Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982 Áfengi og tóbak hækka um 10,5% ÁFENGI og tóbak hækkuðu að með- altali um 10,5% í gær og voru áfeng- isverzlanir lokaðar. íslenzkt brenni- vín hækkaði úr 211 krónum í 233 Sjávarborg tók niðri EITT nýjasta og fullkomnasta fiskiskip íslendinga, Sjvarborg frá Sandgerði, tók niðri á sker- inu Tösku fyrir utan höfnina á Rifi á Snæfellsnesi í fyrrinótt. Skipið losnaði að sjálfsdáðun af skerinu, en óhappið mun hafa viljað til með þeim hætti, að skip- ið fór öfugu megin við innsigl- ingarvitann. Töluverðar skemmdir urðu á Sjávarborg og dró björgun- arskipið Goðinn skipið til Njarðvíkur, þar sem það er nú í viðgerð hjá Skipasmíðastöð Njarðvíkur. Að sögn Þorsteins Baldvinssonar, framkvæmda- stjóra hjá skipasmíðastöðinni, þá eru skemmdir á Sjávarborg mun minni en menn áttu von á í upphafi. Að vísu brotnuðu öll botnstykki við fiskileitartækin undan skipinu og skrúfan er ónýt. Aðrar botnskemmdir eru ekki teljandi. Sagði Þorsteinn að viðgerð á skipinu myndi að líkindum taka 10 til 14 daga. krónur. Á einu ári hefur brennivín hækkað um liðlega 53%, en þann 2. júní í fyrra hafði nýlega orðið hækk- un á áfengi og tóbaki og var verð á íslenzku brennivini þá 152 krónur. Algengar Wiskey- og Vodkateg- undir hækkuðu úr 294 krónum í 325 krónur. Fyrir ári síðan kost- uðu þessar víntegundir 211 krónur og hafa hækkað um 54%. Meðal- dýrt rauðvín, Geisweiler Grand Vin, hækkaði úr 85 krónum í 94 krónur en kostaði fyrir ári 61 krónu. Loupiac, franskt hvítvín, hækkaði úr 61 krónu í 67 krónur en kostaði 44 krónur fyrir ári síð- an. Campari hækkaði úr 179 krón- um í 198 krónur en kostaði fyrir ári 129 krónur. Algengustu vindlingategundir hækkuðu úr 21,65 krónum pakkinn í 23,90 kr. Prince Albert píputóbak hækkaði úr 18,05 kr. í 19,95 kr. Þá hækkaði vindlapakki af Fauna- tegund úr 29,50 í 32,50. Viðskiptabankamir: Sala aðgöngumiða á atriði Listahátlðar hófst í gær og myndaðist þegar löng biðröð og náði hún frá Gimli út á Amtmannsstíg. (l.jósm, Guójón) Versnandi gjaldeyrisstaða ein ástæða minnkandi innlána Fjöldauppsagn- ir röntgentækna Á FÉLAGSFUNDI í Röntgentækna- félagi íslands 26. maí sl. var sam- þykkt einróma að röntgentæknar segðu allir upp störfum sínum. „Svo virðist sem þetta sé eina færa leiðin fyrir röntgentækna til að leggja áherslu á kröfur sínar,“ segir í frétt frá röntgentæknum. Röntgentæknar átelja viðsemj- endur fyrir lélega samninga und- anfarin samningstímabil, til handa heilbrigðisstéttum. Fyrir minnihlutahóp innan BSRB virðast því fjöldauppsagnir vera eina leiðin til að ná fram launahækkunum til jafns við aðra, eins og nú hefur sýnt sig undan- farið, segir ennfremur í fréttinni. „ÞAÐ ERU tvær megin ástæður fyrir slæmri stöðu viðskiptabank- anna við Seðlabankann. Annars- vegar er það minnkandi aukning innlána allar götur frá því í sept- ember í fyrra og hins vegar mikil aukning útlána frá því í maí á síð- astliðnu ári,“ sagði einn af for- svarsmönnum viðskiptabankanna í samtali við Morgunblaðið í gær, en eins