Morgunblaðið - 03.06.1982, Page 1
48 SÍÐUR
118. tbl. 69. árg.
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Reagan leggur
upp í 10 daga
Evrópuferðalag
Wa.shington. 2. júní. AP.
RONALD REAGAN forseti lagði í
dag, miðvikudag, upp í fyrstu Evrópu-
ferA sína síAan hann hann tók viA
embætti. Hann lýsti því yfir aA hann
væri hreykinn aA koma fram fyrir
hönd Bandaríkjanna og hét því aA
reyna aA efla einingu vestrænna iAn-
ríkja.
Reagan verður 10 daga í ferðinni
og situr m.a. tvo leiðtogafundi —
efnahagsráðstefnu í Versölum og
NATO-fund í Briissel. I kveðjuræðu,
sem hann flutti 200 embættis-
mönnum, sagði Reagan að hann vildi
nota ferðina til að segja heiminum
hvað það væri „sem við viljum fyrir
allt fólk í heiminum".
í tæpan áratug hefði verið við erf-
iðleika að etja í sambúðinni við sam-
herja Bandaríkjanna og innanlands
og óvissa ríkt, „en nú er eining og
staðfesta að eflast á ný og ég vona að
þessi ferð muni stuðla að því“.
Bandalagið hefði „staðið af sér
árásarhótanir og innri ágreining, en
við höfum varðveitt einingartilfinn-
ingu og stuðning við frelsi og enn er
reynt að prófa vilja okkar, ef til vill
meira en nokkru sinni áður. Því er
mikilvægt af þessari ástæðu að hitt-
ast og endurnýja böndin sem tengja
okkur."
Sumir drægju gildi bandalagsins í
efa og teldu það þungt í vöfum og
svara ekki þörfinni á aðgerðum og til
væru þeir í Bandaríkjunum sem
vildu skríða inn í einangrunarskel-
ina. „En þar sem við höfum hafnað
þessum öðrum leiðum á síðustu ára-
tugum hefur ríkt friður."
Bandaríkin hefðu aldrei sótzt eftir
því forystuhlutverki, sem var
þröngvað upp á þau í lok heimsstyrj-
Árás á flugstöð
Islamabad, 2. júní. AP.
AFGHANSKUR andspyrnuleiðtogi
hélt því fram í dag, miðvikudag, að
liðssveitir hans hefðu ráðizt á mikil-
væga sovézka flugstöð, Bagram-flug-
stöðina fyrir norðan Kabul, og eyðilagt
12 flugvélar.
Hann sagði að fallbyssuárás hefði
verið gerð á flugstöðina — stærsta
hernaðarmannvirki Rússa í Afghan-
istan — í hefndarskyni við sókn
Rússa í Panjshir-dalnum, aðal-
andspyrnuvíginu í Parwan-héraði,
100 km norður af Kabul.
aldarinnar. En Bandaríkin hefðu á
undanförnum mánuðum „ítrekað við
vini sína erlendis og hugsanlega
mótstöðumenn að við sættum okkur
við þessa ábyrgð".
Hann sagði að á Versalafundinum
„ættum við að sjá ljósar hvár og
hvernig við ætlum að eiga betri
efnahagslega framtíð". Hann kvaðst
mundu stinga upp á „reglulegra og
nánara samráði okkar í milli svo að
við getum í sameiningu fylgt eftir
efnahagsstefnu."
Á NATO-fundinum gæfist Banda-
ríkjunum „færi á að útskýra í smá-
atriðum áætlanir um að fá Sovétrík-
in til þátttöku í raunhæfum viðræð-
um um niðurskurð hergagna".
Ronald Reagan forseti og Nancy kona hans fara frá Hvíta húsinu í forsetaþyrlunni til Andrews-flugvallar þar sem
þau lögðu af stað í 10 daga ferð til fjögurra Evrópuríkja.
Bretar reiðubúnir að
hefía lokaorrustuna
London, 2. júní. AP.
