Morgunblaðið - 12.01.1982, Síða 42
46
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982
Tugir íbúa í Laugarási:
Andmæla frekari
byggð við Aust-
ur- og Vesturbrún
NOKKIII) á níunda tug íbúa í Laugarási hafa ritað undir andmæli við
fyrirhugada aukna byggð á svæðinu milli Austur og Vesturbrúna í Laugarási
í Reykjavík og óska íbúar þess að ekki verði vikið frá upphaflegu skipulagi,
sem gerði ráð fyrir friðlýstu útivistarsvæði á hæðinni.
Andmælum þessum er beint til um segir m.a.: „Þess má og geta,
borgarráðs Reykjavíkur og þeim
skilað á skrifstofu borgarinnar
fyrir síðustu áramót. Undir áskor-
un þessa taka nokkrir stjórnar-
meðlimir Hrafnistu í Reykjavík og
segir m.a. í samþykkt þeirra:
„Stjórn Hrafnistu bauð borgaryf-
irvöldum að íbúum þessa húss
væri að sjálfsögðu heimil útivist á
lóð Hrafnistu enda við alltaf horft
til hins opna svæðis milli Austur-
og Vesturbrúnar sem sameigin-
legs göngu- og útivistarsvæðis
fyrir mörg hundruð gamalmenni,
sem í næsta nágrenni búa. Sér-
staða þessa svæðis sem ætti að
friðlýsa um aldur og ævi, er sér-
stök vegna útsýnis, sem þaðan má
njóta."
I áskorun íbúanna í Laugarásn-
að sú kvöð var lögð á húsbyggj-
endur við Austurbrún að leggja
vatns og skolpleiðslur niður í
Kambsveg á eigin kostnað vegna
þess að engin byggð átti að vera
ofan við götuna og því engar
leiðslur lagðar í hana. Þeir vöru
því í raun látnir greiða fyrir að fá
að hafa holtið óbyggt ... Við, sem
undir þetta skjal skrifum, komum
hér með á framfæri þeirri hug-
mynd, að borgin gefi þeim og öðr-
um borgarbúum kost á að njóta
útivistar á svæðinu með því að
leggja gangstíga, koma fyrir
bekkjum og auka á því gróðurfar
með villtum íslenskum plöntum.“
Þá bjóðast margir íbúanna til að
leggja fram sjálfboðavinnu við
framkvæmdir.
Jón L. vann Carsten Hoi
Helgi jafntefli en Guðmundur sat yfir í 3. umferð
JON L. Árnason vann Dan-
ann (’arsten Hoi og Helgi
Olafsson gerði jafntefli við
ísraelsmanninn Birnboim í 3.
umferð b-riðils á svæðamót-
Deilu BHM vísad
til Kjaradóms
KUNDUR hefur verið boðaður síð-
degis í dag hjá sáttasemjara um
kjarasamning Handalags háskóla-
manna og ríkisins. Lítið hefur miðað
í samkomulagsátt á fundum aðila,
en til umræðu er nýr tveggja ára
samningur. Náist ekki samkomulag
í dag verður deilunni vísað til kjara-
dóms lögum samkvæmt.
inu í Kanders í Danmörku í
gærkvöldi. Guðmundur Sig-
urjónsson sat yfir í 3. um-
ferð.
Svæðamótið hófst á laugardag
og vann Guðmundur Sigurjónsson
þá Norðurlandameistarann Knut
Helmers. Þeir Jón L. og Helgi
gerðu innbyrðis jafntefli. í ann-
arri umferð tapaði Guðmundur
fyrir Murrey frá ísrael, Jón L.
tapaði fyrir Lobror, V-Þýzkalandi,
en Helgi Ólafsson vann Wedberg
frá Svíþjóð.
Staðan er nokkuð óljós en þeir
Kagan og Lobror hafa hlotið 2
vinninga og biðskák í a-riðli. Helgi
Ólafsson hefur einnig hlotið 2
vinninga. Borik V-Þýzkalandi er
efstur í b-riðli með 2'k vinning.
Elvar með 3V6 vinning
KI.VAK (íuðmundsson teflir nú á alþjóðlegu móti í Hamar í Noregi og að
loknum 7 umferðum hefur hann hlotið 3'k vinning. í 7. umferð gerði hann
jafntefli við ungverska alþjóðlega meistarann Sapi. Kfstur á mótinu er King frá
Knglandi með 5 vinninga. í 2.—4. sæti eru Tisdall frá Bandaríkjunum og
Davies, Knglandi, með 4'/2 vinning. Þá koma Federowice, USA, og Sapi,
Ungverjalandi, með 4 vinninga.
