Morgunblaðið - 12.01.1982, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANUAR 1982
21
Finnland:
Koivisto hefur af-
dráttarlausa for-
ystu meðal fólksins
llelsinki, II. janúar. Frá frétta-
ritara Mbl. Ilarry (iranberg.
MAUNO Koivisto forsætisráðherra
Kinnlands hefur ynrburði yfir alla
adra keppinauta sína í skoðanakönn-
unum meðal almennings um hver
skuli verða næsti forseti Finnlands.
Ef þjóðin fengi að kjósa forseta í
beinum kosningum myndi Koivisto
vera kosinn með miklum meirihluta.
Hins vegar er kjörmannafyrirkomu-
lag við forsetakjör, þar sem 301
kjörmaður greiðir atkvæði og
flokksræðið er sterkt. Með þessu
kerfi stórminnka og líkur á kjöri
Koivisto.
í skoðanakönnun sem Gallup-
stofnunin gerði fyrir blaðið Hels-
inki Sanomat í lok desember og
var birt nú um helgina kemur í
ljós að 58 prósent Finna vilja að
Mauno Koivisto verði forseti, tólf
prósent styðja fulltrúa Samein-
ingarflokksins, Harri Holkeri, og
11 prósent Johannes Virolainen
frá Miðflokknum. Athi Karjalain-
en sem er ekki útnefndur fram-
bjóðandi fær tvö prósent og sama
máli gegnir um Veikko Vennamo
frá Landsbyggðaflokknum og Ra-
ino Weterholm frá Kristilega
flokknum. Níu prósent kváðust
óákveðin.
Fylgi Koivistos er tveimur pró-
sentum meira en um mánaðamót-
in nóvember-desember, en 4%
minna en fylgið sem hann naut
um mánaðamót sept.-okt.
í þessari skoðanakönnun voru .
Mauno Koivisto
Finnar einnig spurðir hvaða flokk
þeir myndu kjósa í þingkosningum
■ og kom þá töluvert öðruvísi út-
koma: Sósialdemókrataflokkur
Koivistos myndi fá aðeins 37 pró-
sent, en naut 40% fylgis mánuði
áður. Sameiningarflokkurinn fékk
17 prósent, Miðflokkurinn 16 pró-
sent og 12 prósent svöruðu ekki
spurningunni.
Bandaríkin
og Evrópa:
Aftakaveður
og nfstingsfrost meira
en elztu menn muna
N'ew Vork, Vínarborg, l’rag, London, Hrussel, 11. janúar. Al*.
AFTAKAVEÐUR, bylur og nístingsfrost hafa gengið yfir stóran
hluta Evrópu og Bandaríkjanna um helgina, tugir manna hafa dáið
úr kulda og kröm, umferðartafir hvarvetna og víða hefur kuldinn
verið meiri en elztu menn muna og mælzt hefur. I Bandaríkjunum
létu að minnsta kosti 24 lífið og hjá eitt hundrað þúsund manns í tíu
ríkjum var rafmagnslaust alla helgina og 7 milljónir urðu fyrir meiri
og minni óþægindum er fraus í hitaleiðslum.
I Chicago var frostið 32 stig á
sunnudag, hið mesta sem komið
hefur síðan mælingar hófust
fyrir 111 árum og í Milwaukee
var frostið 31 stig. í Beulah,
Norður-Dakóta, fór frostið um
hríð í 78 stig, hið ferlegasta sem
þar hefur nokkru sinni komið. í
Florida var frostið 12 stig á
sunnudag og í Atlanta 20 stig.
Mikið hvassviðri var og jók það
enn á kuldann og varð einnig erf-
iðara að ryðja snjónum og um-
ferðartafir urðu því miklar. Skól-
um og vinnustöðum var lokað
víða í Bandaríkjunum allt suður
til Alabama. I Chicago voru
strætisvagnar látnir aka alla
nóttina til að þeir héldust hlýir
og í Washington óku neðanjarð-
arlestir allan sólarhringinn af
sömu ástæðu.
Sams konar fréttir, en ekki þó
alls staðar jafn óttalegar, bárust
frá mörgum Evrópulöndum. í
London og víða í Bretlandi var
veðrið að ganga niður í dag,
mánudag, en vitað er um dauðs-
föll þar af völdum kuldanna um
helgina og gríðarlegar truflanir á
allri umferð. I Vestur-Þýzkalandi
snjóaði víða mjög mikið, einkum
þó í Köln. Frankfurt og í Póllandi
urðu flóð skammt frá bænum
Plock, sem er 80 km norðvestur af
Varsjá og varð að flytja þúsundir
manna á brott. Þar urðu víða
mjög miklar skemmdir á eignum
og mannvirkjum hvers konar. í
London var umferð um Gatwick-
og Heathrow-flugvelli að hefjast
að nýju síðdegis en búizt við mik-
illi röskun á flugferð.
