Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
„Gengið í smidju“
Laugardaginn 6. mars verður opnuð sýning í Listmunahúsinu, Lækj-
argötu 2.
Sýning þessi sem heitir „Gengið í smiðju" gefur örlitla innsýn í
tómsmíðar gullsmiða hér á landi. Ætlunin er einnig að koma fyrir
í einum salnum vinnuborði og skiptast gullsmiðir á um að sitja þar
við vinnu sína fyrir framan sýningargesti.
Hlutir þeir sem þarna eru sýndir eru almennt ekki til sölu í
verslunum gullsmiðanna og gefst því fólki gott tækifæri til að
eignast myndverk og sérsmíðar sem ekki eru almennt á boðstólum.
Öll verkin eru til sölu og er verð verkanna æði misjafnt, allt frá
krónum 2.000 — til rúmlega 200.000.-.
Verkin eru unnin í hin ólíkustu efni, svo sem gull, silfur, eir,
látún, járn, gips og fleira.
Þarna er um að ræða lágmyndir, skúlptúra, skartgripi og borð-
búnað.
22 gullsmiðir taka þátt í samsýningunni.
Sýningin stendur til 28. mars og er opin virka daga frá kl.
10.00—18.00, laugardaga og sunnudaga frá kl. 14.00—22.00. Lokað á
mánudögum.
>
Stuðningsmenn
Sjálfstæðis-
flokksins
í Kópavogi
í dag laugardaginn 6. marz fer fram prófkjör Sjálf-
stæöisflokksins í Kópavogi.
Kosiö er í Víghólaskóla og Kársnesskóla frá 9—22.
Viö hvetjum stuöningsmenn okkar til aö kjósa
snemma og á þann hátt auövelda allt starf á kjör-
stööum.
Veröi þátttaka yfir 50% af kjörfylgi flokksins 1978,
verður kosning þeirra sem fá yfir 50% atkvæöa bind-
andi.
Góö kosning sjálfstæðismanna er okkar markmið.
Frambjóðendur Sjálfstæðisflokksins.
^mmmmmi^^^^mmmmmmm^^mmmm^mmmm^^^^
Rétt fæðuval:
Fitan og
æðakerfið
Dr. Jón Úttar
Ragnarsson dósent
Hver gæti trúað því að
óreyndu að jafn sakleysisleg
fæða og fita geti haft eins
afdrifaríkar afleiðingar fyrir líf
manns og heilsu eins og raun ber
vitni?
íslendingar af eldri kynslóð
eiga sérlega erfitt með að trúa
nokkru misjöfnu um fituna. Hélt
hún ekki lífinu í þjóðinni? Voru
íslendingar ekki jafnvel upp-
nefndir mörlandar í Noregi?
Staðreyndin er sú að flestir
karlmenn og þær konur sem vinna
erilsöm störf verða að vara sig á
fitunni svo ekki sé talað um ef
blóðfita eða blóðþrýstingur er í
hærra lagi eða viðkomandi reykir.
Þrátt fyrir alla þá umræðu
sem átt hefur sér stað um þetta
efni virðist enn mjög algengt að
fólk viti ekki hve brýnt það er að
halda fituneyslunni í hófi og
borða auk þess rétta fitu.
í stuttu máli skiptir mestu að
draga úr fituneyslunni, sérstaklega
neyslu á harðfeiti. Jafnframt er
æskilegt að auka nokkuð neyslu á
mjúkri eða fljótandi fitu.
í svo stuttri grein sem hér um
ræðir gefst aðeins tími til að
drepa á fáein atriði er snerta
fitu og heilsufar og að leiðrétta
algengustu bábiljurnar á þessu
sviði.
Æðakölkun
Hjarta- og æðasjúkdómar eru nú
algengastir allra hrörnunarsjúk-
dóma á Vesturlöndum og á það
sérstaklega við um karlmenn.
Hafa Íslendingar ekki farið var
hluta af þessari þróun.
Margir deyja nú úr þessum
sjúkdómum á besta aldri, oft án
þess að sjúkdómurinn hafi gert
teljandi boð á undan sér. Er því
mikið í húfi ef tekst að draga úr
tíðni þessara sjúkdóma.
Oftast eiga þessir sjúkdómar
rætur að rekja til æðakölkunar
sem lýsir sér í því að fita safnast
saman innan á æðaveggjunum
svo æðarnar þrengjast smátt og
smátt.
Ef æðarnar við hjartað
(kransæðar) lokast skyndilega
fær viðkomandi kransæðastíflu
eða hjartaslag. Ef þetta gerist í
Mývatnssveit:
Fjölmennt afmælis-
hóf að Skjólbrekku
Björk Mývatnssveit, 3. marz.
MJÖG fjölmennt afmælishóf var
haldið í Skjólbrekku í gærkvöldi, í
tilefni 60 ára afmælis l'ráins Þóris-
sonar skólastjóra á Skútustöðum. Tal-
ið er að alls hafi mætt um eða yfir 200
manns. Birkir Fanndal, formaður
skólanefndar, setti samkomuna með
nokkrum orðum. Veizlustjóri var
Ifelgi Jónasson hreppstjóri á Græna-
vatni. Fjölmargar ræður voru fluttar
og mikið sungið. Veitt var af rausn og
setið að borðum í um fjórar klukku-
stundir.
Heiðursgesturinn, Þráinn Þóris-
son, stjórnaði almennum söng. Þá
söng hann og synir hans þrir, Hösk-
uldur, Steinþór og Hjörtur, fjór-
raddað. Ennfremur sungu einsöng
og tvísöng, Þráinn og Steinþór við
undirleik Fríðu Lárusdóttur. Marg-
ar gjafir og skeyti bárust, m.a.
vandað málverk, gullfagurt, málað
af Sigurði Hallmarssyni á Húsavík,
ennfremur bókagjafir og fleira.
Þráinn Þórisson hefur nú starfað
sem skólastjóri hér í sveitinni í 35
ár. Segja má, að hann hafi ætíð ver-
ið farsæll í starfi, og hefur því á
löngum skólastjóraferli mótað og
uppfrætt fjölmörg mývetnsk ung-
menni. Fullyrða má, að allt skóla-
og uppeldisstarf Þráins í gegnum
árin hafi borið góðan ávöxt og nem-
endur hans þroskast og orðið nýtir
þjóðfélagsþegnar. Það hefur verið
mikilvægt fyrir þetta byggðarlag að
hafa fengið að njóta starfskrafta
hans.
Þráinn hefur einnig látið ýmis fé-
lagsmál til sín taka og einkanlega
hafa söng- og tónlistarmál verið
honum hugleikin. Ekki er hægt að
minnast Þráins á þessum merku
tímamótum án þess að geta einnig
eiginkonu hans, Margrétar Lárus-
dóttur, frá Búðardal í Mosfellssveit.
Hún hefur ætíð stutt hann með ráð-
um og dáð, auk þess verið við
kennslu í skóla hans.
Meðan heimavist var í skólanum
má segja, að þau hjón hafi verið
sem foreldrar nemendanna, svo
umhugaö var þeim um hag þeirra.
Ég vil í lokin þakka þessum heið-
urshjónum fyrir alla þeirra góðvild
og samstarf á liðnum árum. Lifið
heil.
— Kristján
.
I I
H
arr
Kerti í bílinn
HEILDSALA — SMÁSALA
Allt á sama Stað Laugavegi 118 - Simi 22240'
EGILL VILHJÁLMSSON HE