Þorsteinn Þorsteinsson, sem bú-
settur er í Svíþjóð, tekur einnig
þátt í mótinu og hefur hann hlotið
3 vinninga. Þorsteinn tók þátt í al-
þjóðlegu móti í Karlstad í Svíþjóð
fyrir skömmu og hafnaði þar í 5.
sæti, en alls tóku 176 manns þátt í
mótinu. Sænski alþjóðlegi meistar-
inn Harry Schussler sigraði, hlaut
6'k vinning, Bengt Wihlborn,
Mikael Carlsson og Ran Runnby,
allir Svíþjóð, hlutu 6 vinninga, en
Þorsteinn hafnaði í 5.-9. sæti með
5'k vinning, fyrir ofan alþjóðlega
meistarann Ole Jakobsen frá
Danmörku, sem hlaut 5 vinninga.
Á mótinu í Hamar hefur Elvar
gert jafntefli við Davies, Sapi og
Federowice. Hann ,vann Norð-
manninn D’Lange en tapaði heldur
slysalega fyrir Klaus Berg frá
Danmörku.
„Jeppinn
gjörónýtur“
- segir Bjarni
Marteinsson, ei:
andi Wagon
jeppa, sem
höfninni í N
víkum í gær,
hálfu ári eftir
honum var
Wagoneerjeppinn dreginn upp úr höfninni í Njarðvíkum í gær.
Mynd Mbl. Ileimir Stígsson
„JEFPINN er eins ónýtur og hann
getur orðið. Þakið á honum lagðist
saman og sjórinn hefur étið allt ál
í burtu þannig að sumir hlutir hafa
hreinlega horfið. Þá er jeppinn al-
settur hrúðurkörlum og lakk
hreinlega hrundi af jeppanum þeg-
ar við sprautuðum vatni á hann,“
sagði Bjarni Marteinsson, eigandi
Wagoneerjeppa, sem fannst í höfn-
inni í Njarðvíkum laust fyrir há-
degi í gær, tæpu hálfu ári eftir að
honum var stolið af Öldugötu í
Reykjavík.
„Eg verð sjálfur að bera tjón-
ið, nema svo ólíklega takist til að
þjófurinn náist, en engu líkara
er en hann hafi ekið bílnum af
ásettu ráði í sjóinn, því bíllinn
var í gír og í lágadrifinu," sagði
Bjarni ennfremur.
Jeppinn fannst fyrir hreina
tilviljun í höfninni. Kafari, sem
var við vinnu á vegum hafnar-
innar, fann jeppann á hvolfi í
sjónum. Greinilegt er, að jepp-
inn hefur legið lengi í sjónum,
sennilega verið ekið fram af
bryggjunni skömmu eftir að
honum var stolið.
„Eg vonaðist auðvitað til að fá
bílinn í heilu lagi, en í sjálfu sér
er ég feginn, að þetta er afstaðið.
Margar vísbendingar hafa komið
fram og sumir hafa talið sig
hafa séð bílinn víðs vegar um
landið. Þá hef ég nokkrum sinn-
um verið kallaður til að skoða
uppgerða Wagoneer-jeppa sem
til sölu voru. Kaupendur vildu fá
fullvissu um að vera ekki að
kaupa köttinn í sekknum og því
talið ráðlegra að fá staðfest að
ekki hafi verið um hinn stolna
jeppa að ræða,“ sagði Bjarni
Marteinsson.
Gunnar Þorvaldsson um skýrslu Loftferðaeftirlitsins:
Alls ekki fullyrt að
vopn hafi verið flutt
„ÞAÐ BARST kæra til Flugráðs um meinta vopnaflutninga Arnarflugs, og
málið var rannsakað. Fyrst skilaði Loftferðaeftirlitið skýrslu, þar sem Arnar
flug var algjörlega sýknað af þeim áburði. Síðan samdi Loftferðaeftirlitið
aðra skýrslu, eftir ítarlegri rannsóknir og þá kom í Ijós, að það taldi líklegt,
að í fimm ferðum hafi verið eitthvað í farminum, sem talizt gæti hergögn
samkvæmt erlendri skilgreiningu,“ sagði Gunnar Þorvaldsson, fram-
kvæmdastjóri Arnarflugs, í samtali við Mbl.
„Nú er það svo, að flest flugfélög gönguráðuneytinu í gærkvöldi.
eru bundin af því, að flytja það
sem er innan IATA-samþykkta,
það sem IATA-félögin hafa komið
sér saman um, að væri í lagi að
flytja öryggisins vegna og Arnar-
flug er bundið af þessum skilmál-
um.
Þegar svo þessi orðrómur fór á
kreik, hafði Arnarflug þegar sam-
band Libyan Arab Airlines og þeir
fullyrtu, að það væri ekkert í
förmunum, sem ekki væri innan
IATA-reglanna. Skýrsla Loft-
ferðaeftirlitsins leiðir síðan að því
getur, að eitthvað kunni að hafa
verið um borð, sem ekki falli undir
IATA-reglurnar. Það er hins veg-
ar alls ekki fullyrt að svo sé.
