist. Þó var hægt að
skjóta inn í þáttinn einkennissöng
Mývetninga, Sveitin mín, eftir Sig-
urð á Arnarvatni, við lag sem ekk-
ert heyrist mjög oft, en það er eftir
Sigurð Ágústsson frá Birtinga-
holti, sungið af Árneskórnum und-
ir stjórn Lofts Loftssonar. Enn
fremur verður leikið af hljómplötu
stef úr Vatnasvítunni eftir Hándel.
— Þetta er ein af ævintýrasög-
um okkar, sagði Hreiðar Stef-
ánsson. — Við sömdum hana á
Akureyri árið 1942, fyrir börnin í
skólanum okkar, sem kallaður
var Hreiðarsskóli, svo að hún er
40 ára gömul um þessar mundir,
en kom út á Akureyri 1944. Sagan
fjallar um drenginn Kalla, sem
finnur lítinn blómálf úti í skógi
og fer með heim til sín. Síðan
skilar Kalli honum í skóginn aft-
ur og verður nú vinur og leikfé-
lagi blómálfanna. Hann lendir
með þeim í margs konar ævintýr-
um og það gengur á ýmsu.
Galdrastafurinn blómálfanna er
ómissandi, einkum þegar svart-
álfarnir eiga í hlut, en af þeim
hafa blómálfarnir mikinn ótta.
Þórunn Hjartardóttir sem les
söguna er sextán ára gömul og
hefur áður lesið sögur eftir okkur
í útvarp.
Sjónvarp kl. 21.40:
INNLÁNSVEXTIR:
1. Sparlsjóðsbækur.............. 34,0%
2. Sparisjóðsrelkningar, 3 mán.1).37,0%
3. Sparisjóðsreikningar, 12. mán. 1)... 39,0%
4. Verðtryggðir 6 mán. reikningar. 1,0%
5. Avisana- og hlaupareikningar. 19,0%
6 Innlendir gjaldeyrisreikningar:
a. innstæður í dollurum...... 10,0%
b. innstæður í sterlingspundum. 8,0%
c. innstæður í v-þýzkum mörkum ... 7,0%
d. innstæður í dönskum krónum.. 10,0%
1) Vextir færðir tvisvar á ári.
ÚTLÁNSVEXTIR:
(Verðbótaþáttur í sviga)
1. Víxlar, forvextir.... (26,5%) 32,0%
2. Hlaupareikningar..... (28,0%) 33,0%
3. Lán vegna útflutningsafurða.. 4,0%
4. Önnur afurðalán ....... (25,5%) 29,0%
5. Skuldabréf .......... (33,5%) 40,0%
6. Visitölubundin skuldabréf..... 2,5%
7. Vanskilavextir á mán.............4,5%
Þess ber að geta, að lán vegna út-
flutningsafuröa eru verötryggö miöaö
við gengi Bandaríkjadollars.
Lífeyrissjóöslán:
Lifeyrissjóöur sfarfsmanna ríkisins:
Lánsupphæö er nú 120 þúsund ný-
krónur og er lániö visitölubundiö með
lánskjaravisitölu, en ársvextir eru 2%.
Lánstími er allt að 25 ár, en getur veriö
skemmri, óski lántakandi þess, og eins
ef eign sú, sem veð er í er lítilfjörleg, þá
getur sjóöurinn stytt lánstímann.
Lifeyrissjóöur verzlunarmanna:
Lansupphæö er nu eftir 3ja ára aöild aö
lífeyrissjóönum 72.000 nýkrónur, en
fyrir hvern ársfjóröung umfram 3 ár
bætast viö lániö 6.000 nýkrónur, unz
sjóðsfélagi hefur náö 5 ára aðild að
sjóönum. A tímabilinu frá 5 til 10 ára
sjóðsaöild bætast viö höfuöstól leyfi-
legrar lánsupphæöar 3.000 nýkrónur á
hverjum ársfjórðungi, en eftir 10 ára
sjóösaðild er lánsupphæöin oröin
180.000 nýkrónur. Eftir 10 ára aöild
bætast viö 1.500 nýkrónur fyrir hvern
ársfjóröung sem líöur. Því er í raun ekk-
ert hámarkslán i sjóönum.
Höfuðstóll lánsins er tryggöur meö
byggingavísitölu, en lánsupphæöin ber
2% ársvexti. Lánstíminn er 10 til 32 ár
aö vali lántakanda
Lánskjaravisitala fyrir janúarmánuö
1981 er 304 stig og er þá miðaö viö 100
1 júní '79.
Byggingavisitala fyrir janúarmánuö
909 stig og er þá miðaö viö 100 í októ-
ber 1975.
Handhafaskuldabréf í fasteigna-
viðskiptum Algengustu ársvextir eru nú
18—20%.
Eddi Þvengur - fyrsti þáttur í nýj-
um breskum sakamálamyndaflokki
Á dagskrá sjónvarps kl. 21.40 er fyrsti
þáttur í nýjum breskum sakamálamynda-
flokki, Eddi Þvengur (Eddy Shoestring).
