Morgunblaðið - 12.01.1982, Side 26

Morgunblaðið - 12.01.1982, Side 26
30 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANUAR 1982 Læknishjálp í kjarnorkustyrjöld Draumsýn eða veruleiki? /*. //. ágúst 1945 mátti lesa eftirfarandi frásögn á forsíðu Þjóðvilj- ans. Sá sem um er talað er japanskur hermaður sem staddur var í lliroshima þegar kjarnorkuárásin var gerð þ. 6. ágúst 1945: „Hann var staddur á gistihúsi einu í horginni, þegar hann heyrði mikinn flugvéladyn. llann gekk að glugganum og leit út. Hann sá nokkur flugvirki yfir borginni. Skyndilega hrá skærum eldbjarma yfir him- ininn svo að hann hlindaðist algerlega. Ósjálfrátt kastaði hann sér á gólfið og varð það honum til happs að veggurinn sem hrundi, skýldi honum, svo að mylsnan úr veggnum sakaði hann ekki. Þegar hann kom út sá hann ekki annað en rústir. í rústunum lágu lík og helsærðir menn, sviðnir á öllum líkamanum, er stundu og hrópuðu á hjálp. Allur gróður, gras og tré var hrunnið til ösku. „Það var hræðileg sjón, sem engin orð fá lýst," sagði hann að lokum.“ Kjarnorku- vopnabúrið í dag telur 60.000 kjam- orkuvopn skv. SIPRI (Sænska friðarrann- sóknarstofn- unin). Það samsvarar 4 tonnum sprengiefnis á hvern íbúa jarðarinnar. Eftir Geir Gunn- /aiiffsson, lœkni Ahrif kjarnorkusprengja Ahrifum kjarnorkusprengja má skipta í högg, hita og geislun. Þeir læknar sem lifðu af slíka árás myndu strax standa frammi fyrir miklum fjölda einstaklinga með áverka eftir höggið, svo sem skurðsár og beinbrot; hitaáverka, s.s. andlits- og sjónhimnubruna og öndunarfæraskemmdir; og geisla- áverka, þ. á m. bráða geislaveiki. Seinna kæmi fram vaxandi fjöldi einstaklinga með óstöðvandi ógleði og uppköst, hártap og blæð- ingar. Fjöldi sýkinga yrði geysi- legur vegna minnkaðrar mótstöðu og mikillar smitunar. Alvarleg geðræn vandamál yrðu algeng. Hiroshima Það er ekki svo að mannkynið hafi ekki kynnst kjarnorkuárás á stórborg. Eyðing Hiroshima og Nagasaki eru víti til varnaðar og gefa okkur örlitla innsýn í það sem við komum hugsanlega til með að standa frammi fyrir í næstu framtíð. íhugum eftirfar- andi frásögn úr bók John Hersey, Hiroshima (1946): „Það voru um 20 manns ... allir jafn hræðilega útlítandi: andlit þeirra voru algerlega brunnin, augntóftirnar tómar, vökvinn frá bráðnuðum augum þeirra hafði runnið niður kinnar þeirra ... munnarnir voru þrútin, graftar- kennd sár, sem tæpast var hægt að opna nægilega mikið til að koma að ketilstút...“ Læknir í Hiroshima Þegar árásin var gerð á Hiro- shima lifðu 65 af 150 læknum borgarinnar árásina af og flestir þeirra særðir. Um 10.000 manns leituðu til Rauða kross-sjúkra- hússins, þar sem tii staðar voru 600 sjúkrarúm. Þar voru aðeins sex læknar og 10 hjúkrunarfræð- ingar til hjálpar. Lýsing á aðstöðu Sasakis, japansks læknis, úr áður- nefndri bók John Herseys bregður e.t.v. birtu á hugsaniegt ástand: Sasaki vann skipulagslaust, tók þá fyrst sem næstir voru en tók fljótt eftir því að gangarnir voru að fyllast smám saman. Inn á milli stórra og smárra sára sem flestir á spítalanum höfðu fengið við sprenginguna rakst hann á hræðileg brunasár. Hann áttaði sig þá á því að slasað fólk streymdi að utan frá. Það var svo margt að hann sleppti þeim minna slösuðu og ákvað að reyna að ein- beita sér að því að stoppa banvæn- ar