Morgunblaðið - 06.03.1982, Qupperneq 27
Sjötug:
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
27
Sóley Þorsteinsdótt-
ir fyrrv. kaupmaður
í dag er Sóley Þorsteinsdóttir,
fyrrverandi kaupmaður í verzlun-
inni Sóley, sjötug.
Sóley er fædd í Bolungarvík 6.
marz árið 1912, dóttir sæmdar-
hjónanna Þórlaugar Benedikts-
dóttur og Þorsteins Eyfirðings
skipstjóra.
Sóley fluttist ung með foreldr-
um sínum til ísafjarðar og 14 ára
gömul fluttist hún með þeim til
Reykjavíkur. Hún innritaðist í
Kvennaskólann í Reykjavík og
settist á annan bekk hans og lauk
þaðan brottfararprófi vorið 1928.
Á þessum árum var mjög erfitt
að fá vinnu, enda heimskreppan
mikla í nánd. Sóley var svo heppin
að fá vinnu í Soffíubúð hjá Axel
Ketilssyni og þar var hún í fimm
ár eða þar til að hún var tuttugu
og eins árs gömul. í Soffíubúð
kynntist Sóley Ágústi Jóhannes-
syni, verzlunarmanni, sem varð
síðar eiginmaður hennar. Þau
giftu sig árið 1934.
Sóley og Ágúst eignuðust fjögur
mannvænleg börn, þrjár dætur og
einn son: Sigríði, gifta Andrési Jó-
hannessyni, fyrrverandi bónda á
Stóra-Kroppi í Borgarfirði og nú-
verandi kjötmatsmanni, Soffíu,
gifta Oddi R. Hjartarsyni, dýra-
lækni, Svövu, gifta Ólafi Sigurðs-
syni, arkitekt, og Ágúst, sem lést
af slysförum þrettán ára gamall.
Sóley missti mann sinn árið 1941,
eftir aðeins sjö ára sambúð.
Sóley stofnaði verzlun sína 1.
október árið 1952 og verslaði með
vefnaðarvöru. Verzlunarstörfin
kunni hún og hún var duglegur
kaupmaður.
Hún fór á sýningar erlendis og
fylgdist með því sem var að gerast
hjá nágrönnum okkar og flutti
margar nýjungar í verzlun til
landsins.
Sóley tók strax virkan þátt í fé-
lagsstarfi Félags vefnaðarvöru-
kaupmanna og sat í stjórn þess
félags í um það bil aldarfjórðung.
Þegar Stofnlánasjóður skó- og
vefnaðarvörukaupmanna var
stofnaður var Sóley kjörin þar í
stjórn og átti þar sæti þar til hún
hætti að verzla. Sóley var kjörin
til að inna af hendi margvísleg
önnur störf í þágu Félags
vefnaðarvörukaupmanna og
kaupmannastéttarinnar sem
slíkrar, en ég læt nægja í þetta
sinn að nefna setu hennar í stjórn-
um þeirra félga sem að ofan getur.
Sóley Þorsteinsdóttir er fríð og
fönguleg kona á velli, en þó er hitt
meira virði að hún er búin óvenju-
legum mannkostum. Hún tekur
jákvætt á öllum málum sem hún
meðhöndlar og frá henni stafar
gleði og birtu sem upphefur svört-
ustu skugga.
Félag vefnaðarvörukaupmanna
og Kaupmannasamtök íslands
árna henni allra heilla á þessum
merku tímamótum ævi hennar og
þakka störf hennar í þágu kaup-
mannastéttarinnar.
Starfsfólk Kaupmannasamtak-
anna sendir henni einnig bestu af-
mælisóskir og þakkar henni
skemmtilegt og gott samstarf á
liðnum árum.
Jón I. Bjarnason
Hjálmar Vilhjálmsson fiskifræðingur:
Athugasemdir
vegna vidtals vid Kristján Ragnarsson
formann LÍÚ í Mbl. 4. marz sl.
