Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 9

Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982 9 Umsjónarmaður Gísli Jónsson______________137. þáttur í síðasta þætti var efnið þess eðlis, hversu rita skyldi um vísindi á íslensku, þannig að læsilegt og skiljanlegt yrði al- menningi. Vandinn er að vísu mjög mismikill eftir vísinda- greinum og aldri þeirra. Tunga okkar hefur verið tamin við sumar þeirra, önnur ekki. Ég skildi, að orð er á íslandi til um allt, sem er hugsað á jörðu, kvað Einar Benediktsson í upphafi Voga 1921. Þetta er því miður mjög ofmælt. Frá fornu fari hafa menn glímt við vísindin á tungu okkar og allt- af hefur þurft að búa til nýyrði eða gæða gömul orð nýrri merkingu. Þessa viðleitni má að sjálfsögðu aldrei láta ofan falla, en stofnanaíslenskan og vísindaíslenskan, sem nú má oft sjá fremur en heyra, er því miður tiðum slík að ekki verð- ur við unað. Latína er ekki mikið vandamál lengur, og minnast má þess að flest málfræðiheiti í íslensku voru á sínum tíma nær því beinar þýðingar úr latínu. Um sumt hafa betri heiti verið fundin, en önnur hefur tímans tönn ekki unnið, enda má þá vel við una. Gamlir fræðimenn, sem kunnu sína latínu, eins og Ari fróði, gerðu sér hins vegar ljóst, að skrifa ber á íslensku handa íslendingum. Þótti snillingnum Snorra Sturlusyni hans sögn öll merkilegust. Jón Arason, biskup í kaþ- ólskum sið, hefur vafalaust kunnað meira í latínu en hann lætur í veðri vaka í frægri vísu, en honum þótti að vísu meira skipta hvernig farið væri með móðurmálið (móður- lands málfar): Látína er list mæt, lögsnar Böðvar, í hcnni eg kann ei par, Höðvar. Þætti mér þó rétt þitt svar, Böðvar, míns ef væri móðurlands málfar, Böðvar. Þó latína sé ofnotuð í grein Ljósmæðrablaðsins, þeirri sem N.N. vitnaði til, verður hún ekki skaðvaldur móðurmálsins okkar nú á dögum, enda verið að rýma burtu síðustu leifum hennar úr nokkrum skólum. Allt um það hljótum við að fylgja hreintungustefnu svo sem kostur er. Hættan, sem að okkur steðjar nú, er að mínu viti mest fólgin í lymskum áhrifum úr ensku varðandi orðaröð, áherslur, hrynjandi og tón. Ber því enn að sama brunni og fyrr. Ég held að auka þurfi til muna framburð- ar- og talkennslu í skólum. En ljúkum nú þessum lat- ínuþönkum með lærdómsvís- um eftir Örn Snorrason, þegar enn þótti eftirsóknarvert að kunna sína latínu í skóla. Lat- ínuvísur hestamannsins: Ég hneigi mig og heilsa heilum meraflokk. Taktu í taglið! His, hunc, huius, huic, hoc. Jónki tekur Jarp gamla, ég ríð á Blakk. Afram meri! Haec, hanc, huius, huic, hac. Hsttu að ausa helvískur, hundskastu á brokk! Hott, hott, hoc, hoc, huius, huic, hoc. Kristinn Reyr í Reykjavík sendi mér bréf vegna vísunnar um fuglinn sem flaug „með fjöður á sér“. Ég hafði í bernsku litlar mætur á gát- unni sem svo hljóðaði: Fuglinn flaug fjaðralaus, settist á vegginn beinlaus. Þá kom maðurinn handalaus og skaut fuglinn bogalaus. Þessi þvæla átti að þýða það, að þeyvindur bræddi snjókorn á bæjarvegg. Ég taldi mig því hafa fengið nokkurs konar hefnd, þegar ég heyrði þessa nútímalegu útgáfu af fuglsvís- unni: Fuglinn flaug með fjöður á sér, settist á vegginn á rassinn á sér. Þá kom maður með byssu á sér og skaut fuglinn í nefið á sér. Ég þóttist vita hver höfund- urinn væri, frændi minn ágæt- ur, en Kristinn Reyr kann vís- una svolítið öðruvísi, og frændinn, sem ég hélt að væri höfundur, sver hana með öllu af sér. Ég get því hvorki sagt Kristni Reyr né nokkrum öðr- um lesendum hver höfundur- inn er. En sé hann á lífi og lesi þetta, þætti mér vænt um ef hann gæfi sig fram við mig. Ég ætla til breytingar að láta hér á prent nokkrar af vísnagátum Arnar Snorrason- ar (Aquilae), en hirði ekki í bili að segja hver ráðningin er. Nokkur þjálfun má það vera að spreyta sig á slíkum orðagát- um: 1. Á Fróni jafnan Tylgja þessu feikn oj? brestir. En unglingar þad elska nestir. 