Morgunblaðið - 12.01.1982, Qupperneq 47

Morgunblaðið - 12.01.1982, Qupperneq 47
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982 25 íslandsmótið í handknattleik 3. deild Ármann og Þór A eru efst í deildinni en miklu af leikjum hefur verið frestað Keppni í 3. deild íslandsmótsin.s í handknattleik er nú um þaó bil hálfnuð. Nokkru hefur verió frestaó af leikjum svo leikjafjöldi lióanna er misjafn. Hér á eftir veróur fjallað um þá leiki sem fram hafa farið seinni hluta desember og það sem af er þessu ári. IBK — Grótta 20—17 ÍBK vann þarna góðan sigur á. Seltjarnarnesliðinu sem verið hef- ur í fremstu röð í 3. deild í vetur. Mörk ÍBK: Björgvin Björgvinsson 6, Grétar Grétarsson 4, Björn Jónsson 3, Jón Ólsen 3, Gísli Eyj- ólfsson 2 og Sigurður Björgvins- son og Jón Magnússon 1 hvor. ÍA — ÍBK 23—18 Lið ÍA virðist vera að ná sér á strik eftir fremur slaka byrjun; Sigurinn á Keflvíkingunum var sanngjarn, en nú má hvorugt þess- arra liða við því að tapa fleiri stig- um ef þau eiga að vera með í bar- áttunni um 2. deildarsætið. Mörk ÍA: Sigurður Halldórsson 5, Pétur Ingólfsson 5, Ólafur Jó- hannesson 4, Bjarni Sigurðsson 3, Kristján Hannibalsson og Hlynur Sigurbjörnsson 2 hvor og Þórður Elíasson og Þórður Björgvinsson 1 hvor. Mörk ÍBK: Björgvin Björgvins- son 6, Sigurður Björgvinsson 4, Grétar Grétarsson og Gísli Eyj- ólfsspn 3 hvor og Björn Jónsson og Jón Óisen 1 hvor. Grótta — Ögri 43—23 Tölurnar tala sínu máli, mikill munur á liðunum og mikið skorað. Staðan í hálfleik 20—13, Gróttu í vil, og munurinn jókst jafnt og þétt í síðari hálfleik. Mörk Gróttu: Sverrir Sverrisson 11, Axel Friðriksson 8, Jóhann Benjamínsson og Grétar Vilmund- arson 7 hvor, Gunnar Páll Þóris- son 6, Reynir Erlingsson 2 og Hjörtur Hjartarson 2. Mörk Ögra: Matthías Rúnarsson 6, Gunnar Kristinsson 5, Rúnar Vilhjálmsson 4, Olgeir Jóhannes- son 4, Baran 3 og Magnús Sverris- son 1. ÍBK — Skalla- grímur 27—15 Einn besti leikur Borgnesinga sem enn hafa ekki hlotið stig í 3. deild, enda nýliðar í handknatt- leiknum. Staðan í hálfleik var 12—6 fyrir Keflavík og sigurinn aldrei í neinni hættu. Mörk ÍBK: Sigurður Björgvins- son 8, Björgvin Björgvinsson 6, Snorri Jóhannsson 5, Arinbjörn Þórhallsson 5 og Grétar Grétars- son 3. Flest mörk Skallagríms skoruðu Sveinbjörn Eyjólfsson 7 og Stefán Arason 3. ÍA — Reynir 24—23 Þarna stefndi allt í öruggan sig- ur Skagamanna en Reynismenn voru nærri búnir að jafna á loka- mínútunum. I hálfleik var staðan 12—7, ÍA í vil. Mörk ÍA: Pétur Ingólfsson 9, Þorleifur Sigurðsson 4, Hlynur Sigurbjörnsson 4, Ólafur Jóhann- esson 4, Kristján Hannibalsson 2 og Þórður Elíasson 1. Mörk Reynis: Guðmundur Arni Stefánsson 11, Daníel Einarsson 6, Heimir Morthens 3, Tryggvi Sverrisson 2 og Sigurður Guð- mundsson 1. Staðan í 3. deild er nú sem hér segir. Ármann 10 8 1 1 253—179 17 l'ur Ak. 10 8 1 1 269—216 17 ÍA II 7 1 3 303—227 15 Grótta 9 6 I 2 244—178 13 ÍBK 9 6 0 3 224—165 12 Reynir 9 3 0 6 209—231 6 Selfoss 7 2 0 5 121 — 160 4 Dalvík 10 2 0 8 226—265 4 Ögri 10 2 0 8 181—287 4 Skallagr. 