BRETAR skutu á argentínskar stöðvar í innan við 5 km
fjarlægð frá Port Stanley og Margaret Thatcher forsætisráð-
herra sagði í viðtali, að aðeins brottflutningur Argentínu-
manna gæti afstýrt endanlegri stórorrustu. „Eg held ekki að
það sé nokkuð sem ég get gert.“
„Við erum komnir mjög nálægt
og farnir að beita þrýstingi gegn
aðalstöðvum óvinarins alls staðar í
Stanley," sagði Jeremy Moore
hershöfðingi, yfirmaður brezka
liðsaflans. I dag hefði verið skotið á
Moody Brook búðirnar, eina af
framvarðarstöðvum Argentínu-
manna. Það mun taka nokkra daga
að koma mönnum og stórskotaliðs-
vopnum fyrir áður en lokaárásin
hefst.
Frú Thatcher kvaðst ekki sjá að
Leopold Galtieri forseti mundi láta
undan nú, en ef Argentínumenn
segðust hörfa innan hálfs mánaðar
þyrfti ekki að koma til orrustu. Hún
kvaðst heldur ekki fá séð að Arg-
entínumenn fengju yfirráð yfir
Falklandseyjum. Hún vék sér und-
an að svara því hvort hún hefði
fengið lokaáskorun frá Ronald
Reagan forseta um að stöðva bar-
dagana.
Framkvæmdastjóri SÞ, Perez de
Cuellar, tilkynnti að lokatilraun
hans til að koma á vopnahléi hefði
mistekizt, en lofaði að reyna áfram
að leysa deiluna. Þrír argentínskir
herforingjar komu til New York að
leita eftir friði við Breta og bolla-
lagt er um hvort Argentínumenn
séu reiðubúnir til nýrra tilslakana,
en þeir vöruðu við of mikilli bjart-
sýni. Kúba hét Argentínu fullum
stuðningi á ráðstefnu óháðra ríkja í
Havana og spáði endalokum sam-
starfs og vináttu Rómönsku Amer-
íku og Bandaríkjanna vegna átak-
anna.
Fréttaritarar við Stanley segja
að brezka herliðið sé í yfirburða-
aðstöðu eftir töku hæðanna í
grenndinni og frækilega 64 km sókn
frá San Carlos yfir mýrarfláka, ár
og hæðir í slyddu, snjókomu og
hellirigningu. „í síðasta stríði
gengu fótgönguliðar frá fjörunum í
Normandí til Berlínar, svo að við
getum gengið til Stanley," sagði yf-
irmaður sveita landgönguliðsins,
Julian Thompson hershöfðingi.
„Þetta hefur verið gífurlegt átak.
En mennirnir eru vel á sig komnir
og verða fljótir að ná sér til að geta
barizt aftur."
Þyrlur voru stöðugt í ferðum með
hergögn til stöðva fyrir ofan Stanl-
ey. Þegar liðsforingi var spurður
um hættu á hefndarárásum sagði
hann: „Vogun vinnur, vogun tapar.“
Hópar kaldra og hungraðra Arg-
entínumanna gáfust upp í óbyggð-
unum. í Stanley eru um 5.000 her-
menn og 2.000 sjóliðar og flugliðar.
en Bretar segjast álíka fjölmennir,
þannig að ný landganga virðist
hafa farið fram.
Fréttamennirnir segja að argent-
ínskir hermenn hafi verið látnir
lyfta jarðsprengjum og hreinsa
skotfærastafla, sem þeir segja brot
á Genfar-samþykktinni um með-
ferð stríðsfanga. Nokkrir hafi beðið
bana í „slysi af völdum sprengi-
efna“. Skotfæragallar munu vera
skýringin og slysið varð er fangar
fengu að færa skotfærakassa frá
skúr þar sem þeir voru í haldi.
