Morgunblaðið - 06.03.1982, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 06.03.1982, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982 Adda Bára Sigfúsdóttir í borgarstjórn: Samráð við borgarbúa hefur minnkað síðustu ár „VINSTRI meirihlutinn í borgarstjórn Reykjavíkur hefur viljað sniðganga vid- horf framfarafélaga í ein- stökum hverfum eða viðhorf hverfisbúa,“ sagði Markús Örn Antonsson, borgarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins, í umræðum í borgarstjórn Reykjavíkur 4. mars um til- lögur Alþýðubandalagsins til breytinga á stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. En Al- þýðubandalagsmenn leggja þar meðal annars til, að stofnaðar verði „hverfa- nefndir“ og verði þær form- legir málsvarar hverfisbúa gagnvart borgarstjórn. Adda Rára Sigfúsdóttir, talsmaður Alþýðubandalagsins, viður kenndi í umræðunum, að samráð við borgarbúa hefðu minnkað í stjórnartíð vinstri meirihlutans. Markús Örn Antonsson taldi það ekki gild rök hjá Öddu Báru Sifffusdóttur, að minnkandi sam- ráð við borgarbúa mætti rekja til þess, að Alþýðubandalagið hefði verið rekið út í horn innan meiri- hlutans. Alþýðubandalagsmenn hefðu viljað sniðganga Framfara- félag Arbæjar, þegar gerðar voru athugasemdir við skipulag í Ar- túnsholti. Og á fundi, sem Fram- farafélag Breiðholts III hélt í Hólabrekkuskóla, til að koma á framfæri athugasemdum meðal annars varðandi skipulagsmál, hefðu flokksmenn í Alþýðubanda- laginu kvartað undan skorti á sambandi við Framfarafélagið. Taldi Markús Örn með öllu óþarft að kerfisbinda sambandið við borgarbúa eins og Alþýðubanda- lagið vildi, í þessu máli réði mestu viðhorf ráðamanna á hverjum tíma. Hverfafundir borgarstjóra tvisvar á kjörtímabili í stjórnartíð sjálfstæðismanna sýndi hug þeirra í þessu efni. Leiðrétting í MORGUNBLAÐINU í gær, bls. 47, misritaðist nafn Helgu Björnsson, sem þar var nefnd Bjarnason, er skýrt var frá því, að ullarkápa hennar hefði vakið at- hygli. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á þessum mistökum. Athugasemdir ísafirði Morgunblaðinu hefur borizt eft- irfarandi athugasemd vegna frétt- ar í blaðinu laugardaginn 20. febrúar sl. í Morgunblaðinu sl. föstudag birti fréttaritari Mbl. hér á ísa- firði (Úlfar) frétt um fyrirhugað prófkjör stjórnmálaflokkanna sem fram fer um næstu helgi. Væri sú frétt allra góðra gjalda verð ef ekki hefðu slæðst með rangar fullyrðingar um forval Alþýðubandalagsins „til vals á endanlegum prófkjörslista flokksins", en þar er farið rangt með bæði nöfn og atkvæðafjölda í veigamiklum atriðum. Aðspurður kvaðst fréttaritari hafa heyrt sögur af forvali þessu og látið þær flakka með fréttinni af áðurnefndu sameiginlegu prófkjöri. Ekki hafði hann fyrir því að leita til Alþýðubanda- lagsmanna til að kanna sann- leiksgildi þessa bæjarslúðurs. Ekki kvaðst fréttaritari í sam- tali við undirritaðan heldur vilja draga þessa röngu frétt til baka. Verður hún því hér leiðrétt. Sannleikurinn er sá, að kjörin nefnd á vegum Alþýðubanda- lagsins á Isafirði framkvæmdi skoðanakönnun meðal flokks- manna og nokkurra stuðnings- manna, til þess að auðvelda sér val á mönnum til að skipa próf- kjörslista flokksins. Ekki var um það að ræða að raða nöfnum í sæti. Þess vegna sögðu niður- stöður ekkert um skoðanir flokksmanna á því hverjir skyldu skipa efstu sæti. Ákveðið var að gera þessar niðurstöður ekki að fjölmiðlamáli (og við það verður staðið