blæðingar. Áður en langt um leið skriðu og lágu sjúklingar í göngunum og í öllum öðrum her- bergjum sjúkrahússins, í anddyr- inu, á tröppunum fyrir utan, að- keyrslunni og svo langt sem augað eygði. Sært fólk studdi annað sem misst hafði einhverja útlimi sína. Afmyndaðar fjölskyldur hölluðu sér hver að annarri. Margir köst- uðu upp. Fólkið í hinni kæfandi mannþröng inni á sjúkrahúsinu grét og kallaði á Sasaki, hinir minna særðu hnipptu í hendur hans og báðu hann að hjálpa þeim sem verst var ástatt fyrir. Þannig á sífelldum þeytingi milli fólks missti Sasaki alla tilfinningu fyrir atvinnu sinni og hætti að starfa sem lærður skurðlæknir og geð- felldur maður: hann varð eins og sjálfvirk vél sem skynlaust með- höndlaði hvern einstaklinginn á fætur öðrum og alla illa. Myndarlegt vopnabúr í vopnabúrum heimsins í dag eru geymd kjarnorkuvopn sem eru talin milljón sinnum kraftmeiri en sprengjurnar sem féllu á Hiro- shima og Nagasaki. Samt er stefnt að aukningu þessara birgða á sama tíma og hlutfallslega litlu fé er varið í baráttuna gegn fátækt, vannæringu og sjúkdómum. Þetta eru staðreyndir sem hafa vakið ýmsa innan læknastéttarinnar til umhugsunar um hvað í vændum sé, hreint faglega séð, ef til kjarn- orkustyrjaldar skyldi koma. Eitt megatonn á Hvíta húsið í júní 1980 kom deildarforseti heilbrigðisfræðideildar Harvard- háskólans, Dr. Hiatt, fram fyrir eina af nefndum Bandaríkjaþings. Þar hélt hann því fram að við að- eins eina eins megatonna kjarn- orkusprengju, þ.e. meðalstóra sprengju, sem félli á Hvíta húsið í Washington muni um 25% lækna og hjúkrunarliðs deyja á svip- stundu og önnur 30% verða óstarfhæf vegna sára. Þeir, sem eftir lifa, hafa þá aðgang að sjúkrahúsum sem sum hver a.m.k. væru illa farin eftir sprenginguna og í sumum tilfellum þau bestu úr leik. Dr. Hiatt reiknaði þetta dæmi aðeins lengra. Niðurstaða hans var sú að um 2500 eftirlif- andi og starfhæfir læknar bæru ábyrgð á 800.000 alvarlega særðu fólki. Það myndi taka þennan hóp lækna 5 sextán klst. vinnudaga að hitta hvern og einn særðan einu sinni — í 15 mínútur. Síðasti faraldurinn I tímariti bandarísku lyflækna- samtakanna, JAMA, í nóv. 1980 heldur dr. Hiatt því fram í leiðara, sem nefnist „Að fyrirbyggja síð- asta faraldurinn" að hugmyndir sumra opinberra aðila um að vinna og jafnvel að lifa af kjarn- orkustyrjöld sé augljós vottur vanþekkingar á hinum læknis- fræðilega raunveruleika en hann er: Sérhver kjarnorkustyrjöld myndi óhjákvæmilega valda slík- um fjölda dauðsfalla, sjúkdóma og þjáninga að skv. skilgreiningu yrði nánast hægt að tala um far- aldur sem læknisfræðin réði tæp- ast við. Sú staðreynd leiðir okkur því að sömu niðurstöðu og komist hefur verið að varðandi aðra far- aldra í samtímanum: fyrirbyggj- andi aðgerðir eru eina viðunandi lausnin. Hlaupið í felur í nóvember 1980 var haldin í Englandi ráðstefna samtaka lækna sem berjast gegn styrjald- arhættunni (Medical Association for the Prevention of War). Meðal Endaspretturinn bjargaði íslendingum Erm Margeir Pétursson NOKKIJR undanfarin ár hefur verið haldið í Brighton í Fnglandi alþjóð- legt skákmót sem enski stórmeistar- inn og skákrithöfundurinn Raymond Keene er potturinn og pannan í. Ilann stefnir þangað vinum sínum og kunningjum meðal skákmanna, sem eru ófáir og