Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
Viðskiptahallinn 1.008
milljónir króna í fyrra
Hefur ekki verið meiri frá árinu 1975
VIÐSKIPTAJÖFNUÐUR íslend-
injja var neikva-dur um 1.008 millj-
ónir króna á síóasta ári, samkvæmt
bráóal)ir)jóayfirliti Seðlabanka ís-
lands um þróun greióslujafnaóar og
l'jaldeyrisstöóu á árinu 1981. Mióaó
við þjóðarframleióslu er vióskipta-
hallinn nú áa-tlaóur nálægt 5%, en
var 2,5% árið 1980. Reyndar er þetta
mesti viðskiptahalli frá árinu 1975,
þegar hann var um I \,\% mióaó vió
þjóóarframleiðslu.
Verðmæti heildarútflutnings
jókst um sem næst 6,8% á síðasta
ári, en heildarverðmætið var 6.536
Samninííavidræður Arn-
arflujjs og Isc-arjjó:
Lokatilraun
eftir helgina
MIKLAK samningavióræóur hafa
staóió yfir undanfarna daga »K
vikur milli forsvarsmanna Arnar
flugs og ísrargó, þar sem rætt hef-
ur verið um hugsanleg kaup Arn
arflugs á eignum ísrargó, en hins
vegar hefur ekki náóst samkomu-
lag ennþá. Gert er ráó fyrir, aó
lokatilraun til aó ná samkomulagi
verði gcrð eftir helgina.
Ef samningar takast með fé-
lögunum mun Iscargó væntan-
lega afsala sér áætlunarflugs-
réttindum sínum til Hollands,
en forsvarsmenn Arnarflugs
hafa lagt mikla áherzlu á, að fá
þau leyfi til viðbótar þeim áætl-
unarleyfum, sem félagið fékk í
vikunni til Dússeldorf í Vestur-
Þýzkalandi og Zúrich í Sviss.
Steingrímur Hermannsson,
samgónguráðherra, sagði í sam-
tali við Mbl., að hann hefði enn
enga ákvörðun tekið um það,
hvort hann myndi veita Arnar-
flugi leyfi til að fljúga til Amst-
erdam í Hollandi, ef íscargó
myndi skila því leyfi og hætta
rekstri. — Ég vil byrja á því, að
sjá félögin ná samkomulagi sín
á milli. Fyrr get ég ekkert sagt
um málið, sagði Steingrímur
Hermannsson ennfremur.
milljónir króna, samanborið við
6.118 milljónir króna á árinu 1980
og er þá reiknað á sambærilegu
gengi, samkvæmt vísitölu meðal-
gengis. Hins vegar varð um 9,8%
verðmætaaukning á öðrum út-
flutningi en áli og kísiljárni, en
verðmæti hans á síðasta ári var
5.779 milljónir króna, samanborið
við 5.264 milljónir árið 1980.
Heildarinnflutningur lands-
manna jókst um 13,8% á síðasta
ári, en heildarverðmæti hans var
6.732 milljónir króna, samanborið
við 5.915 milljónir króna á árinu
1980, þar af dróst innflutningur á
skipum og flugvélum saman um
0,6% á árinu, en heildarverðmæti
þess innflutnings var um 334
milljónir, samanborið við 336
milljónir króna árið 1980. Al-
mennur innflutningur jókst því
um 14,2% á árinu, en heildarverð-
mæti hans var 5.712 milljónir
króna, samanborið við 5.002 millj-
ónir króna á árinu 1980.
Vöruskiptajöfnuðurinn var
neikvæður um 196 milljónir króna
á síðasta ári, en hann var hag-
stæður um 203 milljónir á árinu
1980. Þá var þjónustujöfnuður
neikvæður um 812 milljónir króna,
samanborið við 639 milljónir
króna í mínus á árinu 1980. Þá var
viðskiptajöfnuður neikvæður um
1.008 milljónir króna eins og áður
sagði, en hann var neikvæður um
436 milljónir árið 1980.
Það skal tekið fram, að verð-
mæti útflutnings og innflutnings
er hvort tveggja reiknað á FOB-
verði.
Alls er talið að innkomin erlend
löng lán hafi numið 1.700 milljón-
um króna og afborganir 640 millj-
ónum króna, þannig að nettóaukn-
ing langra lána hafi numið 1.060
milljónum króna á meðalvið-
skiptagengi ársins, á móti 950
milljónum króna árið 1980 reiknað
á sama gengi.
Auk framangreindra langra er-
lendra lána námu lántökur í formi
skammtímalána 167 milljónum
króna, sem breytt verður síðar í
langtímalán.
Mynd: KÖK.