í ofangreindu viðtali er haft eft-
ir Kristjáni að hann harmi grein
okkar Páls Reynissonar eðlis-
verkfræðings um ástand loðnu-
stofnsins og bergmálsmælingar á
stærð hans sem birtist í Mbl.
fimmtudaginn 25. febrúar sl.
Finnst Kristjáni við taka illa
gagnrýni þeirri sem við höfum
sætt vegna starfs okkar á undan-
förnum mánuðum.
Ég er algerlega sammála
Kristjáni um að málefnaleg
gagnrýni eigi fyllsta rétt á sér
hér sem annarsstaðar, en finnst
hinsvegar að í okkar tilviki
„sýnist gagnrýni þessi oft van-
hugsuð og óábyrg ...“ eins og
segir í umræddri grein í Mbl.
Mér er ljúft að taka fram að
Kristján Ragnarsson á hér eng-
an hlut að máli.
í annan stað vil ég leiðrétta
þann misskilning sem fram
kemur hjá Kristjáni að ákvörð-
un loðnukvóta til bráðabirgða
fyrir veiðitímabilið sumar-
haust 1980 — vetur 1981 hafi
byggst á tillögum frá íslenskum
fiskifræðingum. Þetta var
ákvörðun norsk-íslensku
fiskveiðinefndarinnar og há-
marksafli til bráðabirgða
ákveðinn 125 þús. tonnum hærri
en Hafrannsóknastofnunin
hafði lagt til sbr. bréf hennar til
Sjávarútvegsráðuneytisins
dags. 6. 5. 1980.
Haustið 1980 var siðan lagður
til 40% niðurskurður á bráða-
birgðakvótanum. Skorið var
niður um 30% en seinna leyfðar
veiðar á um 90 þús. tonnum
vegna frystingar og hrogna-
töku, þannig að endanlegur
niðurskurður varð um helming-
ur þess sem lagt hafði verið til.
Öðru máli gegnir um setningu
bráðabirgðakvóta fyrir seinasta
veiðitímabil (1981—1982). Þar
var farið að tillögum fiskifræð-
inga. Hinsvegar reyndist erfitt
að skera kvótann nægilega
niður þegar upplýsingar lágu
fyrir um að við hefðum reynsl
alltof bjartsýnir í upphafi.
Annars var tilgangur okkai
Páls með umræddri grein frá
leitt sá að firra okkur ábyrgð
Hún var eingöngu skrifuð ti
þess að skýra vinnubrögð okka
og sjónarmið og leiðrétta mis
skilning, nákvæmlega eins 0|
þessar athugasemdir.
Hjálmar Vilhjálmsson
Sjáffstæðisfólk
í Kópavogí
Prófkjör til bœjarstjórnarkosninga fer fram 6. marz.
Guðna
Stefánsson
STYÐJUM
bæjarfulltrúa
til cndurkjörs
Stuðningsmenn.
Sjálfstæðismenn
í Kópavogi
Laugardaginn 6. mars fer fram prófkjör
Sjálfstæöisflokksins í Kópavogi.
Við stuðningsmenn
Braga Michaelssonar
hvetjum allt sjálfstæöisfólk til aö taka þátt í
prófkjörinu og styöja ungan mann meö
reynslu í bæjarmálum og atvinnulífi.
Stuðningsmenn.
Við opnum
nýja búð í Keflavík
Hljómtækja-
sýnmé
KEFLAVIK
í dag laugardag kl.13-17 Á morgun sunnudag kl. 14-17
Hafið þið
heyrt það betra?
I storglæsilegu hljóðstudeoi getið þið m.a.
heyrt i KEF 1052 sem flestir gagnrynendur
telja bestu hatalara heims og „State of
the Art magnara (sa besti) fra
Electrocompaniet.
► Mú verður fjör
ó Hafnargötunni!
Full búð af öllu því nýjasta frá:
Technics - SONY
Panasonic - audio-technica
NIKKO - ELECTRO VOICE
Gtitónleikar frá kl. 15-17.
Fram koma Bodies og Spilafífl
Technics E33 audio-technica
MIKKO
SONY ELECTRO VOICE
Videoið á fullu
VHS/Beta
Hafnargötu 38 - Keflavík