Morgunblaðið - 12.01.1982, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982
Barist með kylfum
og grjóti í Nicaragua
Managua, II. janúar. AP.
UM ÞAÐ BIL 200 stuðningsmenn og andstæðingar Sandinista stjórnarinnar
börðust með kylfum og grjóti við athöfn sem haldin var í minningu þess að
fjögur ár voru liðin frá andláti blaðakóngsins í'edro Joaquin ( hamorro.
Að minnsta kosti 20 slösuðust,
þar á meðal lögregluþjónn, í átök-
unum í kirkjugarði þar sem
Chamorro er grafinn.
Chamorro féll fyrir morðingja
hendi 10. janúar 1978, en talið var,
að Anasatasio Somoza, fyrrum
einvaldur, hefði fengið leigumorð-
ingja til að koma honum fyrir
kattarnef og við morðið jókst and-
staða við Somoza um allan helm-
íng.
Chamorro var eigandi blaðsins
La Prensa, sem sýndi hvað harð-
asta andstöðu við Somoza. I dag er
blaðið hvað harðasti gagnrýnandi
Sandinista-stjórnarinnar, sem
fimm sinnum hefur látið stöðva
útgáfu þess og m.a. sett hörð rit-
skoðunarlög til að hafa hemil á
því sem stjórnin kallar „andbylt-
ingaröfl".
Jóhannes Páll páfi:
Herlögin verri
glæpur en morð
Al'-símamvnrt
Utanríkisráðherra Malaysíu, Ghazali Shafie, ræðir hér við konu sína og ættingja á sjúkrahúsi í Kuala Lumpur.
Flugvél, sem hann stjórnaði sjálfur, hrapaði í frumskógunum fyrir austan borgina og var hann í fyrstu talinn af, en í
gærmorgun fannst hann á lífi nokkuð slasaður. Tveir menn voru með honum í vélinni en þeir fórust báðir.
Malaysfa:
U tanríkisráðherrann
komst af í flugslysi
kuala l.umpur, II . janúar. Al'.
UTANRÍKISRÁDHERRA Malaysíu, Ghazali Shane, sem var talinn af
eftir að lítil einkaflugvél hans fórst í skóglendi ekki ýkja langt frá
höfuðborginni, fannst í dag á lífi. Ráðherrann slapp frá slysinu með
óveruleg meiðsli, en tveir menn aðrir er voru í vélinni létust.
BBC-útvarpið sagði Shafie þegar vélin hrapaði kortéri eftir
hafa skýrt frá því að flugvélin
hefði rekist á tré í 3.000 metra
hæð utan í fjalllendi skammt frá
Kuala Lumpur. Meðan hún enda-
sentist eftir trjátoppunum tókst
honum að fleygja sér út úr flug-
vélinni, og sleppa þannig lifandi,
sem þykir með ólíkindum.
Ráðherrann var á leiðinni á
stjórnmálafund í kjördæmi sínu,
að hún hóf sig til flugs á sunnu-
dagsmorgun. Eftir sex stunda
leit komu svo björgunarmenn á
staðinn. Fylgdarmenn Shafie
fundust látnir í sætum sínum, en
ekkert sást til ráðherrans, sem
skaut upp kollinum í þorpinu
Bukit Tinggi í dag.
Yatikaninu, II. janúar. Al'.
JÓHANNES Páll páfi II var hvass-
yrtari en fyrr er hann ræddi um her
lögin í Póllandi í ávarpi í útimessu á
Péturstorginu í Rómaborg á sunnu-
dag.
Páfi sagði, að þegar samvizku
manna væri misboðið með jafn-
alvarlegum hætti, væri það verri
glæpur en morð. Göfgi mannsins
hefði verið alvarlega særð. Með
hótun um atvinnumissi yfir höfð-
um sér væru borgararnir að auki
neyddir til að skrifa undir yfirlýs-
ingar er gengju þvert á sannfær-
ingu þeirra.
Páfi hefur ekki verið jafn hvass-
yrtur frá því herlög gengu í gildi í
Póllandi frá því 13. desember.
Hefur hann gerzt óþolinmóðari
með hverjum degi sem líður, og er
hann sagður hafa þungar áhyggj-
ur af ástandinu í Póllandi.
Talið er, að páfi hafi með ræðu
sinni, sem var útvarpað á stutt-
bylgju til Póllands, viljað styrkja
stöðu Jozef Glemps erkibiskups í
samningaviðræðum hans við her-
stjórnina.