margir hverjir mjög sterkir. í ár voru þeir Guðmundur Sigurjónsson og Jón L. Arnason á meðal þeirra tíu sem hann hauð til sín, en sjálfur tók hann ekki þátt í mótinu heldur lét sér nægja að skipuleggja það og stýra því. Sem fyrr ríkti skemmtilegur og vinsamlegur andi á mótinu þó mál- tækið „enginn er annars bróðir í leik“ hafi verið í fullu gildi. Fyrir tækið SciSys, sem ég þekki því mið- ur engin deili á, gekk í lið með Keene og gerði honum mótshaldið fjárhagsiega kleift. Þátttakendalistinn samanstóð af þremur stórmeisturum og sex alþjóðameisturum auk nýjasta undrabarns Englendinga, Stuart Conquest, sem varð heimsmeistari í sveinaflokki í sumar. Það var því mögulegt að ná stórmeistara- árangri á mótinu og var hann sjö vinningar. Keppnin var bæði jöfn og hörð og framan af virtist hið fræga undrabarn Nigel Short ætla að sigla fram úr. Hinn ungi og efni- legi Ný-Sjálendingur, Murray Chandler, sem um langt skeið hef- ur verið búsettur í Englandi, vann hann í áttundu umferð og tryggði sér síðan sigurinn með því að vinna Westerinen í níundu umferð, eftir að Finninn sókndjarfi hafði einu sinni sem oftar lagt allt í sóknina og þar með misboðið stöðu sinni. Speelman, sem frrirfram var álitinn sterkastur, olli vonbrigðum og hin mörgu jafntefli hans knýja fram þá spurningu hvort hinn ný- tilkomni stórmeistaratitill hans hafi haft róandi áhrif á skákstíl- inn. Islendingarnir áttu erfitt upp- dráttar framan af, en tókst að lok- um báðum að rétta úr kútnum og tryggja sér viðunandi sæti með öflugum endaspretti. Því miður var mótið ekki nægilega langt til þess að þeir gætu blandað sér í keppnina um efsta sætið. Keppnin hlýtur hins vegar að hafa verið þeim góður skóli fyrir svæðamótið í Danmörku í janúar. Sem áður segir var það ekki út- haldið sem háði þeim Jóni og Guð- mundi í Brighton því í síðustu um- ferð unnu þeir báðir snaggaralega. Andstæðingur Jóns var efnaður bandarískur læknir, Karl Burger að nafni, sem hefur afar gaman af skák og er væntanlegur hingað á Reykjavíkurmótið í febrúar. Nýi sveinameistarinn Conwuest hugðist leggja Guðmund að velli með vel þekktu stefi, sem reyndist ekki eiga við í stöðunni. Guðmund- ur var vel með á nótunum, tók hressilega á móti árásinni og fljótlega blasti hrunið við hjá Conquest. Hvítt: Burger (Bandaríkjununi) Svart: Jón L. Arnason Knski leikurinn 1. Rf3 — c5, 2. c4 — Rf6, 3. g3 — d5, 4. cxd5 — Rxd5, 5. d4 Hér er venju- lega leikið 5. Bg2 eða 5. Rc3. 5. — cxf4, 6. Rxd t — e5!, 7. Rb5 — Bb4+, 8. Bd2 — a6, 9. Bxb4 Ridd- araflan hvíts í næsta leik er freist- andi en ber engan árangur. Hér eða í 10. leik átti hann því að leika R5c3. r;t- í/l St»3 1 1 3 H s 6 7 t °t 10 V/NN. NR. 1 CHANDLER(NÝj*Sjíl) m V//Á W % 1 •k 'k 'k 1 'k 1 'k (o i z SPEELMAN(£»j SAf Vi '///, ‘k k 'k k 'k / 'k I Sk 2-3. 3 SHORT(Endl^Ai) fíM O k L % 1 'k 1 0 J S'/z 2-3. V TÓN L. 'ftRNftSON fíM '/z '/z 0 I '/z 'k 0 1 1 1 5 H-s. 5~ TlSVfíLL m k /z h 'k Y/6 0 I •k •k 1 5 7-S. y &UDM. SKMtJÍNSSotí SM h 'Á 0 'k 1 •k 0 k 1 n U 7 iNESTEHlNENCFi^d) 0 'í ‘k 1 0 •k v/v, 0 1 1 H/z 6-2. 2 TóULQUT (Er>jk<Ji) fíM •k 0 0 0 'k 1 / Y//A 'k 1 H'k 6-2. ? (liavJicvr') kj) fíM 0 (z 1 0 'k (z 0 'k m,\ WY' 1 H H. 10 COh/0.UEST (En$la*Ai' FM •k 0 0 0 O 0 0 0 O V777 yyy/. •k 10.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.