Morgunblaðið - 12.01.1982, Page 44

Morgunblaðið - 12.01.1982, Page 44
Sími á ritstjórn og skrifstofu: 10100 Síminn á afgreiðslunni er 83033 Jttotjjtmfclíiínfc ÞRIÐJUDAGUR 12. JANÚAR 1982 Þrettándaólætin á Selfossi: Eldsprengja sprakk á vegg Selfossbíós 40 eldsprengjur teknar og 25 heimatilbúnar sprengjur ELDSPRENGJU var varpað að Selfosshíói og sprakk hún á vegg bíósins með þeim af- leiðingum að eldur kviknaði Drukknaði í Eyja- fjarðará Akureyri, 11. januar FJÖGURRA ára drengur drukknaði í Eyjafjarðará síð- degis í gær. Hann var í fóstri á bænum Sandhólum í Saur- bæjarhreppi í vetur, en átti annars heima í Hjallalundi 9G á Akureyri. Hann hafði farið út að leika sér eftir hádeKÍ í Kær, og um klukkan þrjú var hann að leik heima við bæ. Nokkru síðar var farið að huga að honum, en þá fannst hann ekki. Spurst var fyrir um hann á næstu hæjum, en þangað hafði hann ekki komið. Hins vegar var rakin slóð hans suður og niður að Eyjafjarð- ará, sem rennur skammt framund- an bænum, yfir brú á ánni og að vök, sem þar var. Var nú safnað liði og leituðu menn úr nágrenninu og einnig úr Hjálparsveit skáta á Akureyri og Flugbjörgunarsveitinni á Akureyri fram undir miðnætti, en án árang- urs að öðru leyti en því, að frosk- menn fundu stígvél drengsins í vökinni. Leit var haldið áfram í birtingu í morgun og fannst lík drengsins um hádegi um átta metr- um neðar í ánni. Drengurinn hét Sigtryggur Ómar Jóhannesson, fæddur 5. apríl 1977, sonur hjónanna Guðnýjar Sverrisdóttur og Jóhannesar Sig- tryggssonar. Sv. P. en xlokknaói þó fljótlega. Inni í húsinu voru á milli 250 og 300 unglingar á skemmt- un og þarf vart að taka fram, að illa hefði getað farið hefði eldurinn náð að læsa sig um húsið. Atvik þetta átti sér stað um miðnætti að kvöldi þrettándans. Mbl. fékk þetta staðfest hjá lögreglunni á Selfossi í gærkvöldi. Um 40 eldsprengjur voru tekn- ar úr nokkrum bílum um klukk- an 21 að kvöldi þrettándans, þar af 32 eldsprengjur úr einum og sama bílnum. Einnig voru teknar 25 heimatilbúnar sprengjur, sem hefðu verið stórhættulegar hefði þeim verið kastað að bílum eða fólki. Einn lögregluþjónn meiddist þegar stórum grjóthnullingi var kastað í höfuð honum. Hann var með lögregluhjálm, sem sprakk og vankaðist maðurinn við högg- ið. Lögreglan á Selfossi og for- maður ungmennafélagsins hafa deilt um upptök og orsakir ólát- anna. Sjá bls. 46. Tvær bifreiðanna, sem ekið var i, eftir áreksturinn við Kleppsveg 2. Mvnd Mbl. Júlíu.s Ók ölvaður á 6 bfla MIKILL árekstur varð um klukk- an 21.15 í gærkvöldi við bílastæði fjölbýlishússins við Kleppsveg 2. Bifreið var ekið á sex bifreiðar með þeim afleiðingum að fjórar þeirra eru gjórónýtar og einnig sú er tjóninu olli. Tveir menn, sem voru í bifreiðinni, hurfu af vett- vangi, en ökumaðurinn hringdi sjálfur á lögregluna og skýrði frá óhappinu. Grunur leikur á að öku- maðurinn hafi verið undir áhrifum áfengis. Bifreiðinni, sem er af Ply- mouth-gerð, var ekið á ofsa- hraða eftir Sætúni. Þegar skammt var ófarið að gatnamót- unum við Laugarnesveg var ekið í veg fyrir hana, að sögn öku- manns. Hann segist hafa reynt að sveigja frá, en ekki tekist bet- ur til en svo, að hann missti stjórn á bifreiðinni, ók á umferð- arskilti fyrir vestan gatnamótin og þaðan yfir eyjuna milli Kleppsvegarins og húsagötunnar og lenti á bifreiðunum sex. Fjórar þeirra köstuðust upp á gangstéttina, þar af ein alveg upp að húsinu. Mikil mildi var að kona, sem stóð á gangstéttinni, varð ekki fyrir bifreið. Engin slys urðu á mönnum. Ljóst er að eignatjón er mikið, því verðmikl- ir bílar gereyðilögðust. Ráðherrar reikna með fiskverði f kjölfar sjómannasamninga: Vísitöluskerðing 1. marz meðal hugmynda er Framsóknar „Segi ekki frá einni einustu hugmynda Framsóknarflokksins,“ segir Steingrímur Hermannsson MKDAL hugmynda þeirra sem fram- sóknarmenn hafa lagt fram í ríkis- stjórn í umfjöllun um fiskverð, geng- isskráningu og efnahagsvandann al- mennt, er vísitöluskerðing 1. marz nk., en Ijóst er, samkvæmt heimildum Mbl., að verulegar efnahagsaðgerðir þurfa