Morgunblaðið - 06.03.1982, Síða 38
38
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 6. MARZ 1982
Gjafirnar streyma til danska
handknattleikssambandsins
DANIR hafa sem kunnugt er staðid
sig frába'rlega á HM-keppninni í
handknattleik í Vestur l»ýskalandi
að undanftirnu. Kr varla ofsögum
sagt, að almennur áhugi á hand-
knattleik hafi aldrei verið meiri í
Danmörku en nú. Að vísu hafnaði
danska liðið í fjórða sætinu á síð-
ustu HM-keppni, en þá var danska
liðið fvrirfram álitið miklu sterkara
en hið kornunga lið þeirra nú. Og þá
fór keppnin fram í Danmörku. Ekki
er langt síðan að danska liðið var
gersigrað á Akranesi og nokkrum
dögum síðar var það í hinu mesta
basli með hið lélega norska lið.
Það kom því verulega á óvart er
danska liðið small saman á HM og
fór að vinna ótrúlegustu lið. Þegar
Danir mættu Svíum í milliriðli
var talið að um 2 milljónir Dana
hafi fylgst með leiknum beint í
sjónvarpi. Danir sigruðu 21—20 í
æsispennandi leik. Næstu mót-
herjar voru Ungverjar og hefur
þegar verið reifað hversu litlu
munaði að Danir sigruðu og kæm-
ust í úrslitaleikinn gegn Rússum.
Talið var að sjónvarpsáhorfendur
danskir hafi verið tæpar 3 millj-
ónir, en Danir eru ekki nema tæp-
lega 5 milljónir allt í allt. Má því
segja áhugann með ólíkindum.
Áheit og peningagjafir hafa
streymt til danska handknatt-
leikssambandsins eftir að danska
liðið hóf sigurgöngu sína á HM.
Má til dæmis nefna að tvö fyrir-
tæki hafa gefið sem nemur einni
milljón og tvö hundruð þúsund
krónum til danska liðsins fyrir
frammistöðuna. Fleiri hafa gefið
höfðinglega og upphæðin stígur
geysilega ört. Er ljóst að danskur
handknattleikur hefur aldrei stað-
ið betur fjárhagslega en hann
kemur til með að gera í kjölfarið á
HM.
UMFA skoraði 1 mark síðustu
tuttugu mínútur leiksins
HAUKAR sigruðu Aftureldingu í 2.
deild Islandsmótsins í handknatt-
leik í gærkvöldi að Varmá í Mos-
fellssveit með 19 mörkum gegn 16. f
hálfleik var staðan jöfn, 11 —11.
Allan fyrri hálfleikinn var leik-
Hverjir verða innan-
hússmeistarar?
ÍSLANDSMOTIÐ í knattspyrnu
innanhúss hófst í gærkvöldi og fóru
þá fram í Laugardalshöllinni 16 leik-
ir og stóð gamanið yfir fram yfir
miðnætti. í dag og á morgun verður
mótinu fram haldið og lýkur því
samkvæmt áætlun KSÍ með úrslita-
leik klukkan 22.45.
Meiri fjöldi liða en í annan tíma
tekur þátt í mótinu að þessu sinni
og er keppt í fjórum deildum. í
þremur efstu deildunum, A-, B- og
C-deild eru fjórir riðlar með fjór-
um liðum hver riðill. I D-deild eru
riðlarnir aðeins tveir, liðin í allt
átta. Efstu lið í hverjum riðli leika
hvert við annað í undanúrslitum,
uns tvö lið standa uppi sem leika
síðan til úrslita.
ur liðanna jafn. Framan af síðari
hálfleiknum lék lið UMFA vel og
af miklum krafti og náði forystu,
15—11. Þá voru liðnar 10 mínútur
af hálfleiknum. En þá hljóp allt í
baklás hjá liðinu. Og þótt ótrúlegt
sé, þá skoraði liðið aðeins 1 mark
síðustu 20 mínútur leiksins. Hauk-
arnir náðu hinsvegar að skora 8 og
það nægði til að vinna öruggan
sigur.
Besti maður Hauka í leiknum
var línumaðurinn snjalli Ingimar
Haraldsson en hann skoraði 6
mörk. Hjá Aftureldingu var það
Emil Karlsson markvörður sem
bar af. Hann varði 16 skot í leikn-
um og bjargaði liði sínu frá stór-
tapi með snjallri markvörslu.