7 0 0 7 100—222 0 I>R. Frestað hjá Lokeren og Anderlecht VEGNA veðurs var mörgum leikjum frestað í belgísku deildarkeppninni í knatt- spyrnu. Þar á meðal má geta leikja Anderlecht og Lokeren, sem íslendingarnir Pétur Pét- ursson og Arnór Guðjohnsen leika með. En úrslit í þeim leikjum sem fram fóru urðu sem hér segir: Mechelen — Courtrai 3-1 Standard — Winterslag 2-1 Gent — FC Brugge 2-1 Waregem — Lierse 3-2 CS Brugge — Tongeren 4-0 Molenbeeck — FC Liege 4-0 Staðan er nú þannig: Anderlecht 17 11 3 3 31-18 25 Gent 18 10 5 3 28-14 25 Standard 17 9 5 3 26-16 23 Courtrai 18 10 2 6 27-24 22 Antwerpen 17 9 4 4 26-13 22 Lierse 18 9 4 5 26-23 22 Lokeren 17 7 5 3 21-17 19 Beveren 17 6 7 4 19-14 19 Molenbeek 18 8 2 8 27-25 18 Waregem 17 6 5 6 21-18 17 Beringen 17 6 4 7 19-23 16 Waterschei 17 5 5 7 20-30 15 Tongeren 18 5 5 8 22-31 15 FC Liege 18 5 4 9 21-28 14 CS Brugge 17 5 3 9 27-31 18 Winterslag 16 3 4 9 11-26 10 FC Brugge 17 3 3 11 21-31 9 Mechelen 18 2 4 12 16-27 8 Fyrsta íslandsmótið í Karate: SKF sigraði með yfirburóum enda elsta félagið í íþróttinni Margt bendir nú til þess, að kar ate-íþróttinni vaxi ört fylgi hérlend- is. Má sem dæmi nefna fjölgun karate-félaga og stofnun Shotokan Karatesambands íslands. Tveir karate-stílar eru iðkaðir hérlendis; það eru Shotokan- og Gojuryu-stíll. I SKSI eru aðeins þau félög sem iðka Shotokan-stílinn og eru þau þrjú: Shotokan Karatefélagið (í Reykja- vík), Karatefélag Selfoss og Karate- deild Gerplu (í Kópavogi). Sunnudaginn 3. janúar ’82 stóð SKSI fyrir Islandsmóti í Shotok- an-karate, hið fyrsta sinnar teg- undar. Keppendur voru um 60 frá öllum aðildarfélögum sambands- ins. Heildarstigakeppnina vann SKF með miklum yfirburðum, enda er það elsta félagið í sam- bandinu en hin tvö eru mun yngri og eiga því eflaust eftir að verða harðir keppinautar í framtíðinni. Eitt af keppnisatriðunum var KATA, það er fastmótað kerfi sem samanstendur af grundvallaræf- ingum í ákveðinni röð, hæði blokk og árásar. Einnig tilheyra þeim um leið hreyfingar fram, aftur og til hliðar. Um 50 tegundir eru til af KATA og eru þær til að efla kraft, hraða, halda jafnvægi, réttri öndun o.fl. Annað keppnisatriði var hóp- kata, þá gera þrir saman sömu kötuna og er það mun erfiðara, því miklu máli skiptir, að keppend- urnir þrír séu algjörlega samtaka. Þriðja atriðið er KUMITE, frjáls bardagi, þar sem 2 berjast á móti hvor öðrum. Það sem mestu máli skiptir er gott jafnvægi, fullt vald á hreyfingum, kiai (öskur) og högg þurfa að vera í vissri fjar- lægð frá andstæðingi. Þau mega þó snerta hann án þess að hann meiðist. Hægt er að fá fullt stig, Ippon, eða hálft stig, Waza-ari, fyrir högg, spark eða annað. Þetta var tveggja Ippona-keppni, þannig að tvö Ippon þurfti að fá til að vinna andstæðinginn. Ef hvorugur hafði unnið eftir 2 mín., vann sá er hærri var á stigum. Úrslitin voru sem hér segir: Kata unglinga: Stig 1. Árni (ií. Vigfússon 7 kyu, SKF, 11,5 2. Omar Tryggvason 8 kyu, SKF, 11 3. Ilreiðar Ounnlaugsson B kyu, SKF, 10,5 4. Konráð Sigurðsson 7 kyu, SKF, 10,5 5. ívar Ottarsson 8 kyu, KIK>, 10,5 Kata kvenna: Stig 1. Iljördís llarðardóttir 5 kyu, SKF, 11,5 2. Sandra (írétarsdóttir 6 kyu, SKF, 9,5 3. Margrét Thorsteinsdóttir 9 kyu, SKF, 9,5 4. (íuðný Atladóttir 9 kyu, KIK>, 9,5 5. Elín Eva (írímsdóttir 6 kyu, SKF, 9 Margrét Thorsteinsdóttir vakti athygli með því að komast í 3. sæti í kata kvenna, þó byrjandi sé, og lofar það góðu. Kata karla Stig 1. Karl (>auti Hjaltas. 