hér), enda gæti slíkt hugsanlega haft áhrif á val kjósenda í væntanlegu prófkjöri og væri þá heldur ekki hallað á neinn af þeim er tækju þátt í prófkjörinu. Þess vegna er það mjög miður að fréttaritari Mbl. skuli, í um- hyggju sinni fyrir innanflokks- málum Alþýðubandalagsins á Isafirði, birta rangar upplýs- ingar. Er það forkastanlegt að fréttaritari skuli heldur vilja birta rangar fréttir en engar, og að hann skuli sjá sóma sinn í því að telja bæjarslúður eða sögu- sagnir nægar heimildir frétta sinna. Hitt vekur einnig nokkra furðu að fréttaritari, sem lætur sér svo annt um innanflokksmál Alþýðubandalagsins á ísafirði, skuli ekki telja háværar sögu- sagnir um prófkjörsraunir Sjálfstæðismanna hér í bæ fréttaefni að sama skapi. Það er von mín að við áskrif- endur Mbl. megum eiga von á vandaðri fréttaflutningi frá ísa- firði. Með þökk fyrir birtinguna. Hallur Páll Jóns-son Morgunblaðið hefur boðið mér að gera athugasemd við bréf Hajls Páls Jónssonar þar sem hann gerir að umræðuefni frétt mína í Morgunblaðinu 20. febrú- ar sl., þar sem kemur fram, að hann hafi fengið flest atkvæði í forvali Alþýðubandalagsins vegna prófkjörs flokksins á ísa- firði. Segir hann fréttina upp- logna án þess þó að sýna fram á að annar sannleikur sé til í mál- inu. Hann gat þess hinsvegar ekki, að ég bauðst til að biðja hann afsökunar á fréttinni ef væri hún röng og birta leiðréttingu. Hann neitaði því afdráttarlaust og kvaðst ekki gefa mér neinar upplýsingar um þessi mál. Þar sem ég veit að fréttin er rétt, sé ég enga ástæðu til að fara að skrifast á við bréfritara jafnvel þótt að umræðan um úr- slit forvalsins hafi e.t.v. orðið til þess að hann fór halloka í prófkjörinu fyrir Aage Steinson. Hann verður hreinlega að sætta sig við það að á meðan við búum enn við frjálsa fjölmiðlun þá birtast fréttir jafnt hvort það er þóknanlegt „stjórnmálaleiðtog- um“ eða ekki. Eg vil að lokum aðeins endur- taka það, að ég er tilbúinn til að leiðrétta téða frétt reynist hún ósönn og ég veit að Morgunblað- ið mun Ijá málinu rúm til þess að sannleikurinn megi njóta þeirrar virðingar sem honum ber. Ulfar Agústsson, fréttaritari Morgunblaðsins, ísafirði. Liðsmenn hljómsveitarinnar The Swinging Blue Jeans. Þrjár hljómsveitir koma Þorsteinn Viggósson hefur nú komist að samkomulagi við þrjár rokkhljómsveitir, sem gerðu garðinn frægan á Bítlatímabilinu, um að koma hingað til lands og halda hljómleika. Fyrst í röðinni er hljómsveitin The Swinging Blue Jeans. Mun hún halda hljómleika á skemmtistaðnum Broadway föstudaginn 12. og laugardaginn 13. mars. Ef einhverjir muna eftir lögunum Hibby, hibby Shake og Good Golly Miss Molly má rekja þau til þessarar hljómsveitar. • Sú næsta er Hollies og í sumar kemur hljómsveitin The Troggs hingað til að skemmta landanum. Ný mynd í Regnboganum: „Heimur í upplausn“ Regnboginn er að hefja sýn- ingar á myndinni „Heimur í upp- lausn“ með Julie ('hristie í aðal- hlutverki, leikstjóri er David Gladwell og handrit eftir Doris Iæssing. Myndin fjallar um leit konu nokkurrar til að losna við þann ótta sem fjöldi fólks er haldinn nú á dögum, ótti við að heimur- inn hrynji til grunna og fleira í þeim dúr. Til að losa sig við þennan ótta skapar aðalpersón- an sér sinn eigin heim, á bak við einn vegginn í íbúðinni. Þar kemur hún inn í skrautlega íbúð, fulla af fögrum gömlum munum og þar reikar hún um, getur séð forfeður sína og sína eigin æsku. Jarðstöð