Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982 19 heldur liðinu saman og þegar hún brestur tvístrast hópurinn. Það er stuðningurinn við ríkisstjórn Gunnars Thoroddsen sem nú hitt- ir þennan lausgyrta mótmælenda- flokk eins og pólitískt búmerang, og tvístrar honum. Og enn er ekki sagan sögð. Konurnar, sem nú fóru, kjósa aldrei aftur Alþýðu- bandalagið í sinni núverandi mynd. Vegna baráttugleði flokks- ins fyrir þessar kosningar hefur fáa grunað, að Alþýðubandalagið berst nú fyrir lífi sínu. En ef mót- mælahóparnir fara úr flokknum, eru engir eftir nema erkisósíalist- arnir og enginn venjulegur kjós- andi á nokkra pólitíska samleið með þeim. Sósíalisminn er dauður sem þjóðmálastefna, hann á ekk- ert erindi til nútímafólks, hann er einungis til sem pólitísk helgi- mynd, sem haldið er framan við hin raunverulegu áform. Og ekki þýðir fyrir Alþýðubandalagið að skipta um forystu. Sigurjón Pét- ursson er hæfur maður, sem ber höfuð og herðar yfir aðra stjórn- málamenn á vinstri væng borg- armála. Framtíðin er dökk hjá þessum flokki. Eins og venjulega munu þeir vinda sér í kaup- gjaldsbaráttuna til að hressa uppá fylgið, ekki sérlega frumlegt, verð- ur engum til góðs en öllum til tjóns, en þetta er eina aðferðin sem kommarnir kunna og þekkja, ef hún bregst eru þeir endaniega búnir að vera. Kvennaframboöið Á vinstri vængnum er jafnan mikil óánægja með gömlu flokk- ana, og rík hefð fyrir nýjum fram- boðum. Þetta skildu konurnar, spiluðu á þennan streng og fengu mörg atkvæði. í kosningabarátt- unni sýndu þær mikil hyggindi, hættu sér t.d. aldrei útí neina borgarmálaumræðu sem hefði vafalítið orðið þeirra pólitíski bani. Litlu munaði t.d., þegar full- trúi kvennanna í sjónvarpsum- ræðunni kvöldið fyrir kosningar fór að býsnast yfir því að ungt fólk væri að byggja sér raðhús. En kvennaframboðið er tímaskekkja og á enga framtíð fyrir sér sem slíkt. En sem jafnréttis- og friðar- flokkur eiga konurnar mikla framtíð fyrir sér og þá með karla jafnt sem konur í framboði. Ef það á fyrir kommúnistum að liggja að hverfa úr forystusveit ís- lenskra vinstrimanna, þá geta konurnar orðið til þess að bjarga jafnréttis- og friðarhugsjónum vinstri manna úr klóm hins deyj- andi bjarnar. Sjálfstæðisflokkurinn Sigur Sjálfstæðisflokksins yfir andstæðingum sínum er mikill, en mestur er sigur flokksins yfir sjálfum sér, sigur hans yfir klofn- ingi eigin forystumanna. í barátt- unni við sundurlyndið hefur ákveðið afl skarað fram úr, en það er fulltrúaráð sjálfstæðisfélag- anna í Reykjavík. Þessi hópur hef- ur sýnt tvímælalausa hollustu við flokkinn og hugsjónir hans og órofa samstöðu á hverju sem gekk. Jafnframt hefur málefnum verið stýrt af ákveðni og festu. Ber þar hæst þá ákvörðun að binda þátt- tökurétt í prófkjöri við flokksað- ild. Þessi ákvörðun var tekin gegn næstum samstilltri andstöðu allra frambjóðenda flokksins, en með samþykki næstum allra annarra. Hin ótvíræða samstaða almennra flokksmanna um þetta mál sýndi að hópurinn verður ekki klofinn. Má þarna greina upphafið að endurreisn Sjálfstæðisflokksins, síðan fylgdi Landsfundurinn, að honum loknum voru flokksmenn samstilltir og ákveðnir. Þeir hófu til vegs og virðingar nýjan for- ingja sem fólkið vildi fylgja og þá var sigurinn í höfn. Davíð Oddsson er kraftmikill maður sem hófst af sjálfum sér innan Sjálf- stæðisflokksins, hann er ekki arf- taki eins eða neins. Stóra spurn- ingin var, hvernig honum mundi reiða af í