og Mbl. skýrði þá frá, þá nem- ur skuld viðskiptabankanna við Seðlabanka nú um 500 milljónum króna, sem er mjög óvenjulegt á þessum árstíma. Viðmælandi Morgunblaðsins sagði, að á bak við minnkandi innlán væri síðan mjög versnandi gjaldeyrisstaða. Undanfarna mánuði hefði verið mikill halli á gjaldeyrisviðskiptunum, bæði hefði viðskiptajöfnunuðurinn verið mjög óhagstæður og til viðbótar hefði tiltölulega lítið af erlendum lánum komið inn. Þetta hefði áhrif á innlánastöðuna og 47 af aðildarfélögum ASÍ höfðu tilkynnt VSÍ um vinnustöðvun dag- ana 10. og 11. júní næstkomandi og eitt þann 11., þegar tilkynningafrest- ur rann út í gærkvöldi. Sé Sjó- reyndar einnig á útlánastöðuna. Sá maður sem Morgunblaðið ræddi við, sagði að erlenda stað- an skipti miklu máli í stöðu bank- anna nú. Eins og flestum ætti mannasambandið undanskilið eru aðildarfélög ASÍ 146 að tölu, þannig að 99 félög taka ekki þátt í verkfalls- aðgerðum ASÍ. Þá höfðu 14 félög boðað þátttöku í allsherjarverkfalli vera kunnugt um hefði engin út- flutningur verið á loðnuafurðum undanfarna mánuði, en svo virt- ist sem ekki væru allir búnir að átta sig á því. frá og með 18. júní, en frestur til verkfallsboðunar þá er ekki enn út- runninn. Meðal þeirra félaga, sem VSÍ hafði ekki borizt verkfallsboðun frá, eru Iðja í Reykjavík og verka- kvennafélagið Framsókn, en sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins sendu bæði félögin út verkfallsboð- un í gær. Eins og fram hefur komið hafa hvorki Iðja í Reykjavík, né verkakvennafélagið Framsókn boðað til verkfalls og ekki heldur verkalýðsfélög á Suðurnesjum, og verkalýðsfélög á Snæfellsnesi. Innan einstakra landssambanda er þátttakan í vinnustöðvuninni 10. og 11. júní þessi: Af 42 félögum með beina aðild innan ASÍ hafa aðeins 7 félög boðað verkfall, innan Landssambands iðnverkafólks hefur aðeins annað félagið boðað verkfall, Iðja á Akureyri, innan Landssambands íslenzkra verzl- unarmanna hafa 5 af 21 félagi boðað verkfall, en það eru stærstu féiögin í Reykjavík, Hafnarfirði og á Suðurnesjum, Landssamband vörubifreiðastjóra hefur boðað verkfall, af 23 félögum innan Málm- og skipasmiðja, hafði að- eins eitt boðað verkfall. Af 8 félög- un innan Rafiðnaðarsambandsins hafði ekkert félag boðað verkfall, af 18 félögun innan Sambands byggingamanna höfðu 12 boðað verkfall og af 46 félögum innan Verkamannasambandsins hafði 21 félag boðað verkfall. Vegna þessa hafði Morgunblað- ið samband við Þorstein Pálsson, framkvæmdastjóra VSÍ og sagði hann, að þetta sýndi að auðvitað væri verulegur brestur í þessum verkfallsaðgerðum og sýndi að það væri ekki stuðningur við þá verk- fallsgieði, sem ríkti innan ákveð- inna hópa í forustusveit verka- lýðsfélaganna. Braga Ásgeirssyni afhent bjartsýnisverðlaun Bröstes: „Ég hef jafnan reynt að líta á björtu hliðarnar“ Bjartsýnisverðlaun Bröstes voru í gær afhent við athöfn í Christian- havn og hlaut þau Bragi Ásgeirs- son listmálari, sem tók við þeim sjálfur. Verðlaun þessi eru afhent einu sinni á ári íslenskum lista- manni