fyrir Varnar- liðið reist við Úlfars- fell þegar á þessu ári? „UPPSETNING þessara tækja tekur ekki langan tíma og þeir hafa áhuga á að flýta þessu sem mest þannig að þessi stöð kæmist í gagnið á þessu ári, en það er að vísu óljóst með afgreiðslutíma á tækjunum,“ sagði Gústaf Arnar, yfirverkfræðing- ur hjá Pósti og síma, er Morgun- Dalvík: Listi Sjálfstæð- isflokksins lagður fram Dalvík, 4. marz. LISTI Sjálfstæðisflokksins vegna bæjarstjórnarkosninganna á Dalvík í vor hefur nú verið lagður fram og skipa hann eftirtaldir: 1. Helgi Þorsteinsson, 2. Þor- steinn Aðalsteinsson, 3. Eyvör Stefánsdóttir, 4. Júlíus Snorrason, 5. Trausti Þorsteinsson, 6. Björn Elíasson, 7. Lína Gunnarsdóttir, 8. Zophanías Antonsson, 9. Guðbjörg Antonsdóttir, 10. Óskar Jónsson, 11. Björgvin Gunnlaugsson, 12. Hallfríður Þorsteinsdóttir, 13. Sveinbjörn Sveinbjörnsson og í 14. sæti er Sigfús Þorleifsson. Fréttaritari. blaðið ræddi við hann í gær um fyrirspurn Varnarliðsins á Keflavík- urflugvelli um möguleika á móttöku- stöð fyrir sjónvarpsefni, sem sett yrði upp við hlið Skyggnis við íllf- arsfell. Hann bætti því við, að þetta mál væri á algjöru frumstigi. Aðeins tíu dagar væru liðnir frá því, að óformleg fyrirspurn hefði borizt þessa efnis frá forsvarsmönnum sjónvarpsins á Keflavíkurflugvelli og engin ákvörðun hefði verið tekin um málið, hvorki hjá Pósti og síma, né í samgönguráðuneytinu. Bandaríkjaher hefur hug á að nota þessa jarðstöð til að taka á móti skemmtiefni, íþróttaviðburð- um og ýmsu öðru efni, en það efni yrði einnig sent til annarra her- stöðva Bandaríkjamanna í Evr- ópu. Sjónvarp Varnarliðsins gæti ekki notað jarðstöðina Skyggni til móttöku þessa efnis þar sem hún er stillt á annan Intelsat-hnött, en Bandaríkjamenn hyggjast nota, og hverja stöð er aðeins hægt að stilla á einn gervihnött. Ef þessi stöð verður sett upp verður ekki mögulegt fyrir aðra að horfa á það sjónvarpsefni, sem fer í gegnum stöðina, en þá sem búa á Keflavík- urflugvelli. Jarðstöðin yrði ein- göngu notuð til að taka á móti al- mennu sjónvarpsefni. „Þetta mál kemur upp í fram- haldi af því, að við höfum tvívegis tekið á móti efni í gegnum Skyggni fyrir sjónvarp Varnar- liðsins, þær sendingar tóku 3—4 tíma í hvort skipti," sagði Gústaf Arnar. „Þeir hafa haft áhuga á að auka þessar sendingar, en átt í erfiðleikum með það vegna þess að erfitt er að fá svona langan tíma inni á gervitunglunum, sem eru orðin mikið upptekin. Þá kom sú hugmynd upp að senda dagskrá, sem dreift er til herstöðva í Bandaríkjunum, áfram í gegnum gervihnött yfir Atlantshafið til Evrópu. Nú eru þeir með á prjón- unum að taka á leigu magnara í einum Intelsat-gervihnettinum, sem er notaður sem varahnöttur, og dreifa efni þannig til sinna her- stöðva í Evrópu. í raun er eftir að athuga alla þætti þessi máls; hvernig staðið verður að kaupunum, hvort um tollfrelsi verður að ræða, hvort Póstur og sími verður einn eigandi stöðvarinnar, hvers konar greiðsla komi fyrir notkun stöðvarinnar og ýmislegt annað. Það sem Varnar- liðið hefur áhuga á er eingöngu sjónvarpsmóttaka, en það sem við sjáum við þetta er að ef Varnarlið- ið hættir að nota gervitungl fyrir þessa sendingu þá er þarna tæki, sem við gætum notað fyrir okkar eigin símanotkun með tiltölulega litlum breytingum," sagði Gústaf Arnar. Kostnaður við slíka stöð er áætlaður um 20 milljónir króna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.