Kjarvalsverkið sem var í eigu þýska greifans
Kjarvalsmálverk þýsks
greifa á uppboði hér
„ANNAÐ þessara málverka er frá
Þingvöllum um 1930 og hitt er ein-
hvers staðar austan af landi, líkast
til frá llornafirði," sagði Guð-
mundur Axelsson, listmunasali í
Klausturhólum, er Morgunblaðið
innti hann eftir tveimur Kjarv-
aismálverkum, sem boðin verða
upp á listmunauppboði á mánudag.
Að sögn Guðmundar keypti
hann málverkin í Kaupmanna-
höfn. Annað þeirra á sér dálítið
sérstaka sögu. Var það í eign
þýsks greifa, sem síðan var eltur
af Gestapo. Segir aftan á mynd-
inni að afhenda beri honum mál-
verkið er stríðinu lýkur.
Ekki vissi Guðmundur ná-
kvæmlega hversu mörg númer
yrðu boðin upp á mánudag, en
taldi þau líklegast verða í kring-
um 70. Taldi hann að kaupendur
að Kjarvalsmálverkunum myndi
vart skorta. Hins vegar myndi
kaupverðið ráðast mjög af því
hvaða aðilar mættu á uppboðið.
Rætt um stjórnkerfi:
Harðar deilur vinstri
manna í borgarstjórn
IIAKDAR deilur urðu á millí fulltrúa
vinstri meirihlutaflokkanna í borgar
stjórn Reykjavíkur á fundi hennar
fimmtudaginn 4. rnars, þegar til um
ra-ðu voru hugmyndir um brcytingar á
stjórnkerfi borgarinnar og störf svo-
kallaðrar stjórnkerfisnefndar, sem
lögð var niður 1. mars sl. Deildu vinstri
menn jafnt um efni tillagna sem störf
nefndarinnar og lyktirnar á starfi
hennar.
Adda Ilára Sigfúsdóttir, Alþýðu-
bandalagi, sagði, að Alþýðuflokkur-
inn hefði týnst í þokubakka og
menningartengsl við hann slitnað.
Eiríkur Tómasson, Framsóknar-
flokki, formaður stjórnkerfisnefnd-
ar, sagðist hafa lagt nefndina niður,
þegar ítrekað reyndist ófært að ná
fulltrúa Alþýðuflokksins á fund í
henni. Sigurður E. Guðmundsson,
Alþýðuflokki, sagði að Framsóknar-
flokkurinn hefði fyrirvaralaust og af
tilefnislausu lagt niður nefndina og
notið til þess stuðnings Alþýðu-
bandalagsins. Adda Bára tók undir
þau orð Eiríks, að fulltrúi Alþýðu-
flokksins, Sjöfn Sigurbjörnsdóttir,
hefði aldrei getað sótt fundi. Sjöfn
sagðist muna tvö skipti, þar sem
Frá afhendingu heiðurslauna Brunabótafélags íslands í gær, alþjóðlegu meistararnir eru frá vinstri: Jón L.
Árnason, Haukur Angantýsson, Helgi Ólafsson og Margeir Pétursson. (Ljósm. RAX).
Skákmenn fá heiðurslaun
I GÆK efndu forráðamenn Kruna-
bótafélags Islands til blaðamanna-
fundar í því skyni að veita skák-
mönnunum Hauki Angantýssyni,
Helga Olafssyni, Jóni L. Árnasyni
og Margeiri Péturssyni heiðurs-
laun félagsins á árinu 1982.
Launaveiting þessi siglir í
kjölfar samþykktar stjórnar BÍ
um að minnast 65 ára afmælis
félagsins með því að stofna svo-
kallað stöðugildi, sem ráðið er í
samkvæmt ákveðnum reglum.
Megintilgangur þessa stöðugild-
is er sá að gefa einstaklingum
kost á að sinna sérstökum verk-
efnum á sviði lista, vísinda,
menningar, íþrótta eða atvinnu-
lífs. Þó koma þau verkefni ein til
greina sem kostuð eru af ein-
staklingi sjálfum.
Að þessu sinni var ekki ráð-
rúm til umsókna um heiðurslaun
BÍ árið 1982, en í reglum um
heiðurslaun þessi er þess getið
að stjórn BÍ velji þann einstakl-
ing, sem þau hlýtur, eftir um-
sóknum samkvæmt auglýsingu.
Ákvað því stjórnin að veita áð-
urnefndum skákmönnum heið-
urslaunin á þessu ári, hverjum 3
mánuði í senn. Eru þau veitt til
að auðvelda þeim þátttöku í
skákmótum erlendis, en undir
þeim kostnaði verða þeir að
standa sjálfir.
