Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 48
Síminn á afgreiöslunni er
83033
Sími á ritstjórn og skrifstofu:
10100
JltorgttnMittofr
FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982
Ljómn. KrÍMtján Örn.
Jafntefli vard, 1:1, í landsleik fslendinga og Englendinga 1 knattspyrnu i Laugardalsvelli í gærkvöldi og er þessi árangur íslenzka liðsins einn si albezti,
sem íslenzkt landslið hefur náð. Arnór Guðjohnsen skoraði mark íslands í fyrri hilfleik, en Paul Goddard niði að jafna fyrir Englendinga í síðari
hálfleik. Á myndinni sést knötturinn sigla yfir marklínu enskra eftir skot Arnórs, sem er að hálfu falinn á myndinni. Sji ninar i íþrótlasíðum.
Kröftir VMSÍ koma í veg
fyrir heildarlausn mála
Búpeningur
a gjof 1
244 daga
Húsavík. 2. júní.
244 DAGA hefur allur búpeningur
verið á gjöf hjá mörgum bændum
hér í sýslunni, en þrátt fyrir það og
mikla vorkulda hefur sauðburður al-
mennt gengið vel og heyleysi ekki
verið tilfinnanlegt þó miðla hafi orð-
ið milli bæja. Vanalegt er að kýr séu
i svo langri gjöf, en óvanalegt að svo
sé með sauðfé.
í gær og dag hefur heldur hlýn-
að og, ef nú er bregða til betri
tíðar, er ekki vonlaust um sæmi-
lega grassprettu, því nýtt kal í
túnum er ekki tilfinnanlegt. Það
má segja að allur groður sé mán-
uði á eftir því, sem venjulegt er.
MMarttarL
Aðeins veður-
og neyðar-
þjónusta í
útvarpinu?
T/EKNIMENN útvarps hætta störf-
um í dagskrárlok i kvöld og mæta
ekki til vinnu fyrr en samningar tak-
ast eða viðhorf viðsemjenda breytast.
Tæknimennirnir tilkynntu útvarps-
stjóra þessa ákvörðun í gærmorgun,
en í gærkvöldi höfðu tæknimennirnir
ekki verið boðaðir til fundar að sögn
Þóris Steingrímssonar. Hann sagði,
að tæknimennirnir myndu i dag bjóða
útvarpinu vinnu, þannig að veður-
fregnir og almannavarnatilkynningar
yrðu sendar út.
Tæknimennirnir höfðu sagt upp
frá og með 1. júní, en ákváðu síðan
að fresta útgöngu þar sem viðræður
voru komnar af stað. Þær sigldu
síðan í strand í fyrradag og á fundi
tæknimanna var ákveðið að ganga
út í dagskrárlok í kvöld. Þórir
Steingrímsson sagði, að ríkið vildi
ekki semja við tæknimennina held-
ur semja í einu lagi við Starfs-
mannafélag útvarpsins. Félagið í
heild sinni væri hins vegar ekki til-
búið til slíks nú.
SAMNINGANEFNDIR vinnuveit-
enda og Alþýðusambandsins situ
fund með sittasemjara í gær og lýsti
Þorsteinn Pilsson, framkvæmda-
stjóri VSÍ, honum sem algjörlega til-
gangslausum. Þorsteinn sagði, að
hugmyndir um lausn kjaradeilunnar
strönduðu á forystumönnum Verka-
mannasambands íslands, sem virt-
ust „ætla að keyra þjóðina í eitt alls-
herjarverkfall".
Guðmundur J. Guðmundsson, for-
maður Verkamannasambandsins,
sagðist viðurkenna að nú um sinn
a.m.k. hindruðu kröfur Verka-
mannasambandsins hraða í lausn
mála og hvassara væri á milli VSÍ
og VMSÍ heldur en ASÍ og vinnu-
veitenda. „Það má vera, að við verð-
um ásakaðir fyrir einhverja
ósanngirni í sambandi við þessa
samninga og einhverja hörku, við
tökum því meðan við erum ekki
ásakaðir um það af okkar félags-
mönnum," sagði Guðmundur.
í gærkvöldi höfðu 47 af aðildar-
félögum ASÍ tilkynnt VSÍ um
vinnustöðvun dagana 10. og 11. júní
og eitt um verkfall þann 11. Sé Sjó-
mannasambandið undanskilið eru
aðildarfélög ASÍ 146 að tölu. Þá
höfðu 14 félög tilkynnt um vinnu-
stöðvun frá og með 18. júní, en
frestur til verkfallsboðunar þá er
ekki útrunninn.