sem í list sinni opinberar bjartsýni. Voru þau nú veitt í ann- að sinn, í fyrra Garðari Cortes óperusöngvara og nú listmálara. Aðalræðumaður við afhendingu verðlaunanna var K.B. Andersen, fyrrum utanríkisráðherra Dana, en í hans augum hefur norræn menningarsamvinna jafnan skip- að háan sess. Gat hann þess að eitt fyrsta verk hans sem ráð- herra, hefði verið að leggja til í danska þinginu að íslending- um væru afhent handritin og að hann hefði margoft haft tækifæri til þess í ráðherratíð sinni að minna á sjónarmið íslendinga. Sagði hann það skemmtilegt að svo lítið land sem ísland gæti veitt slíkt fordæmi. — En er það svo lítið? spurði hann. — Hvað gerir land lítið? Landfræðileg stærð? Fólksfjöldinn eða aðrir auðmælanlegir þættir? Svo ein- falt er það nú ekki. ísland hefur lagt sitt fram í mennmgarverð- mætum í yfir 1000 ár. ísland hef- ur um aldir varðveitt margt af elstu og mestu bókmenntaverkum heimsins. Menningarlíf íslendinga er vel þekkt í Danmörku. Ég skal ekki telja upp öll nöfnin, en nefna má Halldór Laxness, Jóhannes Kjar- val og Pál ísólfsson. Einnig má bæta við að engin tilviljun er það að forseti Islands, Vigdís Finn- bogadóttir, kemur úr heimi leik- listarinnar og tók við af Kristjáni Eldjárn sem áður var þjóðminja- vörður. K.B. Andersen lauk máli sínu með því að segja að lífshlaup verðlaunahafans hefði átt sinn þátt í að gera ísland stórt. Peter Bröste forstjóri hafði áður boðið gesti velkomna, sem voru frá List- akademíunni og málaraskóla, danskir vinir Braga Ásgeirssonar úr stétt listamanna, ýmsir lista- menn og forráðamenn listasafna svo og íslendingar búsettir í Danmörku og Einar Ágústsson sendiherra. Las Bröste næst upp skeyti frá forseta íslands og nefndinni, þar sem getið var um ástæðurnar fyrir því að Bragi hlapt verðlaunin. Því næst las Erik Sönderholm, fyrrum for- stöðumaður Norræna hússins og vinur Braga Ásgeirssonar þakk- arorð frá listmanninum og sagði þar m.a.: Bragi Ásgeirsson hefur aldrei velt því fyrir sér hvort hann sé í eðli sínu bjartsýnis- eða svart- sýnismaður, ekki frekar en hann hefur velt vöngum yfir heyrnar- leysi sínu. Verkefni hans hafa verið svo krefjandi að þau hafa tekið hug hans allan. Hann hefur verið ánægður með samvinnu sína við ungt fólk í listsköpun, að sýna þeim að list er vald og að skap- andi starf gefi lífinu gildi. Hann hefur reynt sem list- gagnrýnandi að vera jákvæður og líta á björtu hliðarnar, en segja þrátt fyrir það hug sinn. Bragi segir einnig: Ég er mjög þakklát- ur fyrir þá löngun mína að skynja lífið kringum mig og sú skynjun kemur í stað skilningarvits, ég vil að minnsta kosti ekki skipta heyrninni fyrir þá skynjun. Einn- ig vildi hann þakka þessa viður- kenningu, sem hann vogaði sér ekki að halda að hann hefði til unnið. Gestum voru síðan bornar veitingar og nutu menn veður- blíðu í Christianhavn við undir- leik jazztónlistar. 47 af 146 ASÍ-félögum í verkfall 10. og 11. júní — verkfallsboðanir Iðju og Framsóknar bárust of seint

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.