Morgunblaðið - 14.02.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 14.02.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982 59 Það er óhugsandi að kafbátsforinginn hefði verið sýknaður eins og allt er í pottinn búið (Sjá: Sögulok) SKÓLAMÁL Mesta basl hjá blessuðum kennurunum ATVINNULEYSI meðal kennara fer nú vaxandi víðast hvar á Vesturlönd- um. Ástæðurnar eru einkum minnk- andi fólksfjölgun og samdráttur í út- gjöldum til menntamála. Atvinnuleysið kemur nokkuð misjafnlega niður á kennurum. Einkum hafa nýútskrifaðir kenn- arar átt í erfiðleikum með að fá kennarastöður. Um 9% þeirra kennara, sem útskrifaðir voru í Bandaríkjunum árið 1977, höfðu ekki fengið vinnu ári síðar, og í upphafi árs 1980 voru um 40.000 nýútskrifaðir kennarar í Vestur- Þýzkalandi atvinnulausir. Þá hef- ur atvinnuleysi þetta komið illa niður á stundakennurum, en þeir voru 11% af atvinnulausum kenn- urum í Frakklandi í árslok 1980. A ráðstefnu sérfræðinga í Genf var nýlega lögð fram skýrsla sem gerð hafði verið á vegum Samein- uðu þjóðanna. Kom þar fram, að atvinnuöryggi, sem kennarar hafa SÖGULOK ■■■■ yfirleitt búið við, fari nú dvínandi. Niðurstöður skýrslunnar eru á þá lund, að atvinnuleysi kennara þýði sóun á þjálfuðum vinnukrafti og þeirri fjárfestingu, sem í menntun þeirra hafi verið lögð. Árið 1980 voru á skrá í Bret- landi 37.400 atvinnulausir kennar- ar, 11.430 í Belgíu og 10.300 í Vestur-Þýzkalandi. Þessar tölur segja ef til vill ekki nema brot af sannleikanum, en því fer fjarri, að öll kurl komi til grafar í opinber- um skýrslum um atvinnuleysi. Rannsóknir í Hollandi benda til þess að atvinnulausum fóstrum og forskólakennurum muni fjölga um 1.700 á ári. Þá muni atvinnulaus- um grunnskólakennurum fjölga um 4.500 árlega til ársins 1986. Spár benda. og til þess að at- vinnulausir kennarar í Vestur- Þýzkalandi verði orðnir 100.000 árið 1990. Kennarar hafa að vonum miklar áhyggjur af minnkandi atvinnuör- yggi sínu, og telja að það ásamt ýmsum öðrum þáttum valdi versn- andi vinnusiðgæði í þeirra hópi. Ekki bætir það úr skák, að þeim finnst sem ríkisstjórnir, stjórn- málaflokkar, sveitarstjórnir og jafnvel foreldrar sýni menntamál- um stöðugt minnkandi áhuga og stuðning. Þetta leiðir til þess að menntaðir kennarar með góða starfsþjálfun leita gjarnan út úr stéttinni og róa á önnur mið. — THOMAS LAND Hrakför lýkur með fangavist RÚSSNESKI kafbátaforinginn, sem varð fvrir því sl. haust að hafna uppi á sænsku landi þegar hann var að njósna um hernaðarlegar tilraunir sænska sjó- hersins, hefur nú verið dæmdur til vinnubúðavistar. Þrjár heimildir eru fyrir þessum fréttum, sem hafa borist til Stokkhólms, en samkvæmt þeim hefur l’yotr Gushin, kafbátaforinginn, fengið fremur „vægan dóm“, sem hef- ur það í för með sér, að fjölskylda hans fær að heimsækja hann og hann nýtur ýmissa fríðinda umfram aðra fanga. Þó ber þessum heimildum ekki saman um hve langur fangelsisdómurinn er, sumar segja þrjú ár en aðrar tvö. Sovétmenn undu ekki beint vel við sig i sviðsljósinu eftir að rússneski Whisky-kafbáturinn, sem búinn var kjarnorkuvopnum, strandaði fyrir utan flotastöðina í Karlskrona þar sem Rússarnir höfðu augljóslega verið að njósna. Sænski blaðamaður- inn Jan Nicklason, sem kvæntur er rússneskri konu, segist hafa það eft- ir áreiðanlegum heimildum, að Gushin hafi verið dæmdur til Gushin í turni kafbátsins: einhver varð að bera ábvrgðina þriggja ára vistar í vinnubúðum skammt frá Riga, höfuðborg Lettl- ands, en þaðan er Gushin ættaður. „Það er óhugsandi, að kafbátsforing- inn hefði verið sýknaður eins og allt var í pottinn búið,“ hefur Jan eftir þessum heimildum. „Slík sýknun hefði verið óbein viðurkenning á því, að hann hefði aðeins verið að fara eftir skipunum yfirboðara sinna, en með því að dæma hann vilja þeir láta líta út fyrir, að hann hafi sjálf- ur borið ábyrgð á ferðum sínum eins og þeir héldu alltaf fram.