1 kyu, SKF, 15,5 2. Karl Sigurjónsson 1 kyu, SKF, 14 3. Imrður Antonsson 3 kyu, SKF, 13 4. (>uðjón B. Ounnarsson 6 kyu, KFS, 11,5 5. Klís Kjartansson fi kyu, KFS, 11,5 Hópkata 1. Karl Sijpirjónsson 1 kyu Karl Oauti Hjaltas. I kyu, SKF, 15 l*órður Antonsson 3 kyu 2. Ævar l>orsteinsson 8 kyu (>uðm. Ilalldórss. 9 kyu, KDO, 11,5 lllfar Si^urðsson 8 kyu 3. V ignir (íuðjónsson 3 kyu (■ ísli Klemenzs. 1 kyu, SKF, 11,5 Sveinn Grímsson Strákarnir úr Gerplu stóðu sig frábærlega og mátti halda, að þeir hefðu ekki gert annað um ævina en æfa kötu saman. Þeir áttu svo sannarlega 2. sæti skilið og komu þar mjög á óvart. Kumite 5.1. Karl Cauli lljalla»on I kvu, SKK 2. Karl Sigurjón.KNon I kyu, SKF 3. I'óróiir AnJonsson 3 kyu, SKF 4. Císli Klemen/.son 1 kyu, SKF 5.-6. Vignir (Juójónsson 3 kyu, SKF 5.-6. Víkiniíur SigurdsNon 7 kyu, SKF Keppendur í kumite voru 17 og tókst þeim með ágætum að spenna áhorfendur með viðureignum sín- um. Sérstök var þó viðureign Þórðar Antonssonar og Sigurðar Sverrissonar, þar mátti sjá mörg góð karate-brögð hjá báðum, þó sérstaklega hjá Þórði sem vann viðureignina. í fyrsta sinn keppti nú kona í frjálsum bardaga og var það Margrét Thorsteinsdóttir. Hún stóð sig vel og komst í átta manna úrslitin. Þetta sýnir að konur eru ekki síðri en karlar í karate. Að lokum skal minnst á dómar- ana. 4 þeirra voru úr Karatefélagi Reykjavíkur þar sem æft er Goj- uryu og aðaldómari var Ólafur Wallvik, er æfir Shotokan í Nor- egi. Þeir eru aliir 1. dan. Án þeirra hefði þetta mót ekki verið fram- kvæmanlegt Jónas Jóhannesson UMFN átti góðan leik vörninni. Hér sést hann stöðva eitt skotið. Stefnir í mikið einvígi - eftir sigur UMFN gegn Fram f úrvalsdeildinni UMFN SIGRAÐI Fram 91—84 í úr valsdeild íslandsmótsins í körfu- knattleik á sunnudagskvöldið og hafa bæði liðin því tapað 4 stigum. Er spennan að verða mikil og leikur liðanna á sunnudaginn var æsi- spennandi og stórvel leikinn lang- tímum saman, sérstaklega í fyrri hálfleik, er hittni leikmanna var með ólíkindum góð og hraði og keyrsla geysileg. Staðan í hálfleik var 48—46 fyrir Njarðvík. Það voru miklar sveiflur í leik þessum og getum við tekið sem dæmi tölur sem sáust framan af fyrri hálfleik. Þá stóð til dæmis um tíma 11—10 fyrir Fram, þá 18—17 fyrir Njarðvík nokkru síð- ar og loks 29—26 fyrir Fram. Upp úr því náði Fram um tíma 8 stiga forystu, 36—28, en Njarðvík sax- aði jafnt og þétt á forskotið, þann- ig var staðan orðin jöfn rétt fyrir leikhlé, 44—44 og UMFN náði síð- an forystu áður en blásið var til hvíldar. Fram náði aftur naumri forystu í upphafi síðari hálfleiks, en