Lens og Laval stóðu sig vel
- hrepptu bæði stig í erfiðum útileikjum
LENS (K; l.aval. „íslensku" liðin í
frönsku knattspyrnunni gerðu það
gott í vikunni, er heil umferð fór
fram í deildarkeppninni þar í landi.
Að vísu unnu liðin ekki leiki sína, en
náðu í dýrmæt og athvglisverð stig.
Skíðatrimm
á morgun
Skíðatrimmdagur verður haldinn
um allt land á morgun og verða
troðnar og merktar göngubrautir á
öllum lielstu skíðastöðum Reykja-
víkur og nágrennis. Einnig verða
merktar svigbrautir á sömu stöðum.
Milli klukkan 13.00 og 16.00 verður
tímataka fyrir þá sem þess óska
vegna SKI merkisins. Trimmbækl-
ingum verður útbýtt á skíðastöðum
og þeir sem hafa áhuga geta keypt
SKI-stjörnuna klukkan 15.00.
Lens sótti Auxerre heim og skildu
liðin jöfn, 1—1. Auxerre er í fall-
hættu eins og Lens og því gott hjá
Teiti og félögum að tapa ekki. Lens
hefur nú fengið 5 af síðustu 6 stigum
mögulegum og lyft sér upp úr fall-
sæti. Hefur liðið nú 21 stig, Mont-
pellier hefur 20 stig, en Nice hefur
17 stig. Mikil barátta er á botninum,
þannig hafa Metz og Valencienncs
23 stig hvort lið, Auxerre, Lyon og
Strassbourg hafa 24 stig. En lítum á
úrslit leikja.
Nice — Sochaúx 1—0
Stangarstökk
meistaramóts
Stangarstökkskeppni Meistaram-
óts íslands í frjálsfþróttum verður
haldin í KR-húsinu á sunnudaginn
og hefst kl. 13.15.
Irene skaut litlu
systur aftur fyrir sig
VESTUR-þýska stúlkan Irene Epple
sigraði í stórsvigi heimsbikarkeppn-
innar sem fram fór í Waterville
Walley í New Hampshire á fimmtu-
daginn. Þar með hefur Epple sigrað í
þeirri grein heimsbikarkeppninnar. í
samanlögðu stigakeppninni stendur
Akureyrarmót
í stórsvigi
AKUREYRARMÓT í stórsvigi karla
og kvenna fer fram í Hlíðarfjalli um
helgina. Þá verður einnig keppt í
stórsvigi 12 ára barna og yngri. Mót-
ið fer fram báða daganna og hefst
klukkan II.(M).
hins vegar svissneska stúlkan Erika
Hess langbest að vígi, hefur nánast
tryggt sér sigur í heimsbikarkeppn-
inni.
Irene hafði forystu eftir fyrri
ferðina og náði síðan næstbesta
tímanum í seinni ferðinni, tryggði
sér þannig nauman sigur yfir
yngri systur sinni, Maria Epple,
sem sigrað hafði í tveimur síðustu
stórsvigsmótum heimsbikar-
keppninnar. Samanlagður sigur-
tími Irene var 2:11,85 mínútur.
Litla systir fékk tímann 2:12,11, en
Tamara McKinney fékk tímann
2:12,92 og þriðja sætið. I fjórða
sætinu var síðan svissneska stúlk-
an Erika Hess, hún fékk tímann
2:13,51.
Lyon — Paris S.G. 0—3
Bordeaux — Laval 0—0
Montpellier — Tours 1—3
Lille — Bastia 4—0
Brest — Strasbourg 1—2
Auxerre — Lens 1—1
Nantes — St. Etienne 3—0
Nancy — Monaco 0—3
Valenciennes — Metz 2—0
Karl og félagar hjá Laval náðu
stórgóðum árangri er þeir tóku
stig af Bordeaux á útivelli, en sig-
urganga Víkingsbananna var og er
orðin æði löng. En Bordeaux féll
fyrir vikið úr efsta sætinu, það
skipar nú Monaco. Bæði liðin hafa
41 stig, en markatala Monaco er
betri. St. Etienne, sem hefur sigið
niður í öldudal síðustu vikurnar,
er þó í 3. sætinu með 39 stig.