2. Skoppar frár á akaris og í skógarhindum IIm hann gripiÓ jmmm mundum. Upp ad bonum dregid stundum. 3. liún er prýði sumra aeggj*. Sum er Ijós og ðnnur dökk. Mjög rar langt á milli tveggja, þá maður kunnur jfir stökk. 4. Hún er margoft nefnd á nafn um nætur glaðar. Er við Hkírn nær til staðar. ógnarekafla til sín laðar. 5. Þjkir misgott þetta að fá. Af því befur margur veikur orðið. Bæði gaman og illt við á. Afleitt að verða það við borðið. Lítil eru takmörk þess sem heyra má og sjá í fjölmiðlum og opinberum plöggum um þessar mundir. I sjálfu Sjón- varpinu var sagt 1 upphafi þessa árs: „Þá verða sagt frétt- ir“; sem sagt steingeld þol- mynd eins og í bjálfalegasta barnamáli, en í skýrslu frá Selfossi mátti lesa þær merki- legu fréttir, að þar væru hund- ar ekki fjölmennir. Við skulum vona að svo slysalega takist aldrei til. Fyrirlestur um Alpajökla og öldurbrjóta GUTTORMUR Sigbjarnarson heldur fyrirlcstur á vegum Land- fræðifélagsins á miðvikudaginn um alpajökla og öldubrjóta. Fjallar erindi Guttorms um þá kenningu að verulegur hluti strandsvæða íslands hafi einvörð- ungu verið þakinn alpafjöllum jök- ulskeiðum kvartertímans. Sam- kvæmt þessu eigi sjávarrof á hlý- skeiðum verulcgan þátt í landmótun strandsvæða. Sé kenning þessi á rökum reist má ætla að jökulþykkt á undangengnum jökulskeiðum hafi verið mun minni um allt land en ýmsir fræðimcnn hafa gert ráð fyrir. Kcnning þessi er reist á mati á stór um landformum og smærri veðrun- arformum. Andmælandi á fundinum verður Kggert Lárusson. Er það í fyrsta skipti sem andmælandi er fenginn á fundi Landfræðifélagsins. Fyrirlesturinn hefst kl. 20.30 i stofu 201 í Árnagarði. Þess má geta að erindið vcrður það síðasta á veg- um Landfræðifélagsins á þcssum vetri. Hafnarfjörður — Norðurbær Nýkomiö til sölu falleg um 100 fm 3ja—4ra herb. íbúð á 1. hæð við Suðurvang. Sór þvottahús og búr innaf eldhúsi. Stórar svalir. Árni Gunnlaugsson hrl., Austurgötu 10, Hafnarfiröi, sími 50764. 83000 3ja herb. við Skeggjagötu Vönduð og falleg íbúð á 1. hæö. Afhendist við samning. FASTEICIMAÚRVALIÐ SÍMI83000 Silfurteigi 1 Sötustjóri: Auöunn Hermannsson, Kristján Eiríksson haastaréttarlögmaður ÞMM tgnasala — Banka 29455 Fatteignasala — Bankastræti 3 línur OPIÐ I DAG EINSTAKLINGSÍBÚÐIR Þingholtsstræti. Verö 300 þús. Súluhólar. Verð 350—400 þús. Skipholt. Utb. 170 þús. Austurbrún. Verö 550 þús. 2JA HERB. ÍBÚÐIR Spóahólar. Útb. 400 þús. Furugrund. Útb. 400 þús. 3JA HERB. ÍBÚÐIR Vesturgata. Útb. 400 þús. Laugarnesvegur. Verö 580 þús. Stýrimannastígur. Ca. 80 fm hæð. Gætl losnað fljótlega. Sléttahraun. Verð 820 þús. Kríuhólar. Útb. 490 þús. Mosgeröi. Verð 580 þús. Suðurgata. Útb. 470 þús. Hófgerði. 75 fm ibúö í kjallara. Kaldakínn. Risíbúö. Verö 610 þús. Spóahólar. Verö 560 þús. Bjargarstigur. Ca. 70 fm íbúö á jarðhæð. Verð 640 þús. 4RA HERB. ÍBÚÐIR Miöbraut. 118 fm auk 40 fm bil skúrs. Fifusel. Rúmgóð íbúö á 1. hæö Utb. 650 þús. Dalaland. 