kosningabaráttunni. Stór hópur kjósenda var óákveð- inn fram á síðustu stund, en þegar þeir sáu að hér var á ferðinni mað- ur með þekkingu og greind til að rökræða við andstæðingana og ennfremur hyggindi og reynslu til að gera ekki mistök, þá gerðu þeir upp hug sinn og veittu Sjálfstæð- isflokknum sigur. Slæleg fram- ganga borgarstjóraefnisins í kosn- ingabaráttunni hefði gert allar sigurvonir að engu. En Davíð Oddsson reyndist vandanum vax- inn, í þrotlausri kosningabaráttu sem mikið lagði á alla frambjóð- endur tókst honum að sameina kraftana svo um munaði. Þessi þróttmikla framganga sjálfstæð- ismanna í Reykjavík hafði áhrif út um allt land og hefur án nokkurs efa átt sinn stóra þátt í almennum sigri flokksins. Sjálfstæðisflokk- urinn átti góða frambjóðendur úti á landi og víðast hver unnu þeir á. Slæleg framganga í Reykjavík hefur verið óskaplegur dragbítur á baráttu þeirra. Hvert stefnir? Stjórnmálaflokkarnir þurfa nú að móta afstöðu sína til aðkallandi vandamála þjóðarinnar. Fram- leiðsla fér minnkandi og lífskjör versnandi. Sjávarútvegurinn hef- ur frá áramótum búið við afla- brest sem á eftir að hafa skelfi- legar efnahagslegar afleiðingar. Góðærið er búið, að minnsta kosti í bili. Við þessar aðstæður er mikil nauðsyn að borgararnir sameinist um að skjóta fleiri stoðum undir atvinnulífið og létta af því höftum í anda frjálslyndrar umbóta- stefnu. En mjög er ólíklegt að kratar og Framsókn fáist til slíks. Þvert á móti er líklegt að verka- lýðsforingjar allaballa og krata muni sameinast um að knýja fram nýjar kauphækkanir. Kratar reyna með þessu að fella ríkis- stjórnina, allaballar reyna að láta hana sanna slagorðið að kosningar séu kjarabarátta. Kauphækkanir nú munu framkalla svipaðan topp í kaupmáttarlínuritið og sólstöðu- samningarnir frægu gerðu, en sá kaupmáttarauki hverfur auðvitað strax aftur því fyrir honum er ekkert til. Þá munu verkalýðsfor- ingjarnir reyna að vekja upp kaupránskórinn frá 1978, en hann færði allaböllum og krötum mik- inn kosningasigur þá. Þessar að- gerðir allar leiða auðvitað til enn frekara efnahagsöngþveitis, sem aðilar vinnumarkaðarins geta síð- an kennt ríkisstjórninni um með samdóma yfirlýsingum. Þetta finnst áreiðanlega mörgum kald- ranaleg lýsing á stöðu þjóðmála, en þetta er nú það ástand sem við höfum búið við, og munum búa við, svo lengi sem ríkisstjórnin lætur hafa sig í það að taka ábyrgð á kjarasamningum á vinnumarkaðinum. Þessari ábyrgð getur ríkisstjórnin hvort eð er ekki staðið undir eðli málsins samkvæmt, svo með því að vera að taka hana á sig gerir hún ekkert annað en firra aðila vinnumarkað- arins þeirri ábyrgð sem þeim ber að axla, á efnahagslegri velferð þjóðarinnar. Hvað gerir stjórnin? I ríkisstjórninni hafa flestir ráðherrar haft mikil hlutverk nema aðallega einn, forsætisráð- herra, dr. Gunnar Thoroddsen. Mun nú senn koma að hans þætti. Gunnar hefur lengi haft í undjr- búningi frumvarp að nýrri stjórn- arskrá þar sem meðal annars er gert ráð fyrir fleiri þingmönnum til handa þéttbýlinu. Þetta frum- varp mun forsætisráðherra leggja fram í fyllingu tímans. Verði frumvarpið samþykkt á Alþingi þarf stjórnskipan samkvæmt að rjúfa þing og efna til nýrra kosn- inga. Þær kosningar gætu snúist um stjórnarskrármál líkt og gerð- ist 1959. Þetta mundi óhjákvæmi- lega draga athyglina frá kaup- ránskórnum og kjarabaráttunni svokölluðu, sem reyndar flestir eru búnir að sjá að er ekki annað en atkvæðaveiðar vinstri flokk- anna. í þessari baráttu munu sjálfstæðismenn væntanlega reyna að standa saman í stjórn- arskrármálinu. Það er sameigin- legt áhugamál stjórnarsinna og stjórnarandstæðinga í Sjálfstæð- isflokknum að leysa stjórnar- skrármálið. Sú lausn sem boðið er uppá er ekki sérlega góð, en hún er betri en ekki neitt. Það er því góð von til að í næstu þingkosningum muni sameinaðir sjálfstæðismenn sigra enn á ný. Þessar kosningar verða væntanlega fyrir áramót. Listahátíð í Reykjavík 5.