Eddi var áður forritari hjá tölvufyr-
irtæki, en þoldi ekki álagið þar, svo hann
fór að leita fyrir sér sem einkalögreglu-
maður. Á ýmsu gekk í byrjun, enda er
Eddi ekkert umvafinn fögrum konum, á
engan glæsilegan sportbíl og býr ekki í
stórri eða ríkmannlegri íbúð, heldur
leigir bara hjá brjóstgóðri konu. Hann
fær störf við útvarpsstöð og er jafn-
framt einkaspæjari, sem tekur að sér
verkefni frá hlustendum.
Útvarp Reykiavlk
ÞRIÐJUDKGUR
12. janúar
MORGUNNINN_____________________
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
7.20 Leikfimi.
7.30 Morgunvaka. Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson. Samstarfsmað-
ur:Guðrún Birgisdóttir. (7.55
Ilaglegt mál: EndurL þáttur
Helga J. Halldórssonar frá
kvöldinu áður. 8.00 Fréttir.
Dagskrá. Morgunorð: Helgi
Hólm talar. Forustugr. dagbl.
(útdr.). 8.15 Veðurfregnir. For
ustugr. frh.).
9.00 Fréttir.
9.05 Morgunstund barnanna:
„Skógarævintýri" eftir Jennu
og Hrciðar. Þórunn Hjartar
dóttir byrjar lesturinn.
9.20 Leikfimi. Tilkynningar.
Tónleikar.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
10.30 íslenskir einsöngvarar og
kórar syngja.
11.00 „Áður fyrr á árunum"
Ágústa Björnsdóttir sér um
þáttinn. „Guðs hönd þig leiðir".
Frásögn af björgunarafreki
Stefáns Stefánssonar í Ytri-
Neslöndum. Gils Guðmundsson
les.
11.30 Létt tónlist. Elis Regina,
Antonio Carlos Jobim, Jan Aug-
ust, Lou Stein, Pete Handy og
Del Wood syngja og leika.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Til-
kynningar.
SÍDDEGIÐ_______________________
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar.
Þriðjudagssyrpa.
— Páll Þorsteinsson og Þor-
geir Ástvaldsson.
15.10 „Elísa eftir Claire Etcher
elli. Sigurlaug Sigurðardóttir les
þýðingu sína (10).
15.40 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veð-
urfregnir.
16.20 Útvarpssaga barnanna:
„Hanna María og pabbi" eftir
Magneu frá Kleifum. Heiðdís
Norðfjörð les (5).
16.40 Tónhornið. Inga Huld
Markan sér um þáttinn.
17.00 Síðdegistónleikar:
Sinfónía nr. 6 í A-dúr eftir Ant-
on Bruckner. Ríkishljómsveitin
í Dresden leikur; Eugen Joch-
um stj.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Ilagskrá
kvöldsins.
KVÓLDID_____________________
19.00 Fréttir. Tilkynningar.
19.35 Á vettvangi. Stjórnandi þátt-
arins: Sigmar B. Hauksson.
Samstarfsmaður: Arnþrúður
Karlsdóttir.
20.00 Áfangar. Umsjónarmenn:
Ásmundur Jónsson og Guðni
Rúnar Agnarsson.
20.40 „Fjárfestingin", smásaga
eftir Önnu Dahl. Jón Daníels-
son les þýðingu sína.
21.00 Landsleikur í handknatt-
leik: ísland — Ólympíumeistar
ar AusturÞýskalands. Her
mann Gunnarsson lýsir síðari
hálfleik í Laugardalshöll.
21.45 Útvarpssagan: „Óp bjöllunn-
ar“ eftir Thor Vilhjálmsson.
Höfundur les (21).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir.
Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.35 Norðanpóstur. Umsjónar
maður: Gísli Sigurgeirsson.
23.00 Kammertónlist. Leifur Þór
arinsson velur og kynnir.
23.50 Fréttir. Dagskrárlok.
ÞRIDJUDAGUR
12. janúar.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli.
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Múmínálfarnir.
Fimmti þáttur. Þýðandi Hall-
veig Thorlacius. Sögumaður:
Ragnheiður Steindórsdóttir.
(Nordvision — Sænska sjón-
varpið.)
20.40. Alheimurinn.
Þriðji þáttur. Bandarískir
þættir um stjörnufræði og
geimvísindi.
Leiðsögumaður: Carl Sagan.
Þýðandi: Jón O. Edwald.
21.40 Eddi l»vengur.
Nýr flokkur. Fyrsti þáttur.
Breskur sakamálamynda-
flokkur um einkaspæjarann
og plötusnúðinn Edda Þveng.
Þýðandi: Dóra Hafsteinsdótt-
ir.
22.30 Fréttaspegill.
Umsjón: Bogi ÁgúsLsson.
23.05 íþróttir.
23.35 Dagskrárlok.