mjög fljótlega fékk Björn Magnússon sína fimmtu villu, strangur dóm- ur, og varð að hverfa af leikvelli. Fór þá að halla undan fæti hjá Fram, því þó Björn hafi ekki skor- að mikið, þá var hann klettur í vörninni hjá Fram og mátti liðið ekki við því að missa hann. UMFN náði sem sagt betri tökum á leikn- um og þegar síðari hálfleikur var hálfnaður náði liðið forystu og hélt henni til leiksloka. Var for- ystan þetta 2—7 stig og því mikil spenna lokamínúturnar. Framar- arnir voru sjálfum sér verstir þær mínútur, nýttu illa færi og klúðr- uðu knettinum nokkrum sinnum með óðagoti miklu þegar hyggi- legra hefði verið að fara sér ró- lega. Einn var sá þáttur annar sem varð Fram að falli og það var nýting vítaskota, en í þeim efnum voru Framararnir afar lélegir að þessu sinni. Lið Njarðvíkur var vel að sigr- inum komið, sýndi það á loka- sprettinum, að betra liðið að þessu sinni sigraði. Leikmenn liðsins héldu höfði þegar spennan var mikil, á sama tíma og allt fór í Körtuknattlelkur - handaskolum hjá mótherjanum. Þrír leikmenn ÚMFN báru mjög af og tveir þeirra skoruðu bróður- partinn af stigum liðsins. Voru það þeir Danny Shouse, sem gerði stórkostlega hluti í sókninni og barðist vel í vörninni, og Valur Ingimundarson, sem fór á kostum bæði í sókn og vörn. Þriðji aðilinn var Jónas Jóhannesson. Hann skoraði ekki mikið, en var kjöl- festa í vörninni og bar þar af fé- lögum sínum. Gamla kempan Gunnar Þorvarðarson lék ekki mikið með að þessu sinni, en stóð fyrir sínu meðan hans naut við. Þá komust aðrir leikmenn vel frá hlutverkum sínum, Sturla Örlygs- son, Jón Viðar Matthíasson og fleiri. Fram lék þarna án Guðsteins Ingimarssonar, sem er erlendis sem stendur. Stöðu hans tók Viðar Þorkelsson og lék hann afar vel framan af leiknum, en virtist þreytast er leið á leikinn. Bestir hjá Fram voru hins vegar Val Bracey og Símon Ólafsson. Helst má þó finna að Bracey, að hann reyndi alls kyns ævintýrasend- ingar þegar varla átti við, þ.e.a.s. þegar mikilvægara hefði verið að Ieika af öryggi. Fóru nokkrar sóknarlotur Fram í vaskinn af þessum sökum á mikilvægum augnablikum. En lengst af gerði Bracey þó stórkostlega hluti og gaf Danny Shouse lítið eftir. Auk fyrrnefndra þriggja leikmanna Fram, átti Þorvaldur Geirsson umfn 84:91 góða spretti og Björn Magnússon var klettur í vörninni meðan hans naut við. I stuttu máli: Úrvalsdeildin í körfuknattleik. Fram — UMFN: 84 -91 (46—48). Dómarar: Gunnar Guðmundsson g Sigurður Valur. Stig Fram: Val Bracey 32, Sím- on Ólafsson 23, Þorvaldur Geirs- son 12, Þórir Einarsson 7, Viðar Þorkelsson 6 og Björn Magnússon 4. Stig UMFN: Danny Shouse 43, Valur Ingimundarson 25, Jónas Jóhannesson 8, Gunnar Þorvarð- arson 4, Júlíus Valgeirsson, Jón Viðar Matthíasson og Ingimar Jónsson 2 stig hver. - 88- STAÐAN í úrvalsdeildinni eftir leiki helgarinnar er sem hér segir: Valur — ÍR 95 — 79 Fram — UMFN 84 — 91 Njarðvík 11 9 2 917—825 18 Fram 11 8 3 915—844 16 Valur 9 5 4 708—687 10 KR 10 4 6 737—774 8 ÍR 11 3 8 837—922 6 ÍS 9 1 8 699—777 2 Firmakeppni