Það næsta sem skeður í þessu
máli, er að ég fékk bréf frá sam-
þar sem óskað er eftir því, að Arn-
arflug tilnefni mann í nefnd, sem
m.a. á að ákveða hvað séu vopn og
hvað ekki. Það er ekki til nein slík
skilgreining á Islandi.
Annars er einungis verið að
blása upp mál, þar sem talið er
mögulegt, að eitthvað hafi verið
flutt af vopnum í sjö ferðum fé-
lagsins, af um 400 ferðum, sem
farnar eru. Það er hins vegar ekk-
ert sem sannar það. Að siðustu vil
ég taka fram, að hafi verið flutt
vopn í þessum ferðum, þá er það
hvorki með vilja né vitund Arnar-
flugsmanna, sagði Gunnar Þor-
valdsson, framkvæmdastjóri Arn-
arflugs, að síðustu.
Akureyri:
Mikið tjón í eldi
Akureyri. II. janúar.
SLÖKKVILIÐ Akureyrar var
kallað að Furulundi 10, sem
er tveggja hæða fjölbýlishús,
klukkan 19.40 í gærkvöld.
I*ar logaði mikill eldur í fbúð
Hrettándaólætin á Selfossi:
Lögreglan óskar rannsóknar á um-
mælum formanns ungmennafélagsins
„ÞKTTA KR einn furðulegasti þrettándi, sem ég hef upplifað. Það tókst
með nokkrum viðbúnaði að koma í veg fyrir ólæti eins og komið hefur
fyrir áður og við þurftum að hafa afskipti af nokkrum unglingum, meðal
annars loka nokkra þeirra inni skamma stund. Þá rekur formaður ung-
mennafélagsins hér upp mikið hróp og heldur því fram að við höfum átt
sök á ólátunum og verið of harðhentir við börnin. Þetta könnumst við alls
ekki við og höfum óskað opinberrar rannsóknar á ummælum hans,“
sagði Jón Guðmundsson, lögreglustjóri á Selfossi í samtali við Morgun-
blaðið.
„I/jgreglan kom á vettvang
þegar ókyrrð var komin í ungl-
ingana og þeir byrjaðir að eiga
eitthvað við ruslagám, sem var í
nágrenni félagsheimilisins. Þá
náðum við að koma í veg fyrir
ólæti og tjón, nema að lögreglu-
bíll frá Reykjavík var skemmdur
eitthvað. Við könnumst ekki við
að hafa beitt kylfum á börnin og
höfum ekki fengið neinar kærur
eða tilkynningar um meiðsli
enda finnst okkur furðulegt að
rekið sé upp ramakvein þegar
tekst að hemja ólætin," sagði
Jón.
„Eg tel engan vafa á því að það
var lögreglan, sem æsti börnin
upp og á því sök á ólátunum.
Lögreglan beitti kylfum á ungl-
ingana um leið og þeir komu út
af dansleiknum hér í félags-
heimilinu," sagði Sigmundur
Stefánsson, formaður ung-
mennafélagsins.
„Þetta voru ótímabærar að-
gerðir og af litlu sem engu til-
efni, það var þó ekki um stór-
vægileg meiðsli á unglingunum,
en gerð hefur verið könnun á því
1 gagnfræðaskólanum hve marg-
ir hafi orðið fyrir kylfuhöggum
og munu það vera um 15 alls.
Mér er kunnugt um það að grjóti
og glerjum var kastað að lög-
reglunni eftir að hún hafði hafið
ólætin, en mér er ekki kunnugt
um að bensínsprengjur hafi ver-
ið notaðar," sagði Sigmundur.
á neðri hæð og stóðu eld-
tungurnar hátt til lofts út um
gluggana þegar að var
komið, enda íbúðin alelda.
Bræður tveir bjuggu í íbúðinni
og komust þeir út óskaddaðir.
Fljótlega tókst að slökkva eldinn,
en þá var mikið tjón orðið í
íbúðinni. Einnig urðu miklar
skemmdir á íbúð þeirri sem er
beint upp yfir henni. Talið er víst,
að logandi vindlingur hafi kveikt í
legubekk í stofu, en síðan hafi
ibúðin orðið eitt eldhaf.
- Sv.P.
Vitni óskast
ÞANN 1. janúar um kl. 07.00 varð
alvarlegt umferðarslys á Vestur-
landsvegi til móts við Korpúlfs-
staði. Ekið var á 19 ára stúlku,
sem þar var á gangi. Ökumaður
bifreiðarinnar var á leið til Reyk-
javíkur. Hann tók stórslasaða
stúlkuna og kom henni fyrir í bif-
reið sinni og ók henni í slysadeild.
Vitni sem kunna að hafa verið að
þessu umferðarslysi eru vinsam-
lega beðin að gefa sig fram við
lögregluna.