110 fm ibúö á 1 hæð, eingöngu skipti á 3ja herb. Melabraut. Útb. 640 þús. Víöihvammur Hf. Bein sala. Kópavogsbraut. Utb. 690 þús. Fannborg. Glæsileg 110 fm íbúð á 2. hæð. Útb. 670 þús. EINBÝLISHÚS Víöilundur. 140 fm á einni hæð + 40 fm bílskúr. ( skiptum fyri sér hæð á Seltjarnarnesi. Hryggjarsel. 305 fm raðhús auk 54 fm bílskúrs. Fokhelt. Verö 950 þús. Tjarnarstígur. Hús á tveimu hæðum. Tvær íbúðir. Suðurgata Hf.Timburhús hæð og ris, alls ca. 50—60 fm. Rauðilækur. 150 fm sér hæð með bílskúr t.b. undir tréverk Afhending í haust. Miðbraut. 120 fm einbýlishús þarfnast standsetn. 1030 fm eignarlóð. Kambsvegur. 200 fm verslun arhúsnæöl. Stekkir. Glæsilegt einbýlishú 186 fm. Hæð og 60 fm á jarð hæð. 5 herb., útsýni. Verð 2.100.000. Jóhann Davíðsson, sölustjóri. Sveinn Rúnarsson. Friörik Stetánsson, viöskiptafr. Tónleikar í Norræna húsinu I NORRÆNA húsinu þriðjudaginn 9. marz kl. 20.30 leikur Cluster Kn- semble frá Finnlandi nútímaverk eftir Usk Meriláinen, Miklós Maros, Kalevi Aho, Erik Bergman auk bar októnlistar eftir Jean Baptiste Ixieillet (d. 1728). Cluster Ensemble skipa fjórir hljóðfæraleikarar, Mikael Hel- asvuo, flauta, Pekka Svaijoki, saxófónn, Jukka Savijoki, gítar og Pauli Hámáláinen, siaghljóðfæri. Kvartettinn hefur starfað síðan 1979. Mörg finnsk og önnur norræn tónskáld, m.a. Atli Heimir Sveinsson hafa samið verk fyrir hópinn. Vísnavinir í Þjóðleikhús- kjallaranum VÍSNAVINIR halda vísnakvöld í Þjóðleikhúskjallaranum mánudag- inn 8. marz kl. 20.15. Þar koma fram meðal annara: Helga Möller ásamt Eyjólfi Kristjánssyni, Einar Ein- arsson, gítarleikari, Þórarinn Eld- járn les úr eigin verkum og Blásara- kvintettinn kemur í heimsókn. usaval FLÓKAGÖTU 1 SÍMI24647 Stigahlíð 6 herb. rúmgóð endaibúð á 4. hæð. 4 svefnherb., svalir. Stórt geymsluloft yfir íbúðinni. Bólstaðarhlíð 5 herb. rúmgóð og falleg íbúö á 3. hæð í suöurenda. Tvennar svalir. Bilskúrsréttur. 2ja herb. íbúð Hef kaupanda að 2ja herb. íbúð sem næst miðbænum. Helgi Ólafsson Löggiltur (astaignasali. Kvöldsímí 21155. HÚSEIGNIN Simi 28511 m Opiö í dag 2JA HERB. ÍBÚÐIR Dvergabakki 70 fm. Stór geymsla í kjallara. Verð 600 þús. Barónsstígur vönduö íbúö, 50 fm. Verð 600 þús. Eiríksgata kjallaraíbúð. Verö 230 þús. Flyðrugrandi 67 fm jarðhæð. Verð 700 þús. Hraunbær 65 fm ibúð. Verð 550 þús. Hraunbær 55 fm íbúð. Verð 500 þús. Nýbýlavegur með bílskúr. Reynimelur 60 fm góð íbúð. Verö 650 þús. Þingholtsstræti 35—40 fm. Verð 330 þús. 3JA HERB. ÍBÚÐIR Mosgerði 65 fm. Verð 580 þús. Asparfell 90 fm íbúð. Verð 700 þús. Bjargarstígur í tvíbýli, 70 fm íbúð. Verð 650 þús. Grettísgata 80 fm íbúð. Verö 650 þús. Hátröð stór lóð. Bilskúr. Verð 800 þús. Hófgerði ósamþykkt 75 fm íbúð. Verð 590 þús. Hringbraut Hl. miöhæð. Bil- skúrsréttur. Verð 750 þús. Langabrekka m. bílskursrétti. Orrahólar 90 fm. Verð 750 þús. Þórsgata T.b. undir tréverk. Bílskýli. 4RA HERB. ÍBÚÐIR Hverfisgata 90 fm. Verð 600 þús. Seljavegur ný uppgerö ibúö. Verð 800 þús. Skólavörðustígur góö ibúð. Verð 830 þús. Vesturberg 110 fm. Verð 800 þús. Æsufell endaibuö, bilskýli. 115 fm. Vitastígur 5 herb. ibúð. Verð 700 þús. Sérhæð við Sörlaskjól 97 fm. Fokhelt raöhús viö Hálsasel. Verð 850 þús. Húseignin Pétur Gunnlaugsson lögfr., Skólavöröustíg 18, 2. hæð. Simar 28511, 28040 28370. Sverrir Friöriksson, Guðni Stefánsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.