KKI - fyrir hópa áhugamanna um körfuknattleik Körfuknattleikssambandið hefur ákveðið að efna til sinnar árlegu keppni „áhugamanna" í körfu- knattleik með svipuðu sniði og í fyrra. Keppnin nefnist „Firma- keppni KKÍ“ og keppt er um meist- aratitil. Rétt til þátttöku eiga allir hópar áhugamanna. Gjaldgengir til þátttöku eru allir þeir sem ekki leika með meistaraflokkum úrvals- deildarfélaganna og 1. deildar félag- anna. Keppt verður í riðlum og úr- slitakeppni verður síðan í mars. Leikreglur hafa verið einfaldað- ar sérstaklega fyrir keppnina. T.d. má leika í flestum íþróttasölum, klukkan er ekki stöðvuð og víta- skotum er sleppt. Leiktími hefur einnig verið styttur svo að hver leikur tekur 45 mínútur. J Léttur sigur Vals gegn ÍR-ingum Valsmenn sigruðu ÍR mjög örugglega í úrvalsdeildinni í körfuknattleik síðasta sunnudag í fþróttahúsi Hagaskóla. Valsmenn skoruðu 95 stig gegn 79 stigum ÍR. Allan leikinn hafði lið Vals forystu i leiknum og lék betur. Lið ÍR er ungt að árum og í þessum leik tefldu ÍR-ingar fram limm leikmönnum sem leika í 2. aldursflokki. En Valsmenn léku heldur alls ekki alltaf með sína sterkustu menn. Lengst af sátu landsliðsmenn Vals á bekknum og aðrir leikmenn fengu að spreyta sig. -» 95-79 Valsmenn náðu strax forystunni i leiknum og komust í 5—0 og 11—4. Um miðjan fyrri hálfleik- inn var staðan 23—15 VAL í hag. Og hálfleikstölurnar voru 53—38. Sama einstefnan var í síðari hálf- leik. Eiginlega var það aðeins spurning hvort Valsmönnum tæk- ist að skora 100 stig í leiknum. Nokkur hraði var í leiknum og oft sáust lagleg tilþrif hjá sumum leikmönnum. Bestu menn í liði Vals voru Torfi Magnússon, sem er í mjög góðri æfingu um þessar mundir og leikur vel. Þá lék Jón Steingríms- son mjög vel og er greinilega að ná aftur sinni fyrrri getu. Lið Vals á nú möguleika að vera með í bar- áttunni um toppinn í deildinni. Spurningin er aðeins hvernig kemur liðinu til með að ganga í leikjum sínum gegn Fram og UMFN. Lið ÍR er ungt og á framtíðina fyrir sér. Hjörtur Oddsson var_ besti maður liðsins að þessi sinni, mjög efnilegur leikmaður. Þá sýndi Kristinn Jörundsson að lengi lifir í gömlum glæðum. Á skömmum tíma í síðari hálfleikn- um skoraði Kristinn 15 stig. Vel af sér vikið. Jón bróðir hans var líka drjúgur við að skora. Þá átti Bene- dikt Ingþórsson góðan leik. Bob STanley fékk fjórar villur strax í fyrri hálfleiknum og átti því nokkuð í vök að verjast í síðari hálfleik. Stig Vals: Ramsey 19, Jón Steingrímsson 17, Ríkharður Hrafnkelsson 16, Torfi Magnússon 13, Gylfi Þorkelsson 12, Leifur Gústafsson 8, Kristján Ágústsson 6, Guðbrandur Lárus- son 4. Stig ÍR: Bob Stanley 20, Hjörtur Oddsson 16, Kristinn Jörundsson 15, Jón Jörundsson 11, Benedikt Ingþórs- son 10, Ragnar Torfason 5, Sigmar Þröstur og Helgi Magnússon 2 stig hvor. Jón Steingrímsson og Leifur Gúst- afsson Val. Jón átti mjög góðan leik gegn ÍR og er í stöðugri framför. En Leifur er einn af yngri og efnilegri körfuknattleiksmönnum V’als. Stórsigur Grindvíkinga LAUGARDAGINN 9. janúar fór fram í