-20. júní, 1982 ÞRIÐJUDAGUR 8. JUNI LAUGARDAGUR 12. JUNI DAGSKRÁ LAUGARDAGUR 5. JÚNÍ kl. 20:00 Þjóöleikhúsið Silkitromman Frumsýning á nýrri óperu eftir Atla Heimi Sveinsson og Örnólf Árnason Leikstjóri Sveinn Einarsson Hljómsveitarstjóri Gilbert Levine SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ kl. 16:00 Norræna húsiö Trúðurinn Ruben Fyrri sýning sænska trúösins Rubens kl. 20:00 Gamla Bíó Flugmennirnir Frönsk leiksýning meö Farid Chopel og Ged Marlon kl. 20:30 Norræna húsiö Vísnasöngur Olle Adolphson syngur sænskar vísur Fyrri tónleikar. MÁNUDAGUR 7. JÚNÍ kl. 20:00 Þjóðleikhúsið Silkitromman Ný ópera eftir Atla Heimi Sveinsson og Örnólf Árnason Önnur sýning kl. 21:00 Háskólabíó Tónleikar Gidon Kremer og Oleg Maisenberg leika á fiölu og píanó kl. 20:00 Gamla Bíó Úr aldaannál Sýning Litla leikklúbbsins á nýju leikriti eftir Böðvar Guðmundsson Leikstjóri Kári Halldór kl. 20:00 Þjóðleikhúsið Silkitromman Ný ópera eftir Atla Heimi Sveinsson og Örnólf Árnason Síöasta sýning á Listahátíö kl. 20:30 Norræna húsið Vísnasöngur Olle Adolphson syngur sænskar vísur Síöari tónleikar MIÐVIKUDAGUR 9. JÚNÍ kl. 19:00 Laugardalshöll Tónleikar Sinfóníuhljómsveit íslands Stjórnandi David Measham Einleikari James Galway, flauta FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ kl. 20:00 Þjóöleikhúsið Bolivar Rajatabla-leikhúsiö frá Venezuela Leikstjóri Carlos Giménez Fyrri sýning kl. 21:00 Laugardalshöll Hljómleikar Breska popp-hljómsveitin The Human League Fyrri hljómleikar kl. 16:00 Norræna húsið Trúðurinn Ruben Síöari sýning sænska trúösins Rubens kl. 20:00 Þjóðleikhúsið Bolivar Rajatabla-leikhusiö frá Venezuela Leikstjóri Carlos Giménez Síöari sýning kl. 21:00 Laugardalshöll Hljómleikar Breska popp-hljómsveitin The Human League Siöari hljómleikar SUNNUDAGUR 13. JÚNÍ kl. 15:00 Háskólabíó Tónleikar Kammersveit Listahátíöar, skipuöungu íslensku tónlistarfólki, leikur undir stjórn Guðmundar Emilssonar kl. 21.00 Gamla Bíó African Sanctus Passíukórinn á Akureyri MÁNUDAGUR 14. JÚNÍ kl. 20:00 Þjóðleikhúsið Forseti lýðveldisins Rajatabla-ieikhúsiö frá Venezuela Leikstjóri Carlos Giménez Fyrri sýning ÞRIÐJUDAGUR 15. JÚNÍ kl. 20:00 Þjóðleikhúsið Forseti lýðveldisins Rajatabla-leikhúsið frá Venezuela Leikstjóri Carlos Giménez Siöari sýning MIÐVIKUDAGUR 16. JÚNÍ kl. 21:00 Háskólabíó Tónleikar Einleikur á píanó: Zoltán Kocsis FÖSTUDAGUR 18. JÚNÍ kl. 20:30 Gamla Bíó Tónleikar Breska kammersveitin The London Sinfonietta leikur LAUGARDAGUR 19. JÚNÍ kl. 20:30 Leikfélag Reykjavíkur Skilnaöur Frumsýning á nýju leikriti eftir Kjartan Ragnarsson, sem einnig er leik- stjóri SUNNUDAGUR 20. JÚNÍ kl. 17:00 Laugardalshöll Tónleikar Sinfóníuhljómsveit íslands Stjórnandi Gilbert Levine Einsöngvari Boris Christoff, bassi kl. 20:30 Leikfélag Reykjavíkur Skilnaður Önnur sýning á nýju leikriti eftir Kjartan Ragnarsson Aðgöngumiðasala í Gimli opin alla daga kl. 14-19:30 Sími: 29055

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.