Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 36

Morgunblaðið - 06.03.1982, Page 36
36 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982 mmm ff -CjgaQ 'JnÍYBfiQ1 t . Syndicqto__ ..______________________ ■n Vi/jiá per l&ta i/ekjp) yc^ur, herra?" HÖGNI HREKKVÍSI Um útvarpsdagskrána frá áramótum og íslensku fornhandritin Gódi Vclvakandi! Þar sem sjónvarp og útvarp eru miklir þættir í daglegu lífi manna, þykir mér hlýða að fram komi öðru hvoru álit manna á því, sem þar heyrist og birtist, og sem flestra, því viðhorf við bæði fróðleiks- og skemmtiefni hljóta að vera misjöfn og gott að sem flest sjónarmið komi í ljós. Útvarpið hefur frá áramótum flutt marga ágæta þætti. Ég álít að margt af efni þess hafi verið bæði fróðlegt og skemmtilegt. Talsvert hefur verið kvartað yf- ir, hve seint á kvöldin hinir ágætu viðtalsþættir Jónasar eru fluttir, en þeir eru að mínu viti oft hrein listaverk. Ég hef hlýtt á þá flesta og gæti vel notið þeirra í annað sinn. Það er alltaf ánægjulegt að fylgjast með efni sem kemur alveg á óvart með hversu gott það er, þótt verið hafi von á góðu. Ég skora á ráð- endur útvarps að endurflytja þessa þætti á hentugum tíma. Munu margir mér sammála um að ýmislegt, sem þá er flutt, megi missa sig í staðinn. Leikritin í vetur hafa að mestu verið endurflutt frá fyrri tíð. Nú, frá mínu sjónarmiði er ekkert út á þessa sparnaðaraðgerð að setja. Mér þykir gaman að hlusta á góð leikrit með gömlu góðu leikurunum okkar. Hitt finnst mér afsiða, þegar lélegar sjónvarpsmyndir eru á skjánum á fárra mánaða fresti. Ég vil nota tækifærið til að þakka Magneu Þorkelsdóttur innilega fyrir frábæran flutning hennar á orði kvöldsins. Er ég alls ekki að lasta aðra sem farið hafa með þetta efni, þótt mér þyki þýð og innileg framsögn hennar bera af. í sjónvarpi eru Furður verald- ar og Alheimurinn mjög áheyri- legir þættir, — þótt mér þyki stundum meira um hæpnar bollaleggingar en fróðleik hjá Sagan enda er hann „science fiction“-höfundur. Hljómlistar- þáttur Jehudi Menuins er góður. Ég hef ánægju af honum þó ég hafi lítinn skilning á efninu. An þess að ég sakni „Dallas" virðist mér að mörgum þyki þetta góð dægrastytting og væri því rétt að þægja fólki með ann- arri sýniröð. Ég held að þetta sé ekki meira spilliefni en margt annað. Að vísu gæti þetta ömur- iega hyski spillt hugmyndum manna um lifnaðarhætti í Bandaríkjunum. Ættarsetrið var góð gaman- mynd en allt er bezt í hófi og ég sá henni á bak án saknaðar. Fimm dagar í desember er vel- gerð mynd og áhugaverð. Spænska myndin finnst mér hálfleiðinleg. Ég get ekki fengið áhuga á þessu fólki sem hún fjallar um. Þulir í sjónvarpi þykja mér flestir góðir — sumir afbragð eins og Sonja og Ómar. Guð- mundur Ingi hefur góðan róm, hann ætti að taka Sonju sér til fyrirmyndar og hætta að höggva sundur setningarnar þar sem síst skyldi. Seint held ég að Ólaf- ur Sigurðsson nái því marki að verða góður sjónvarpsmaður. Hann hefur ekki nógu góðan málróm til þess. Ég hef ekkert út á það að setja sem hann segir en gengur illa að heyra það. íslcnzku handritin verði ekki lánuð Hér er svo orðsending sem ég bið þig að koma á framfæri Velvakandi góður. Ég las í blaði að forsætisráðherra væri tregur til að lána forn handrit til Am- eríku í sumar. Furða var! Hér er mín skoðun á þessu máli: Allir Islendingar eru eigendur hand- ritanna sem Danir endursendu okkur af einstæðum höfðings- skap og sanngirni. Þeir neituðu á sínum tíma að lána Flateyjarbók til Bandaríkjanna þótt boðið væri að senda herskip eftir henni. Umsjónarmenn Árna- safns hafa umboð til að annast og vernda handritin. Ráðherrar hafa umboð til að stjórna mál- efnum okkar innanlands og utan. En öll þessi umboð hafa að sjálfsögðu sínar eðlilegu tak- markanir. Ég álít að þessir menn hafi ekkert umboð til að selja, gefa eða lána handritin frekar en landið sjálft. Umsjón með hlutum felur ekki í sér að þeim megi ráðstafa á afbrigði- legan hátt. Geri ég þá kröfu til þessara manna að þeir svari beiðni um lan á handritunum kurteisislega þannig: VIÐ HÖF- UM ENGA HEIMILD TIL ÞESS. Þórunn Guðmundsdóttir I Velvakanda fyrír ■'!() árum Aumingja við Osköp erum við fáir og lítils megnugir. Við eigum ekkert gull í jörðu, engin kol og enga olíu. Éinu auðæfin okkar eru þessir fiskar við strendurnar, sem útlendingar eru í þann veg- inn að éta upp til agna. Hér er kuldi og hretviðri hér um bil árið um kring og gróðurinn rýr eftir því. Svona orðræður eru mönnum tamar og minna helzt á hugar- vingl sumra drykkjusjúkra manna, sem steypa sér í glötun af eintómri meðaumkun með sjálfum sér. Kkki er okkur þó alls varnað vað skyldi annars heita vatnið sem streymir til Reykjavíkur allan sólarhringinn vera á við mikið af kolum og olíu,, svo að á nokkur náttúru- auðæfi sé minnzt? Áreiðanlega mættum við grafa mikil kol úr jörðu til að jafngilti því, en sá er munurinn, að við þurfum nauða- lítið fyrir heita vatninu að hafa, þegar það hefir einu sinni verið leitt heim. Og þó að gaman sé að geta dælt olíu beint upp úr iðrum jarðarinnar, þá vantar mikið á,

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.