Borgarnesi leikur UMFS og UMFG í fyrstu deild íslandsmótsins í körfuknattleik. Grindvíkingar komu, sá og rótburstuðu fremur slakt lið Borgnesinga með 96 stigum gegn 70 og hefði sá sigur auðveld- lega orðið stærri. Borgnesingar skoruðu fyrstu körf- una og var það í eina skiptið sem þeir höfðu forystu í leiknum. Eftir það höfðu Grindvíkingar leikinn í höndum sér og juku forystu sína jafnt og þétt. Mestur varð munurinn í fyrri hálfleik, 16 stig, en í hálfleik var staðan 44 stig gegn 31 fyrir Grindvíkinga. Seinni hálfleikur hófst eins og sá fyrri, Borgnesingar skoruðu fyrstu körfuna en síðan héldu komumenn áfram að auka forskot sitt. Mestur varð munurinn 28 stig fyrir UMFG. Leikmenn UMFG léku allir mjög vel, kerfisbundinn og agaðan körfuknattleik, nokkuð sem þeir hafa ekki gert mikið af í vetur. Lið ÍR: Jón Jörundsson 6 Hjörtur Oddsson 7 Benedikt Ingþórsson 6 Ragnar Torfason 5 Kristinn Jörundsson 7 Sigmar Þröstur 4 Helgi Magnússon 4 Lið Vals: Torfi Magnússon 8 Jón Steingrímsson 8 Ríkharður llrafnkelsson 8 Kristján Ágústsson 6 Leifur Gústafsson 4 Valdimar Guðlaugsson 4 Guðbrandur Lárusson 5 Gylfi Þorkelsson 6 SS 96:70 Þeirra besti maður var Mark Holmes sem án efa var besti mað- ur vallarins og hafði hann skorað 43 stig áður en flautað var til leiksloka auk þess sem hann hirti fjölda frákasta. Hreinn Þorkels- son var einnig mjög góður, tók mörg fráköst og skoraði 23 stig. Hjá Borgnesingum bar enginn af öðrum. Þó var Bragi Jónsson einna bestur en hann hefur oftast leikið mun betur en í þessum leik. Annars vakti það sérstaka athygli hvað Grindvíkingum tókst vel að taka bandaríska leikmanninn Carl Pearson úr umferð. Hann sást varla í leiknum og skoraði aðeins 12 stig, þar af 4 úr vítum. Stigahæstu menn: UMFS stig Guðmundur Guðmundsson 14 Bragi Jónsson 13 Carl Pearson 12 Lið Fram: Þorvaldur Geirsson 7 Björn Magnússon 6 Símon Olafsson 7 Viðar Þorkelsson 7 Þórir Einarsson 6 Lið UMFN: Júlíus Valgeirsson 5 Jónas Jóhannesson 8 Valur Ingimundarson 8 Gunnar Þorvarðarson 5 Jón Viðar Matthíasson 6 Sturla Örlygsson 6 Ingimar Jónsson 5 UMFG stig Mark Holmes 43 Hreinn Þorkelsson 23 Ingvar Jóhannsson 10 Dómarar voru þeir Davíð Sveinsson og Kristinn Albertsson og skiluðu þeir sínum hlutverkum vel. — GÞÖ. Körfuknattlelkur ________________________ Þróttur Aðalfundur knattspyrnufélagsins Þróttar verður haldinn sunnudaginn 17. janúar kl. 14.00 í Þróttheimum við Sæviðarsund. Stjórnin. Knattspyrna) Manchester United og enski landsliðsmaðurinn ; kunni, Steve Coppell, hafa | náð samningum á nýjan leik og fyrir skömmu undirritaði ; leikmaðurinn nýjan 5 ára samning við Manchester-lið- ið. Coppell hefur verið óhepp- inn í vetur, hann byrjaði afar ; vel, en meiddist illa í lands- leik Englands og Ungverja- lands. Þegar hann var að verða góður af þeim meiðsl- i um og byrjaður að æfa á ný, meiddist hann á ökkla. Stöðugleikinn fór allur úr leik United við að missa Coppell, en hann mun nú vera á örum batavegi. i Knattspyrna Elnkunnagjöfin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.