í ræðu Inga R. Helgasonar,
forstjóra BÍ, kom m.a. fram að
fordæmi væru fyrir styrkveit-
ingu sem þessari, þar sem
Tryggingamiðstöðin hefði á stór-
afmæli sínu látið fé af hendi
rakna til styrktar Slysavarnafé-
lagsins fyrir nokkrum árum.
Stjórn BÍ vildi þó fara aðra leið
og var því komist að samkomu-
lagi um áðurnefnt stöðugildi.
Ennfremur sagði Ingi að líta
mætti á launaveitinguna þessum
fjórum skákmönnum til handa,
sem allir hafa unnið til alþjóð-
legs meistaratitils í skák, sem
viðurkenningu á störfum þeirra
á sviði skáklistar og jafnframt
hvatningu til enn frekari afreka
í framtíðinni.
Það kom fram á fundinum að
umsóknir um heiðurslaun skulu
hafa borist stjórn BÍ fyrir 1. ökt.
hvert ár. í umsókn skal gerð
grein fyrir viðfangsefni því er
umsækjandi hyggst sinna. Auk
þess ber umsækjanda að veita
aðrar þær upplýsingar sem
stjórn BI telur nauðsynlegar.
ekki var fundarfært vegna fjarveru
Öddu Báru. Sigurður E. Guðmunds-
son taldi framkomu framsóknar-
manna í þessu máli „eitt alvarleg-
asta brot á meirihlutasamstarfinu
til þessa“.
Þegar viðfangsefni stjórnkerfis-
nefndar voru rædd kom einnig fram
ágreiningur milli vinstri flokkanna.
Sjöfn Sigurbjörnsdóttir sagði tillög-
ur Alþýðubandalagsins miða að því
Flateyri:
Húsmæður
mótmæla
mjólkurleysi
MORGUNBLADINU hefiir borist und
irskriftalisti frá um 100 húsmæðrum á
Flateyri, þar sem þær krefjast úrlausn-
ar á því ófremdarástandi sem ríki í
mjólkurmálum á staðnum.
Segir þar að síðastliðnar vikur
hafi mjólk og mjólkurafurðir ekki
komið nema með 6—7 daga millibili
og dagstimpill mjólkurinnar aldrei
verið nema tvo daga fram í tímann.
Þar að auki hefur magnið verið það
lítið að mjólkin selst upp um leið og
hún kemur.
Að lokum benda þær á að sjaldan
hafi jafn mörg börn verið á Flateyri
og núna, og því augljós nauðsyn þess
að mjólk og mjólkurafurðir standi
þeim til boða.
að „treysta völd flokkseigenda og
flokksrekenda", á Norðurlöndum
væri talið, að kerfi eins og Alþýðu-
bandalagið vill héldi „klíkum og ætt-
um við völd jafnvel í meira en 100 ár
í einum bæ, sem ég hef heyrt um“,
sagði Sjöfn. Eiríkur Tómasson sagði,
að tillögur Alþýðubandalagsins mið-
uðu að því, að borgarstjórar yrðu 7 í
Reykjavík. Hann kallaði tillögu
Sjafnar Sigurbjörnsdóttur um skóla-
ráð við alla grunnskóla borgarinnar
„endemis tillögu".
I lok þessara umræðna var greitt
atkvæði um það, hvort vísa ætti til-
lögum þeim, sem fram komu í
stjórnkerfisnefnd, til afgreiðslu
þeirrar borgarstjórnar, sem kjörin
verður í maí nk. Sjöfn Sigurbjörns-
dóttir flutti tillögu um þetta efni í
borgarráði og naut hún þar stuðn-
ings sjálfstæðismanna. Borgarstjórn
staðfesti samþykkt borgarráðs með
9 atkvæðum sjálfstæðismanna og al-
þýðuflokksmanna gegn'6 atkvæðum
alþýðubandalagsmanna og fram-
sóknarmanna.
Fjórir þættir
um Emile Zola
í STAÐ sænsku framhaldsþáttanna,
sem sjónvarpið lauk sýningum á síð-
asta miðvikudag, koma fjórir þættir
um franska rithöfundinn Emile Zola
næstu miðvikudaga. Að sögn Tage
Ammendrup er hver þessara þátta
90 mínútna langur og greina þeir á
sannsögulegan hátt frá lífi og starfi
rithöfundarins.
Sameiginlegt próf-
kjör í Kópavogi
SAMEIGINLEGT prófkjör stjórn-
málafiokkanna í Kópavogi vegna
sveitarstjórnarkosninganna fer fram
í dag. Kosið verður í einni kjördeild
í Kársnesskóla og tveimur kjördeild-
um í Víghólaskóla.
Kosið verður aðeins þennan eina
dag og er kjörfundur opinn frá
klukkan 10 til klukkan 22. Kosn-
ingarétt hafa allir bæjarbúar, sem
verða 18 ára á þessu ári og eldri.