Morgunblaðið - 14.02.1982, Síða 16
04 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. FEBRÚAR 1982
Þætti í flugsögunni
lauk með lokun Lakers
í MSIR urrtu lil þess að finna til með Sir Freddy
l.aker þegar hann tilkynnti í síðustu viku að
Lakerflugfélagið væri gjaldþrota, því hann naut
aðdáunar fyrir að hafa sagt illa þokkaðri sam-
steypu flugfélaga á ríkisframlagi, IATA, stríð á
hendur 197(5. Sir Freddy náði strax undirtökunum
í samkeppni við samsteypuna og ýmis risaflugfélög
uni farþega á flugleiðinni yfir Atlantshaf, og hélt
þeim í fimm ár, en lengi vel flaug þetta litla
flugfélag fjórða hvcrjum farþega milli London og
New Vork. I>etta tókst Laker án framlags og rfkis-
styrkja, og þrátt fyrir andstöðu stjórnar Verka-
mannaflokksins, sem var við völd í Bretlandi, þeg-
ar hann hleypti „Fluglestinni" af stað. Sir Freddy
var hetja í sínu hcimalandi og átrúnaðargoð þús-
unda sem hann gerði klcift á einni nóttu að ferð-
ast yfir Atlantshafið. Vart hafði gjaldþrotayfirlýs-
ingin verið gcfin áður en sérfræðingar spáðu allt
að .'{<) prósent hækkunum á fargjöldum yfir Atl-
antshaf á þessu ári, þar af 15 prósent í byrjun
marz, en nú kann að verða einhver breyting þar á,
því Sir Freddy hefur stofnað „Flugfélag fólksins"
ásamt kunnum brczkum auðkýfingi. Flugfélagið
nýja mun byggja á sama grunni og Laker-flugfé-
lagið, og verða ódýrar ferðir yfir Atlantshafið að-
alsmerki þess. Kn hvað var það sem olli falli
Lakerflugfélagsins?
Brezk blöð héldu því fram há-
stöfum að Laker hafi verið
þröngvað til gjaldþrota. Þau
gengu það langt að segja það hafa
verið samantekin ráð IATA og
ríkisstjórna þeirra landa sem að
samtökunum standa, að þröngva
Laker til gjaldþrots. Aðferðin var
í því fólgin að neita Laker um leyfi
til að fljúga til nýrra staða, sem
hann þurfti á að halda til að nýta
allan þann flugkost sem hann
hafði komið sér upp. Það var
ásetningur Sir Freddy að „Flug-
lestin“ næði kringum jörðina, og
hann reyndi mikið til þess að kom-
ast inn á Evrópumarkaðinn, sem
er mjög verndaður.
Það var í júní 1979 að Sir
Freddy sótti um leyfi til áætlunar-
flugs til 35 borga í Evrópu og
hermt var að hann hyggðist bjóða
upp á fargjöld sem yrðu helmingi
lægri en fargjöld annarra flugfé-
laga, rétt eins og í fluginu yfir
Atlantshaf. Níu mánuðum seinna
hafnaði brezka flugmálastjórnin
(CAA) umsókn hans og tók þá
strax að síga á ógæfuhliðina hjá
Laker. Áframhaldandi tilraunir af
hálfu Lakers til að komast inn á
Evrópumarkaðinn báru lítinn sem
engan árangur, og að því kom í
ágúst sl. að Sir Freddy spurði
sjálfan sig að því hvort hann ætti
að leggja upp laupana í rólegheit-
um, eða halda áfram. Hann ákvað
að gefast ekki upp, heldur berjast
til þrautar.
Þótt Sir Freddy gæfist ekki upp,
þá vantaði hann farþega til að
fylla allar þær spánnýju flugvélar,
Þegar gjaldþrotum Lakerflugfélags-
ins var lýst, var þotum félagsins snú-
ið til Bretlands. Hér er hópur Lak-
erflugvéla á Gatwick-flugvelli en
þar voru flestar flugvélarnar kyrr
settar. Stjórn flugvallarins lagði lög-
hald á eina DtMO vegna ógreiddra
lendingargjalda.
Airbus og DC-10, sem hann hafði
fest kaup á, m.a. í þeirri von að
komast inn á Evrópumarkaðinn.
Að auki fækkaði farþegum í áætl-
unarflugi um 2,5 prósent 1981
miðað við 1980, en árið 1980 hafði
þeim fækkað um eitt prósent frá
1979. Tap ríkisstyrktu flugfélag-
anna árið 1981 nam 500 milljónum
sterlingspunda og eru þá ekki
taldar með afborganir þeirra af
skuldum sem einnig námu öðrum
500 milljónum punda. Samkvæmt
útreikningum í október kom í ljós
að sætanýtingin hjá flugfélögun-
um á Atlantshafsflugleiðinni var
ekki meiri en svo að öll tómu sæt-
in samsvöruðu því að 56 tómar
Júmbó-þotur flygju frá Evrópu til
Bandaríkjanna á degi hverjum.
Þegar „Fluglest" Lakers byrjaði
að flytja farþega yfir Atlantshafið
áttu þúsundir manna allt í einu
kost á því að ferðast til Bandaríkj-
anna, fólk sem ekki hafði getað
látið sig dreyma um ferðalag af
því tagi áður. En með tíð og tíma
svöruðu önnur flugfélög Laker
með því að lækka fargjöld sín, og
þurfti Sir Freddy því að snúa sér á
önnur mið til að halda rekstrinum
gangandi, Evrópumarkaðnum, en
honum var meinaður aðgangur að
honum. Kreppan í flugrekstrinum
kom einnig niður á Laker, og á
síðasta sumri sáust þess merki að
félagið ætti í gífurlegum erfiðleik-
um. Og í nóvember sl. reið Pan
American á vaðið og kynnti ný
fargjöld, sem voru fyllilega sam-
bærileg fargjöldum Lakers. Önnur
flugfélög fylgdu Pan Am eftir, og
Laker-flugfélagið hafði ekkert
umfram önnur flugfélög að bjóða.
Það skipti ekki lengur máli með
hverjum var flogið, kjörin voru
þau sömu.
Þessi aukna samkeppni kom á
versta tíma fyrir Laker. Hann átti
í erfiðleikum með að borga af
skuldum sem hann hafði safnað
þegar hann festi kaup á átta nýj-
um flugvélum 1979 og 1980. Hann
Útgerðarmenn
skipstjórar 2H^jj^HC
Þorskanet (kraftaverkanet)
Nr. 15 (1,5x10) 32 md. 71/4“ Kr. 355,00
Nr. 15 (1,0x15) 32 md. 71/4“ Kr. 370,00
Blýteinar
18 mm. Staple fiber 60 fm 42 kg. Kr. 1150,00
Færaefni
18 mm. P.E. 120 fm. Kr. 950,00
MARCO h>
Sími 13480 — 15953.
DULARFULL
HÖND
KNÝR DYRA
SPADOMAR RÆTAST
BENGT L/LLAS
FLYTUR FYRILESTUR
í AÐVENTKIRKJUNNI
i dag
SUNNUDAG KL. 17.00
EINNIG Á SELFOSSI KL. 20.30.
GRASHAGA 11
W