Mestu kuldar í Bretlandi munu
hafa mælzt í hálöndum Skot-
lands, eða um 24,8 stig.
í Austur-Þýzkalandi fór frostið
í 25 stig í Erfurt og þar snjóaði
sem svarar 1,1 m. í Prag var frost
snemma mánudags 21 stig og allt
að 2ja metra snjór hafði fallið að-
faranótt mánudags víða í Tékkó-
slóvakíu. Þá hefur mikill kuldi
verið í Danmörku og flest sund
milli dönsku eyjanna lagt, svo að
ferjur hafa lokazt inni. Mikil
snjókoma í Belgíu í nótt varð m.a.
til þess að alþjóða flugvöllurinn í
Zaventem, skammt fyrir utan
Brússel lokaðist og lestarferðir
voru allar langt á eftir áætlun.
Þá er ástandið vegna kuldanna
víða slæmt í Frakklandi, þar hef-
ur snjóað allmikið og mörg um-
ferðarslys orðið vegna hálku og
fannfergis á vegum. Þar hefur og
víðast hvar verið miklum erfið-
leikum bundið að halda uppi eðli-
legum samgöngum.
Sextug kona lenti flug-
vélinni eftir að eigin-
maður hennar leið út af
llenderson, 11. januar. AP.
SEXTUGRI konu, sem aldrei hafði
lært að fljúga, tókst að halda lítilli
einkaflugvél á lofti eftir að maður
hennar, sem sat við stjórnvöl flug
vélarinnar, leið út af. Hélt konan
flugvélinni á lofti þar til hún varð
eldsneytislaus og tókst að stvra
henni til lendingar. í lendingunni
hlekktist vélinni á og rakst m.a. á
tré og hlaut konan slæmt mjaðma-
grindarbrot.
Konan sendi hvað eftir annað
út neyðarkall en heyrði aldrei er
þeim var svarað. Eftir brotlend-
inguna braust hún út úr flaki
flugvélarinnar og skreið tæpan
hálfan kílómetra eftir aðstoð.
Hún er nú á batavegi, en var
mjög aðframkomin er henni tókst
að ná til nálægs bóndabæjar.
Keisaraskurð-
ur gerður
með rakblaði
Tulsa. Oklahoma 11. janúar Al*.
ÞEGAR Janice Crutison, eigin-
kona Roberts rakara Crutison,
vakti eiginmann sinn aðfaranótt
mánudags og sagðist vera komin
með fæðingarhríðir, gerði eigin-
maður hennar sér lítið fyrir og
gerði á henni keisaraskurð með
rakblaði og tók síðan á móti syni
sínum sem vó um 15 merkur. Að
svo búnu náði rakarinn sér í nál
og spotta og saumaði vel og
vandlega fyrir.
Eftir að hinn stolti fram-
takssami faðir hafði laugað
son sinn, ákvað hann þó að lík-
lega væri betra að eiginkona
hans kæmist undir læknis-
hendur, svo að hann kallaði á
sjúkrabíl, lét flytja hana á
spítala og þegar vitað var um
málavöxtu var tafarlaust gerð
á henni ný aðgerð. Rakarinn
Róbert segir, að hann hafi í
fyrstu ekki búizt við að þurfa
að grípa til þess að gera keis-
araskurð á konunni, en svo
hafi virzt sem hún myndi ekki
geta fætt á náttúrlegan hátt og
ekki hafi önnur tól verið innan
seilingar en rakblað. Lögreglan
í Tulsa hefur fengið málið til
meðferðar. Það er tekið fram í
fréttinni, að móður og syni
heilsist vel.
I’essi mynd var tekin á alþjóðaflugvellinum í Frankfurt í VesturÞýskalandi
í gær, en síðustu daga hefur látlaust verið unnið að snjómokstri til að koma
í veg fyrir að völlurinn lokist. Ennþá sér ekki fyrir endann á fannkomunni í
Þyskalandi. Ar-símamynd
ERLENT
Konan hélt því fram, að eftir að
maður hennar leið útaf, hefði
Guð almáttugur komið sér til
hjálpar, en hún er mjög trúuð.
Flugvél þeirra hjóna var af gerð-
inni Moonie 20.
i Kaupmannahöfii
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
Á JÁRNBRAUTAR-
STÖÐINNI
-SEVEN STAR' DAGBÖK
SÚ BESTA . . .
KIRKJUFELL
KLAPPARSTÍG 27
REYKJAVÍK
SÍMI 21090
II I.P3S.SB
Svo fullkominn,
en samt svo
ótrúlega
einfaldur!
Eigum aftur fyrirliggjandi gott úrval af Richmac
búðarkössum á hagstæðu verði.
Komið við og skoðið sýnis-
hornin í verslun okkar.
SKRIFSTOFUVÉLAR H.F.
ÓSA
+ —x “ Hverfisgötu 33
S,m, 20560