Morgunblaðið - 12.01.1982, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 12.01.1982, Qupperneq 34
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982 f Eiginmaöur minn, BÖOVAR INDRIOASON, Hofsvallagötu 23, lést aö heimili sínu þann 10. janúar. Anna Guömundsdóttir. f Unnusti minn og sonur okkar, JÓN ÓLI JÓNSSON, Kirkjuvegi 34, Keflavík, lést af slysförum 10. janúar. Sigurbjörg Björnsdóttir, Guöbjörg Jónsdóttir, Jón Ólafsson. Sonur okkar, HJÁLMAR HJÁLMARSSON, Kirkjuvegi 34, Keflavík, lést af slysförum 10. janúar. Guöbjörg Jónsdóttir, Hjálmar Kristinsson. f Eiginmaöur minn, BERGUR HALLGRÍMSSON, Arnarbæli viö Blesugróf, lézt aö morgni 8. janúar. Fyrir hönd vandamanna, Fanney Ingjaldsdóttir. f Maöurinn minn, SVEINBJORN ZOPHONÍASSON, veröur jarösunginn frá Fossvogskapellu miövikudaginn 13. janúar kl. 15.00. Geirrún Ívarsdóttír, Jökulgrunni 2A. Bróöir minn. + HARALDURKNUDSEN, Þingholtsstræti 33, veröur jarðsettur frá Fossvogskirkju, miövikudaginn 13. þ.m. kl. 10.30 f.h. Aöalsteinn Knudsen. f Eiginmaður minn og faöir okkar, HARALDURPÉTURSSON, fyrrverandi safnhúsvöröur, Sólheimum 34, veröur jarösunginn í dag, þriöjudaginn 12. janúar. kl. 15.00 frá Fossvogskirkju. Margrát Þormóösdóttir, Pétur Haraldsson, Guðbjörg Haraldsdóttir Bay, Þormóöur Haraldsson. Vegna útfarar Lúðvíks Guömundsssonar, verður verzlunin lokuð í dag frá kl. 12. LJÓS & ORKA Suðurlcindsbraut 12 Verzlunin verður lokuð frá hádegi í dag vegna jarðarfarar Haralds Péturssonar fyrrv. safnhúsvarðar. Verzlunin Björn Kristjánsson, Vesturgötu 4. Minning: Sigríður Guðmunds- dóttir frá Tröðum Fædd 15. nóvember 1891 Dáin 28. desember 1981 I dag fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði útför Sigríðar Guð- mundsdóttur frá Tröðum í Staðar- sveit. Hún fæddist á Hofsstöðum í Miklaholtshreppi 15. nóvember 1891 og var því rúmlega níræð er hún lést 30. desember síðastliðinn, á Elli- og hjúkrunarheimilinu Sól- vangi, eftir níu ára sjúkravist þar. Hún var elst barna hjónanna Katrínar Jónsdóttur og Guðmund- ar Sigurðssonar sem þá bjuggu á Hofsstöðum og seinna víða þar um slóðir. Lengst bjuggu þau á Tröð- um í sömu sveit. Þau hjón voru bæði Rang- æingar, hún var uppalin í Þjóð- ólfshaga í Holtum, hann í Nik- ulásarhúsum í Fljótshlíð. Sigríður ólst upp hjá foreldrum sínum við algeng sveitastörf þeirra tíma, bæði utan húss og innan. Hún var snemma tápmikil, handlagin og kappsfull við öll störf. Rúmlega tvítug fór hún úr for- eldrahúsum til að sjá sér farborða, en var þó í sambandi við foreldra og systur. Hún var í kaupavinnu, vinnu- mennsku og vistum bæði í sveit og við sjó. Við fiskverkun á Isafirði og í Reykjavík, við saumaskap í Olafsvík og Stykkishólmi o.fl. 28. desember 1918 gekk hún að eiga Gísla Gíslason skipstjóra í Stykkishólmi, dugnaðarmann sem stundaði skipstjórn og útgerð á eigin skipi frá Stykkishólmi. Þau stofnuðu þar myndarheim- ili á þeirrar tíðar mælikvarða í eigin húsi og tóku til umönnunar aldraða móður Gísla, Þóru Val- gerði og ólu önn fyrir henni meða hún lifði. Þau eignuðust tvær dætur, báð- ar búsettar í Hafnarfirði. Kristínu Guðrúnu gifta dr. Vilhjálmi G. Skúlasyni og Þorgerði Maríu, sem gift er undirrituðum. Barnabörnin eru þrjú og barna- barnabörnin þrjú. Síðla árs 1925 fluttu þau hjónin búferlum til Hafnarfjarðar og bjuggu þar síðan. Gísli lést 1974 áttatíu og fjög- urra ára. Sigríður hafði því átt heima í Hafnarfirði í fimmtíu og sex ár er hún lést. Hún átti að baki áratuga erfiðan sjúkdómsferil. Þetta er í fáum orðum ævi erill þeirrar vammlausu heiðurskonu + Móöir okkar, tengdamóöir og amma, SIGRÍDUR GUÐMUNDSDÓTTIR, áöur til heimilis aö Austurgötu 31, Hafnarfiröi, sem lést á Sólvangi 30. desember sl., veröur jarösungin frá Frí- kirkjunni í Hafnarfiröi í dag þriöjudaginn 12. janúar kl. 14.00. Kristín G. Gísladóttir, Vílhjálmur G. Skúlason, Þorgeröur M. Gisladóttir, Jón Ól. Bjarnason og barnabörn. t Faöir minn, tengdafaöir og afi, BJARNLEIFUR HJÁLMARSSON, Fellsmúla 15, veröur jarösunginn frá Fossvogskirkju fimmtudaginn 14. janúar nk. kl. 15.00. Birna