Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 03.06.1982, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. JÚNÍ 1982 11 Samkomulagið um landgrunnið við Jan Mayen: Gekk formlega í gildi í gær SAMKOMULAG milli fslands og Noregs um landgrunnið á svæðinu milli íslands og Jan Mayen sem undirritað var í Osló 22. október sl. gekk í gildi í gær. Samkomulagið var háð staðfest- ingu íslenskra og norskra stjórn- valda. Alþingi veitti heimild til staðfestingar 18. des. sl. og Stór- þingið og ríkisráð Noregs í síðustu viku. Á fundi Ólafs Jóhannessonar, utanríkisráðherra, og Annemarie Lorentzen, sendiherra Noregs í Reykjavík, í gær var skipst á orð-\ sendingum um gildistöku sam- komulagsins. Bólstaðarhlíðarhreppur og iðnaðarráðuneytið: Samningar hafa tek- izt um Blönduvirkjun Bólstaðarhlíðarhreppur gerð- ist í gær aðili að þeim samningi um Blönduvirkjun sem áður var undirritaður af fulltrúum fimm hreppsnefnda á virkjunarsvæði Blöndu og virkjunaraðilar 15. mars sl. og staðfestur var að iðnaðarráðherra og síðar ríkis- stjórn. Gengið var frá formsatriðum varðandi samninginn í iðnaðar- ráðuneytinu í gær, en það voru Pétur Sigurðsson á Skeggstöðum og Sigurjón Guðmundsson á Foss- um sem undirrituðu samninginn f.h. Bólstaðarhlíðarhrepps. Sam- þykkt hreppsnefndarinnar var gerð á fundi 26. maí sl. og var hún samhljóða hvað varðar öll atriði samningsins. Þar með hafa náðst samningar við allar hlutaðeigandi hrepps- nefndir, en enn er eftir að semja við ýmsa einkaaðila um þeirra hagsmuni svo og við veiðifélög á virkjunarsvæðinu. Hreppsnefndunum ber að til- nefna fulltrúa í samráðsnefnd, sem ásamt virkjunaraðila á að vera ráðgefandi um mál er snerta hagsmuni beggja, bæði varðandi byggingu og rekstur virkjunarinn- ar. Þessar tilnefningar eru þegar farnar að berast. Rafmagnsveitum ríkisins var í júlí 1980 falið að vera virkjunar- aðili við Blöndu í nánu samráði við Landsvirkjun, en enn hafa ekki farið fram samningar milli þess- ara aðila, þar eð þetta mál tengist víðtækari samningum við Lands- virkjun. Ríkisstjórninni er í lögum um raforkuver veitt heimild til að semja við Landsvirkjun um að reisa og reka vatnsaflsvirkjanir sem lögin taka til, en þar á meðal er Blönduvirkjun. Þar til þeir samningar hafa tekist hafa Raf- magnsveitur ríkisins með höndum rannsóknir, hönnun og undirbún- ingsframkvæmdir í nánu samráði við Landsvirkjun. Mrahamar, Stykklahólmi, EpliA, ftafirói, RAM, Húaavfk, Skógar, EgHaatóóum, Umboðsmenn um land allt Caaar, Akurayri, Fataval, Kaflavfk, Lindin, Satfoaai, Óðinn, Akranaai, BAran, Grindavik, DakkóaiA llalnaifli M tvBKnu»K), namamrcH, Eyjabaar, Vaatmannaayjum, fabjðminn, Borgamaai, LEA, Ólafavik, Paf,Ana RatraLaflrAI rairona, rairvKtnrcM, ÁlfhóH, Siglufirói, Palóma, Vopnafirói, « n.111,1. — , flayAaifiiAI aUwWuflri vw]fvinwui| Kaupfél. Rangainga, aa__a___aai rlTOIIyVill, Aþana, BMnduóai.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.