Þorsteinn Pálsson sagði, að
greinilegt væri að verulegur brestur
væri í þessum verkfallsaðgerðum
og ekki stuðningur við þá verkfalls-
gleði, sem ríkti innan ákveðinna
hópa í forystusveit verkalýðsfélag-
anna. Ásmundur Stefánsson, for-
seti ASÍ, sagði hins vegar, að enn
væri ekki ljóst hver þátttaká í verk-
föllunum yrði. Flest stóru félag-
anna tækju þátt í báðum verkföll-
unum og samstaða næðist þó ein-
hver af smærri félögunum tækju
ekki þátt í þeim.
í umræðum aðila undanfarna
daga hafa vinnuveitendur boðist
til að koma til móts við kröfur
Verkamannasambandsins. Þor-
steinn Pálsson sagði, að vinnuveit-
endur hefðu lagt sig fram um að
finna flöt á málinu svo heildar-
lausn næðist. Hlustað hefði verið
á hugmyndir forystumanna ASÍ
þar að lútandi, en lausn málsins
strandaði á forystu VMSÍ.
Sjá nánar á miöopnu og
blaðsíðu 2.
Taxti vinnuvéla
hækkar um 20%
Á FUNDI í verðlagsráði í gær
voru samþykktar tvær hækkun-
arbeiðnir, en afgreiðslu á öðrum
hækkunarbeiðnum var frestað til
fundar í næstu viku. Samþykkt
var 21% hækkun á ferðum milli
Reykjavíkur og Hafnarfjarðar
með Landleiðum og 20% hækkun
á taxta vinnuvéla.
„Við sömdum bara lag til
aÖ halda á okkur hita“
Níu strákar af Seltjarnarnesi í hrakningum á Bakkavör á Seltjarnarnesi
„JÁ, VIÐ erum sko ekkert á því að
hætta,“ sögðu þrír ungir og gal-
vaskir „sæfarar" er við höfðum tal
af þeim í gær. Þetta voru þeir Jón
Arnar Reynisson 10 ára, Stefán
Guðmundsson 11 ára og Ásgeir
Benónýsson 11 ára, sem í gær-
morgun lentu í hrakningum á
Bakkavör á Seltjarnarnesi. Þar
voru þeir á siglinganámskeiði
ásamt sex félögum sínum.
„Við vorum kannski ekkert
hræddir, fyrst var þetta
skemmtilegt, en svo fór nú
glansinn af eftir að við vorum
búnir að vera 45 mínútur blautir
um borð. Það var alveg ferlega
kalt.“
Stefán og Ásgeir voru tveir
saman á litlum bát sem rak frá
landi, en kváðust hafa verið
alveg óhræddir, „við sömdum
bara lag til að halda á okkur
hita,“ sögðu þeir og brostu. Jón
Arnar var hins vegar á litlum
„kanó“, sem hvorki eru byggðir
fyrir veður né vinda og gekk því
ekki eins vel. Hann kvaðst alls
IJéM. krttján Ura.
Jón Arnar, Ásgeir og Stefán, þrlr piltanna sem lentu I hrakniagum í
sjónum við Seltjarnarnes. í gærkvöldi voru þeir hins vegar meðal áhorf-
enda á Laugardalsvelli.
ekki geta neitað því að hafa orð-
ið skelkaður en allir kváðust þeir
hafa veri vissir um það allan
tímann að þetta myndi bjargast
og í gærkvöldi virtust piltarnir
níu hafa náð sér eftir volkið.
Ingimundur Helgason lög-
reglumaður á Seltjarnarnesi
sýndi mikið snarræði og dugnað
við björgun piltanna, en í sam-
tali við Mbl. vildi hann ekki
gera mikið úr afreki sínu. „Mér
bárust tíðindin um klukkan
10.20, en þegar ég kom á staðinn
sá ég að þarna voru þrír bátar í
vandræðum, tveir fullir af sjó og
einn á hvolfi og utan á honum
héngu tveir strákar, ungir að ár-
um. Strákarnir lögðust báðir til
sunds, en annar hætti fljótlega
að synda þrátt fyrir stöðug
hvatningaróp okkar sem í landi
stóðum. Mér hætti þá að lítast á
blikuna og synti út eftir honum,
en hinn komst nær landi og var
honum bjargað í land af þeim
sem þar voru.“
Sjá nánar á miðopnu.