• Danski markvörðurinn Mogens Jeppesen hefur leikið af stakri snilld í
öllum leikjum danska liðsins í heimsmeistarakeppninni í handknattleik og
verið öðrum fremur maðurinn á bak við velgengni danska liðsins. Þess má
geta að Mogens varði ekki mark danska liðsins sem tapaði fyrir íslenska
landsliðinu síðastliðið haust.
Urslitaleikirnir
á HM fara fram
um helgina
EINS OG komið hefur fram í Morg-
unblaðinu, er milliriðlakeppninni á
HM í handknattleik lokið og á nú
aðeins eftir að leika um sæti. Þeir
leikir hefjast í dag með viðureign
AusturÞjóðverja og Rúmena, sem
leika um 5.sætið. Að þeim leik lokn-
um mætast Pólverjar og Danir, en
leikur sá er um þriðja sætið eftir-
sótta. A morgun leika Svisslend-
ingar og Svíar um ll.sætið, Tékkar
og Ungverjar um 9.sætið, Vestur
Þýskaland og Spánn um 7.sætið og
síðast en ekki síst Rússar og Júgó-
slavar um gullið. Tveir síðast nefndu
leikirnir fara fram í Dortmund, hinir
tveir á sunnudeginum í Minden.
læikirnir í dag fara báðir fram í
Dortmund.
Urslit í gærkvöldi
ÍSLANDSMÓTIÐ í innanhúss-
knattspyrnu hófst í gærkvöldi. Eftir
töldum leikjum var lokið þegar blað-
ið fór í prentun.
Úrslit:
Stjarnan — Óðinn 5—2
UBK — Víkingur 6—2
Haukar — Valur 3—12
Víðir — Afturelding 8—3
ÍBK - FH 8-4
Fram - UBK 8—3
Óðinn — Afturelding 3—8
Stjarnan — Víðir 7—6
ÍBK — Þróttur R. 5—6
Undirbúa þátttöku íslenskra
siglingamanna í OL-leikunum
sem fram fara í Los Angeles
Á síðasta ársþingi Siglingasam-
bands íslands kom fram eindreginn
áhugi fyrir því að stórauka þátttöku
siglingamanna í mótum erlendis.
Stjórn SÍL hófst þegar handa um
undirbúning og er stefnt að þátttöku
íslenskra siglingamanna í mótum
erlendis þegar næsta sumar. Eftir
talinn hópur hefur verið valinn til
æfínga og undirbúnings í vetur.
Jóhannes Örn Ævarsson Ými
Rúnar Steinsen Ými
Guðlaugur Jónasson Ými
Aðalsteinn Loftsson Brokey
Jón Gunnar Aðils Vog
Guðmundur Guðmundsson Vog
Guðmundur Kjærnested Vog
Páll Hreinsson Ými
Ólafur Bjarnason Ými
Við val hópsins var tekið tillit
til frammistöðu og ástundunar í
mótum síðastliðið keppnistímabil.
Þegar um áramót hófust þrek-
og þolæfingar undir umsjón Páls
Ólafssonar íþróttakennara. Æf-
ingar fara fram í íþróttahúsinu
Ásgarði, Garðabæ, og á íþrótta-
leikvanginum í Kópavogi. Síðar
hefjast siglingaæfingar.
Þegar er æfingar hófust var tek-
in sú ákvörðun að bjóða nokkrum
efnilegum siglingamönnum til
þátttöku og eru nú í hópnum alls
18 menn.
Markmið stjórnar SÍL með auk-
inni þátttöku er í erlendum mót-
um er að undirbúa þátttöku ís-
lenskra siglingamanna í Ólympíu-
leikunum í Los Angeles 1984.
Vonast er til að hópur þessi
myndi þann kjarna sem valið
verður úr þegar þar að kemur.
Vissulega eru margir efnilegir
siglingamenn er standa hópnum
nærri og verður vel fylgst með
frammistöðu þeirra og framförum
í framtíðinni og hópnum breytt
eftir því sem ástæða þykir til.
Umfang þessa starfs mótast að
sjálfsögðu af fjárhagsstöðu SÍL
hverju sinni.
Umsjónarmenn eru þeir Erling
Ásgeirsson, Jóhann Níelsson og
Loftur Ágústsson.