til að koma á næstu mánuðum til að mæta bágri stöðu þjóðarbúsins. Sjálfstæðismenn i ríkisstjórn hafa Banaslys á Keflavíkurveginum: Tveir menn létust og sá þriðji liggur þungt haldinn TVEIR hálfbræður létust og þriðji maðurinn slasaðist mjög alvarlega er bifreið þeirra lenti út af Keflavíkurveginum á Strandarheiði aðfaranótt síðast- liðins sunnudags. Mun bílstjóri bifreiðarinnar hafa misst stjórn á henni í hálku með áður- greindum afleiðingum. Talið er að bifreiðin hafi verið á mikilli ferð og að hún hafi farið margar veltur og um 70 metra vega- lengd utan vegar áður en hún stöðvaðist. Að sögn lögreglunnar í Keflavík voru málsatvik þau að klukkan 45 mínútur yfir 12 á miðnætti var henni tilkynnt um að þrír menn hefðu farið upp í bifreið og ekið áleiðis til Reykjavíkur. Þar sem grunur lék á að ökumaður væri ölvaður hélt lögreglan í átt til Reykjavíkur og um stundarfjórð- ungi síðar kom hún að bifreiðinni utan vegar. Tveir mannanna voru Hjálmar Hjálmarsson þegar látnir, en sá þriðji, ökumað- urinn, mikið slasaður og var hann fluttur í gjörgæzludeild Borgar- spítalans og er hann enn meðvit- undarlaus og þungt haldinn. Mennirnir, sem létust, voru Jón Óli Jónsson hálfbræður, Hjálmar Hjálmars- son, fæddur 5. september 1962, og Jón Óli Jónsson, fæddur 14. des- ember 1957. Þeir voru báðir til heimilis að Kirkjuvegi 34, Kefla- vík. skýrt sín mál og lagðar hafa verið fram ákveðnar tillögur í því sam- bandi. Alþýðubandalagið hefur reifað sínar hugmyndir, en samkvæmt við- tölum við ráðherra f gær virðast menn nú vinna að því, að „tala sig niður á lausnir á vandamálunum“, eins og Svavar Gestsson, félagsmálaráðherra, orðaði það. Kíkisstjórnarfundur er boðaður árdegis í dag. Ráðherranefndin, efnahagsmála- nefnd ríkisstjórnarinnar, einstaka aðrir ráðherrar og þingmenn sátu fundi um helgina og ræddu stöðu mála. Ráðherrar sem Mbl. ræddi við í gær voru á einu máli um að ef niðurstaða næðist í sjómannasamn- ingunum myndi samkomulag um fiskverð ekki langt undan og ákvörð- un um gengisfellingu fylgja með, eða í kjölfarið. Þeir voru yfirleitt tregir til að ræða þær hugmyndir um efna- hagsaðgerðir sem fram hafa komið, en Mbl. hefur þó eftir áreiðanlegum heimildum að meðal hugmynda Framsóknarflokksins sé áðurnefnd vísitöluskerðing. Steingrímur Hermannsson, for- maður Framsóknarflokksins, var spurður í gær, hversu mikla vísi- töluskerðingu Framsóknarflokkur- inn legði til. Hann svaraði: „Ég segi ekki frá einni einustu hugmynd Framsóknarflokksins og hver talar um að Framsóknarflokkurinn hafi lagt til vísitöluskerðingu? — Það hefur heyrst. „Það hefur heyrst, já. Þú verður þá að hafa það frá öðrum en mér. Ég hef ekki heyrt það.“ — Er vísitöluskerðing þá ekki í ykkar hugmyndum? „Ég segi ekkert um það. Við höfum lagt fram, eins og hinir hafa gert í viðræðum í ríkisstjórninni, hug- myndir. Þá erum við og opnir að ræða allar þær hugmyndir sem geta orðið til hjöðnunar verðbólgu." Steingrímur sagðist reikna með að samningar um nýtt fiskverð næðust mjöK fljótlega, eða strax og samn- ingar næðust með sjómönnum og út- gerðarmönnum. Gengisfelling fylgdi síðan nýju fiskverði eða kæmi í kjölfarið. Svavar Gestsson, formaður Al- þýðubandalagsins, sagði aðspurður um hvort hann teldi lausn efna- hagsvandans í sjónmáli: „Ég býst við að menn þurfi að gera sér grein fyrir því, að efnahagsvandinn verður aldrei leystur í eitt skipti fyrir ötl. Ég held að þessi endanlega lausn, sem sumir eru stundum að tala um, sérstaklega stjórnarandstaðan núna, sé ekki til. Þetta er spurning um þrotlausa vinnu og ekkert annað." Karl efstur í Brazilíu KAKL Þorsteins er nú í efsta sæti ásamt þremur öðrum á sterku ungl- ingaskákmóti sem fram fer í Brazilíu um þcssar mundir. Karl vann Souza frá Brazilíu í 8. umferð mótsins og er efstur ásamt Zuöiga, Perú, D’Lugi, Bandaríkjunum, og Wells frá Kng- landi — allir með 6 vinninga. Karl gerði jafntefli við Zakic í 7. umferð og vann Milton Braitt í 6. umferð. Alls verða tefldar 15 um- ferðir í mótinu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.