“ Jafnvel þótt herrétturinn hefði komist að þeirri niðurstöðu, að það væri rétt, sem sagt hefði verið, að siglingatæki kafbátsins hefðu verið biluð, hefði orðið að dæma Gushin fyrir „að taka ákvarðanir upp á eigin spýtur". Aleks Milits, sem rekur útvarps- stöð fyrir útlæga Eistlendinga í Stokkhólmi, segist hafa það eftir heimildarmönnum í Lettlandi, að Gushin hafi fengið tveggja ára dóm og sömu fréttir hafa borist eftir öðr- um leiðum til Svíþjóðar. Nicklason, Milits og öðrum ber saman um, að Rússar hafi látið þessar fréttir leka til þess að sýna hve „alvarlegum" augum þeir líta á þennan atburð. Fréttir hafa einnig borist um að tveimur sovéskum aðmírálum hafi verið vikið frá af sömu sökum. Kafbátsstrandið olli því, að sam- búð Sovétríkjanna og Norðurlanda kólnaði mjög enda var báturinn í heila tíu daga uppi á sænsku landi með kjarnorkusprengjur innan- borðs. Blaðamenn úr öllum heims- hornum mynduðu hann í bak og fyrir allt þar til að hann var dreginn út úr sænskri landhelgi þegar Rúss- ar höfðu opinberlega beðist afsökun- ar á atvikinu. Þeir féllust einnig á að greiða allan kostnað Svía af því en hann er talinn nema um einni millj- ón dollara. — CHRIS MOSEY llrelt löggjöf sem fyrir löngu er kom- in úr takt við tímann venjur landsmanna hafi verið með allt öðrum hætti en nú sé. En það er ekki einungis klæðn- aður eða klæðleysi, sem fer fyrir brjóstið á ritskoðunarpostulunum. Þeir hafa einnig áhyggjur af um- fjöllun um stjórnmál í fjölmiðlum. Árið 1964 náði völdum í landinu harðskeytt herforingjastjórn — mjög andvíg kommúnistum. Hún kom á ritskoðun í fjölmiðlum vegna „öryggis þjóðarinnar" eins og það var kallað. Herforingjar þeir sem nú fara með völd í land- inu hafa hins vegar heitið lands- mönnum því að aftur verði horfið til lýðræðislegra stjórnarhátta, og hafa látið af allri ritskoðun fjöl- miðla, enda þótt ritskoðunarlögin hafi ekki verið numin úr gildi. í dagblaðinu Folha de Sao Paulo segir m.a.: „í ritskoðunarlögunum gætir mikilla mótsagna og óná- kvæmni í orðalagi. Margt er þar og fáránlegt. Þetta kemur sér ekki aðeins illa fyrir þá sem starfa að lista- og menningarmálum, heldur einnig fyrir þá, sem eiga að gæta þess að ritskoðunarlögin séu hald- in. Þeir kvarta yfir því, að hafa ekki nægilega skýr og greinargóð fyrirmæli um það, hvernig þeir eigi að haga störfum sínum.“ Á síðasta ári ákváðu ritskoðar- ar að veita leyfi fyrir sýningu myndarinnar Umsátursástand eftir Costa Gavras. Hafði þá um- sókn um sýningarleyfi legið fyrir í sjö ár. Myndin fjallar um vinstri- sinnaða skæruliða í Suður-Amer- íku. Leyfið var þó ekki veitt skil- málalaust. Aðstandendum kvik- myndarinnar var fyrirskipað að láta klippa úr henni nokkur atriði, þar á meðal atriði er sýndi „póli- tíska yfirheyrslu fyrir framan þjóðfána Brasilíu“. „Viðkvæm“ orðaskipti tveggja aðila voru hreinlega ekki þýdd á portúgölsku, en það er þjóðtunga Brasilíu- manna. Æðsta ritskoðunarráðið sam- þykkti á síðasta ári, að byggð skyldu sérstök kvikmyndahús til sýninga á kvikmyndum, er brytu gegn ritskoðunarlögunum. Er þar einkum um að ræða kvikmyndir er sýna tæpitungulaust ofbeldi eða kynlíf. Þó er sá hængur á að ein- göngu er heimilt að hafa slík kvikmyndahús í borgum, þar sem býr ein milljón manna eða fleiri. - HAROLD OLMOS Iðnskólinn í Reykjavík Upprifjunarnámskeið hefjast mánudaginn 1. mars. Upplýsingar og innritun á skrifstofu skólans. lönskólinn í Reykjavík. rVideo-son- Höfum veriö beðnir að selja hlutabréf í VIDEO-SON h/f. Uppl. á skrifstofunni. Fasteignaþjónustan Austurstræti 17. Sími 26600. Ljósmyndarafélag íslands hefur ákveðið að bjóða landsmönnum sérstakan 25% afslátt af öllum fjölskyldu- og portrett- myndatökum (i lit) um eins mánaðar skeið frá 15. febrúar — 15. marz n.k. Mun verð á myndatökum þannig lækka úr kr. 670 niður í kr. 500. Ennfremur verður veittur 25% af- sláttur af öllum stækkunum í stærðum frá 24x30 cm. upp i 40x50 cm. Notið þetta einstaka tækifæri og látið verða af þvi að láta taka fallegar litmyndir af öllum í fjölskyldunni. Eftirfarandi aðilar eru félagar i Ljósmyndarafélagi íslands: Effect Ijósmyndir, Klapparstíg 16, Reykjavik Hannes Pálsson, Mjóuhlíð 4. Reykjavik Ljósmyndastofa Gunnars, Suðurveri. Reykjavik Ljósmyndastofa Þóris. Rauðarárstig 16. Reykjavik Ljósmyndaþjónustan Mats, Laugavegi 178, Reykjavik Nýja Myndastofan, Laugavegi 18. Reykjavik Stúdió Guðmundar, Einholti 2, Reykjavik Ljósmyndastofa Ólafs Árnasonar, Akranesi Ljósmyndastofa Stefáns Pedersen, Sauðárkróki Ljósmyndastofa Páls, Akureyri Ljósmyndastofan Norðurmynd. Akureyri Ljósmyndastofa Péturs. Húsavik Vilberg Guðnason Ijósmyndari, Eskifirði Héraðsmyndir Ljósmyndastofa, Egilsstöðum Ljósmyndastofa Suðurlands, Selfossi Ljósmyndastofa Suðurnesja, Keflavlk Ljósmynd er varanleg minning I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.