Morgunblaðið - 06.03.1982, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
29
Kvenfélagið
Hringurinn
í Hafnar-
firði
Á MORGUN 7. mars verður Kvenfé-
lagið Hringurinn í Hafnarfirði 70
ára. Kvenfélagið Hringurinn í Hafn-
arfirði var stofnað 7. mars 1912.
Aðalhvatamaður að félaginu var
frú llelga Edilonsson, kona l»órðar
læknis Edilonssonar, en stofnfund-
urinn var haldinn að heimili þeirra
að Strandgötu 29. Stofnendur voru
um 20 talsins. Af þeim er nú einn
eftir á lífi, Guðrún Eiríksdóttir, sem
dvelur á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Um þær mundir sem félagið var
stofnað herjaði berklaveikin og
miklir erfiðleikar því samfara á
ýmsum heimilum. Stofnuðu þá
nokkrar konur Hringinn í þeim
tilgangi að hjálpa fólki, sem átti
við erfiðleika að stríða vegna veik-
inda. Eftir að baráttan við berkla-
veikina fór að bera árangur og
staða berklasjúklinga í þjóðfélag-
inu að batna, færðist þá starfsvið
félagsins yfir á það, að styrkja fá-
tæk og veikluð börn í Hafnarfirði
til sumardvalar i sveit. Nú á síð-
ustu árum hefur félagið starfað að
líknarmálum, þó er velferð barna
borin fyrir brjósti, heilsa þeirra
og hamingja.
Félagið aflar tekna með sölu á
minningarspjöldum, bösurum og
árlegri merkjasölu, sem undanfar-
in ár hefur verið siðasta vetrar-
dag. Þá viljum við Hringskonur
þakka öllum Hafnfirðingum, sem
á ýmsan hátt hafa veitt félaginu
ómetanlega aðstoð og gert félag-
inu þannig kleift að láta gott af
sér leiða.
I stjórn félagsins nú eru þessar
konur: Ásthildur Magnúsdóttir,
formaður, Þorgerður M. Gísla-
dóttir, Ingibjörg Bjarnadóttir,
Þórdís Ásgeirsdóttir Albertsson
og Erla Jóhannsdóttir.
I tilefni af þessum tímamótum
halda Hringskonur upp á afmælið
annað kvöld í Snekkjunni.
Sigurður
Karlsson sýn-
ir í Gallerí 32
SIGURÐUR Karlsson opnar sýningu
á verkum sínum í dag í Gallerí 32
við Hverfisgötu. Þar sýnir Sigurður
27 olíu- og pastelmyndir.
Hann hefur numið myndlist hjá
einkakennurum, dönskum bréfa-
skóla og í myndlistarklúbbi Sel-
tjarnarness. Sigurður hefur tekið
þátt í 7 samsýningum, en þetta er
fyrsta einkasýning hans.
Sýningin verður opin daglega
frá kl. 14 til 18.
K en ekki H
í MORGUNBLAÐINU síðastlið-
inn fimmtudag var skýrt frá
framboðum í Sandgerði og þar
sagt að alþýðuflokksmenn og
óháðir borgarar byðu fram
H-lista. Þetta er ekki rétt, því að
listabókstafur þeirra er, og hefur
verið síðastliðin 12 ár, K. Þetta
leiðréttist hér með og eru hlutað-
eigendur beðnir velvirðingar á
þessu mishermi.
SUMIR VERSLA DÝRT -
AÐRIR VERSLA HJÁ OKKUR
Á í dag
tilkl.^T
í Starmýrinni
(en aðeins til hádegis
í Austurstræti).
Kynnum í dag:
„Ekta
Medister
pylsu á
danska vísu‘r
.50 GÆÐI
pr. kg NR. I
KYNNINGAR
VERÐ
Smjör Vi kg.
2825
LeyfivctiS 32.45
Nýegg
AÐEINS
39«
l.c\f( verð 57.00
Lamba kjöt:
1/1 dilkar Lærissneiðar
40« 61™
i eyft vérð 44.95 Leyft verð 67.65
Læri <.Khryggir Kótilettur
52?? 56í?
I.cvfl vcrð 57.30 1 eyfl verö 61.80
AUSTURSTRÆTI 17
STARMÝRI 2
Keflavík — Suðurnes
Mikiö úrval af tækifæriskostum og hentugum tæki-
færisgjöfum. Gott úrval af fjölskylduspilum, þroska-
spilum, töflum, föndurperlum, ritföngum, Replay-
penninn, púsluspil, skrifstofuvörum, og skáktölvum.
Verslunin Ritval,'
Hafnargötu 54, Keflavík.
KÓPAVOGSBÚAR
Því Grétar
í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins?
Vegna
þess ...
aö hann er verður
fulltrúi allra aldurs-
flokka og stétta.
Hann hefur áratuga
reynslu í æskulýös-,
íþrótta- og félags-
málum.
Hann er vel kunnur
málefnum aldraðra
og sýnir þeim sér-
stakan áhuga.
Hann mun beita sér
fyrir mannlegu um-
hverfi og útivistar-
aöstööu í Kóþavogs-
kauþstað.
Ef þínar skodanir eiga samleid með okkar, getum vid
í sameiningu gert bæjarstjórn Kópavogs sterka meó
því aó merkja vió Grétar Norófjörö í öruggt sæti á lista
Sjálfstæóisflokksins.
Stuðningsmenn
Grétars Norðfjörð
HARÐPLAST
Stærð: 410x130 cm.
Þykkt: 1,2 mm.
FJÖLBREYTT LITAVAL
Einlitt — Marmari — Viðarlíking.
(Mött glansandi og hömruð áferð).
MARINÓ PÉTURSSON HF.,
Sundaborg 7, sími 81044.
NORSK GÆÐAVARA:
FJÖLBREYTT ÚRVAL
SANDPAPPÍR
VATNSPAPPÍR
SMERGELPAPPÍR
MARINÓ PÉTURSS0N hf.
SUNDABORG7
— SÍMI 81044 —