G. Bjarnleifsdóttir, Árni H. Bjarnason, Erla Svanhvít Árnadóttir, Anna Sólveig Árnadóttír. + Þökkum auösýnda samúö viö andlát og útför KJARTANSEGGERTSSONAR, bónda, Einholtum. Vandamenn. + Innilegustu þakkir til allra þeirra er auösýndu samúö og vinarhug viö andlát og úrför eiginmanns míns, fööur okkar og afa, GUÐMUNDAR JÓHANNESSONAR, læknis, Sigluvogi 4, Reykjavik. Guörún Þorkelsdóttir, Þorkell E. Guömundsson, Óttar G. Guömundsaon, Þorgerður S. Guömundsdóttir, Edda Ýr Guðmundsdóttir, Jóhannes Guömundsson, Berglind Eínarsdóttir, Guómundur Guömundsson, Sunneva Eggertsdóttir. sem í dag verður lögð til hinstu hvíldar við hlið manns síns undir þeim fagurglita fjallahring sem umlykur Hafnarfjörð. Á bak við þessi fáorðu æviatriði liggur löng og litrík hetjusaga. Saga um gleði og velgengni, um erfiðleika og mótlæti. Þegar þau hjónin fluttu hingað, af ástæðum sem ekki verða raktar hér, voru þau blásnauð. Aleigan var dæturnar tvær, 3 mánaða og 6 ára. Leiguíbúðin var herberi í niðurgröfnum kjallara við lækinn, vatnsborðið stundum ofar en gólf- ið. í bænum ríkti örbirgð og atvinnuleysi og engir voru ver settir en þeir, sem voru nýfluttir og öllum heimamönnum ókunnug- ir. Þau hjónin tókust á við örðug- leikana með ofurmennsku öreig- anna og byggðu upp heimili að nýju. Við það verk stóð hún sem klettur við hlið mánns síns. Með ítrustu sparsemi, sjálfsafn- eitun og vinnusemi, tókst þeim að koma dætrunum til manns, eign- ast vinalega bæinn sinn á Austur- götu 31 og gera hann vistlegan. Þar var allt hreint, fágað og snyrtilegt úti sem inni og búshlut- irnir gáfu hugmynd um mynd- arskap og hagsýni húsfreyjunnar. „En lífið setur á manninn mark.“ Þó að þeir tímar kæmu, að Sigrið- ur og Gísli yrðu bjargálna, hafði lífsreynslan skilið eftir sár sem aldrei greri. Sigríður var öllum eldri Hafn- firðingum kunn fyrir að sjá um dreifingu og sölu Morgunblaðsins um aldarfjórðungs skeið, við þau störf hafði hún sér til aðstoðar, fjölda barna og unglinga, sem hjá henni unnu sín fyrstu handtök og hlutu sín fyrstu verkalaun. Eg veit að þetta fólk minnist hennar með hlýhug, vegna þeirra góðu uppeldisáhrifa sem það varð fyrir og þeirrar tryggðar sem hún sýndi því og áhuga á högum þess. Sigríður Guðmundsdóttir var kona mikillar gerðar í sjón og raun. Hún er minnisstæð öllum sem kynntust henni. Yfirbragðið festulegt og augun greindarleg með glettnisbliki. Hún var trúuð kona sem bar umhyggju fyrir hag kirkju sinnar. Trygglyndi hennar og hjálpsemi var rómuð. Hún var föst á fé, sparsöm við sjálfa sig og neitaði sér um flestan munað. En hún var stórgjöful og gaf af myndarskap á þann hátt að viðtakandanum þótti sæmd að, en það fréttist ekki á götum og gatnamótum þó að hún rétti fram hjálparhönd. Hún var gestrisin og glöð heim að sækja, glettin og sposk í vina hópi, stálminnug fram á efri ár, sjófróð, gædd sérkennilegri frá- sagnargáfu og kunni góð skil á bundnu máli sem óbundnu. Sigríður stóð á sextugu þegar ég kom fyrst á heimiii hennar, sem verðandi eiginmaður yngri dóttur- innar og hjálparhellu, hún vafði mig þá móðurörmum, eftir það átti ég ástúð hennar og umhyggju, frá þeim degi sýiyii þessi skap- stóra og ráðríka kona mér fullan trúnað. Á undanförnum árum hef ég gengið af hennar fundi með marg- ar fyrirbænir, sem ég veit að voru mæltar af heilum hug. Þegar Sigríður var komin að vegamótum lífs og dauða var dag- urinn orðinn langur, líkamskraft- arnir á þrotum og hún heltekin af banvænum sjúkdómi, hélt hún -eTlnþá andlegri reisn og ótrúlegum sálarkröftum, fyrir það þökkum við Guði, sem eftir stöndum. Að endingu skal starfsliði Sól- vangs fluttar alúðar þakkir fyrir frábæra umönnun, ljúfmannlegt viðmót og óþrjótandi þolinmæði við að lina þrautir og létta henni stundirnar. Minningiift um Sigríði Guð- mundsdóttur lifir í hugum okkar sem þekktum hana, við pökkum henni samfylgdina. Stórbrotin sæmdarkona hefur lokið langri jarðlífsgöngu sinni. Nú felum við hinum hæsta höf- uðsmið himins og jarðar hana til varðveislu. Jón Ól. Bjarnaxon

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.