Um 30 þúsund manns voru við-
staddir útimessuna og fögnuðu
páfa innilega og varð hann stund-
um að gera hlé á ræðu sinni af
þeim sökum.
Hreinsanir í A-Þýzkalandi og
afsagnir úr verkalýðsfélögum
ERLENT
Bonn, 11. janúar. Al'.
SAMKVÆMT grein sem birtist í nýjasta hefti þýzka tímaritsins Der
Spiegel og rituð er af félaga í kommúnistaflokki AusturÞýzkalands, hafa
miklar hreinsanir átt sér stað í röðum austurþýzkra kommúnista í þeim
tilgangi að koma í veg fyrir að þar í landi eigi sér stað atburðir á borð við
það sem gerzt hefur í Póllandi.
A-Þýzkalands hafi fyrirfram vit-
að um að gripið yrði til herlaga í
Póllandi. Sagt er einnig að það sé
mat leiðtoga A-Þýzkalands að
Jaruzelski hafi gripið til herlaga
fyrir þrýsting frá Rússum.
Samkvæmt greininni hefur
verið gripið til þessara hreinsana
Noregur:
Gagnasöfnun í fjölda-
morðmálinu lokið
Oslti, 11. janúar. Al'.
NORSKA lögreglan hefur nú lokið
rannsókn á fjöldamorðunum í
hjúkrunarheimilinu í Orkdal og
verður Arnfinn Nesset, fyrrverandi
forstöðumaður heimilisins, ákærð-
ur fyrir morð á þrjátíu vistmönnum
og sjúklingum sínum. Saksóknari
norska ríkisins, Olav Jakhelln, hef-
ur staðfest, að hann hafi fengið í
hendur 26 kíló af málsskjölum og
gögnum um þetta umfangsmesta
sakamál í Noregi fyrr og síðar.
Bæði lögregla og saksóknari vilja
ekkert tjá sig um ástæður fyrir
morðum Nesset og nöfn fórnar
lamhanna verða ekki birt fyrr en
formlcg kæra verður birt og mun
næsti áfangi málsins taka 2—3
mánuði og réttarhöld hefjast ekki
fyrr en síðla árs, eða í októbermán-
uði.
Nesset, sem er 45 ára gamall,
hefur játað að hafa drepið 27
manns í hjúkrunarheimilinu.
Grunur féll á hann í nóvember
1980 og hann var handtekinn í
mars 1981. Morðin mun hann hafa
framið á tímabilinu nóvember
1977 til nóvember 1980. Hjúkrun-
arkona ein á vistheimilinu hafði
um hríð haft ákveðnar grunsemd-
ir vegna tíðra og skyndilegra
dauðsfalla á heimilinu, og þegar
73 ára gamall maður lést í nóv-
ember 1980, skýrðí hjúkrunarkon-
an lögreglu frá, að merki hefðu
verið um að hann hefði fengið
sprautu í handlegginn, líkast til
með eitri, og sagði sömuleiðis frá
því, að Nesset hefði verið hjá
gamla manninum rétt áður en
hann lést.
til að koma í veg fyrir óróleika
meðal verkamanna, en mikið hef-
ur verið um að austur-þýzkir
verkamenn hafi sagt sig úr
verkalýðsfélögum, sem lúta
valdboði hins opinbera.
Þannig segir í greininni, að 500
járnbrautastarfsmenn í borginni
Frankfurt an der Oder við pólsku
landamærin hafi sagt sig í einu
lagi úr verkalýðsfélagi sínu.
Einnig hefur verið nokkuð um að
félagar í kommúnistaflokki
landsins hafi sagt sig úr flokkn-
um og skilað inn flokksskírtein-
um sínum.
í greininni segir að flokkurinn
hafi af þessum sökum sett mik-
inn fjölda lágt settra embættis-
manna af og skipað nýja í stað-
inn. Er því spáð að hreinsanir
þessar eigi fremur eftir að valda
reiði og vandræðum en að stilla
til friðar.
Þá er sagt í greininni að Erich
Honécker hafi á flokksfundi í
nóvember sagt að búast mætti
við íhlutun hersins í Póllandi þar
sem andbyltingaröflin hefðu víg-
búizt, og fullyrt er að leiðtogar
AKmímamynd.
Leitin að bandaríska hershöfðingjanum James L. Dozier, sem rænt var
17. desember sl., er sú umfangsmesta, sem fram hefur farið á Ítalíu. Hér
eru ítalskir herlögreglumenn að leita í gömlu virki frá árum fyrri heims-
styrjaldar í Valpolicella, skammt fyrir utan Verona á Norðurítaliu.