Tilkynnt var að Argentínumenn
hefðu hæft tvær Harrier-þotur,
sem flugu yfir stöðvar þeirra, og
þar með hafa Bretar misst átta
slíkar. Frú Thatcher tilkynnti að
fjölskyldur hermanna, sem féllu og
voru jarðaðir á Austur-Falklandi,
fengju ríkisstyrk til að heimsækja
grafirnar. Flutningaskipið „Hecla"
kom til Montevideo með 18 særða
Breta og 24 fanga.
Sjá: „Stanley í sjónmáli" bls. 24.
Sögulegri ferð
páfans er lokið
Cardifr, 2. júní. AP.
JÓHANNES PÁLL páfi II lauk
sögulegri BretlandsferA sinni í dag,
miAvikudag, eins og hann hóf hana
— meA áskorunum um einingu krist-
inna manna og bæn um friA á Falk-
landseyjum. „Ég kom hingaA sem
boAberi friAar til aA flytja fagnaAar-
erindi friðar og boAskap sátta og
kærleika," sagði hann við brottfor-
ina.
Páfi hefur ferðazt til níu
brezkra borga í sex daga heimsókn
sinni, hinni fyrstu sem kaþólskur
páfi hefur farið til Bretlands, og
talið er að tvær milljónir manna
hafi séð hann.
Á síðasta deginum, í Cardiff,
flutti Jóhannes Páll messu fyrir
100.000 manns, ávarpaði æsku-
lýðsfund sem 37.000 sóttu, ræddi
við kirkjuleiðtoga og var gerður að
heiðursborgara Cardiff, sem er
höfuðstaður hins forna fjalla-
furstadæmis Wales.
Á Cardiff-flugvelli spurði
fréttamaður hvaða minningar
hann tæki með sér. „Hinar beztu,
hinar beztu minningar," sagði páf-
inn.
Páfi kvaddi alla 56 biskupa
Bretlands og sagði við mannfjöld-
ann áður en hann steig upp í þotu
Caledonina-flugfélagsins: „Ég
færi ennþá einu sinni allri brezku
þjóðinni og sérstaklega hennar
hátign drottningunni mínar beztu
óskir.“
Jóhannes Páli hefur notað ferð-
ina á ýmsan hátt til að brúa 450
ára klofning kaþólsku kirkjunnar
og hinnar anglíkönsku. Erkibisk-
upinn í Kantaraborg, Robert
Runcie, sagði í dag að Jóhannes
Páll hefði komið til Bretlands sem
pílagrímur og spámaður. „Hann
hefur unnið hjörtu okkar með
kurteisi sinni, góðvild og auð-
mýkt,“ sagði hann.
írakskar þotur
yfír Teheran
Beirút, 2. júní. AP.
ÍRAKAR segja að herþotur þeirra
hafi rofiA hljóðmúrinn yfír Teheran
og hinni helgu borg Qom í dag, mið-
vikudag, i viðvörunarskyni, til þess
að sýna getu íraka að ná til hvaða
skotmarks sem er í fran og hræða
frani frá nýjum stórskotaárásum á
borgir og mannvirki í frak, eins og
segir í tilkynningu sem var birt í
Bagdad.
Irönsk yfirvöld viðurkenndu
þotuflugiö og sögðu að engum
sprengjum hefði verið varpað.
Teheran-útvarpið sagði að loft-
varnaflautur hefðu verið þeyttar
og íranskar þotur sendar í loftið til
að „reka óvinaflugvélar úr lofthelgi
okkar".
Þetta er í fyrsta sinn í rúmt ár
sem írakskar þotur hafa flogið svo
langt inn í Iran. Dregið hefur úr
lofthernaði þjóðanna síðan fyrst
eftir að stríð þeirra hófst. Þotu-
flugið í dag getur leitt til hefndar-
aðgerða Irana á sama tíma og
íraksstjórn vinnur að undirbúningi
leiðtogafundar óháðra ríkja í
Bagdad í september.
Síðan iranski herinn hrakti her-
lið íraka frá hafnarborginni
Khorramshahr fyrir 10 dögum
hafa írakar treyst mikið á fransk-
og sovézksmíðaðar herflugvélar
sínar til að vega upp á móti sigrum
írana á landi.